Tíminn - 02.10.1945, Page 2
2
TÍMINN, IwigSjBiriagmw 2. okt. 1945
74. lilað
J'í’iðjíifííif/ur 2. ofcí.
Þrjár stefnur
Línurnar í stjórnmálum Ev-
rópuþjóðanna eru orðnar skýr-
ar. Þingkosningarnar í Bretlandi
og héraðsstjórnarkosningarnar í
Frakklandi hafa sýnt glögglega,
hvernig straumarnir liggja.
Sama er að segja um hinar mis-
heppnuðu tilraunir, sem víða
hafa verið gerðir til að sameina
jafnaðarmenn og kommúnista
í einn flokk eða kosningabanda-
lag.
Það er orðið ljóst, að höfuð-
stefnurnar eftir styrjöldina
verða þrjár. Það verður kom-
múnisminn, sem er lengst til
vinstri og stefnir að kollvörp-
un ríkjandi þjóðskipulags . og
sköpun nýrra stjórnarhátta að
rússneskri • fyrirmynd. Það
verður íhaldsstefnan, sem er
lengst til hægri, og leitast við
að halda í forréttindi^ stórat-
vinnurekenda og milliliða í
nafni frjálsrar samkeppni og
einstaklingsfrelsis. Það verður
umbótastefnan, sem beitir sér
fyrir margvíslegum þjóðfélags-
legum endurbótum, afnámi
sérréttinda og jafnræði á
grundvelli lýðræðis og persónu-
frelsis.
Kosningaúrslitin í Bretlandi
og Frakklandi eru óbirgðult
merki þess, að það er síðast-
nefnda stefnan, sem nýtur nú
mests fylgis í Evrópu. Þeir
flokkar, sem bera hana uppi,
jafnaðarmannaflokkarnir og
róttæku miðflokkarnir, hafa
aukið fylgi sitt mest.
Þessi þróun mætti áreiðan-
lega verða íslendingum lær-
dómsrík. Eins og nú standa
sakir, beinist stjórnarfarið hér
í öfuga átt. Hér situr að völd-
um sambræðslustjórn kommún-
ista og stórgróðamanna, er hef-
ir táldregið annan af umbóta-
flokkum landsins til fylgs við
áig. Höfuðeinkenni stjórnar-
farsins eru margvísleg spilling
stórgróðavaldsins og millilið-
anna og alger hrunstefna í
fjármálum, sem fylgt er að
undirlagi kommúnista. Þessi
einkenni er reynt að dylja með
loforðum um „nýsköpun“ at-
vinnuveganna, enda þótt flest
verk stjórnarinnar — og þó
fjármálastefnan sérstaklega —
miði að því að torvelda hana.
Ef íslendingar vilja fylgjast
með í þeirri umbótasókn, sem
fram mun fara í nágranna-
löndunum næstu árin, verður
strax að binda endi á þessa
öfugþróun, sem nú er hér ríkj-
andi. Umbótamenn í öllum
flokkum verða að taka höndum
saman. Alþýðuflokkurinn má
ekki lengur láta táldraga sig
til samstarfs við afturhalds- og
byltingaröflin, heldur verður
hann að fylgja fordæmi þeirra
bræðraflokka sinna, sem afla
sér aukins fylgis með því að
hafna slíkum bræðingi við stór-
gróðamenn og kommúnjsta.
Framsóknarmenn, Alþýðu-
flokksmenn og frjálslyndir
Sjálfstæðismenn eiga að mynda
bandalag og gera það nógu öfl-
ugt til að knýja fram viðreisn
fjárhagsins og tryggja hér
svipaðá framfaraþróun og í
öðrum lýðræðslöndum. Það verð-
ur hér eins og annars staðar
eina leiðin til að skapa heil-
brigt og réttlátt stjórnarfar.
