Tíminn - 03.08.1945, Qupperneq 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÚTGEFPANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Símar 2353 Oe 4373.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A.
Símar 2353 oe 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, |ilndargötu 9 A.
Sírnl 2323. >
29. árg.
Reykjavík, föstndagiim 3. ágúst 1945
58. blað
Bændur byrjaðir að færa sér iög-
in um ræktunarsamþykktir í nyt
Viðtai við Steingrím Steinþórsson
búnaðarmálastjóra
Lög um jarðrsektar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum voru
samþykkt á seinasta Alþingi að forgöngu búnaðarsamtakanna
í landinu. Lögin voru undirbúin og samin af Búnaðarfélagi
íslands og milliþinginefnd Búnaðarþings. Undirbúningur að jarð-
ræktarframkvæmdum samkvæmt þessum lögum er nú hafinn
hjá nær því öllum búnaðarsamböndum á landinu. Tíðindamað-
ur blaðins hefir snúið sér til ^Steingríms Steinþórssonar búnað-
armálastjóra og spurt hann um þessi lög og tilgang þeirra og
undirbúning að framkvæmdum hjá búnaðarsamböndunum.
— Átti Búnaðarfélag íslands
og Búnaðarþing frumkvæði að
setningu þessara laga?
— Já, lög þessi fengust :jam-
þykkt eins og þau lágu fyrir frá
Búnaðarfélági íslands og milli-
þinganefndinni, því nær breyt-
ingalaust. Þau eru í. .tveimur
• meginköflum, annar fJallar um
jarðræktarsamþykktir, en hinn
Steingrlmur Steinþórsson.
um húsagerðarsamþykktir. Verð-
ur hér eiriungis rætt um jarð-
ræktarsamþykktirnar.
— Hvert er stefnt með þess-
um lögum?
— í stuttu máli að koma allri
heyöflun landsmanna á véltækt
land. Aðalatriði laganna um
búnaðarsamþykktir er það, að
búnaðársamböndum landsins er
heimilt, að setja sér samþykktir
um, að sambandið taki að
sér ákveðnar jarðræktarfram-
kvæmdir. Þær framkvæmdir,
er hér um ræðir eru: framræsla,
túnasléttun, nýrækt og sléttun
engja.
Stærð hvers jarðræktarsvæð-
is er ákveðin af Búnaðarfélagi
íslands, en að, jafnaði er gert
rÆ fyrir, að hvert búnaðarsam-
band sé eitt 'jarðræktarsvæði,
en Búnaðarfélag íslands getur
sem sagt heimilað að breytt sé
frá þvi og hvert sambandssvæði
þá fleiri jarðræktarsvæði. Bún-
aðarfélagið er látið hafa hér
hönd í bagga með ákvörðun á
stærð svæðanna, vegna þess að
með því er tryggt, að engar
sveitir verði útundan.
Síðan er það verkfæranefnd,
sem ákveður í samráði við Bún-
aðarfélag íslands, hve margar
vélar af hverri tegund séu nauð-
»
320ölvaðir menn
teknir fastir í júlí
Um 320 menn úr Reykjavík
voru teknir höndum og lokaðir
inni um stúndarsakir vegna öl-
æðis og óspekta í júlímánuði.
Munu aldrei hafa verið jafn
margir menn teknir fyrir þessar
sakir á einum mánuði, og hefir
lögreglan iðulega orðið að tví-
setja í sömu klefana á einni
nóttu.
Þetta ástand þykir að vonum
iskyggilegt, og er talið afleiðing
þess, að rýmkað hefir verið um
sölu áfengis.
synlegar á hverju jarðræktar-
eða sambandssvæði og njóta þær
styrks úr framkvæmdasjóði rík-
isiris. Út á þær vélar, er þannig
eru ákveðnar til hvers jarð-
ræktarsvæðis, fá kaupendurnir,
j arðræktarsvæðin svo styrk,
sem nemur um helming af kaup-
verði vélanna. En til þess að
búnaðarsamböndin geti orðið
aðnjótandi styrks þessa, er það
frumskilyrði, að það sé búið að
ganga frá jarðræktarsamþykkt
um.
