Tíminn - 09.10.1945, Qupperneq 6
6
TÍMIM, |iritgjHtlagmn 9« okt. 1945
76. blað
Bókaauglýsing
Ferðin til Hróarskeldu, ib. kr. 6.00.
í Tatarahöndum, ib. kr. 6.00.
69.. Sveitasögur eftir Einar H. Kvaran 308 bls. Kr. 10.00.
70. Stuttar sögur eftir Einar H. Kvaran 350 bls. Kr. 10.00.
Það bezta, sem Einar H. Kvaran hefir samið, er að
finna í'þessum tveim bókum.
71. Babbit, I—II, eftir Nóbelsverðlaunaskáldið Sinclair
Lewis. Áður kr. 64.00, nú kr. 35.00. Óbundin: áður kr.
30.00, nú kr. 15.00.
72. Heiðaharmur, ib., nýjasta bók Gunnars Gunnarssonar.
Áður kr. 20.00, nú kr. 12.00.
Ljjóðabækur:
1. Aringlæður. Ljóð. Kristjón Jónsson, kr. 3.00.
2. Burknar. Ljóð. Pétur Pálsson kr. 4.00, ib. kr. 6.50.
3. Draumsjónir. Ljóð. Ásg. Hraundal, kr. 3.00.
4. Daggir. Ljóð. Gunnlaugur Sigurbjörnss. kr. 3.00.
5. Eilífðar smáblóm. Ljóð. Jóhannes úr Kötlum, kr. 7.00.
6. Glettur. Ljóð. Sig. B. Gröndal, yfirþjónn, kr. 6.00, ib.
kr. 8.00.
7. Geislabrot. Ferskeytlur Hjálmars á Hofi, kr. 5.00.
8. Guðrún Ósvífursdóttir. Söguljóð. Brynj. frá Minna-
Núpi, kr. 4.00.
9. Hendingar. Stökur. Jón frá Hvoli, kr. 5.00.
10. Hinir tólf. Frægur Ijóðaflokkur. A. Block, kr. 10.00.
11. Hamar og sigð. Ljóð. Sigurður Einarsson, dósent, kr.
7.00.
12. Haföldur. Ljóð. Tölusett. Ásm. Jónsson, kr. 4.00.
13. Heimur og heimili. Ljóð. Pétur Sigurðsson, erindreki,
kr. 4.00.
14. Hugheimar. Ljóð. Pétur Sigurðsson, erindreki, kr. 5.00.
15. Hillingar. Ljóð. Sveinbjörn Björnsson, kr. 3.50.
16. Huliösheimar I. Ljóðaflokkur. Arne Garborg kr. 4.00,
ib. kr. 6.00.
17. Helheimar II. Ljóðafl. Arne Garborg, kr. 4.00.
18. Hjálmar og Ingibjörg. Sig Bjarnason, kr. 6.00.
19. Hnitbjörg. Ljóð. Páll V. G. Kolka, kr. 6.00.
20. Kveður í runni. Ljóð. Sigriður Einarsdóttir, kr. 4.00 ib.
kr. 6.00.
21. Kvæði. Elín Sigurðardóttir, kr. 5.00, ib. kr. 7.00.
22. Landnám Hallsteins. Söguljóð. Ásgeir Hraundal, kr.
2.00.
23. Ljóð og sögur. Axel Thorsteinsson, kr. 4.00.
24. Ljóðmál. Dr. Richard Beck, kr. 10.00.
25.
26.
27.
28.
29.
30.
31.
32.
33.
34.
35.
36.
37.
38.
39.
40.
41.
42.
43.
44.
45.
46.
47.
48.
49.
50.
51.
52.
53.
54.
55.
56.
57.
58.
59.
Ljóðmæli. Séra Guðlaugur Guðmundsson, kr. 4.00, ib.
kr. 6.00.
Ljóð úr Jobsbók. Valdimar Briem, kr. 4.00.
Ljóðmæli. Með mynd. Jón Hinriksson, kr. 7.00.
Ljóðmæli eftir Magnús Markússon, kr. 6.00.
Ljóðmæli. Brynjólfur Oddsson, kr. 10.00.
Ljóðmæli. Sigurður Bjarnason. Voru gefin út aðeins
150 eintök. Aðeins örfá eint., kr. 10.00.
Ljóðmæli. Björnstjerne Björnson, ib. kr. 20.00.
Ljóð. Gísli Ólafsson, kr. 5.00.