Flokkur bænda
Sá skilningur bænda fer óð-
um vaxandi, að þeir þurfi auk-
in stéttarsamtök til að gæta
hagsmuna sinna og jafnréttis
við aðrar stéttir. Stofnun Stétt-
arsambands bænda er glöggt
merki um þetta. En slík stéttar-
samtök eru þó bændum ekki
einhlít, fremur en verkalýðsfé-
lögin verkamönnum. Verka-
menn hafa einnig komið sér
upp pólitískum samtökum og
þá fyrst, þegar þau hafa verð
orðin öflug, hefir verkalýðs-
félagsskapurinn orðið öflugur.
Á sama hátt þurfa bændur að
efla pólitísk samtök, jafnhliða
hinum samtökunum. Þessi 'nauð-
syn mætti verða enn ljósari af
því, að enn fleiri og fleiri stór-
i) í $ a V a h (f
i
E R L E N T Y F I R L I T
Enn versnar hlutur Ólafs.
Stefán Jóhann hefir þózt
þurfa að launa Ólafi Thors sið-
ferðisvottorðið, er Ólafur gaf
honum í hinni frægu „til-
kynningu“, sem ráðherrar kom-
múnista lýstu síöar ósanna.
Sjálfur hefir Ólafur ekki treyst
sér til að svara mótmælum
Brynjólfs og Áka og því fer
Stefán fram á vígvöllinn í Al-
þýðublaðinu síðastl. fimmtu-
dag og hyggst að hreinsa
mannorð Ólafs.
Eins og menn muna, sagði
Ólafur í tilkynningu sinni, að
sænski samningurnn hafi legið
orðréttur fyrir ríkisstjórninni
áður en hann Var undirritað-
ur. Ráðherrar kommúnista töldu
hins vegar, að aðeins hefði
legið fyrir útdráttur úr hon-
um og á þeim útdrætti hafi ekki
verið séð, að íslendingar þyrftu
að veita skilyrðislaust innflutn-
tngsleyfi fyrir öllum sænskum
vörum, er nefndar voru í samn-
ingnum, en Sviar gætu hins
vegar neitað um innflutnings-
leyfi fyrir ísl. vörum, sem
greindar voru í samningunum,
ef þeim líkaði ekki verð og gæði.
Af þeim sönnunargögnum,
sem Stefán Jóhann leggur fram
í áðurnefndri grein sinni, kemur
ljóst fram, að aðeins yfirlit um
efni samningsins, en ekki orða-
lag hans, hefir legið fyrir stjórn-
inni áður en hann var undir-
ritaður og á þeim atriðum, sem
Stefán tilgreinir, verður heldur
ekkert séð um þann mismun-
andi rétt samningsaðila, að
annar verður að leyfa skilyrð-
islaust innflutning, en hinn
hefir synjunarrétt. En það á-
kvæði er höfuðgalli samnings-
ins.
Eftir þessa misheppnuðu
vörn Stefáns, stendur hlutur Ól-
afs því hálfu verr en áður og
„siðferðisvottorðið“, sem hann
gaf Stefáni, gerir málstað Stef-
áns enn tortryggilegri.
Vegna þess, að Stefán er að
fjargviðrast yfir því, að Tíminn
skuli ekki leggja trúnað á „til-
kynningar" Ölafs, vill Tíminn
leggja þá spurnngu fyrir hann,
hvort hann taki þá „tilkynn-
ingu“ Ólafs trúanlega, að Einar
Olgeirsson hafi farið í Austur-
veg fyrir þrábeiðni Ólafs og
Péturs Benediktssonar!
Danskt fordæmi.
Hingað hafa borizt sam-
þykktir ýmsra danskra verka-
lýðsfélaga varðandi launamálin.
í samþykktum þessum hefir
yfirleitt ekki verið farið fram á,
að heildarlaunin verði hærri en
1939, en hinsvegar er lögð á-
herzla á, að kaupmáttur þeirra
verði aukinn með lækkun milli-
liðakostnaðar og auknum vöru-
gæðum.
Hér er vissulega mörkuð önn-
ur stefna en sú, sem hefir ein-
kennt starfsemi íslenzkra verka-
lýðsfélaga undanfarin ár. Hér
hefir aðeins verð hugsað um
krónutölu kaupsihs, en hins
ekki gætt, hvort kaupmáttur-
inn ykist að sama skapi. Þetta
hefir átfc einn drýgsta þáttinn
í því, að dýrtíðarmálunum er
nú komið, eins og raun ber
vitni.
