Tíminn - 02.10.1945, Page 6
TÍMIIVIV, þriðjndagmn 2. okt. 1945
74. blað
SEXTUGTR:
FIMMTUGUR:
AÐALSTEINN KRISTINSSON
framkvæmdastjóri.
AðaLsteinn Kristin&son, fram-
kvæmdastjóri innflutnings-
deildar Sambands íslenzkra
samvinnufélaga, verður sextug-
ur 4. þessa mánaðar. Hefir hann
gegnt þar fr.kv.-starfi frá því.að
Sambandið stofnsetti heildsölu
í Reykjavík og hefir þannig
við hlið bræðra sinna, Hall-
grínfs heitins og Sigurðar, verið
einri traustasti forvígismaður
samvinnufélagsskaparins í land
inu öll vaxtar- og þroskaár S.
í. S. fram á þennan dag. Munu
íslenzkir samvinnumenn vel
þekkja og meta þakkarskuld
sína við þennan dygga for-
svarsmann sinn og senda hon-
um hlýjar kveðjur úr öllum
byggðum íslands á þessum
tímainótum ævi hans.
Aðalsteinn er Eyfirðingur að
uppruna, fæddur í Syðra-Dals-
gerði, og voru foreldrar hans
Kristinn Ketilsson bóndi þar,
og Hólmfríður Pálsdóttir, er
átti ættir að rekja út í Svarf-
aðardal.
Nítján ára gamall hóf hann
nám í gagnfræðaskólanum á
Akureyri, eins og þá var títt
um marga gáfaða og fram-
gjarna æskumenn héraðsins, en
þaðan fór hann svo í Hólaskóla
og stundaði þar búnaðarnám
einn vetur. En þótt svo réðist, að
hann yrði hvorki bóndi né
starfsmaður á vettvangi hinna
eiginlegu búnaðarmála, hefir þó
bændastétt landsins, sem mynd-
ar meginkjarna samvinnu-
hreyfingarinnar, notið starfs-
krafta hans óskertra að kalla,
því að í hennar þjónustu gekk
hann, eins og áður er sagt, eft-
ir að hafa unnið um hríð að
verzlunarstörfum á Akureyri.
Aðalsteinn er óvenjulegt
prúðmenni, fríöur sýnum, kvik-
ur í hreyfingum, glaður og um
flest líkari ungum manni en
4 sextugum, er um tugi ára hefir
gegnt umfangsmiklu og vanda-
sömu starfi.
í æsku var hann vaskur í-
þróttamaður og fór víða um
Halldór Þorvaldsson
bóndi á Kroppsstöðnm.
Adalsteinn Kristinsson
lönd með Jóhannesi Jósefssyni
og sýndi íslenzka glímu í fjöl-
mörgum stórborgum álfunnar.
Enn speglar hver hreyfing
hans snarleik hins spengilega í-
þróttamanns.
Auk þess að vera einn af leið-
togum samvinnufélagsskaparins
í landinu, hefir Aðalsteinn um
langt skeið verið í hópi forustu-
manna Framsóknarflokksins og
verið valinn til margvíslegra
trúnaðarstarfa af hans hálfu.
Öll þau störf, hvort heldur hafa
veriö í þágu alþjóðar eða
flokksins, hefir hann leyst af
hendi með prýði. Einnig fyrir
þau bera honum margvíslegar
þakkir á þessum tímamótum. ,
Aðalsteinn er kvæntur Láru
Pálmadóttúr frá Æsustöðum í
Eyjafirði, mætri konu.
Verður áreiðanlega mann-
margt á heimili þeirra hjóna á
fimmtudagipn, er vinir Aðal-
steins koma til þess að óska
honum til hamingju.
Halldór Þorvaldsson, bóndi á
Kroppsstöðum í Önundarfirði
varð fimmtugur þ. 25. septem-
ber. Hann er sonur Þorvglds
Þorvaldssonar, sem þáttur er af
í Frá yztu nesjum, og konu hans
Kristínar Halldórsdóttur.
Halldór er alinn upp í Önund-
arfirði, þar sem foreldrar hans
bjuggu á Vífilsmýrum og Efsta-
bóli. Rúmlega tvítugur fór hann
til búnaðarnáms að Hólum.
Vorið 1920 keypti hann Kropps-
staði og hóf búskap þar og
hefir búið þar síðan.
