Tíminn - 09.10.1945, Qupperneq 1
KITSTJÓRX:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÓTOEFFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
Símar 2353 Oe 4373.
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
KITSTJÓRASKRIFBTOFOR: |
EDDUHÚSI. LlruSargðtu 9A
Simar 2353 Og 4373.
AFGREIÐSLA, INNITErMTA
OG A UGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Simi 2323.
29. árg.
Rcykjavík, þriðjudagiim 9. okt. 1945
76. blað
Afkoma danska landbúnaöarins
a hernámsárunum
Frásögn Gísla Kristjánssonar búnaðarliag-
fræðings.
Gísli Kristjánsson búnaðar-hagfræðingur var meðal þeirra
íslenzku búfræðikandidata, sem komu heim með Esju frá Kaup-
mannahöfn í sumar. Gísli hefir verið erlendis í 14 ár. Fyrst við
nám og síðan starfsmaður við danskar landbúnaðarstofnanir.
Hann kom hingað til lands fyrir milligöngu atvinnnumálaráðu-
neytisins og er ráðinn starfsmaður Búnaðarfélags íslands. Þar
sem íslendingar hafa litlar spurnir haft af dönskm landbúnaðar-
málum á síðari árum, hefir tíðindamaður blaðsins átt viðtal við
Gísla um þau efni.
— Hvernig vegnaði danska
landbúnaðinum á styrjaldarár-
unum?
— Yfirleitt má segja, að honum
hafi vegnað vel.eftir því sem við
var að búast. í upphafi hernáms-
ins lokaðist fyrir innflutning
fóðurbætis og vissra tegunda
Gísli Kristjánsson
tilbúins áburðar, sérstaklega
fosfórsýruáburðar. Þetta olli
eins og gefur að skilja miklum
örðugleikum, þar sem, Danir lifa
fyrst og fremst á búpeningsrækt.
Margir þeir, sem kunnugastir
voru landbúnaðarmálunum, ótt-
uðust að við þessa örðugleika
myndi landbúnaðarframleiðslan
dragast saman um allt að því
helming. En úr þessum málum
rættist mikið betur en á horfð-
ist í fyrstu.
— Hvaða leiðir voru farnar
til úrbóta?
s— það var aukin stórlega
ræktun þurefnisríkra rófna, sem
kallaðar eru fóðursykurrófur.
Ræktun þessara rófna leiddi
aftur til þess að feikna mikil
eftirtekja fékkst af hverri flat-
areiningu í landi, þar sem þær
voru ræktaðar, og einmitt þessi
eftirtekja kom að miklu liði til
að bæta úr fóðurefnaskortinum.
Auk þess, sem rófurnar eru kol-
vetnaríkar, eru rófnablöðin
mjög mikilsverð, þar sem þau
innihalda verulegt magn nauð-
synlegra eggjahvítuefna, sem
einmitt nú á þessum tímum
komu að góðu haldi, þegar olíu-
kökurnar ekki fengust, en í þeim
er eggjahvituefni það, sem
nauðsynlegt er til allrar mjólk-
urframleiðslu.
Dönsku landbúnaðarstofnan-
irnar lögðu mikla áherzlu á að
brýna fyrir bændum að nota
rófnablöðin til fóðurs. Voru þáu
geymd til vetrarforða sem vot-
hey, Verkar fjórði hver bóndi í
Danmörku nú vothey, en fyrir
striðið aðeins einn af hundraði.
Áður tíðkaðist það í Danmörk,
að plægja rófnablöðin niður til
áburðar.
Það má þannig segja, að auk-
in ræktun fóðurjurta og hag-
kvæm notkun þeirra hafi bjarg-
að dönskum landbúnaði frá
þeim vandræðum, er að honum
steðjuðu í upphafi hernámsins.
Mjólkurframleiðsla Dana minnk-
aði hvorki um helming eða þriðj
(Framhald á 8. siðu)
Frá nniræðnm á Alþingi í gær:
Úlafur Thors kallar þaö firru,
aö treysta einkaframtakinu
/
Ríkisstjórnin hcfir ckki samið eim um sölu á
neiimm af |»eim 30 hátiuu, sem húu lætur
siníða iimanlands.
Fyrstu þingfundirnir, sem
höfðu mál til umræðu, voru
haldnir í gær.