íslenzk verkalýðsfélög verða
að taka sér dönsku félögin til
fyrirmyndar. Þau eiga að krefj-
ast lægri verzlunarálagningar,
ódýrara húsnæðis og lækkunar
á öðrum framfærslukostnaði,
þar sem því verður við komið.
Þá mun verða hægt að koma
krónutölu kaupsins í svipað horf
og annars staðar, án þess að
kaupgeta verkafólks þurfi samt
að minnka.
Kiljan ætti að verða bústjóri
á Korpúlfsstöðum.
Halldór Kiljan birtir einn af
hinum bandóðu langhundum
sínum um bændurna og land-
búnaðinn í seinasta þriðjudags-
blaði Þjóðviljans. Hann segir
þar, að „bændur hafi hvorki á-
huga né nauðsynlegustu undir-
stöðuþekkingu á þeim atvinnu-
vegi, sem þeir stunda“, og „al-
mennt lifi bændur vorir og
hrærist í draumórum hins forna
villimannabúskapar“ og „það
væri í mörgu falli ódýrara að
ala menn á hælum en styrkja
þá til svo fánýtrar og ömur-
legrar skemmtunar“ og búskap-
ur þeirra er. Aftan í langhund-
inn bindur hann svo þá tillögu,
að Reykvíkingar verði hið bráð-
asta að koma sér upp kúabúum,
svo að þeir þurfi ekki lengur
að kaupa dýru mjólkina af slik-
um brjálæðingum og bændur
séu!
Bændur munu áreiðanlega
ekki taka þeirri hugmynd illa,
að Bjarni Ben. og Sigfús auki
búskapinn á Korpúlfsstöðum,
því að samanburðurinn á fram-
leiðslukostnaðinum þar og hjá
þeim myndi þá enn síður vera
þeim í óhag en nú. Og bændur
myndu ekki einu ; sinni verða
neitt smeykir við samkeppn-
ina, þótt Kiljan sjálfur yrði
gerður að bústjóra á Korpúlfs-
stöðum og sýndi þar alla þá
miklu landbúnaðarþekkingu og
mál en áður eru nú ráðin til
lykta á hinum pólitíska vett-
vangi.
Pólitískur flokkur, sem bænd-
ur efla, lætur það vitanlega vera I
eitt höfuðverkef’ni sitt að gæta
réttinda bænda og koma fram ;
hagsmunamálum þeirra. En
hann verður jafnframt að
marka sér stefnu í þjóðfélags-
málunum yfirleitt. Fyrir honum
liggur þá að velja á milli höf-
uðstefnanna þriggja, kommún-
ismans, íhaldsstefnunnar og
umbótastefnunnar. Bændur eru
áreiðanlega fráhverfir kom-
múnismanum og þeir ættu ekki
síður að vera fráhverfir íhalds-
stefnunni, þar sem aðaltak-
mark hennar er að halda í sér-
réttindi stórgróðamanna og
milliliða á kostnað vinnandi
stéttanna, bænda ekki síður
en annarra. Umbótastefnan er
bændum tvímælalaust mest að
skapi ofe með því að láta flokk
sinn fylgja henni, geta þeir
einnig fengið mikið af frjáls-
lyndu kaupstaðafólki, sem ann
landbúnaðinum réttlætis, undir
merki hans.
Af öllum íslenzkum stjórn-
málaflokkum fullnægir Fram-
sóknarflokkurinn því bezt að
vera flokkur bænda.
Hann er eini stjórnmála-
flokkurinn, sem hefir beitt sér
fyrir að landbúnaðurinn nyti
jafnréttis við aðra atvinnu-
vegi og bændur nytu svipaðra
kjara og aðrar stéttir. Öll um-
bótamál, sem fengizt hafa fram
með löggjöf, eru að þakka bar-
áttu hans. Jafnframt er Fram-
sóknarflokkurnn eini flokkur-
inn, er nú heldur uppi merkjum
raunverulegrar umbótastefnu,
eins og hann hefir líka jafnan
gert síðan hann tók til starfa.
