Tíminn - 03.07.1945, Page 6

Tíminn - 03.07.1945, Page 6
6 TÍMITVTM, þriðjndagiim 3. |úlí 1945 49. blað Sjötugur: Ásmundur Jóhannsson bygglngameistari í Wiimipeg. Aðalfundur Kaupfélags Hrútfírðinga Ásmundur P. Jóhannsson, byggingameistari í Winnipeg, verður sjötugur þann 6. júlí n. k. Ásmundur er fæddur og uppal- inn norður í Miðfirði í Vestur- Húnavatnssýslu og er af góðu bændafólki kominn í báðar ætt- ir. Jóhann Ásmundsson, faðir hans, bjó á Haugi í Fremri- Torfastaðahreppi. Ásmundur lærði og lagði stund á trésmíði í æsku og þótti brátt afbragð annarra manna bæði hvað framúrskarandi dugnað og hag- sýni snerti. Hann kvæntist ungur hinni ágætustu konu, Sigríði Jónasdóttur, bónda á Húki í Miðfirði. Fluttust ungu hjónin vestur um haf til Can- ada um síðustu aldamót og reistu bú í Winnipegborg í Manitobaríki. Ferðir vestur voru hvergi nærri eins auðveldar í þá daga eins og nú er orðið, jafnvel þótt ekki sé farið í lofti. Hefi ég heyrt Ásmund lýsa því, að svo illt var ástandið á skipi því, sem þau hjónin fóru með, að upp- reisn varð meðal útflytjenda, sem voru með skipinu frá meg- inlandi Evrópu og tókst aðeins með naumindum að afstýra hinJ um mestu vandræðum. Skipin, sem farið var með vestur, voru bæði lélegri og minni en nú tíðkast, og aðbúnaður allur miklu verri. Þega.r vestur var komið með tvær héndur tómar að heita mátti, var mjög erfitt að komast í góða atvinnu, og varð Ásmundur því^ að sæta hvers konar vinnu sem bauðst, fyrstu mánuðina, en komst þó brátt að við húsabyggingar, en vann sig með framúrskarandi dugnaði sínum og góðri og hag- sýnni heimilisstjórn Sigríðar konu sinnar upp í allgóð efni á fyrstu 7 árunum fyrir vestan. Árið 1907 skrapp Ásmundur svo heim til íslands snögga ferð og svo aftur árið 1913. í þriðja sinn kom Ásmundur svo heim til íslands árið 1921, en síðan kom hann oft heim þangað til árið 1940, er hann var síðast hér heima. Hagur Ásmundar blómgvað- ist mjög og hefir hann nú síð- ustu 25 árin jafnan verið tal- inn meðal bezt efnuðu Vestur- íslendinga. Byggði hann um tíma allmikið af húsum í Winni- peg. Ásmundur á fallegt íbúðar- hús, sem er nr. 910 við Palmer- ston Avenue í Winnipeg, sem mun flestum íslendingum, sem vestur koma, kunnugt, því Ás- mundur er gestrisinn með af- brigðum. Þau hjónin, Ásmundur og Sigríður, eignuðust þrjá sonu, sem allir eru fæddir vestan hafs: Jónas- Walter, kaupsýslumað- ur, Kári Wilhelm, málarameist- ari og eftirlitsmaður með hús- eignum þeirra feðga í Winnipeg, og Grettir Leó, ræðismaður ís- lands og Danmerkur í Winni- peg. Eru þeir allir hinir ágæt- ustu menn og miklir íslandsvin- ir. Guðrún, síðari kona Ásmund- ar, er ættuð úr Mýrasýslu, en fór barn vestur um haf. Guð- rún er hin ágætasta kona og er heimili þeirra hjóna sama fyrir- myndin í höndum hennar, sem það var í tíð fyrri konu Ásmund- ar. Guðrún hefir komið hingað heim til íslands með Ásmundi. Ég efast um, að nokkur ís- lendingur vestan hafs hafi unn- ið jafn mikið starf í þágu þjóð- ræknishreyfingarinnar og Ás- mundur, að öllum öðrum ó- löstuðum, og hafa þó margir á- gætir Vestur-íslendingar leyst þar framúrskarandi starf af hendi. Alltaf er Ásmundur full- ur af sama brennandi áhuga fyrir öllu því, sem