Tíminn - 03.08.1945, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.08.1945, Blaðsíða 3
58. blað TtMlM, föstadaginn 3. ágúst 1945 3 BJ_ARN_l aSGC/RSSON: ' Stéttarsamtök bænda I Allsherjar félagsskapur ís- lenzkra bænda — Búnaðarfélag íslands, er ein af elztu félags- stofnunum í landinu — og þó eru bændurnir á íslandi líklega orðin eina starfsstéttin, sem ekki hefir enn fastmótað stétt- arsamtök sín í því formi, sem nú tíðkast í hagsmunabaráttu hinna ýmsu stéttafélaga þjóð- arinnar. íslenzka þjóðfélagið hefir frá öndverðu verið bænda- þjóðfélag og bændurnir höfðu vanizt því að líta á sig sem eina þjóð, en ekki sem eina stétt. Þess vegna hafa félagssamtök þeirra jafnan beinst fyrst og fremst að almennum umbótum á atvinnuháttum, leiðbeining- um og fræðslu. Hin þrengstu stéttarhagsmunasjónarmið hafa lengstaf verið þeim framandi. Nú á síðari árum finna bænd- ur, að viðhorfið er að breytast. Nú sjá þeir, að þeir eru orðnir aðeins ein starfsstétt í þjóðfé- laginu, ein af mörgum — og fé- lagsskapur annarra stétta hef- ir þegar brynjað sig með harð- snúnum samtökum til sóknar og varnar í hagsmunabaráttu þeirri, sem hér er háð af öllum gegn öllum. Nú sjá þeir, að svo búið má ekki standa, ef þeir eiga ekki að verða troðnir undir. Fulltrúum Búnaðarfél. íslands á Búnaðarþingi og stjórn félags- ins hefir verið það vel ljóst und- anfarið, að sú þróun, sem orðið hefir nú um skeið í stéttafé- lagsmálum hér á landi, hlyti að leiða til þess, að einnig bænd- urnir efldu og treystu hags- munasamtök sin frá því sem verið hefir til þessa. Og sú þörf verður brýnni með hverju líð- andi ári, ekki aðeins fyrir bændastéttina sjálfa, heldur og íslenzka þjóðfélagið, sem nú orðið mætti nefna „landssam- band íslenzkra stéttarfélaga.“ Það væri of veikur hlekkur í þeirri keðju, ef hagsmunasam- tök stærstu atvinnustéttar þjóð- arinnar — bændastéttarinnar — væru ekki fastar mótuð en verið hefir til þessa. Og þessi þörf þjóðfélagsins fyrir viður- kennd hagsmunasamtök af hálfu bændastéttarinnar, hefir greini- lega komið fram í því, að Al- þingi hefir hvað eftir annað á undanförnum þingum orðið að lögfesta Búnaðarfélag íslands sem fulltrúa fyrir stéttasamtök bænda. — Og félagið hefir að undanförnu hvað eftir annað orðið að taka á sig að koma fram sem hagsmunaaðili bænda gagnvart ríkisstjórn, Alþingi og einstökum stéttarfélögum, þó að það hlutverk hafi ekki verið beinlínis skráð í lög þess eða samþykktir. ' Fulltrúar B. F. í. munu flestir hafa litið svo á að félaginu bæri siðferðileg skylda til að taka að sér þetta hlutverk, þar sem það er eina félagsstofnunin á land- inu, sem telur svo að segja alla bændur þess innan sinna vé- banda. Hitt mun þeim svo öllum hafa verið nokkuð ljóst, að þess- ari starfsemi yrði fyrr eða síðar að skapa fastara og ákveðnara form innan búnaðarsamtak- anna, heldur en ennþá eru fyr- irmæli um í lögum þeirra. Milliþinganefnd sú, er skipuð var á Búnaðarþingi 1943 til at- hugunar á ýmsum skipulags- málum landbúnaðar, ræddi mál þessi allmikið, og hvernig þeim yrði bezt fyrir komið. Meðal þeirra mála, er hún sendi frá sér, voru tvö, sem beinlínis fjölluðu um þennan þátt