í lögunum segir að verja skuli
úr framkvæmdasjóði rikisins
allt að 3 miljónum króna til
greiðslu helmings af kostnaðar-
verði þeirra véla og verkfæra,
kominna á ákvörðunarstað, er
i-nna á ákvörðunarstað, er
verkfæranefnd ríkisins telur
þörf á til ræktunarfram-
kvæmda, samkvæmt lögum
þessum. Styrkur þessi greiðist
jafnóðum og vélarnar eru
keyptar. Styrkurinn veitist að-
eins til kaupa á nýjum og vönd
uðum vélum og tækjum.
— Hafa nokkur búnaðarsam-
bönd gengið frá slíkum sam-
þykktum nú þegar?
— Já, nokkur búnaðarsamb.
hafa þegar gengið að fullu frá
jarðræktarsamþykktum á sín-
um sambandssvæðum og eru þau
þessi: Búnaðarsamþand Borg'
arfjarðar, sem verður eitt jarð
ræktarsamþykktarsvæði, Bún
aðarsamband Dala- og Sjpsefells
(Framhald á 8. sí8u)
Ferðamann.averzlu.n
við Fnjóskárbrú
Fyrir skömmu opnaði Kaup
félag Svalbarðseyrar útibú rétt
við Fnjóskárbrú. Útibú þetta er
stofnað með það tvennt fyrir
augum, að létta mjög aðdrætti
bændanna, sem búa þar í
grennd, og vera auk þess full-
komin ferffamannaverzlun, en
umferð á þessum stað er geysi
mikil eins og kunnugt er, bæði
af langferðafólki og gestum,
^em að koma til að njóta veð
urblíðu og náttúrufegurðar
Fnjóskadalsins.
Verzlunarhúsið er í nýtízkustíl
og vörunum komið fyrir á þægi-
legan og smekkvísan hátt.
Með stofnun þessarar mynd
arlegu verzlunar hefir Kaupfé
lag Svalbarðseyrar unnið þarft
verk fyrir marga félagsmenn
sína, og auk þess fjölda ann
arra landsmanna, sem eiga leið
um þeJsar slóðir.
I dag
birtist á 3. síðu grein um stétt-
arsamtök bænda eftir BJarna
Ásgeirssori alþingismann.
Neðan máls er grein eftim
Peter Wigelund um Ólaf á
Heygum, færeyskan brautrySj-
anda.
Á 4. síðu er grein eftir séra
Björn Björnsson á Vatnsleysu
um Varmahliðarskólann.
Framsóknarflokkurinn krefst þess, að Alþingi
verði kvatt saman í byrjun næsta mánaðar
Embættistaka forseta
Síðastl, miðvikudag jcrr fram hátiðleg athöfn i neðrideildarsal Alþingis
og dómkirkjunni, er hinn fyrsti þjóökjörni forseti íslands herra Sveinn
Björnsson tók við embœttinu. Viðstaddir voru alþingismenn og fulltrúar
erlendra ríkja ásamt nokkrum fleiri boðsgestum. Athöfnin í kirkjunni
hófst kl. rúmlega 20 og flutti biskupinn yfir íslandi, herra Sigurgeir
Sigurðsson þar bœn og las upp úr 95. sálmi Davíðs. í Alþingishúsinu, þar
sem sjálf embœttistakan fór fram vann forseti eið að stjórnarskránni.
Þá er forseti hafði skrifað undir eiðstafinn gekk hann úÞá svalir Alþing-
ishússins þar sem hann var hylltur. Ávarp forsetans mun bir.tast hér í
blaðinu innan skámms. Myndin er tekin, er forsetí flytur ávarp. (Ljósm.
Friðrik Klausen).
20-30 islendingar koma
heim með Lagarfossi
Mikill fögiiuður, er skipið kom íil ISjörgvinjar.
Eins og kunnugt er fór Lagarfoss héffan til Noregs,
Danmerkur og Svíþjóffar meff ýmsar vörur, þar á meffal
talsvert af gjafavarningi til hinna norsku og dönsku
frændþjóffa okkar, einkum Norffmanna. — Nú hafa glögg-
ari fregnir borizt af ferffum Lagarfoss.