íslandi má að gagni koma og íslenzkum mönn- urh vestan hafs og austan. Al- kunn er hér heima þátttaka hans í stofnun Eimskipafélags- ins og seta hans í stjórn félags- ins frá því árið 1922 og síðan. Þá átti Ásmundur mikinn þátt í því að sjá um að heimferð Vestur-íslendinganna 1930 færi vel úr hendi og lagði á sig mikið starf í því skyni. Vestanhafs hefir hann verið sívakandi í starfi Þjóðræknisfélagsins og hjálparhella á mörgum sviðum. Ég hygg t. d., að það sé ekki hvað sízt Ásmundi að þakka, að blað- ið Lögberg, sem komizt hafði í erfiðleika á kreppuárunum, hélt áfram að koma út í sömu stærð og áður. Það getur vel skeð, að íslenzka þjóðarbrotið í Vestur- Ásmundur Jóhannsson. heimi eigi eftir að drukkna í hinu mikla $jóðahafi þar, en það verður þó a. m. k. ekkí sagt, að þjóðræknir íslendingar fyrir vestan og meðal þeirra tel ég Ásmund einna fremstan, hafi ekki gert allt, sem í þeirra valdi stóð til þess að viðhalda íslenzkri tungu og íslenzkri menningu meðal íslendinga vestan hafs, bæði þeirra, sem þangað fluttu og þeirra, sem þar voru fæddir. íslenzka þjóðin mun þess vegna minnast forgöngumanna þjóð- ræknishreyfingarinnar fyrir vestan með hlýjum huga. Þeir eru margir hér heima á íslandi, sem mundu fegnir vilja taka í höndina á Ásmundi nú á þessum merkisdegi ævi hans. Þó ég viti það, að það muni eigi skorta á, að Ásmundur verði heiðraður meðal íslendinga og annarra vina í Winnipeg á föstu- daginn kemur, þá grunar mig að hugurinn muni svífa heim til allra kunningjanna heima á ís- landi og ekki hvað sízt átthag- anna norður í Miðfirði og allra gömlu kunningjanna þar. Gæti ég trúað, að hann hugsi þá, að gaman væri „aftur að fara í göngur“, en hann hefir nokkr- um sinnuip farið í göngur á Miðfjarðarheiðum síðan hann fluttist vestur og minnist jafn- an gangnanna með mestu ánægju. Vinir Ásmundar hér heima senda honum og fjölskyldu hans hjartanlegar þakkir og heilla- óskir á sjötugsafmæli hans. Sigurður Jónasson. Songfor Breíðfírð- íngakórsíns Breiðfirðingakórinn kom til Reykjavíkur úr söngför sinni um Dali og Breiðafjörð síðastl. mánudagskvöld, og hafði ferða- lagið tekizt með ágætum. Lagt var af stað í ferðina frá Reykjavík að morgnl hins 22. þ. m. og ekið til Búðardals og sungið þar um kvöldið fyrir fullu húsi og við ágætar undir- teJstir áheyrenda. Allar söng- skemmtanirnar hófust með á- varpi fararstjórans, formanns Breiðfirðingafélagsins, Jóns Emils Guðjónssonar. Skýrði hann tilgang fararinnar og kynnti kórinn og starfsemi hans. Sama kvöld söng kórinn einnig að Kirkjubóli 1 Saurbæ fyrir fjölda fólk og við ágætar undir- tektir. Daginn eftir, var sungið í Berufirði. Næsta dag, sunnu- dag, var sungið í Flateyjar- kirkju við ágætar undirtektir áheyrenda, en um kvöldið söng kórinn í Stykkishólmi og var að endurtaka sönginn aftur sama kvöldið vegna mikillar aðsókn- ar. Morguninn eftir var lagt af stað til Reykjavíkur og komið þangað kl. 10 um kvöldið, sem fyrr segir. í Breiðfirðingakórnum eru nú 34 söngmenn og konur, söng- stjóri hans er Gunnar Sigur- geirsson, en einsöngvarar þau ungfrú Kristín Einarsdóttir og Haraldur H. Kristjánsson. Far- arstjóri í ferðinni var Jón Emil Guðjónsson, formaður Breið- firðingafélagsins í