348 teknir
úr uraferð
Hinar auknu áfengisútsölur í
Reykjavík ætla ekki að bregð-
ast vonum valdhafanna, því að
áfengisgróðinn eykst hröðum
skrefum. En gróðinn hefir líka
aðrar hliðar, sem valdhafarnir
virðast ekki sjá. T. d. fer
drykkjuskapur á almannafæri
hraðvaxandi. í seinasta mán-
uði voru 348 manns teknir úr
umferð í Reykjavík vegna ölv-
unar, cn þó hefði þurft að taka
margfallt fleiri, ef húsrúm
hefði leyft það. Hafa aldrei
verið teknir jafnmargir menn
úr umferð á einum mánuði.
Getur þessi staðreynd ekki
opnað augu valdhafanna og
fengið þá til að snúa af þeirri
braut, sem nú er fylgt í áfeng-
ismálunum?
v-
í efri deild voru tvö bráða
birgðalög til umræðu.
Önnur lögin voru um það, að
væri tvenns konar verð á ein
hverri vöru, skyldi aðeins lægra
verðið talið í dýrtíðarvísitöl-
unni. Fór málið til nefndar eftir
að viðskiptamálaráðherra hafði
flutt stutta ræðu. Hin lögin
voru um kjötstyrkinn. Bernharð
Stefánsson og Hermann Jónas-
son gagnrýndu ýms ákvæði frv.
og þó ekki sízt, hve lengi setn-
ing þess hefði dregizt og óvissan,
sem við það hefði skapazt, hefði
dregið úr kjötsölunni. Land-
búnaðarráðherrann maldaði í
móinn og lézt vera hinn ánægð-
asti.
í neðri deild voru einnig tvö
bráðabirgðalög til umræðu.
Fyrri lögin voru um lántöku
vegna bátasmíða ríkisstjórnar-
innar innanlands. Eysteinn
Jónsson gerði þá fyrirspurn,
hvort búið væri að semja um
sölu á þeim 30 bátum, sem rík
isstjórnin væri að láta smiða
(Framhald á 8. síðu)
Fjárlagafrv. ríkisstjórnariiinar gerir
ráð fyrir 13 miljón kr. greiðsluhalla
Sjóðsútgjöldin eru áætluð 19,5 milj. kr.
hærri en í ár, án þess að framlög til at-
vínnuveganna verði nokkuð aukin
Marskálkur verður landsstióri
Mynd þessi er af Sir Harald Alexander marskálki, sem nýlega hefir verið'
skipaður landsstjóri Bretakonungs í Kanada, eftir ósk Kanadamanna sjálfra.
Alexander og Montgomery eru frægustu hershöfðingjar Breta í þessari styrj-
öld og margir telja Alexander, Montgomery fremri, en hann er hæglátari og
liefir því minna á honum borið. Það þótti miklum tíðindum sæta, er Alex-
ander kvað upp úr meö það á siðastl. vori, að framferði Titos minnti á Hitler
og Mussolini. Þótti víst, að jafn orðvar maður myndi ekki fella slíkan dóm að
ástæðulausu, enda hefir það líka sannazt betur síðar, að þessi dómur ætti
vel við um Tito og fleiri gerfileiðtoga í Balkanlöndunum.
Nefndarkosningar í sameinuðu
fiingi og deildum
• ' i
Kosningar í þingnefndir fóru fram í deildum á fimmtudaginn
var, en í sameinuðu þingi á föstudaginn. Á laugardaginn var
enginn þingfundur haldinn. Þannig hafði fyrsta vika þingsins
eingöngu farið í kosningar og mun það einsdæmi, að jafnlöngum
tíma hafi verið eytt í því skyni.
Þau tíðindi gerðust í sam-
bandi við kosningu fjárveit-
inganefndar, að Framsóknar-
menn fengu þrjá menn í hana
í stað tveggja áður. Atvikaðist
það þannig, að stjórnarflokk-
arnir hugðú^t að fá fimmmenn-
ungana svokölluðu til liðs við
sig og settu því Þorstein Þor-
steinsson í seinasta sætið. Átti
þannig að tryggja atkvæði
fimmmenninganna og minnti
þetta, nokkuð á þá hernaðarað-
ferð Þjóðverja að binda konur
á skriðdreka, svo að síður yrði
á þá skotið. Þessi hernaðarlist
heppnaðist þó ekki, því að
stjórnarlistinn fékk 34 atkvæði,
listi Framsóknarflokksins 15, en
2 seðlar voru auðir. Segir Mbl.,
að það leyni sér ekki, að þar
hafi tveir hinna svokölluðu
fimmmenninga verið að verki,
og lætur illa yfir því, að þeir
skyldu ekki þyrma Þorsteini.
Kosningar í sameinuðu þingi
fóru á þessa leið:
Fjárveitinganefnd: Helgi Jón-
asson, Björn Kristjánsson, Skúli
Guðmundsson, Guðmundur í.
