Tíminn - 06.07.1945, Blaðsíða 6
TfmiVN, föstndaginn 6. julí 1945
50. blað
DÁNARMIMING:
Krístján Sigurðsson
& Reykjum á Reykjabraut
anir og vildi unna öörum hims
sama. Pramhleypni og hégóm-
leg metnaðargirni voru fjærri
skapi hans. Fór því svo um hann
eins og oft vill verða um slíka
menn, að hann kom minna við
opinber störf fyrir sveit sína.og
sýslu en skyldi.
Kristján hafði ekki verið sett-
ur til mennta í neinum skólum,
en aflaði sér sjálfur staðgóðrar
menntunar í skóla lífsins. Fylgd-
ist hann einkar vel með öllum
landsmálum og tók sér stöðu í
liðssveitum framsækinna um-
bóta- ,og samvinnumanna. —
Kristján var vel máli farinn.
Veittist honum létt að færa
fram skýr rök fyrir máli sínu,
var beinskeyttur og markviss og
lét ekki ginnast af smjaðri og
kjassmælgi. Var hann fljótur að
átta sig á hverju máli og lét ekki
umbúðir eða aukaatriði villa sér
sýn. Áttu framfaramál héraðs-
ins jafnan 'öruggt fylgi hans,
svo sem bættar samgöngur o. fl.
Krisján unni mjög erfðaóðali
sínu, Reykjum á Reykjabraut,
þar sem hann hafði alið allan
aldur sinn og lét sig dreyma um
framkvæmd þeirra miklu mögu-
leika, sem tengdir eru við þá
jörð í sambandi við jarðhita
hennar. Studdi hann að því að
þar yrði byggð sundlaug og
stundað sundnám og hefði kosið
að það mál væri lengra á veg
komið en er.
Kristján var kvæntur Ingi-
björgu Pálsdóttur frá Akri, gáfu-
og myndarkonu. Áttu þau 5 hörn
er upp komust og lifa fjögur
þéirra, 3 dætur giftar og einn
sonur, Páll að nafni, sem nú býr
á Reykjum. Konu sína missti
Kristján fyrir allmörgum árum,
en dvaldi á Reykjum eftir það
í sambýli við Pál son sinn. Heilsa
hans var mjög þrotin hin slð-
ustu ár, en sálarkraftar óskert-
ir til hins síðasta.
Þ. 7. febrúar þ. á. andaðist að
heimíli sínu, Reykjum á Reykja-
braut, Kristján Sigurðsson bóndi
þar.
Kristján var fæddur 3. nóv.
1861 á Reykjnm og átti þar
heimili og dvaldi þar nær óslit-
ið til æviloka, enda jafnan
kenndur við Reyki.
Kristján var kominn af traust-
um og góðum bændaættum. For-
eldrar hans voru hjónin Sigurð-
ur Sigurðsson af svokallaðri
Giljárætt og Þorbjörg Árnadótt-
ir bónda á Tindum. Var Þor-
björg systir Jóns Árnasonar
skálds á Víðimýri.föður séra Sig-
fúsar á Mælifelli.
Börn Sigurðar og fyrri konu
hans, Ingibjargar Guðmunds-
dóttur, voru: Guðmundur bóndi
í Vatnshlíð, Ástríður kona Jóns
á Víðimýri og Rósa kona Jónas-
ar óðalsbónda Jónssonar í Finns-
tungu. Voru þau systkin öll ann-
áluð sökum mannkosta. Börn
Sigurðar og seinni konu hans,
Þorbjargar, voru: Ingibjörg,
kon^ Guðmundar hreppstj. Er-
lendssonar i Mjóadal,mæt merk-
iskona, en þau voru foreldrar
Sigurðar skólameistara á Akur-
eyri, og þeirra systkina, og
Kristján.
Þorbjörg, .móðir Kristjáns, var
eins og hann jafnan kennd við
Reyki. Mun hún hafa orðið öll-
um, er henni kynntust, minnis-
stæð, stórskorin, stillt og traust.
Réði hún um sína tíð jafnan
miklu á Reykjum og var sökum
skörungsskapar og ráðdeildar
jafnan talin fyrir hinu stóra
rausnarbúi þar. Síðari maður
hennar var Egill Halldórsson,
bróðir séra Daníels á Hólmum.
Var hann smiður góður, en gaf
sig lítt að búrekstri. Eftir að
Þorbjörg varð ekkja í annað
sinn, bjó hún um skeið með
Kristjáni syni sínum. Var hann
augasteinn hennar og eftirlæti,
enda hafði hann tekið að erfð-
um margt það, er henni var til
ágætis.