Reykjavík' Aðalfundur Kaupfélags Hrút- firðinga var haldinn laugardag- inn 26. maí Sala erlendra vara nam kr. 560 þúsundum og hafði aukizt um kr. 120 þúsund frá s. 1. ári. Samþykkt var að greiða fé- lagsmönnum 5% i arð auk 3% í stofnsjóð. Eftirfarandi ályktun var gerð um áburðarverksmiðjumálið: „Aðalfundur Kf. Hrútfirðinga, haldinn 26. maí 1945, telur að stofnkostnaður og rekstur á- burðarverksmiðju sé svo stór- brotið fyrirtæki, að sjálfsagt sé, að það verði framkvæmt af hálfu hins oplnbera, og skorar fundurinn á ríkisstjórnina að hefja nú þegar gagngerðar framkvæmdir í þessu máli. Geti ríkisvaldið hins vegar ekki fallizt á að ráðast i þetta fyrirtæki, telur fundurinn æski- legt, að S. í. S. taki til ýtarlegrar athugunar, hvort það sjái sér ekki fært, ásamt þátttöku kaup- félaganna, að ráðast í þessa framkvæmd, og þá að því á- skildu, að ríkið leggi fram það mikinn styrk til framkvæmd- anna, að vænta megi, && verk- smiðjan geti örugglega borið sig. Ennfremur vill fundurinn Aðalfundur Útvegsbanka ís- lands h. f. var haldinn í húsa- kynnum bankans 8. þ. m. Reikningur bankans fyrir síð- astliðið ár var lagður fram og gaf formaður fulltrúaráðsins, Stefán Jóh. Stefánsson, forstjóri í sambandi við hann skýrslu um starfsemi bankans á árinu, og gerði samanburð við árið á und- an. Fara hér á eftir nokkur at- riði úr reikningunum; tölurnar innan sviga eiga við árið 1943. Sparisjóðsinnistæður’’ námu 31. des. 1944 rúmum 83,6 milj. (64,6 milj.). Hafa aukizt um rúmar 17 milj. kr. Hlaupareikn- ingsinnistæður 66.8 milj. (49.8 milj.) — aukning 16.9 milj. Sparisjóðs- og hlaupareiknings- innistæður hafa á þá aukizt á árinu um 33.9 milj. og er það heldur meiri aukning en orðið hafði undanfarandi ár, eri þá nam hún 28% milj. Víxlar/voru 76.1 milj. (63.2 milj.) — aukning 12.8 milj. Skuldir á hlaupareikn- ingi 28.6 milj. (17.7 milj.) — hækkun 13,8 milj. Reikningslán 11.2 milj. (7.5 milj.). Samtals námu útlán bankans rúmum 123 milj. og höfðu auk- izt um ca. 30 milj. á árinu. Innistæður erlendis voru 24.2 milj. (27.9 milj.) Vorþing Umdæmisstúkunnar nr. 1 var háð hér í Reykjavík dagana 26. og 27. maí. Sátu það 111 fulltrúar úr Suðurlandsum- dæminu og voru þeir frá 2 þing- stúkum, 16 undirstúkum og 5 unglingastúkum. Samkv. skýrslu umdæmis- templars hefir félögum í undir- stúkum í umdæminu fjölgað um 500 á árinu sem leið, en alls munu nú vera um 6000 Templ- arar í Suðurlandsumdæmi. Tvær nýjar undirstúkur voru stofnaðar á árinu, önnur að Sel- fossi, hin í Hveragerði og hafa þær stöðugt verið að auka fé- lagatölu sína. Auk þess var stofnuð þingstúka fyrír Rangár- þing. Af samþykktum þingsins má geta um þetta: 1. Áskorun til bæjarstjórnar Reykjavíkur um að rannsaka hver áhrif, meninngarleg og leggja ríka áherzlu á, að þegar ráðizt verður í að reisa áburðar- verksmiðjuna, þá verði vinnslu- afkastamöguleikar hafðir það ríflegir, að öruggt þyki, að þeir fullnægi að minnsta kosti inn- lendri þörf í fyrirsjáanlegri framtíð, þótt fullt tillit sé tekið til þeirra stórstígu ræktunar- framkvæmda, sem nú virðist nauðsynlegt að gerðar verði á næstu árum“. Eftirfarandi ályktun var gerð um veltuskattinn: „Aðalfundur Kf. Hrútfirð- inga, haldinn að Borðeyri 26. maí 