Eins og margir þeir, sem byrj-
uðu búskap bjartsýnir og stór-
huga á verðbólguárum fyrri
heimsstyrjaldar, hefir Halldór
Þorvaldsson fengið þungar
byrðar að. bera. Hann er einn
þeirra mörgu manna, sem árum
saman stóðu með miklum
þegnskap og manndómi undir
þeim margvíslegu þyngslum,
sem leiddu af skammvinnum
fjármálaórum og 'uppskafn-
ingslegri eyðslu reynslulítillar
þjóðar. Og þó að rás viðburð-
anna hafi lagt þeirri bænda-
kynslóð þungan fjötur um fót
og meinað henni að uppfylla
æskuhugsjónir nema að litlu
leyti, megum við, sem yngri er-
um í stéttinni, þó minnast
hennar þakklátir, því að hún
bar atvinnuveg okkar yfir erf-
iðasta kafiann.
Halldór Þorvaldsson mótaðist
ungur af hugsjónum ungmenna-
félaganna og hefir jafnan stað-
ið þar í fylkingu, sem hann þá
kaus sér stað. Þannig á hann
Úr sögu Siglufjarðarmálsins
(Framhald aj 3. síðu)
arnir sýnast hafa setið eftir.
Fundargerð minnihlutafull-
trúanna segir, að þegar Bjarni
Jóhannsson hafi hafið að láta
fara fram atkvæðagreiðslu um
dagskrártillöguna, hafi formað-
ur, réttara mun þó vera vara-
formaöur, enda leiðrétt í rekstri
málsins af hálfu gjörðarþola,
gefið fundarhlé, meðan ró væri
að komast á. Síðan segir, að
eftir nokkurn tíma hafi formað-
ur sett fundinn á ný og beðið
jafnframt varaformánn að hafa
fundarstjórn meðan hann sjálf-
ur læsi skýrslu stjórnarinnar.
Hafi formaður síðán lesið
skýrsluna og drepið á flestar
gerðir stjórnarinnar, er nokkru
máli hafi skipt. Þá hafi frú
Guðrún Björnsdóttir talað, en
þareð það sem eftir frú Guðrúnu
er haft í fundargerðinni er að
verulegu leyti rangt, samkvæmt
vottorði er hún hefir gefið í
málinu, þykir ekki ástæða til
að rekja það, en þess má geta,
að í vottorði frú Guðrúnar segir,
að hún hafi bent á hættuna, er
K. F. S. stafaði af hinum miklu
deilum og flokkadráttum innan
félagsins og skoraði á deilu-
aðila að reyna að finna sam-
komulagsgrundvöll. Þá segir
ennfremur í fundargerð minni-
hlutafulltrúanna, að eftir ræðu
frú Guðrúnar hafi Þóroddur
Guðmundsson lýst því yfir að
hann væri fús til að beita sér
fyrir því, að sættir kæmust á,
en Jóhann Þorvaldsson lýst yfir,
að hann tæki ekki til greina
tilmæli frúarinnar og myndi
hann og fleiri fulltrúar ganga
af fundi og hafi þeir síðan gert
það. Það sem hér er bókað eftir
Jóhanni kemur ekki heim við
vottorð frú Guðrúnar, er segir,
að Jóhann hafi enga slíka yfir-
lýsingu gefið, að ræðu hennar
lokinni, heldur staðið upp og
sagt, að nú yrði fundurinn flutt-
ur inn í annað herbergi í hús-
inu, en yfirlýsingu um að það
yrði gert hafi hann verið búinn
að gefa áðúr en hún hóf mál
sitt.
Þá hafa fundargerðir meiri-
og minnihlutafulltrúanna verið
raktar fram að þeim tíma, er
meirihlutafulltrúarnir fluttu
fundinn í sal á efra lofti húss-
ins. Af gögnum málsins er vart
unnt að sjá með fullri vissu,
hvað gerzt • hefir á fund-
inum til þess tíma. Hafa bæði
málsaðilar og vitni reynst
all ósamhljóða um það. Þó
virðist ljóst, að nokkur órói
hefir verið á fundinum, er að-
allega virðist þó hafa verið fólg-
inn í hávaða, köllum og jafnvel
fótastappi og ennfremur sýnist
svo, að 'stundum hafi fleiri en
einn talað í einu í salnum og
þykir ekki, að öllu athuguðu, ó-
líklegt, að rétt sé sú lýsing frú
Guðrúnar Björnsdóttur, er hún
segir í vottorði sínu, að þegar
Jóhann Þorvaldsson hafi lýst
yfir, að fundurinn yrði fluttur,
hafi „sakir staðið þannig, að
svo leit út sem verið væri að
halda tvo fundi 1 salnum.“
Verður nú lýst framhaldi
fundanna eftir fundargerðun-
um og þá fyrst framhaldi fund-
ar minnihlutafulltrúanna.