í framtíðarstarfsemi fé- lagsins. Annað var frumvarp um Búnaðarmálasjóð, sem nú er orðið að lögum. Enda þó að þeim lögum væri spillt í einu atriði i meðferð þingsins, verð- ur að treysta því, að eigin fé, sem Búnaðarfélaginu er þar tryggt sem tekjur frá félags- mönnum þess, bændunum í landinu, geti það í framtíðinni varið, meðal annars til þess að standa straum af kostnaði þess í þágu hagsmunasamtaka bændastéttarinnar. En milli- þinganefndin leit svo á, að eitt undirstöðuatriði þessarar starf- semi væri það að tryggja henni fjárhagsgrundvöll með eigin framlögum félagsmanna. Fyrir j Bjarni Ásgeirsson, formaður Búnaðarfélags íslands. þessu gerði hún nokkra grein í skýringum þeim, er hún sendi búnaðarsamböndunum, ásamt frumvarpi um búnaðarmála- sjóð — og virtust öll sambönd- in fallast á málið og veittu þvi sín meðmæli. Þessa tilgangs búnaðarmálasjóðs var einnig getið við flutning málsins á Al- þingi og var þar engin athuga- semd gerð við' það út af fyrir sig. — Hitt málið, sem milli- þinganefndin sendi frá sér var tillögur um breytta skipan á stjórn afurðasölu landbúnaðar- vara — og verðlagsákvörðun — en það hvoru tveggja hlýtur jafnan að verða talinn innsti kjarni í hinni svonefndu hags- munabaráttu bændastéttarinn- ar. — Tillögur þessar voru ræddar ýtarlega á Búnaðarþingi, og voru gerðar á þeim ýmsar breyt- ingar þar. Síðan voru þær sendar öllum búnaðarsamböndum landsins til athugunar og umsagnar, og hafa nú flest samböndin sent félags- stjórninni álit sitt og breyting- artillögur, er síðan verður unnið úr og lagt fyrir Búnaðarþing það, sem bráðlega kemur sam- an. Með öðrum orðum: Búnaðar- félag íslands, þ. e. stjórn félags- ing, milliþinganefnd Búnaðar- þings, Búnaðarþing og búnaðar- samböndin, allir þessir aðilar hafa nú undanfarið verið að grundvalla og móta hagsmuna- samtök bændastéttarinnar inn- an búnaðarsamtakanna, stig af stigi, og er nú komið að því að ganga frá þeim tillögum til fullnustu. Það er m. a. eitt af þeim verkefnum, sem liggur fyrir Búnaðarþingi því, sem nú er að koma saman. í Ég taldi rétt og skylt að rekja hér þennan aðdraganda máls- ins, og hvað undirbúningur þess er kominn langt áleiðis, vegna þess að mér virðist, sem hinn mikli áhugi, sem gripið hefir ýmsa nú upp á síðkastið um að hrinda þessum samtök- um sem fyrst í framkvæmd — hinn mjög svo skiljanlegi og að mörgu leyti ánægjulegi áhugi — hafi beint athygli þeirra frá því, sem búið er að gera til und- irbúnings þessu nauðsynj amáli og því, sem þess vegna næst liggur fyrir. Ég tel, að Búnað- arþing það, sem kemur saman eftir örfáa daga, hljóti að láta mál þetta til sín taka til áfram- haldandi aðgerða. Verður það þá verkefni þess að vinna úr þeim tillögum, sem fyrir liggja, það sem hagkvæmast og vitur- legast þykir, að beztu manna yfirsýn. Tel ég auðsætt, að sam- ráðs verði leitað við ýmsa áhugamenn félagsskaparins, einnig utan Búnaðarþings, til þess að freista þess að reyna að eyða þeim ágreiningi, sem enn kann. að vera fyrir hendi um einstök fyrirkomulagsatriði. Hér þurfa allir, sem máli þessu vilja vel, að leggj ast á eitt um að leita hinna beztu úrræða. — Aukin sundrung er ekki