Ljóðmæli. Jóh. Örn Jónsson, kr. 8.00.
Ljóðmæli. Gísli Brynjólfsson. Lítið eitt til, — kr. 15.00.
— í þessari bók er að finna beztu kvæði sinnar teg-
undar á íslenzka tungu, t. d. „Grátur Jakobs yfir
Rakel,“ Magyara ljóð, Flokkur Sapo o. fl. o. fl.
Lausar skrúfur og gamankvæði, kr. 2.00.
Ljóðmæli. Guðm. Björnsson, kr. 5.D0, ib. kr. 7.00.
Ljóðabók. Jón Þorsteinsson, Arnarvátni, kr. 5.00.
Mansöngvar til miðalda. Ljóðafl. Jóh. Frímann, kr.
4.00, ib. kr. 6.00.
Ljóð eftir þýzka stórskáldið Heine, í rauðu smekklegu
bandi, kr, 16.00.
Móðurarfurinn. Gömul ljóð og sálmar, kr. 3.00.
Nokkrar stökur. Gísli Ólafsson, kr. 3.00.
Náttsólir. Ljóð. Guðm. Frímann, kr. 4.00.
Nökkvar og ný skip. Ljóð. Jóh. Frímann, kr. 6.00.
Ólafsríma Grænlendings. Einar Ben., kr. 6.00.
Órar. Ljóð. Hannes Guðmundsson, kr. 3.00, ib. kr. 4.50.
Rímur af Búa Andríðssyni og Fríði Dofradóttur. Grím-
ur Thomsen, kr. 3.00.
Rímur af Án Bogsveigi. Sigurður Bjarnason, kr. 4.00.
Rímur af Hænsna-Þóri.Jón Þorláksson, Bægisá, kr. 4.00.
Rökkursöngvar. Örfá eintök. Kristmann Guðmunds-
son, kr, 10.00.
Stjörnur vorsins. Tómas Guðmundsson, kr. 14.00.
Skellihlátrar. Gamanvísur, kr. 2.00.
Stýfðir vængir. Ljóð. Holt, kr. 7.00, ib. kr. 10.00.
Sóldægur. Ljóð. Jón Björnsson, kr. 5.00.
Tækifæri og tíningur, Bjarni frá Vogi, kr. 2.00.
Tvístirnið. Ljóð. Jónas Guðlaugsson og Sig. Sigurðsson,
kr. 3.00.
Tindar. Ferskeytlur. Guðm. Gunnarsson, kr. 4.00.
Uppsprettur. Ljóð. Halldór Helgason, kr. 6.00.
Við lifum eitt sumar. Ljóð. Steindór Sigurðsson, kr.
• 12.00.
Þýdd ljóð, II. hefti kr. 20.00, VI. hefti kr. 19.00.
(Framhald af 5. síðu)
60. Þú munt brosa. Stökur. ísleifur Gíslason, kr. 4.00.
61. Ættjarðarljóð' 1944. Jochum M. Eggertss., kr. 5.00.
62. Örvar. Ljóð. Helgi Bjarnason, kr. 3.00.
ISaroiahækur:
1. Barnasögur. Hallgrímur Jónsson skólastj. kr. 5.00.
2. Barnagaman. Sögur, ljóð o. fl., kr. 5.00.
3. Bók náttúrunnar. Zakarías Topelius, kr. 6.00.
4. Mjallhvít. Með myndum, kr. 2.00.
5. ísabella, konan mín. Norskt ævintýri, kr. 2.00.
6. Norsk ævintýri. Theodóra Thoroddsen þýddi, kr. 2.50.
7. Odysseifur. Frásagnir fyrir börn með myndum, kr. 4.00.
8. Stígyélaði kötturinn. Ævintýri. kr. 1.00.
9. Sextíu leikir, vísur og dansar. Steingrímur Arason. ib.
kr. 6.00.
10. Ævintýri og sögur. H, C. Andersen. ib. kr. 20.00.
11. Ævintýri. Safnaö hefir dr. Björn Bjarnason frá Við-
firði. ib. kr. 5.00.
Tímarit:
Af neðantöldum tímaritum er af flestum aðeins um eitt
eintak að ræða, og er því betra fyrir þá sem vilja eignast
eitthvað af þeim, að gera það í tíma.
1. Spegillinn I—XX árg. compl. Fyrstu 9 árgangarnir
bundnir í rautt, ágætt skinnband kr. 650.00.