Kristján var gleðimaður eink-
um á yngri árum og raddmaður
góður, háttprúður, fríður sýnum
svo af bar, karlmannlegur og
höfðinglegur. Fýsti því marga
að kynnast honum og töldu
hann líklegan til forustu, enda
fjölbreyttum og góðum hæfileik-
um búinn, en Kristján hafði
enga löngun til mannaforráða.
Hann vildi sjálfur vera sem ó-
háðastur öðrum og vera í friði . .
með sannfæringu sína og skoð- ,f°fnsjóð en 7% til utborgunar
á ágóðaskylda uttekt. Fundur-
Kristjáh Sigurðsson
Reykir á Reykjabraut voru á
æsku- og manndómsárum Krlst-
jáns þjóðkunnur staður. Reykja-
braut var þá póstleið og við-
komustaður pósta á Reykjum.
Síðar breyttist þetta og Reykir
urðu afskekktur bær. Sennilega
eiga Reykir eftir að komast aft-
ur í þjóðbraut og verða í fram-
tíðinni sem skólasetur, menn-
ingarmiðstöð Austur-Húna-
vatnssýslu. Mundi það mjög í
anda og að ósk hins framsýna
merkismanns og bezti minnis-
varðinn er honum og hugsjón-
um hans yrði reistur.
B. St.
Aðalhmdur Kaupíé-
lags Suður- Borg-
íirðínga
Aðalfundur Kaupfélags S.-
Borgfirðinga var haldinn 22.
maí. Fundinn sátu 14 fulltrúar
auk stj órnar, f ramkvæmda-
stjóra og endurskoðenda. Fram-
kvæmdastjóri gaf skýfslu um
rekstur félagsins. Vörusala er-
lend?a vara nam 1.198 þús., og
hafði aukizt ,qá árinu um 280
þúsund.
Féíagsmönnum hafði fjölgað
um 73 og voru í árslok 275. Sam-
þykkt var að úthluta 11% arði
til félagsmanna, þar af 4%
inn samþykkti að gefa 5000
krónur til landssöfnunar til bág-
staddra Dana og Norðmanna.
Svofelld tillaga var samþykkt
um áburðarverksmiðju hér á
landi:
„Aðalfundur K. S. B. telur
brýna nauðsyn á að komið verði
upp áburðarverksmiðju hér á
landi sem allra fyrst og helzt að
hafizt verði handa um byggingu
verksmiðjunnar á næsta ári, og
beinir þeirri áskorun til S. í S.,
að taka málið í sínar hendur til
fyrirgreiðslu og framkvæmda."
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga Svavar Þjóðbjörnsson og
Hálfdán Sveinsson og voru þeir
báðir endurkosnir. Aðrir stjórn-
armenn eru: Sigurður Sigurðs-
son Stóra-Lambhaga, Júlíus
Bjarnason Leirá og Sæmundur
Eggertsson Akranesi. Kaupfé-
lagsstj óri er Sveinn Kr. Guð-
mundsson.
Elztí Íslendíngur
í Ameríku látinn
Sveinbjörn Björnsson elzti ís-
lendingur í Vesturheimi lézt
rúmlega 101 árs að aldri á elli-
heimilinu Betel í byrjun maí
síðastl.
Sveinbjörn var fæddur að
Beruíirði 8. desember 1843. Hann
fór vestur um haf 1882 og bjó
lengi í Norður-Dakota. Á elli-
heimilinu Betel dvaldi hann frá
því árið 1937.
íltlireiðið Tímann!
Veltnskattnrlnn og
samvinnnverzlnnin.
(Framhald af 3. síöuj
samþykkt með lámhljóða at-
kvæðum:
„Aðalfundur S. í. S., haldinn
að Laugarvatni 24. júní 1945,
ályktar að lýsa yfir því, að hann
telur löggjöf um veituskatt frá
síðasta Alþingi svo mjög rang-
láta, að ekki sé viðunandi, eink-
um af þeim ástæðum, er hér
greinir:
1) Skattur þessi er ekki mið-
aður við rekstursafkomu eða
efnahag gjaldendanná, og er að
því leyti ranglátari en aðrir toll-
ar til ríkissjóðs, að hann leggst
jafnt á brýnustu nauðsynjar
sem miður þarfan og óþarfan
varning.