Þetta hefir bændum líka ver-
ið ljóst. Alltaf hafa fleiri og
fleiri bændur verið að skipa sér
undir merki Framsóknarflokks-
ins. í seinustu kosningum munu
alltaf tveir þriðju hlutar bænda-
stéttarinnar hafa fylgt honum
að málum.
En til þess að Framsóknar-
flokkurinn verði nógu öflugur,
þurfa bændurnir allir að skipa
sér undir merki hans eða aðila,
sem með honum vilja vinna.
Þá fyrst myndi Framsóknar-
flokkurinn verða vel þeim
vanda. vaxinn að gæta réttinda
bændanna og knýja fram um-
bætur á öðrum sviðum þjóðfé-
lagsmálanna. Bændurnir myndu
þá enn einu sinni verða for-
ustusveitin í samtökunum, sem
beitast fyrir nýrri umbótasókn
þjóðarinnar, eins og þeir á
sínum tíma voru brautryðjend-
ur samvinnufélagsskaparins og
fjölmargra annara umbóta-
mála.
Eftir framkomu forkólfa
Sjálfstæðisflokksins og kom-
múnistaflokksins í verðlagsmál-
um bænda undanfarnar vikur,
ætti vissulega að verða leitun
á þeim bónda, sem fylgir þeim
hér eftir, þótt þeir hafi gert
það áður. Því síður ættu þeir
að gera þetta, þar sem þeim er
opið að starfa í flokki, sem
berst fyrir réttindum bænda og
umbótastefnu, sem hverjum
bónda mætti vera hugleikið
að styðja.
landbúnaðaráhuga, sem hann
telur sig hafa og gera sig þess
umkominn að úrskurðá bændur
til hælisvistar. Þegar Kiljan
væri þannig búinn að sýna,
hvað hann gæti, væri fyrst
hægt að fara að taka landbún-
aðarskrif hans alvarlega, en
þangað til virðist það ekki ó-
sanngjarn dómur um þau, að
þau séu skrifuð af manni, sem
a. m. k. eins og sakir standa,
hentar bezt sú vist, sem hann
úrskurðar öðrum.
Vantrúaður
á nýju togarana.
í Lesbók Mbl. fyrir nokkru
síðan birtist grein eftir Gísla
Halldórsson verkfræðing um
byggingu dieseltogara í Amerku.
Eftir að Gísli hefir lýst yfirburð-
um dieseltogara fram yfir tog-
ara með guíuvélum, víkur hann
að hinum fyrirhuguðu togara-
smíðum ríkisstjórnarinnar. Far-
ast honum m. a. orð á þessa
leið:
„Mjög hefði það verið æski-
legt, að keyptur hefði verið
einn slíkur diesel-togari til
þess að öðlast reynslu — áður
en ráðist er í kaup á fjölmörg-
um íogurum, sem ef til vill
vegna reynsluskorts verða
hafðir ófullkomnari en vera
þyrfti“.
Þessi ummæli Gísla sýna full-
komlega, að hann er talsvert
vantrúaður á gæði nýju togar-
anna, sem stjórnin ætlar að fara
að láta smíða, og verður þessi
vantrú samt ekki rakin til þess,
að Gísli sé ekki vel trúaður
stjórnarsinni.
Kommúnistar leika á Bjarna.
Sjálfstæðismenn urðu nýlega
fyrir miklum vonbrigðum af
vinum sínum, kommúnistum, á
fund'i í Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur. Bjarni Ben. hefir
undanfarið gengið milli kaup-
manna og sagt, að þeir yrðu að
sýna frjálslyndi sitt fyrir kosn-
ingarnar og bjóða starfsfólkinu,
að búðunum yrði lokað kl. 4 á
laugardögum að vetrinum.