leiðin til að efla samtökin. „Stígandi^. Tímaritið „Stígandi“, sem þeir Bragi Sigurjónsson og Jón Sig- urgeirsson gefa út á Akureyri, er eitt snotrasta tímaritið, sem kemur út hiér á landi. Það er fjölbreytt og vandað að efni og ræðir jöfnum höndum fagur- fræðileg efni og mikilvæg mál, sem uppi eru í það og það skipt- ið með þjóðínni. Eru þær greinaf venjulega skrifaðar af sann- girni og rökvísi og ekki gengið á hönd neinum flokki eða stefnu. Er það í rauninni orðin nýjung í okkar góða þjóðfélagi að sjá slíkar greinar. Fyrir fáum dögum barst Tím- anum annað hefti þriðja ár- gangs ritsins. Hefst það á kvæði eftir Sigurjón Friðjónsson, og heitir það Morgunblær. Var það flutt á listamannaþinginu i vor. Næst er svo grein eftir Jakob Kristinsson, fyrrv. fræðslumála- stjóra. Nefnist hún „Hugr einn þat veit“. lýsir höfundur þar í fáum orðum dvöl sinni vestan hafs og kynnum af fáeinum Vestur-íslendingum og þeim hug, sem þeir bera til heima- lands og heimaþjóðar. Eru í þessari stuttu grein dregnar upp ógleymanlegar myndir. Næsta grein er eftir Brynleif Tobíasson menntaskólakennara, um Indriða Einarsson. Er þess- um merkilega manni þar fall- ega lýst. Þá er kvæði eftir Sigurð Jóns- son á Arnarvatni, Brynjan, ort út af sögninni um skyrtu Örvar- Odds. Síðan komu Æskuminningar eftir Sigurjón Friðriksson, at- hyglisverð grein. Þessu næst kemur kvæði eft- ir Grím. Sigurðsson, Kannske breytt, saga eftir Sigurð Ró- bertsson, Veðmálið, myndir af þrem málverkum Örlygs Sig- urðssonar, ásamt nokkrum orð- um um hann, og kvæði eftir Sverri Áskelsson, Þegar skó- hljóðið hverfur. Enn eru í ritinu þrjár merkis- greinar: Ólafur í Kálfagerði eftir Kristínu Sigfúsdóttur, Fyrstu göngurnar mínar eftir Þormóð Sveinsson, Búendatal Sands í Aðaldal eftir Indriða heitinn Þórkelsson á Fjalli. Auk þes$a er svo þýdd smásaga í ritinu, eftir O’Henry, þýdd af Maju Baldvins, og nokkrar greinar um bækur, skrifaðar af ritstjóranum, Braga Sigurjóns- syni. „trval.“ Einnig er Nýlega út komið nýtt hefti af „Úrvali," 3. hefti 4. árgangs. „Úrval flytur sem kunnugt er stuttar þýddar greinar um margvísleg efni. Fyrirsagnir eins og Tilhugalíf dýranna, Starfsemi UNRRA, Útlit manns- ins eftir 500.000 ár, Er hjóna- band þitt farsælt fyrirtæki? og Lækningarmáttur moldarinnar gefa fjölbreytnina til kynna, enda eru greinar sóttar í fjölda blaða og tímarita. En fyrirsagn- ir eru teknar af handahófi úr síðasta heftinu. Hvert hefti „Úrvals“ er átta arkir, 128 blaðsíður, og kostar krónur 8,50. Verkstjjóraritið. Nýtt hefti af Verkstjóraritinu er komið út. Er það vel úr garði (Framhald á 5. síðu) Pétur Wigelund: Ólaf ur á Heygum Höfundur greinar þessarar, Pétur Wigelund skipasmíða- meistari, er formaður Færeyingafélagsins í Reykjavík. Flutti dóttir hans, Erla, hana sem erindi á útvarpskvöldi Færeyinga á þjóðhátíðardaginn, Ólafsvökunni. Maður sá, sem hér segir frá, er faðir frú Herborgar frá Heygum, konu Magnúsar Sigurðssonar lögregluþjóns, sem mörgum er kunn hér á landi og hefir meðal annars nokkrum sinn- um sungið færeyska söngva í útvarpið, og Brynjólfs á Heygum, er dvalið hefir hér á landi bæði við nám og störf. Á