Do. annað eintak, fyrstu 5 árg. bundnir í svart skinn,
kr. 600.00.
2. Doktorinn ’l—4, allt sem út kom, — hálfgerður spegill
kr. 15.00.
3. Verði ljós I—IX, allt sem út kom. Eitt -merkilegasta
guðfræðitímarit, sem út hefir komið á íslenzku kr. 75.00.
4. Samtíðin I—X compl. kr. 85.00.
5. Árbók Háskólans I—XXXIII cömpl. með fylgiritum
kr. 450.00.
6. Elding. Jón Aðils sagnfræðingur gaf út, compl. kr. 50.00.
7. Læknablaðið, allt til 1940, mjög fágætt, kr. 600.00.
8. Alþingisbækur íslands, compl., I—VII, kr. 150.00.
9. Réttur I—XXVIII compl. kr. 300.00.
10. Kennarablaðið compl. kr. 20.00.
Bókavinir. Athugið hvað yður vantar af ofantöldum
bókum i bókasafnið. Fyllið í eyðurnar áður en það er um
seinan. Þér verjið hvorki tíma né peningum betur en með
því að veita yður góðar bækur. — Sendum gegn póstkröfu
um land allt.
Bðkaverzlun Guðmundar Gamalíelssonar
Lækjargötn 6. — Ssnti 3263.
L.
Veðurhljóð í Þjóðviljanum
(Framhald af 3. siðu)
fóðruninni. Auk þess vita þeir,1
að það er háegt að raékta kúa-
kyn, sem gefa þunna mjólk.
Þeir sækjast þó ekki eftir því og
ber tvennt til. Þeir vilja fram-
leiða góða mjólk, þó að það sé
nú ef til vill miðaldasjónarmið.
Auk þess vita þeir, að sums
staðar hér á landi er mjólkin
borguð eftir gæðum þannig, að
verðmælirinn er fitueiningin en
ekki kilógrammið eða lítrinn.
Og bændur vænta þess, ^aÖNSá
verzlunarháttur verði brátt al-
mennur. Þeir sækjast því ekki
eftir kúm með þunna mjólk, þó
að þær geti skilað nokkru meira
mjólkurmagni með sama fóður-
magni en kýrnar með góðu og
kostugu mjólkina.
Ef Kiljan þekkir kúakyn, sem
mjólka smjöri, þá er auðvitað
mjög fróðlegt að kynnast því
betur. Ef hann hins vegar vill
halda því til streitu að meta
neyzlumjólk eftir vatnsmagni og
fyrirferð eingöngu, má benda
honum á einfalt úrræði til þess
að auka framboð „drykkjar-
mjólkur" í þessu úrkomusama
landi. Hitt er svo annað mál,
að ég hugsa mér að hvorki
bændur né almennir neytendur
verði hrifnir af þeim úrræðum.
Ekki nenni ég að eyða orðum
að öllum þeim sýnishornum,
sem ég hefi tekið hér uþp, enda
veit ég að menn meta þau mjög
að verðleikum. Þó vil ég minn-
ast á þá kenningu, <að stétt
mín finni sig ekki hafa neinar
skyldur við þjóðfélagið. Sann-
leikurinn er sá, að það sem
heldur stéttini nú uppi í straum-
kasti líðandi stunda, eru eink-
um tvennir aflgjafar og báðir
andlegs eðlis. Það er tryggðin
við átthaga og atvinnuveg
æskuáranna og forfeðranna
nærð og glædd af staðfastri
‘ vissu þess, að landbúnaður á
íslandi er og verður þjóðar-
nauðsyn og ef við yfirgæfum
hann á tímum skammvinnrar
stríðsgróðavinnu, værum við að
hörfa af verði, þar sem þjóð
okkar ríður á að vel sé vakað
og unnið. Þessi fullvissa gefur
okkur þrótt til þess að halda
tryggð við landbúnað án þess
að gera nokkra tilraun til að
sækjast eftir léttari og ábata-
samari störfum. Við viljum hafa
gott samstarf við alla sann-
gjarna, starfsfúsa íslendinga
um það, að gera land okkar
betra og byggilegra. Okkur er
að sjálfsögðu ábótavant um
margt, en meðan hjörtu okkar
fyllast ekki af Djöfulsins hof-
móði og grotnandi mannfyrir-
litningu gagnvart öðrum stétt-
um, vænti ég að við verðum
samstarfshæfir um framför ætt-
jarðarinnar. En Kiljan hefir hér
eins og í verðlagsmálunum og
víðar, byggt höll mælsku sinnar
á sandi sjúklegs heilaspuna,
gripið hvatvíslegar fullyrðing-
ar úr lausu lofti.