Mikil mannfjöldi beið skips-
ins, er það seig upp að bryggju
í Björgvin. Voru móttökur allar
svo hjartanlegar sem hugsazt
gat, og ætlaði fagnaðarlátunum
aldrei að linna.
Frá Björgvin fór skipið svo til
Kaupmannahafnar. Einníg þar
var tekið á móti þvi af fjöl-
menni.
Frá Kaupmannahöfn fer skip-
ið á morgun. Koma þar að lík-
indum í það rösklega tuttugu
íslenzkir farþegar, þar á meðal
Bæjarverkfræð-
ingur er ekki með
Bolli Thoroddsen bæjarverk-
fræðingur biður þess getið, að
hann sé ekki hluthafi í neinu
fyrirtæki, er hafi með höndum
kaup og innflutning véla, sem
síða'n séu seldar einstökum
starfsdeildum ríkis og bæjar.
Var hans ranglega getið hér í
blaðinu á föstudaginn var í sam-
bandi við h. f. Ræsir, sem Val-
geir Björnsson hafnarstjóri og
fleiri eiga og stendur fyrir sér-
kennilegum viðskiptum, sem þá
var nokkuð að vikið. Er sjálf-
sagt að leiðrétta þennan mis-
skilning, þótt það breyti að öðru
leyti engu, sem i greininni var
sagt.
Lögin um dýrtíðar- og verð-
lagsmál falla úr gildi í sept.
Áður en þingfundum var frestaff í vetur báru Framsóknar-
menn fram þá tillögu, aff þingiff yrffi kallaff saman á ný eigi
síðar en 2. september. Þessa tillögu fellcli stjórnarliðiff í sam-
einingu og heimilaði stjórninni aff fresta þingfundum til 2. októ-
ber. En eigi að síffúr hefir ríkisstjórnin í hendi sér aff kveffja
þingiff saman, þegar henni þykir henta, enda gefið í skyn af
hennar hálfu við umræffurnar um þessi mál, aff svo mundi gert
verða, ef ástæffa þætti til.
Enn hefir þó ekki neitt verið
látið uppi um, að fyrirhugað sé
þinghald snemma í september-
mánuði, og þykir þvi sérstök
ástæða til þess að endúrnýja nú
kröfuna um, að þing verði þá
kvatt saman.
Nauðsyn þess, að þing komi
saman eigi síðar en .fyrstu daga
septembermánaðar ætti að
liggja í augum uppi. Löggjöfin
frá síðasta Alþingi um verð-
lagsmálin og dýrtíðarráðstafan-
irnar fellur úr gildi 15. septem-
ber, og fyrir þann tíma verður
því að vera búið að taka ákvarð-
anir um þessi mál að nýju, ef
ekki á að stefna öllu í beint
öngþveiti. Þessi mál eru einhver
þau örlagaríkustu og stórkost-
legustu fjárhagsmál, er Alþingi
hefir fjallað um, og hagur og
gengi þjóðarinnar getur oltið á
því, hvernig tekst að ráða þeim
til lykta. Þess verður því að
krefjast, að alþingi verði kvatt
saman í tæka tíð, svo að þessi
mál verði leyst á þinglegan hátt
fyrir miðjan septembermánuð,
áður en gömlu lögin ganga, úr
gildi.Önnur afgreiðsla slíks stór-
máls samrýmist ekki þeim hug-
sjónum og lífsskoðunum, sem
lýðræði -og þingræði grundvall-
ast á. Og að Játa reka á reið-
anum um afgreiðslu þessa að-
kallandi vandamáls gengi sjálfs-
morði næst.
Þess er því fastlega að vænta,
að ríkisstj órnin taki nú á sig
rögg og kalli þingið saman, svo
að um þessi mál verði fjallað
á viðeigandi hátt og í tæka tlð.
En fari svo, að hún þverskall-
ist enn við þessari sjálfsögðu
kröfu, verða menn að gera sitt
til þess að knýja hana til þess
með þunga almenningsálitsins.
Setuliðsskálar-
brenndir
Aðfaranótt síðastliðins þriðju-
dags var kveikt í hermanna-
skálahverfi í nánd við Raufar-
höfn og brunnu þar 11 skálar.