Guðmundsson, Pétur Ottesen,
Sig. Kristjánsson, Gísli Jónsson,
Þóroddur Guðmundsson og
Steingrímur Aðalsteinssön.
Utanríkismálanefnd: (Aðal-
menn) Bjarni Ásgeirsson, Her-
mann Jónasson, Stefán Jóh.
Stefánsson, Bjafni Benedikts-
son, Einar'Olgeirsson og Lúðvík,
Jósefsson. Varamenn: Eysteinn
Jónsson, Páll Zophoníasson, Ás-
geir Ásgeirsson, Garðar Þor-
steináson, Sigfús Sigurhiartar-
son, Olafur Thors og Pétur
Magnússon.
Allsherjarnefnd: Páll Zophon-
íasson, Sigurður Þórðarson,
Barði Guðmundsson, Jóhann
Þ. Jósefsson, Ingólfur Jónsson,
Jón Sigurðsson og Sigui'ður
Thoroddsen. ,
Þingfarakaupsnefnd: Páll
Zophoníasson, Ásgeir Ásgeirsson,
Sigurður Kristjánsson, Sigurður
Hliðar og Þóroddur Guðmunds-
son.
í efri deild fóru nefndarkosn-
ingar á þessa leið:
Fjárhagsnefnd: Bernharð
Stefánssonf Haraldur Guð-
mundsson, Lárus Jóhannesson,
Magnús Jónsson og Kristinn E.
Andrésson.
(Framhald á 8. síðu)
Verkfallið
á kaupskipunum
Ekkert samkomulag hafði
náðst I gærkvöldi í kaupdeil-
unni á kaupskipunum. Tvö skip
hafa þegar stöðvazt hér vegna
hennar, Reykjafoss, sem kom á
fimmtudaginn, og Súðin, sem
kom á laugardaginn. Hin skipin
munu stöðvast jafnóðum og þau
koma.
Má það furðulegt lieita, ef
rikisstjórnin ætlar að draga það
Icngi að leysa þessa deilu, scm
getur orðði atvinnulífi lands-
manna stórhættuleg, ef hún
dregst citthvaö úr þessu.
Margir munu hafa búizt við því,að fjárlagafrumvarp ríkisstjórn-
arinnar fyrir árið 1946 myndi marka gerbreytta fjármálastefnu
og með því myndi verða snúið inn á nýja og heillavænlegri braut
en fylgt hefir verið hingað til. Einkum munu menn hafa dregið
þetta af þeim margendurteknu ummælum f jármálaráðh. á
seinasta þingi, að taka yrði upp nýja stefnu við afgreiðslu fjár-
laganna, en honum hefði ekki unnizt tími til að vinna að breyting-
unni að því sinni. Einkum hélt ráðherrann því fram, að fjárlögin
væru orðin alltof há, og þyrfti því að koma á stórfelldum sparnaði.
Frestun á þinghaldinu fram til 1. okt. var og ekki sízt rökstudd
með því, að fjármálaráðherra þyrfti rúman tíma til að undirbúa
breytingar á fjárlöguhum.
Þetta nýja fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar liggur nú fyrir
og geta menn því kynnt sér, hvernig stjórninni hefir tekizt að
leysa þetta verkefni. Niðurstaðan af slíkri athugun er i stuttu
máli sú, að enn Iengra er stefnt á eyðslubrautinni, án þess að um
aukin framlög tii atvinnuveganna sé að ræða, en hvergi örlar
á mi’Vinsíu viðleitni í þá átt að færa niður launaútgjöldin. Enn
einu sinni hefir það sannazt, hve lítið er að treysta yfirlýsingum
og loforðum fjármálaráðherra og flokksbræðra hans.
F j ár lagaf r umvar pið.
Fjárlagafrumvarpið fyrir árið
1946 var lagt fram á Alþingi í
gær. í flestum atriðum er þar
fylgt ákvæðum núgildandi fjár-
laga, að öðru leyti en því, að
launaútgjöld eru hækkuð á
flestum útgjaldaliðum fjárlag-
anna til samræmis við nýju
launalögin. Þó eru framlög til
ýmsra verklegra framkvæmda
lækkuð, miðað við núgildandi
fjárlög, eins og t. d. til nýrra
þjóðvega um eina milj. kr. og til
hafnarmannvirkja um 1,4 milj.
kr. Þá er gert ráð fyrir að lækka
kostnaðinn við strandferðirnar
um 1 milj. kr., og mun slikt ekki
geta leitt til annars en að draga
úr þeim, ef þetta verður sam-
þykkt. Hærri framlaga til verk-
legra framkvæmda og atvinnu-
veganna gætir yfirleitt ekki,
nema nokkurrar hækkunar á
jarðræktarstyrknum, og nokk-
urra nýrra skólabygginga ^m. 'a.