norðvesturströnd Straum- eyjar, sem er stærsta eyja Fær- eyja, er Vestmannahöfn, sem frá náttúrunnar hendi er ein ákjós- anlegasta höfn, sem hugsazt getur, hringmynduð, umlukt fjöllum á þrjá vegu, og er innsiglingin frá vestri. En and- spænis innsiglingunni er Vogey skammt frá, og hamlar því, að úthafsöldurnar nái inn í höfn- ina. í þorpinu í Vestmannahöfn fæddist Ólafur á Heygum, sá sem þessi stutta grein fjallar um. Ólafur fæddist 4. ágúst 1866. Hann er kominn af einni beztu bændaætt í Færeyjum. Á fyrri öldum komu sjóræn- ingjar til Færeyja, eins og hing- að til lands, og flúði þá fólkið upp til fjalla. Þegar síðasta rán- ið, sem öruggar sögur fara af, var framið, var gamli bóndinn, sem þá bjó á Heygum, svo ör- vasa, að hann gat ekki yfirgef- ið hús sitt, þegar hitt heimilis- fólkið flúði. Náði hann sér þá í vel brýnda öxi til varnar. Eftir það. hafa menn engar sannar fregnir um hann, aðrar en þær, að hann var fluttur út í ræn- ingjaskip. En þetta sýnir, að hann, þrátt fyrir ellina, vildi verjast í lengstu lög. Þetta er sannur viðburður. Af ættstofni þessa manns er Ólafur á Heyg- um komtnn. Þótt hann væri bóndasonur og erfingi að góðri jarðeign, stóð hugur hans til annars en að stunda landbúnaðarstörf. 16 ára gamall fór hann til sjós á íslandsmið og 6 árum síðar sigldi hann til Danmerkur til þess að vera viðstaddur fjöl- breytta sýningu, sem þar fór fram árið 1888. Þar var sýnt ýmislegt, sem að fiskveiðum laut. Síðan gerðist Ólafur verzlun- armaður hjá dönsku verzlunar- félagi í Þórshöfn og varð nokkru síðar verzlunarstjóri fyrir sama félag heima í 'byggðarlagi sínu. Um aldamótin stofnaði hann sjálfur verzlunarfyrirtæki og sýndi þá mikinn dugnað og stórbrotnar hugmyndir, og verð- Pétur Wigelund, formaður Færeyingafél. í Reykjavík. ur það honum ávallt til sóma, en því miður samtíðarmönnum hans til minnkunar. Hann byrjaði með þvi að að byggja dráttarbraut, sem tók upp 100 smálesta skip. Til sam- anburðar má geta þess, að fyrsta dráttarbrautin hér á landi var byggð í Reykjavík 12 árum síð- ar. Hann byggði verzlunarhús og bryggju, sem útlendir tog- arar, er oft leituðu hafnar í Vestmannahöfn, gátu lagzt við og fengið afgreiðslu kolum og salti og öðrum nauðsynjum. Árið 1904 var Ólafur kjörinn þingmaður fyrir byggðarlag sitt. Sýndi hann strax mikinn dugn- að og skörungsskap. Meðal fyrstu mála, sem hann barðist fyrir á þingi, var stofnun fær- eysks banka og að sími yrði lagður til Færeyja. Honum var falið að afla nauðsynlegrar þekkingar á þessum málum er- lendis. Þrátt fyrir baráttu Ólafs voru bæði málin felld í lögþinginu, en Ólafur lét þó ekki hugfallast, heldur lét hann leggja á eigin kostnað síma frá heimabyggð sinni til Þórshafnar. En þetta er 30 kílómetra vegalengd. Þeg- ar • hér var komið sögu, fara samtíðarmenn Ólafs yfirleitt að vinna gegn honum. Mun þeim hafa fundizt hann of djarfhuga, enda mun það nokkru hafa valdið, að hann var sjálfstæðis- maður, en sú stefna átti örðugt uppdráttar í þá daga, því að þetta var um sama leyti, sem Jóannes Patursson byrjaði sjálf- stæðisbaráttu sína og fékk í byrjun daufar undirtektir. Næsta viðfangsefni Ólafs var að beita sér fyrir virkjun Foss- ár, sem er stærsta vatnsfall i Færeyjum og fellur út af bergi í Vestmannahöfn. Um þetta segir Ólafur meðal annars: „Við eigum að virkja Fossá og reka sögunarmyllu, ullarverksmiðju, fiðurhreinsunarstöð og allan þann iðnað, sem okkur hentar bezt, og ennfremur að nota raf- magnið til ljósa og hita.