Þetta átti svo að þakka íhalds-
(Framhald á 7. síðu)
Deilan um ítölsku nýlendurnar
Það var tilkynnt, þegar utan-
ríkisráðherrafundurinn kom
saman í London í fyrra mán-
uði, að fyrsta verkefni hans
væri að ganga frá friðarsamn-
ingunum við Ítalíu, en síðan yrði
rætt um friöarsamningana við
Balkanríkin, sem fylgdu Þjóð-
verjum, og Finnland. Þegar
fundinum var frestað um sl.
helgi hafði hann engum af
þessum verkefnum lokið. Or-
sakir þess voru þó ekki ágrein-
ingur við þau ríki, sem átti að
semja við, heldur ágreiningur
milli sigurvegaranna sjálfra.
Ágreiningurinn viðkomandi
Baikanlöndunum var einkum sá,
að Bretar og Bandaríkjamenn
vilja ekki viöurkenna núv.
stjórnir þar, en Rússar styðja
þær hins vegar af öllu megni.
Samningurinn við Ítalíu strand-
aði hins vegar vegna ágreinings
sigurvegaranna um' ítölsku ný-
lendurnar.
Frá efnahagslegu sjónarmiði
eru ítölsku nýlendurnar ekki
neitt eftirsóknarverðar. Þær eru
Trípólí, Libya, Eritrea, Somali-
; land, Rhodes og Tylftareyjar.
j Náttúruauðlegð þessara landa
' er yfirleitt lítil, landbúnaður er
helzti atvinnuvegurinn,' en víð-
ast eru ræktunarskilyrðin heldur
örðug. Hins vegar er lega þeirra
flestra þannig, að þau geta haft
j mikla hernaðarlega þýðingu.
Frá Tylftareyjum og Rhodes er
hægt að liindra sigli'ngar um
Dardanellasund og gera árásir
á flest Miðjarðarhafslöndin.
Frá Tripolis og Libyu er hægt
að ráða yfir siglingaleiðum á
stórum hluta Miðjarðarhafs.
Frá Eritreu og Somalilandi er
hægt að ráða yfir siglingunum
um Rauðahafið.
Fullt samkomulag mun hafa
verið um það milli sigurvegar-
anna, að ítalir yrðu sviptir öll-
um yfirráðum yfir nýlendun-
um. Hins vegar byrjaði ágrein-
ingurinn, þegar að því kom að
ráðstafa þeim. Bandaríkjamenn
og Bretar munu helzt hafa
hugsað sér þá lausn, að þær
yrðu allar settar undir alþjóða-
stjórn. RÆssar hafa hins vegar
lýst sig slíku fyrirkomulagi
andvíga og taiið æskilegast, að
aðeins einu stórveldi yrði falin
umboðsstjórn í hverri nýlendu
og yrði þeim skipt milli stór-
veldanna. Rússar hafa jafn-
framt látið það uppi, að þeir
teldu .rétt, að Tylftareyjar og
Tripolis kæmu í sinn hlut.
Þessar tillögur Rússa hafa á-
reiðanlega komið Bandamönn-
um mjög á óvart, enda geta þær
ekki byggzt á öðru en því, að
Rússar ætla sér að gerast Mið-
jarðarhafsveldi. í fyrstu var
haldið, að Rússar myndu láta
sér nægja, að tryggja sér yfir-
ráð í þeim löndum, er næst
liggja Rússlandi, en þessar fyr-
irætlanir sýna, að þeir hyggja
á miklu meiri útþenslu á veidi
sínu og yfirráðum'.
Þessar tillögur "Rússa eða
landvinningafyrirætlanir hafa
sætt allharðri gagnrýni í ensk-
um og amerískum blöðum. í
mörgum blööunum hefir sú
skoðun komið fram, að geti
Rússar þannig gert tilka^l til
hernaðarlegra bækistöðva vlð
Miðjarðarhaf, sé ekki nema
sanngjarnt, að þeir viðurkepni
rétt Breta og Bandaríkjamanna
tii bækistöðva á þeim slóðum,
þar sem Rússar eru einráðir
nú, t. d. við Svartahaf og aust-
anvert Eystrasalt.