2) Skatturinn leggst á alla fé-
lagsmenn samvinnufélaganna og
því þyngra, sem þeir hafa stærri
fjölskyldur fram að færa, þar
sem sá hluti skattsins, er S. í. S.
og deildir þess borga, hlýtur að
koma fram í minnkandi tekju-
afgangsúthlutun til félags-
mannanna, og verður þannig til
að hækka verð þeirrar vöru, er
þeir kaupa.
3) Auk þess veltuskatts, sem
S. f. S. og sambandsfélögin verða
að borga, og sem eins og áður
segir, hlýtur að leggjast á félags-
mennina, þurfa þau að greiða
skatt af því fé, er þau þannig
innheimta fyrir ríkissjóð, og
leiðir veltuskatturinn þannig af
sér stórkostlega hækkun beinna
skatta hjá félögunum, sem kem-
ur niður á félagsmönnum þeirra
á næstu árum.
Fundurinn mótmælir því þeirri
tekj uöflunaraðferð.sem hér hef-
ir verið upp tekin, og skorar á
Alþingi að hverfa tafarlaust af
þeirri braut“.
Ég treysti því, að allir sam-
vinnumenn fylgi samþykkt þess-
ari fast eftir. í slíkum málum
sem þessum, verða þeir að
standa saman. Geri þeir það,
mun slíkur skattur ekki lagð-
ur á aftur, og ákvæði munu sett
til varnar hinum óviðunandi af-
leiðingum hans.
Íslendíngahús í
Kaupmannahöin
í febrúarmánuði s. 1. stofnuðu
íslendingafélagið og Félag is-
lenzkra stúdenta í Kaupmanna-
höfn húsbygglngarsjóð í þeim
tilgangi að reisa íslendingahús,
sem verði samastaður íslend-
ínga þar í borginni. í húsi þessu
eiga að vera bústaðir námsfólks
og dvalarheimili gamalmenna
meðal annars. íslendingar i
Kaupmannahöfn telja þetta svo
mikilvægt menningarmál fyr-
ir samband Hafnar-íslendinga
innbyrðis og við heimalandið,
að þessu þurfi að hrinda í fram-
kvæmd hið allra fyrsta. í Kaup-
mannahöfn er þegar hafin fjár-
söfnun og vænta þeir, sem að
henni standa, þess, að málinu
verði vel tekið heima og heita
á menn til liðsinnis um fjár-
söfnun á íslandi. Stjórn sjóðs-
ins skipa þessir menn: Halldór
Kristjánsson yfirlæknir, Hall-
grímur Thomsen lögfræðingur,
Jakob Benediktsson bókavörður.
Jón Helgason prófessor og Mar-
tin Bartels bankafulltrúi.
Flufníngsgjald
Vöruflutningsgjald með sænsk-
um flugvélum, er fljúga eiga á
milli íslands og Svíþjóðar, hefir
verið ákveðið. Samkvæmt því
ber að greiða fyrir hvert kíló-
gramm 12.80 sænskar krónur.
Frá Bandaríkjunum
komu loftleiðis um seinustu helgi:
Birgir Kristinsson, Halld. Pétursson,
Rögnvaldur og frú Helga Sigurjónsson
og sonur, Halldór Sv. Bjarnason, Skúli
Hansen, Sigriður Eva Hansen, Katrin
Egilsson.
Bókmcnntir og
listir.
(Framhald á 6. slöuj
safni eða að öðrum kosti að fá
þau lánuð hingað til lands, ef
þess verður auðið.
— Er þá hér um nokkurs kon-
ar vísindalega útgáfu að ræða?
— Nei, alls ekki I venjulegum
skilningi þess orðs. Ég tek eng-
an orðamun úr hahdritum,
skýringar verða engar nema á
vísum og kvæðum og formálar
mjög stuttir. Aðeins í einu til-
liti vil ég að útgáfan verði vís-
indaleg. Það er að textinn sé á-
reiðanlegur, traustur og vand-
aður, svo sem föng eru á. Þetta
á fyrst og fremst að vera lesút-
gáfa, þar sem lesandinn fær að
vera í friði fyrir útgefandanum.
— Hvernig hugsið þér yður að
skipa sögunum niður?
— Aðallega eftir því, hvar þær
gerast. Þær, sem eru úr sama
héraði koma í sama bindi, eftir
því, sem við verður komið.Önnur
sjónarmið, svo sem aldur ein-
stakra sagna og áreiðanleiki,
koma einnig til greina.
— Hvað er að segja um ytra
búning þeirra?
— Sögurnar verða prentaðar
með stóru og skýru letri og
pappír vandaður. Brotið verður
heldur minna en Skírnisbrot,
sem allir þekkja. Bindin verða
ekki stærri en svo, að þau verði
létt og handhæg, — þreyti ekki
lesandann með stærð eða þunga.