Menntaskólans í Rvík og búnað-
arskólaná' á Suðurlandi). Á
tekjubálki fjárlaganna eru ekki
gerðar neinar verulegar breyt-
ingar, en hann er þó áætlaður
heldur hærri en i ár, m. a. er
gróðinn af Áfengisverzluninni
áætlaður 2.5 milj. kr. hærri. Þá
er gert ráð fyrir, að tekjuskatts-
aukinn, sem lagður var á í fiyrra,
haldist áfram. Höfðu þó stjórn-
arflokkarnir gefið vonir um, að
hann yrði ekki lagður á aftur.
Niðurstaðan á fjárlagafrum- ;
varpinu er svo sú, að á rekstrar- i
reikningi er gert ráð fyrir 115.2
milj. kr. útgjöldum og einnar
milj kr. rekstrarhalla, en á sjóðs-
yfirliti er gert ráð fyrir 129.6
milj. kr. útgjöldum og 12.8 milj.
kr. greiðsluhalla. Til samanburð-
ar má‘ geta þess, að í fjárlög-
um yfirstandandi árs eru út-
gjöldin á rekstrarreikningi 108.2
milj. kr. og rek,strarafgangur
8 milj. kr., en á sjóðsyfirliti eru
útgjöldin 110.2 milj kr. og
greiðsluhalli 200 þús. kr. Út-
gjaldahækkanirnar .frá .því .í
fyrra, stafa eins og áður er rak-
ið, fyrst og fremst af auknum
launaútgjöldum.
Greiðslnlialliim.
Eins og framangreindar tölur
beta með sér, er gert ráð fyrir
nær 13 milj. kr. greiðsluhalla á
fjárlögunum. Enn verður ekki
sagt um það, hvernig fjármála-
ráðherrann hyggst að mæta
honum, en þar er ekki nema um
tvær leiðir að ræða, annaðhvort
nýja skattaálagningu ellegar
skuldasöfnun, nema farið verði
inn á niðurfærsluleiðina.
Eins og fjárlagafrumvarpið er
úr garði gert og útgjaldakröf-
um sumra stjórnarflokkanna er
háttað, verður að teljast næsta
líklegt,að fjárlögin muni hækka
verulega í meðferð/ þingsins.
Greiðsluhallinn eykst þá vitan-
lega að sama skapi.
Fullkomnari sönnun er ekki
hægt að fá fyrii; því í hvert ó-
efni fjárstjórn ríkisins er komið
en að gert skuli vera ráð fyrir
stórkostlegum greiðsluhalla hjá
ríkissjóði áður en nokkuð er far-
ið að slota því mesta gróðatíma-
bili, sem hér hefir komið, og án
þess að meira fé sé varið til
verklegra framkvæmda en venju
lega. Raunverulega eru fram-
lögin til verklegra mála minni
en áður, (þótt krónuupphæð
þeirra standi nokkurnveglnn í
stað), ef miðað er við fram-
kvæmdirnar, sem fyrir þau fást.
Fr ekki n«f>' koniið?
Fjárlagafrumvarpið nýja
mætti vissulega verða þjóðinni'
alvarleg áminnihg um, hvort
eigi sé hógu langt komið á
eyðslu- og óstjórnarbrautinni
og því megi ekki lengur dragast
að fara, að snúa við. Jafnframt
mætti frv. vissulega verða þeim
mönnum alvarleg áminning,
sem nafa trúað því, að Sjálf-
stæðisfl. væri sérstaklega vel
trúandi til Aparnaðar og gæti-
legrar fjárstjórnar, og -lögðu
seinast trúnað á þau loforð
fjármálaráðherrans og flokks-
bræðra hans á seinasta þingi,
að hann myndi vinna að því að
koma þessum málum í lag fyrir
þetta þing. í stað slíkra efnda
flytur ráðherrann nú langhæsta
fjárlagafrumvarpið, sem þekkzt
hefir í þingsögunni, og nær all-
ar tillögur hans til bréytinga
eru um launahækkanir. Skýr-
ari sönnun er vissulega ekki
hægt að fá fyrir því, að forkólf-
um Sjálfstæðisflokksins er til
einskis treystandi í þessum mál-
um og þess vegna verða ó-
breyttir liðsmenn hans að leita
sér annarra úrræða en að fylgja
beim, ef þeir ætla að hjálpa til
þess að fjárhagshruninu verði
afstýrt.