Það þykir fulivíst, að þessar-
kröfur Rússa til umboðsstjórn-
ar í Tripolis og á Tylftareyjum,
hafi átt mikinn þátt í því, hve
lítill árangur varð á utanríkis-
ráðherrafundinum. Hún hafi
sýnt hinum þjóðunum það enn
betur en áður, hvert Rússar
væru að fara, og því hvatt þær
til aukinnar varúðar. Yfirleitt
virðist það einkenni þessa fund-
ar, að mikils ágreinings hafi
gætt í flestum höfuðmálunum
og yfirdrottnunarstefna Rússa
hafi jafnan verið helzta or-
sökin. Úr því mun fást betur
skorið á framhaldsfundinum, er
haldinn verður í nóvember,
hvort af þessu getur hlotizt
varanlegt ósamkomulag. Niður-
staðan mun vafalaust fara mik-
ið eftir því, hve trausta að-
jstöðu Rússar telja sig hafa, en
' ólíklegt er, að Bandamenn láti
undan fleiri landvinningakröf-
I (Framhald á 7. síðu)
I Reykjavíkur bréfi í Skutli 19. f. m.
iegir svo:
..Síðustu dagana hefir verið all-
stormasamt í blöðum tveggja af
stuðningsflokkum stjórnarinnar. —
Þetta hefir að vísu kómið fyrir
nokkrum sinnum áður, síðan
stjórnin var mynduð, og sýnir m.
a., að af fyllstu heilindum muni
varla. hafa verið gengið til þessa
samstarfs af hejztu leiðtogum
flokkanna, því vitað er, að það eru
þeir, sem stjórna þessum blaða-
skrifum. „Hvert það ríki, sem er
sjálfu sér sundurþykkt, ‘ hlýtur að
falla“ stendur einhvers staðar. Og
þótt vitað sé, að í stjórnmálum sé
gamanið oft grátt og að „i góðsemi
menn vegi þar hvern annan", þá
er hitt jafn auðsætt mál, að ekkert
stjórnarsamstarf þolir það til
lengdar, að helztu aðilar þess beri
hvern k annan daglega æruleysis-
brigzlum, lýsi samstarfsmönnum
ýmist sem reynslu- eða þekkingar-
snauðum afglöpum eða ófyrirleitn-
um gróðabrallsmönnum, sem brugð-
ið hafi trúnaði við þjóð sína og
hugsi um það eitt að maka krókinn
fyrir sjálfa sig.
Þegar það opinberar sig jafn ber-
lega og gert hefir undanfarna daga.
hvernig ástandiö er á ýmsum hæð-
um á stjórnarheimilinu, þá fer varla
hjá þvi, að eitthvað af þeirri
„gloríu", sem þessir sömu menn, á
milli þess, sem þeir fá „hreinskiln-
isköstin", eru að reyna að bregða
yfir stjórnarsamstarfið, fari for-
görðum.
Sá, sem þetta ritar, er engan
veginn þeirrar skoðunar að „ekkert
sé nýtilegt x „stefnuskrá" stjórnar-
innar, enda er sannleikurinn, að
mörg af þessum atriðum voru neydd
upp á samningsaðilana af mönn-
um, sem ekki höfðu. trú á þessu
samstarfi tveggja „sósialistiskra"
flokka og spilltasta hagsmunasam-
• bands stríðsgróðamanna og heild-
salavalds landsins. Þess vegna er
stefnuskráin undarlegt sambland af
góö,um málefnum og einkisnýtu
orðagjálfri, sem átti að hylja inni-
haldsleysi stefnunnar í mörgum ör-
lagaríkustu atriðum stjórnmála yf-
irstandandi tíma — og framkvæmd-
in hefir hingað til orðið eftir þessu,
einkennilegt sambland af tilraunum
til að sýna einhvern lit á að standa
við hin góöu efnisatriði málefna-
samningsins og alls konar svindil-
brask, sem átt hefir sér stað undir
verndarvæng nýsköpunarinnar.