— Hvað verður útgáfan í
mörgum bindum?
— Því miður get ég ekki svar-
að því nákvæmlega enn. Það fer
eftir því, hvað letrið reynist
drjúgt og hvað bindin reynast
hæfilega stór. En þau hljóta að
verða eitthvað um 8—10 alls.
— Og útgáfunni á að verða
lokið á næsta ári?
— Já, það er ætlunin, og ég
vona, að sú áætlun standist. Ég
tel það höfuðkost útgáfunnar að
þurfa ekki að draga menn á
henni von úr viti. Á næsta ári
rriitmu sennilega koma út 2 bindi
í einu á svo sem þriggja mánaða
fresti, unz útgáfunni er lokið.
— Og verðið er aðeins 300
krónur fyrir allt verkið?
— Já, öll bindin eiga að kosta
300 krónúr í vandaðri kápu.
Það verða líklega ódýrustu bóka-
kaup á þessum tímum. En ís-
lendingasögurnar, dýrmætasti
þjóðarafur vor fslendinga, mega
aldrei verða okurvarningur. Hve-
nær sem íslendingi, ungum eða
gömluni, ríkum eða fátækum,
dettur í hug að eignast íslend-
ingasögurnar, allar I heild eða
einstakar, á hann að geta fengið
þær keyptar í vandaðri og
smekklegri, en þó ódýrri útgáfu.
Blöð og tímarít
t
Gangleri,
tímarlt Guðspekifélagslns, 1. hefti
19. árg. er nýkomið út. Efni þess er:
Af sjónarhóii, Dyr andans eftir Gretar
Fells, Styrjaldir, kristni og kirkja eftir
Þorstein Valdimarsson, Meira líf eftir
Gretar Fells, Guðspekin á þröskuldi
hins nýja tíma eftir Kristján Krist-
jánsson, Konungsherbergið eftir Gretár
Fells, Stjórnmálin og hin innri fræðsla
eftir Jón Árnason prentara, Norður-
ljós eftir Gretar Fells.
»
S veltar st j órnarmál,
1. tölubl. þessa árgangs er nýkomið
út. Aí efni þess má nefna: Ólafs-
fjörður eftir Þorstein Símonarson, Út-
svörin og álagning þeirra eftir Jónas
Pétursson. Lög um útsvör, Launalögin
nýju, Skýrslur um mannfjölda o. m. fl.
Læknablaðið,
3. tölubl. 30. árg. er nýkomið út.
Efnið er: Augneinkenni við háþrýst-
ing, eftir Kristján Sveinsson og fund-
’argerð aðalfundar Læknafélags ís-
lands.
Vinnlð ötuUega fyrir
Timann.
Samband í»l. samvlnnulélaga.
SAMVINNTJMENN!
Þegar eldsvoða ber að höndum, brenna nálega
í hvert sinn óvátryggðlr lnnanstokksmunlr.
Frestið ekki að vátryggja innbú yðar.
Skmnaverksmiðjan
Iðunn
framleiðir
StíTUÐ SRIM OG LEÐUR
ennfremur
hina landskunnu
Iðunnarskó
Tilkynníng til
bænda í Dalasýslu
Erum kaupendur að vorull, bæði þveglnni og óþveg-
inni, og veitum henni móttöku að Brauíarholti í
Haukadal. Þar geta menn og fengið lánaða úllarballa
undir ullina og gert oss aðvart, ef óskað er eftir að
ullin sé sótt heim, en um það getur verið að ræða ef
bílfært er á staðinn.
Verzlunarfélag Borgarfjarðar h.f.,
Bor$;arnesi.
Skipaeigendur —
Utgerðarmenn
Athugið, að öll skip og báta fáið þið ávallt tryggða hjá
oss með lægsta fáanlega iðgjaldi og beztu kjörum.
^Leitið því tilboða hjá oss.
Athugið:
Vér getum einnig vátryggt þá Svíþjóðarbáta og önnur
skip, sem keypt eru til landsins, fyrir beztu fáanlegu kjör
á HEIMLEIÐ og áfram, séu þau eigi í skyldutryggingu.
Sjóvátryqqi
aq ísiands
Orðsendioj^
til ínnheímtumanna Tímans
Skilagreinir fyrir síðasta ár ern ennþá
ókomnar frá nokkrum innheimtumönn-
nm Tímans. Eru þeir vinsamlega beðnir
að senda þær hið allra fyrsta.
INWBEIMTA TÍMANS.
4..
\