Svo sem fyr var vikið að, var
Hlöðver Sigurðsson, barnaskóla-
stjóri, skipaður fundarritari á
fundi þeim, en minnihlutafull-
trúarnir héldu áfram eftir að
Jóhann lýsti yfir, að hann flytti
fundinn. Þá er bókað, að haldið
m. a. sinn góða þátt í því að
hafa gert sveit sína bindindis-
sama á tóbak og áfengi. Verð-
ur sú vernd, sem vaxandi æsku-
lýð er þannig veitt, seint of-
metin.
Trúmálahreyfing sú, sem
borin var uppi af Haraldi pró-
fessor Níelssyni og samherjum
hans, hreif mjög hugi manna á
æskuárum Halldórs Þorvalds-
sonar. Sú hreyfing var frjáls-
lynd, víðsýn og mild. Einkenni
hennar voru kærleikur og um-
burðarlyndi. Halldór er einn
þeirra manna, sem þeir andans
straumar hafa yljað gegnum
vetrarhríð ævinnar • og varið
fyrir kulda efnishyggjunnar.
Halldór kvæntist vorið 1931
Ágústu Pálsdóttur skipstjóra
Rósinkranssonar. Þau hjón eiga
þrjú efnileg börn.
Vinir Halldórs Þorvaldssonar
hyggja gott til þess að standa
með honum í fylkingu fram-
vegis í framsókn sveitar sinnar
og stéttar. Það er svo margt af
hugsjónum þeirra, sem á að
rætast á komandi árum, er þarf
öruggra liðsmanna og stað-
fastra, — slíkra manna sem
hans. Séu slíkir menn nógu
margir mun þeirri kynslóð, sem
hefir nú þrautir eyðimerkur-
innar að baki, auðnast að sjá
hið fyrirheitna land framtíðar-
innar, þar sem börn þeirra rækta
hina góðu mold ættjarðarinnar
og samúð hjartans mótar við-
skipti fólksins.
H. Kr.
Kaupfélagsstjorastaöan
við Kaupfélag Skagfirðinga er laus 14. maí n. k. — Umsóknir
sendist til formanns félagsins, Tobíasar Sigurjónssonar, Geld-
ingaholti, fyrir 1. desember.
2. september 1945.
Stjórn Kaupfélags Skagfirðinga.
hafi verið áfram umræðum um
skýrslu stjórnarinnar og síðan,
að í þeim umræðum hafi komið
fram svohljóðandi tillaga frá
Guðbrandi Magnússyni, gjörðar-
þola: „Fundurinn samþykkir
að kjósa 5 manna nefnd, sem
leiti samkomulags um þau deilu-
atriði, sem upp hafi komið milli
fulltrúa á aðalfundinum“. Var
tillaga þessi samþykkt með 19
samhljóða atkvæðum. Jafn-
framt er bókað, að hún hafi
verið borin undir atkvæði
þeira félagsmanna, er voru á
fundinum sem áheyrendur og
þeir samþykkt hana einrómk.
Kosnir voru í nefndina Jón Jó-
hannsson, -Gunnar Jóhannsson,
Ásgrímur • Albertsson, Guð-
brandur Magnússon og Hlöðver
Sigurðsson. Síðan er bókað, að
rætt hafi verið áfram um skýrslu
stjórnarinnar meðan nefndin
starfaði, en nefndarmenn virð-
ast þegar, eða a. m. k. Guð-
brandur Magnússon, hafa farið
á fund meirihlutafialltrúana,
sbr. síðar. Þá er loks bókað, að
gefið hafi verið fúndarhlé
„vegna starfa nefndarinnar til
sunnudags 1. júlí, ef þörf kref-
ur“. Síðan er fundargerðin und-
irrituð.
Þess er fyrst að geta um fram-
hald fundargerðar melrihluta
fulltrúanna eftir að “þeir fluttu
fundinn, að það hefst á því, að
bókuð eru nöfn þeirra fulltrúa,
er f(3ru á hinn nýja fundarstað.
Voru það 31 aðalfulltrúi og 12
varafulltuiar ....
Þá kusu fulltrúar tvo menn
sem varafulltrúa á aðalfund S.
í. S. og hlutu kosningu þeir Jó-
hann Þorvaldsson með 43 at-
kvæðum og Bjarni Jóhannsson
með 42 atkvæðum.
Að þvi loknu var tekinn fyrir
9. dagskrárliður. Önnur mál.
M.
Allir samvinnumenn ættu að kynna sér ýtarlega skipu-
lag og starfshætti stofnana sinna, samvinnufélaganna.
Fræðslu um ÞAÐ efni og mörg önnur fáið þér í
LEréfaákóia S. 3.S.