Hvcrjir eig'a að
framlciða mjólk?
í samræmi við það, sem hér
hefir verið rifjað upp af full-
yrðingum Kiljans, byggir hann
sínar bjargráðatillögur. Hann
er búinn að fullyrða það, að
bændur vilji engar framfarir og
endurbætur og séu fjandsam-
legif þjóðfélaginu. Hann líkir
þeim meira að segja við spell-
virkja Ráðstjórnarríkjanna og
sjá þá bændur hylla undir þau
málagjöld, sem þessi ágæti
mannvinur myndi dæma þeim
samkvæmt rússneskum- réttar-
venjum. Svo leggur hann það
til, að Reykvíkingar taki að
sér framleiðslu mjóllfurinnar
sjálfir, hvort sem framleiðslu-
tækin yrðu eign bæjarins sjálfs
eða einkafjármagns. Það skipt-
ir ekki máli. Aðeins að fram-
leiðslan kæmist í eign Reyk-
víkinga og undir þeirra stjórn.
Hér eru þá tillögur ‘lagðar
fram. Á það skal minnst hér
jafnóðum að nokkur bæjarfé-
lög á landinu hafa horfið að
því ráði að koma sér upp kúá-
búum og eru það yfirleitt þörf
og góð fyrirtæki. Þessi bú afla
heyja sinna á véltæku landi.
Þau flytja mjólkina stutta leið
á markað og fá gjarnan hærra
verð en bændur því að þau selja
oft beint til neytenda með smá-
söluverði og hafa lítinn flutn-
ingskostnað. Þessi fyrirtæki eru
öll rekin með halla og hann er
mikill hjá sumum þeirra. Ástæð-
an til þess er sú að mjólkur-
framleiðsla, þótt við beztu skil-
yrði sé, þolir ekki taxtakaup
eins og það er nú á íslandi. Mið-
að við taxtaverð vinnuafls á ís-
landi er skaði að eiga kýr á ís-
landi, þó að skilyrði til hey-
skapar og markaða séu þau
beztu sem landið á til.
Ég skil ekki annað en Kiljan
gæti fengið Korpúlfsstaði leigða
til þess að framleiða þar úrvals-
mjólk fyrir Reykvíkinga. Ef til
vill vildu þeir félagarnir Bjarni
Benediktsson, Sigfús og kump-
ánar líka láta Kiljan reka þar
bú fyrir bæinn, svo að gróðinn
yrði almenningseign. Varla
myndi þá meistarinn telja eftir
sér að fylgja hugsjón sinni og
stjórna smjörkistunni við bæj-
ardyrnar meðan fólkið væri að"
komast á bragðið og gildur vara-
sjóður að hlaðast upp. Til þess-
ara og þvílíkra úrræða hefir
ekki verið gripið af þeirri ein-
földu ástæðu að stjórnendur
bæjarins, þeir sem hafa hag-
rænar gáfur aí algengari gerð
en Kiljan, vita það vel, að slík
framleiðsla yrði bænum byrði
og mjólkin dýrari en sú, sem
bændur selja. Fengin reynslá
sannar það.
Kiljan segir að peningarnir
séu að sprengja bankana, von-
andi og bíðandi eftir því einu
að einhver vilji leggja þá í fyr-
irtæki. Ef þetta er satt sýnist
mér að væri vit í því að leggja
þá í ræktun landsins og upp-
byggingu, svo að bændur hafi
tækifæri til að framleiða meiri,
ódýrari og betri vörur handa
frændum sínum og vinum i
bæjunum eins og allir óska og
vilja að geti orðið.
Hvers vegna getum við ekki
talað um þessa hluti í góðu og
tekið sáttir höndum saman um
að leysa vandann? Vandinn er
sá, að taka fjármagnið, hvort
sem það er nú að sprengja bank-
ána eða ekki, og nota það til
þess að umskapa okkar góða
gamla land, svo að þar sé hægt
að framleiða mat í sámræmi við
kröfur nútímamenningarþjóðari
Svo hygg ég að reynsla okkar og
þeirra þjóða, sem okkur eru
skyldastar bendi til þess, að bezt
verður að landbúnaðurinn sé
sjálfstæður atvinnuvegur og
eigi heima í sveitunum en sé
ekki hjáleigurekstur bæjar-
manna. Hitt er betra, hollara
og ódýrara fyrir alla.