Hermennirnir voru farnir úr
skálunum og stóáu þeir því auð-
ir. Talið er líklegt, að sjómenn
af síldveiðiskipum, er þarna hafa
gengið á land, hafi verið valdir
að brunanum, emekki hefir enn
tekizt að hafa upp á sökudólg-
unum. Þennan dag var engin
síldveiði og slæmt veður, lágu
bátarnir því flestir í vari við
ströndina og er því ekki ósenni-
legt að einhverjir hafi orðið til
þess að gera þarna strandhögg.
þeir þrír fimmmenninganna af
Esju, er nú hafa verið látnir
lausir. Annars er sagt, að víðs
vegar á Norðurlöndum, og þþ
aðallega í Höfn, séu um 200 fs-
lendingar, sem bíði eftir fari
heim. ■ •
í farmi þeim, sem skipið tek-
ur í Höfn, eru jarðstrengir til
símalagningar og búshlutir
heimfluttra íslendinga. í Gauta-
borg, en þangað fer skipið næst,'
tekur það timbur.
Lagarfoss mun á heimleiðinni
koma við í Skotlandi og er
væntanlegur hingað um miðjan
ágústmánuð.
Farþegarfrá
Svíþjóö
Nýkomnir eru hingað með
flugvél frá Svíþjóð þessir far-
þegar:
Georgia Björnsson forsetafrú,
Óli Vilhjálmsson framkvæmda-
stjóri í Kaupmannahöfn, Ewald
Berndsen kaupmaður, Halldór
B. Frederiksen, Hlín Jensen-
Brand, Reinhardt Lárusson og
ennfremur Niels Hagan verk-
fræðingur og tveir rússneskir
stjórnarerindrekar, Sergei Fon-
tiséff og Valdimar Egoroff. Ekki
er vitað um erindi þessara
tveggja 'sendimanna hingað.
Brezki flotinn
yfirgefur fsland
Kveðjjnboð flotaforingjans.
Brezki flotinn er á förum' héffan. Flotaforingi Breta hér áN
landi, B. C. Watson affmíráll, efndi til síffdegisdrykkju á mánu-
daginn var, þar sem hann kvaddi land og þjóff meff fallegri og
innilegri ræffu.
Aðmirállinn komst svo að orði,
að sér hefði ætíð þótt vænt um
ísland frá því hann steig hér
fyrst fæti á land, enda hefði
hann jafnan orðið hér aðnjót-
andi gestrisni og vináttu. En
fyrstá landtakan var með þeim
hætti, að hann kom hingað
skipreika, því að skip hans varð
fyrir tundurskeyti á Atlants-
hafi og sökk.
Þá vék hann, að þeim skerf,
sem íslenzka þjóðin ætti í því,
að átökunum um Atlantshafið
lyktaði með sigri Bandamanna.
Gat hann í því sambandi þess
mikla skipatjóns, sem fslend-
ingar hefðu orðið fyrir, og þess
manntjóns, er þeir höfðu beðið.
Þakkaði hann drenglund og
TIMINN
§
Vegna starfsmannaleyfis í
prentsmiffjunni á frídegi verzl-
unarmanna kemur næsta tölu-
blaff Tímans ekki út fyrr en
næsta föstudag.
fórnarvilja íslenzkra manna,
sem jafnan hefðu verið boðnir
og búnir til aðstoðar og hjálpar,
jafnvel þótt í beinan lífsháska
væri að leggja.
Forsætisráðherrann íslenzki
þakkaði orð flotaforingjans og
alla lipurð háns og brezka sjó-
liðsins yfirleitt í skiptum við
þjóðina og árnaði fionum og
mönnum hans fararheilla.
Skemmtiferbalag Vest-
ur-lstendinga
íslendingafélagið í Vancouver
fór í skemmtiferð þann 17. júní
í tilefni af þjóðhátíðinni. Fyrir
milligöngu L. H. Thorlákssonar
vararæðismanns íslands þar í
borg, hafa ríkisstjórninni bor-
izt kveður félagsins og heilla-
óskir í tilefni dajfsins. Segjast
íslendingar vera stoltir af þeim
framförum, sem orðið hafa á
fyrsta ári lýðveldisins, og þeirri
viðurkenningu, sem ísland hafi
hlotið.
/