Fram kom þá tillaga, er Hall-
dór Kristinsson, .gjörðarbeið-
andi, flutti á aðalfundinum 7.
júni, en formaður neitaði að
bera undir atkvæði þá, en hún
var tekin upp orðrétt hér að
framan,þegar talað var um þann
fund. Hefir hún í málinu verið
nefnd valdatakmörkunartil-
lagan og er því nafni haldið um
hana í úrskurði þessum. Var til-
lagan samþykkt með samhljóða
atkvæðum.
Þá kom og fram svohljóðandi
tillaga, er einnig var samþykkt
með samhljóða atkvæðum:
„Fundurinn samþykkir að fela
kaupfélagsstjóra að ganga frá
leigusamningi við söltunarfélag
K.F.S. fyrir lágmarksleigu 40—
50 þúsund krónur miðað við
9000—10000 tunnu söltun og
1,50—2,00 kr. á tunnu, sem um
fram er. Öll viðhaldsskylda
hvílir á leigutaka“.
Nú er Guðbr. Magnússon,
gjörðarþoli, kominn á fundinn
Bað hann um orðið og tilkynnti,
að hann væri mættur fyrir hönd
þeirra fulltrúa, er þarna væru
ekki mættir og flutti þau til-
mæli til fundarins, að hann
kysi 5 manna nefnd til að „ræða
um allsherjarsamvinnu og sam-
komulágsgrundvöll allra full
trúa K.F.S“. Var þá flutt og
samþykkt með samhljóða at-
kvæðum svohljóðandi tillága:
„Fundurinn samþykkir að fela
nefnd þeirri, er nú starfar fyrir
fulltrúana, að mæta til ýið-
ræðna við þá nefnd minnihlut-
ans, sem nú er hér mætt.“
Loks kom fram svohljóðandi
tillaga: „Fundurinn samþykkir
að fresta aðalfundinum enn á
ný til 21. þ. m. og felur fram-
kvæmdastj. og fundarstjóra að
auglýsa dagskrá með framkomn-
um lagabreytingum“.
r
Þeir samlagsmenn, sem réttinda njóta í Sjúkra-
samlagi Reykjavíkur og óska að skipta um lækna frá
næstu áramótum, snúi sér til skrifstofu samlagsins,
Tryggvagötu 28, frá 1. til 31. októbermánaðar, og ligg-
ur þar frammi listi yfir lækna þá, sem valið er um.
Læknaval getur því aðeins farið fram, að samlags-
maður sýni tryggingarskírteini sitt og skírteini beggja
ef um hjón er að ræða, enda verða þau að hafa sömu
lækna.
Reykjavík, 25. sept. 1945.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur
Ullarverksmiðjan
F J U N
framleiðir fyrsta flokks vörnr.
Spyrjið því jafnan fyrst eftir
Gefjunarvörum
þegar jður vantar UUUARVÖRUR
Vökukonur
og starfsstúlkur
vnntar á Kleppsspítala.
ZJpplýsingar hjjá tifirhjjáhrunarUonunni.
Svo sem kunnugt er
/ *
reyndist ekki, mögulegt meðan á stríðinu stóð, að fá til landsins
nægilegt af æskilegum hráefnúm til smjörlíkisgerðar, enda munu
þau algerlega ófáanleg enn í nokkra mánuði.
Viðskiptaráð hefir mörgum sinnum, eftir beiðni smjörlíkis-
gerðanna og með milligöngu sendiráðsins í Washington, gert hið
ýtrasta til þess að fá aukinn útflutning á smjörlíkisolíum frá
Ameríku en jafnan árangurslaust.
Þegar líða tók að stríðslokum, tókst sendiráði íslands í Was-
hington að fá nokkuð aukinn útflutning á smjörlíkisolíúm til
landsins og í þeirri von að sá útflutningur haldist, hafa smjör-
líkisgeröirnar breytt hráefnablöndu sinni og er það mjög til bóta
þó hins vegar enn sé langt í land að geta gert jafngott smjörlíki
og ef hægt væri að ná í hráefni frá Austurlöndum eins og áður.
Er hið nýja smjörlíki nú komið í allar verzlanir.
•■' , - \ ’ /
Smjörlíki^erðin h.f. Sinjörlíkisgerðin Ujómi
„Blái borðinn"
„Ljóma smjörlíki“.
Smjörlíkisgerðiu Svarnir
„Svana smjörlíki“.
Smjörlikisgerðin Ásgarðnr li. f.
„Silfurskeifan“.
Orðsending til kaupenda Tímans
Ef kaupendur verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru þeir vin-
samlega beðnir að gera afgreiðslunni þegar aðvart.
\