Við eigúm að keppa að því
að hér starfi sjálfstæðar at-
vinnustéttir, sem lagi sig hver
eftir annarri og leysi hver ann-
arrar þarfir og eigi bróðurleg
samskipti. Til þess það geti
orðið verðum við að gæta þess að
láta ekki hvatvísa öfgamenn,
sem nú eru blindir af einhvers-
konar stríðsgróðavímu espa
okkur upp og teygja í fjand-
samlegar fylkingar. Augu manna
munu opnast á næstu árum
fyrir ýmsu því, sem nú er grafið
með hávaða og hrópyrðum. Og
þá er áríðandi að eiga það hug-
arfar sem samstarf allra þjóð
rækinna íslendinga verður að
byggjast á.
• Ég vil biðja lesendur Tímans
afsökunar á því að ég hefi orð-
ið svo margorður af þessu til-
efni. Ég ■ hefi þó sleppt ýmsu,
sem Kiljan víkur að í þessari
grein sinni svo sem raforku-
málunum og rétti sveitafólks til
þess að njóta lífsþæginda. Það
er alltaf hægt að ræða þau mál
íjérstaklega. Þegar slíkur her-
i blástur gegn bændastétt lands-
Áns, sem hér er um að ræða, er
gerður í ^ málgagni ríkisstj órn-
j arinnar, þarf einhver að svara.
Vilji flokkur blaðsins í heild
taka undir æsingarnar og róg-
inn, verður hér höfuðbarátta
og þá er ekki eftir neinu að
bíða fyrir bændur og sanngjarna
menn annarra stétta að taka
sér vígstöðu. Hins vænti ég þó,
að hér verði hugsunin sterkari
en ofsinn og makleg fyrirlitning
víðsýnna bæjarbúa þaggi niður
rödd ofstopans. í þeirri trú vil
ég biðja bændur að taka ekki
meira mark á einstökum rop-
greinum í blöðum bæjamanna
en ástæða er til. Dæmum ekki
fólkið í Reykjavík eftir hvat-
víslegum tálknaþyt einstakra
angurgapa, sem þykjast vera
upp úr því vaxnir að hugsa eins
og menn, þó að einhverjar dyr
'standi þeim opnar til að kom-
ast á prent. Ég veit fyrir víst,
að það sannast á bændum, að
þeir, sem eru niðursokknir í
starfsemi í þjónustu framtíð-
arinnar, láta sleggjudómana
ekki á sig bíta. Bændastéttin
leggur metnað sinn í það að
uppfylla það hlutverk sitt að
rækta landið og metta þjóðina.
Stór bók um líf og starf og samtíð listamannsins mikla
Leonardo da Vinci
eftir rússneska stórskáldið Draitri Mereskowski, í þýðingu
Björgúlfs læknis Ólafssonar
er komin í bókaverzlanir
Leonardo da Vinci var furðulegur maður Hvar sem hann er nefndur i bríkuth, er
eim og memi ikorti orð til þess að lýsa atgerfi hans og yfirburðum. I .Jincycioptrdia
Brilanmca" (1911) er sagt, nð sagan nefni engan mann, sem si hans jafningt á sx'iði
visinda og lista og óhugsandi sé, að nokkur maður hefði £nzt til að afkasta hundiaðmto
parli af ölln þvi, sejn hann fékkst við.
Leonardo da Vinci var óviðja)nnnlegur mdlari. En hann var lika uppfinningamaður
A við Edison, eðlisfrœðingur, sl(rrdfrfcðingnr, stjörnufueðingur og hervélafrcröingur
Hann fékkst við rannsóknir i ljósfr(rði, liflrrrafrcpði og stjórnfraði, andlitsfall manna og
fellingar i klccðum athugaði liann vandlega.
Söngmaður var Leonardo, góður og lék sjálfur d hljóðfceri. Enn fremur ritaðí hann
kynstrin öll af dagbókum, eh - ^
list lians liefir gefið honum orðstír, sem aldrei deyr.
Þessi bók itm Leonardo da Vinci er saga um mannmn, er fjölltcrfastur og afkasta•
méstur er talinn allra manna, er sögur fara af. og einn a\ mestu listawönnum veraldor.
í bókinni eru um 30 myndir af listaverkum.
H.F. LEIFTUR, Reykjavík.