En það, sem fyrst,og fremst hefir
auðkennt allt saman, eru óheilindin
í verzlunarmálunum, í heildsala-
málunum, í skattamálunum, í verð-
lagrmálum landbúnaðarins, í vísi'-
tölumálum og svo sífelldar ákærur
samstarfsflokkanna á hvern annan
fyrir landráðastarfsemi, fyrir of-
beldi, fyrir svindilbrask og trúnað-
arbrot o. s. frv. Svo sundurþykkt
ríki hlýtur að falla, og það fyrr en
síðar.“ ,
í stuttu máli verður höfuðeinkenn-
um núv. stjórnarbræðings ekki öllu
betur lýst en hér- er gert.
*
*
í áðurnefndu blaði Skutuls nefnist
forustugreinin: Kotungskróna. Þar
segir:
„Fá lönd hafa baðað í rósum eins
og íslahd að því er fjárhagslega af-
koniu snertir á stríðsárunum. Og
fá lönd hafa á sama tíma liöið
aðrar eins hörmungar eins og Dan-
mörk nálega á hvaða sviði sem er.
,Þrátt fyrir alla velsældina og allt
peningaflóðið hefir okkur íslend-
ingum verið það ljóst, að verögildi
íslenzkrar krónu hlyti að fara sí-
fellt minnkandi. — Samt hrukku
allir við — eins og vöknuðu við
vondan draum — nú fyrir skömmu,
þegar skýrt var í fyrsta sinn frá
því í stríðsbyrjun, frá verðgildi
danskrar krónu samanborið við
íslenzku krónuna. — íslenzka krcn-
an var ekki verðmeiri — ekki jöfn
þeirri dönsku — stóð ekki einu
sinni í sama hlutfalli við dönsku
krónuna og húix stóð fyrir stríð. —
Nei, íslenzka krónan var mun rírari
en nokkru sinni fyrr gagnvart
daixskri krónu. En því miður var
þetta ekki aðeins 'vondur draumur
— þetta var kaldur og grár veru-
leikinn. Það er búiö að gera íslenzku
krónuna að kotungskrónu.
Síldveiðin brást. Þa'ð var fyrsta
vonbrigðavertíðin í mörg ár. Þessi
vonbrigði lggjast mörgum þungt í
skaut. Og nú hefir atvinnumálaráð-
herrann, Áki Jakobsson, skipað
nefnd til að athuga, lxvað hægt sé
að gera til þess að hjálpa útgerð-
inni. Þarf þá ekki aðra nefnd til
að athuga, hvað gera skuli til að
hjálpa sjómönnum þeim, sem heirn
komu tekjulausir að kalla af þess-
■ ari vertíð? Eða hví er sjómönnun-
um gert lægra undir höfði en út-
' gerðinni af ráðlxerra öreiganna?
Er það máske af því, að þessi ráð-
herra þekkir öllu betur Falkurút-
gerðina, en lífskjör’fátæklinganna?
Hyer veit, og ekki væri það óhugs-
andi. *
Eitt af því, sem kommúnistar for-
dæmdu allra miskunnarlausast á
sínum tíma í fari þjóðstjórnarinn-
ar • sáluðu sem svik við alþýðu
manna, var gengislækkunin. Og
hvað ætli það sé nú, sem hin ný-
skipaða nefnd Áka Jakobssonar
ráðherra á að koma með til hjálpar
útgerðinni? — Það er ekki gott að
segja, en svo mikið er víst, að farið
er þaö að kvisast úr vissum herbxið-
um, að eina ráðið sé gengislœkkun.
Ef það ætti nú líka eftir að henda
þessa fyrstu ráðherra kommúnism-
ans á íslandi, þá yrði ekki annað
sagt, en að þeir væru búnir að súpa
bikar háðungarinnar í botn og það
í einum teig.“
Það er áreiðanlegt. að lækkun krón-
unnar hefir verið mjög til umræðu og
athugunar hjá forystumönnum stjórn-
arklíkunnar undanfarnar vikur og
margir kommúnistar eru farnir að
nefna krónulækkun sem eðlilegt úr-
ræði. Þar sem kosningar eru í nánd,
hefir sú leið þó ekki þótt fær að sinni,
cn það er áreiðanlega ekki vanþörf á
ryrir sparifjáreigendur að fara að
spyrna við fótum, ef afstýra á krónu-
lælikun síðar.