1945, vítir harðlega laga- setningu síðasta Alþingis um hinn svokallaða „veltuskatt" og telur fundurinn, að með honum séu þegnar þjóðfélagsins rang- lega skattlagðir, miðað við greiðslugetu þeirra. Sérstaklega álítur fundurinn þetta koma hart niður á kaupfélögunum, þar sem verzlunarfyrirkomulagi þeirra er þannig háttað, að í framkvæmdinni hlýtur hann að verka sem beinn skattur á lífs- nauðsynjar félagsmanna. — Treystir fundurinn og telur sjálfsagt, samkvæmt loforðum ríkisstjórnarinnar, að þessi skattur verði ekki lagður á nema í þetta eina skipti“. Sjóðeign og innistæða í Lands- banka íslands 28.8 milj. (19.3 milj.). Ábyrgðir vegna við- skiptamanna námu 35.9 milj. (29.3 milj.) og voru þær að mestu leyti vegna vörukaupa er- lendis, aðallega vestan hafs. Greitt var að fullu enska lánið frá 1921. Jafnaðartölur efnahagsreikn- ingsins eru 216.8 milj. (168.7 milj.). Tii ráðstöfunar aðalfundar var reksturshagnaður bankans, sem nam 3 milj.v987 þús. (3.316) og yfirfærsla frá fyrra ári, 130 þúsund, alls rúml. 4.1 milj., og var samþykkt að verja fé þessu þannig: Hlutahafar fá 4% af hlutabréfunum kr. 292.616 í varasj.ær lagt .. — 1.750.000 í afskriflareikn. .. — 1.750.000 í eftirl.sf. starfsm. — 200.000 Afgangur flyzt til næsta árs. Samanlagðir varasjóðir bank- ans nema nú 9 milj. króna. Auk samþykktar reikningsins lá aðeins fyrir að kjósa endur- skoðendur til eins árs og voru þeir Björn Steffensen endur- skoðandi og Haraldur Guð- mundsáon forstj., endurkosnir. fjárhagsleg, áfengisútsalan hef- ir á bæjarfélagið. 2. Áskorun til ríkisstjórnar- innar um að láta lögin um hér- aðabönn koma til framkvæmda nú þegar. 3. Mótmæli gegn stofnun nýrrar áfengisbúðar í Reykja- vík. , Framkvæmdanefnd Umdæm- isstúkunnar var að mestu end- urkosin, og skipa hana nú: Jón Gunnlaugsson stjórnarráðs- fulltrúi, umdæmistemplar, Þor- steinn ÞorsteinssOn kaupmaður, Sigríður Halldórsdóttir frú, Þor- steinn Sveinsson héraðsdóms- lögmaður, Ingimar Jóhannes- son skólastjóri, Kristinn Magn- ússon pjálarameistari, Guðjón Magnússon, málarameistari, Jón Hafliðason, fulltrúi, Kristín L. Sigurðardóttir frú, Pétur Zóp- honíasson ættfræðingur, Guð- geir Jónsson bókbindari. Raítækjavínnustoían Selfossi framkvæmir allskonar rafvirkjastörf. TtMINN er víðlenuuta anglýringablagigt * Aðalfundur Utvegsbankans f------- Vorþíng. sunnlenzkra templara Samband isL samvinnufélaga. SAMVINNUMENN! Þegar eldsvoða ber að höndum, brenna nálega í hvert sinn óvátryggðir innanstokksmunir. Frestið ekki að vátryggja innbú yðar. I Ullarverksmidjan Gefjun framleiðir fyrsta flokks vörur. T • / Spyrjið því jafnan fyrsí eftir Gefjunarvörum þegar yður vantar ullarvörnr. Skinnaverksmiðj an Iðunn framleiðir StTUÐ SRIMN OG LEÐUR 4 ennfremur hina landskunnu Iðunnarskó Hafnarfjörðnr. Skrá yiir niðurjöfnun útsvara í Hafnarfirði fyrir árið 1945 liggur frammi almenningi til athug- unar í skrifstofu framfærslufulltrúa í ráðhúsinu, frá 30. júni til 13. júlí n. k., að báðum dögum meðtöldum, alla virka daga frá kl. 1—5 síðdegis. Kærur yfir útsvörum skulu afhentar í skrifstofu beéjarins fyrir. kl. 12 á hádegi laugardaginn 14. júlí næstkomandi. 4 BÆJARSTJÓRIM.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.