“ Þessari uppástungu var frem- ur fálega tekið. En Ólafur lét rannsaka vatnsmagnið og ýmis- legt annað í sambandi við virkj- unina á eigin kostnað og stofn- aði svo hlutafélag til þess að hrinda þessu mikilvæga máli í framkvæmd. Árið 1910 sótti hann um styrk til Lögþingsins til þessara fram- kvæmda, en umsókninni var vísað á bug. Menn virtust enn ekki almennt hafa áttað sig á þessum hugmyndum Ólafs eða var það öfund eða hræðsla, sem vakti mótspyrnu? Hann vildi láta höfuðborgina fá rafmagn frá Fossárvirkjuninni, en ráð- andi menn þar í borg sáu s$r ekki fært að styðja Ólaf, og út- koman varð sú, að meðan hann fór til útlanda til að vinna að þessu máli, fengu mótstöðu- menn hans því til leiðar komið, að þeir, sem höfðu skrifað sig fyrir hlutafé í félaginu, sviku Ólaf, svo að hann stóð einn eftir. Á þessum ferðum sínum hefir Ólafur kynnzt mörgum íslend- ingum, þar á meðal Hannesi Hafstein ráðherra, sem í einu bréfi til Ólafs þakkar honum fyrir góð ráð og bendingar og ennfremur segir hann, að margt af því, sem þeir hafi talað um, hafi sér heppnast betur að framkvæma á íslandi, heldur en Ólafi í Færeyjum. Þótt Ólafi auonaðist ekki að sjá heitustu ósk sína, um virkj- un Fossár, rætast, auðnaðist honum þó að sjá bankann rísa upp í Færeyjum og- síma lagðan um allar eyjarnar, og ýms önn- ur áhugamál, sem hann barðist fyrir. Ólafur á Heygum var mikill að vallarsýn og glæsilegastur allra Færeyinga, sem ég hefi séð. Hann var heljarmenni að burðum, og fara margar sögur af aflraunum hans. Hann eyddi meginhluta ævi sinnar og fórnaði starfsþreki, sínu i baráttu fyrir þau fram- faramál, sem hann taldi nauð- synlegust Færeyjum og fær- eysku þjóðinni. En samtíðar- mennirnir skildu hann ekki. Hann var of langt á undan þeim, eins og hent hefir fleiri mikil- menni. Hann reyndi að sameina landa sína til baráttu fyrir vel- ferðarmálum, eins og Fossár- virkjuninni, en það tókst ekki. Okkur, sem horfum úr fjar- lægð heim til Færeyja, finnst Ólafur á Heygum það lítt skiljanlegt, að svona hefir farið, en skýringin mun vera sú, að baráttan milli stjórnmálaflokkanna hefir tek- ið mestalla orku beztu manna þjóðarinnar, og fyrir pólitískum hagsmunum og viðhorfum hafa velferðarmálin orðið að víkja. Framtíðarviðleitni öll og hinar stórbrotnu framtíðarhugsjónir Ólafs á Heygum hafa lent í skugga hinnar harðsnúnu st j órnmálabaráttu. Ólafur á Heygum, maðurinn, sem hér hefir með örfáum orð- um verið minnzt á, dó árið 1923. Banamein hans var hjartaslag. Hin fjölþætta og harða lífsbar- ^tta hans bugaði að lokum þennan harðsnúna, hugdjarfa og þróttmikla mann. Honum auðnaðist ekki að koma í framkvæmd hinni glæsi- legu hugsjón sinni: virkjun Fossár. Hún rennur ennþá, þótt 22 ár séu liðin frá andláti hans, óbeizluð til sjávar i Vestmanna- höfn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.