Tíminn - 09.10.1945, Blaðsíða 7
76. Jsiað
TÍMIM, jiriöjnclaginii 9. okt. 1945
7
dag er síöasti söludagur í 8. fiokki.
HAPPDRÆTTIÐ
Eríent yfirlit
(Framháld aj 2. síðu)
á henni. Einna sennilegast
þykir, að þeim hafi þótt betra
að láta stranda á þessu, heldur
en einhverju öðru, sem lýsti
betur yfirdrottnunaráformum
þeirra. Þess vegna hafa þeir
fundið upp þetta deiluefni eftir
á, þegar þeim var orðið ljóst, að
Bandamenn myndu ekki víkja
frá þeirri kröfu, að komið yrði
á lýðræði í Balkanlöndunum.
Árangursleysi þessa fundar
hefir mjög aukið á áhyggjur
manna viðkomandi sambúð
stórveldanna og hafa jafnvel
heyrzt þær spár, að ekki líði
mörg ár til nýrrar heimsstyrj-
aldar, ef ekki tekst að koma á
betra samkomulagi milli þeirra.
Ýmsir hafa talað um, að nauð-
synlegt sé að kalla þegar saman
fund hinna „þriggja stóru“, ef
vera mætti, að þeir gætu jafnað
ágreiningsmálin. Aðrir telja
bezt að bíða og fresta öllum
viðtölum næstu mánuðina. Yf-
irleitt eru skoðanir skiptar,
þema um það eitt að hafa á-
hyggjur yfir framtíðinni.
r—
Innilegasta þakklœti mitt votta ég öllum, sem glöddu
mig með skeytum og gjöfum á 75 ára afmœli mínu hinn
16. ágúst síðastliðinn.
Grund, 9. septemher 1945.
ÓL. INGVAR SVEINSSON.
Jörð til sölu
Ein af beztu rekajörðum á Langanesi, Kumblavík, er til sölu
og laus til ábúðar á næsta vori. Má bæði reka á jörðinni sjávar-
útveg og landbúnað.
Semja ber við eiganda og ábúanda jarðarinnar, Sigtrygg
Helgason, Kumblavík. Símastöð: Skálar.
4 víðavangi
(Framhald, aj 2. síðu)$
og beztu menn þjóðarinnar."
Auðheyrt er að Jón telur sig í
hópi þeirra! í -
Hins vegar hefir Jóni ekki
farið neitt fram í því að vanda
málflutning sinn, og hefir for-
setatignin því ekki verkað á
hann til siðbóta. Sem dæmi um
málflutning hans í þessum pistl-
um má nefna það, að hann telur
það ósamkvæmni hjá Framsókn-
armönnum að krefjast hærra
verðlags á kjötinu, þar sem
þeir hafi talið kr. 3.20 á kg.
nógu hátt verð fyrir mörgum
árum síðan!
NýkomLð
Sokkabandateygja
grá, í 40 cm. bútum.
ólyMp/A
Vestargötu 11.
Kaldhreinsað
þorskalýsi
Heil- og hálfflöskur með vægu
verði handa læknum, hjúkrun-
arfélögum, kvenfélögum og
barnaskólum.
— Sendum um land allt. —
Seyðisfjarðar Apótek
HSeypir
\ M
í kútum, heilflöskum, hálfflösk-
um og smáglösum.
Sendum um land allt.
EFNAGERÐ SEYÐISFJARÐAR.
Símskeyti: Efnagerðin.
Talsími: Seyðisfjörður 43.
Takið eftir!
Roskinn einhleypur maður í
Suður-Þingeyjarsýslu, sem ver-
ið heíir fjármaður frá 10 ára
aldri, óskar eftir að verða bú-
stjóri á stóru fjárbúi, helzt
sunnanlands. Ennfremur að
veita unglingspiltum.semhneigð
ir eru fyrir sauðfé, leiðbeining-
ar i margvíslegri meðferð og
hirðingu sauðfjár.
Upplýsingar gefur símstöðin
á Húsavík, merkt bústjóri.
REGLUR
11111 stiln mjólkui* í Reykjavík og Ilafiiarí'irði
á tímaMlinu frá október 1945 til marz 1946.
}
1. gr.
Hver maður búsettur í Reykjavík eða Hafnarfirði, fær afhentan
skömmtunarseðil fyrir mjólk, er gildi til 16. marz 1946. Skömmt-
unarseðlar eru útbúnir með reitum fyrir hvern dag. Eru þeir
tvenns konar, handa börnum (A-seðlar) og fullorönum (Bseðlar).
Aseðlar eru afhentir þeim sem fæddir eru 1931 og síðar og gildir
hver reitur á þeim, sem kaupheimild fyrir 1 lítra af mjólk, en
reitur á B-seðlum fyrir 2 desilítrum.
Þeir, sem þurfa vegna sjúkdóma að nota meiri mjólk en aðrir,
geta fengið skipt á B-seðli og A-seðli, enda leggi þeir fram læknis
vottorð um sjúkdóm sinn, og að þeir vegna hans þurfi meiri
mjólk en aðrir.
2. gr.
Úthlutunarskrifstofur Reykjavíkur og Hafnarfjarðar sjá um af-
hendingu mjólkurseðla. Hver heimilisfaðir útfyllir eyðublað, þar
sem taldir eru með nöfnum, fæðingardögum og árum allir þeir,
sem þar eru í heimili, og fær gegn afhendingu þess jafnmarga
seðla og þeirra tegunda, sem hið útfyllta eyðublað segir til um.
3. gr.
Mjólkurbúðir afgreiða ekki aðra Injólk en þá, er seðlar þess
dags hljóða um, frá því búðir opna um morguninn til kl. 13.30,
en eftir þann tíma má selja mjólk án seðla.
. 4. gr.
Nú er að dómi forstjóra Mjólkursamsölunnar hætta á að mjólk
sú, sem hefir borizt til bæjarins, nægi einhvern dag ekki til þess
að afgreiða mjólk út á alla mjólkurrreiti þess dags, og getur hann
þá ákveðið að til kl. 13.30 skuli einungis afgreidd mjólk út á
A-seðla og eftir þann tíma aðeins út á seðla.
5. gr.
Forstjóri Mjólkursamsölunnar getur ákveðið að afgreiða hálfan
lítra íit á reiti B-seðla, þegar hann telur að svo mikil mjólk hafi
borizt til bæjarins, að tilefni sé til þess.
Nú berst svo mikið mjólkurmagn til bæjarins, að dómi hans,
að engin hætta er á að liver geti ekki fengið þá mjólk er hann
óskar að fá keypta, og má hann þá ákveða að selja mjólk án
skömmtunarseðla þann dag.
Sígild Ijóðabók
Reglur þessar eru settar af viðskiptamálaráðuneytinu í sam-
ráði við bæjarstjórnir Reykjavíkur og Hafnarfjarðar og Mjólkur-
samsöluna.
Reykjavík, 5. okt. 1945.
Fyrir tæpnm ÍOO árnm kom út fyrsta
útgáfan af
Kvæöum Bjarna Thorarensen
Aú heflr þessi sjaldgæfa og fagra Ijóða-
bók verið Ijósprentnð og gefin út í
forkunnarfögru alskinnbandi.
Bjarni Thorarensen er eitt af öndveg-
isskáldum Islendinga fyrr og síðar, svo
að þessi vandaða útgáfa af ljóðum hans
er mikill fengur fyrir alla, sem unna
i íslenzkum bókmenntum.
Verð bökarinnar er mjög í hóf stillf
Bókfellsútgáfan
Otsvör
Dráttarvextir
1) Öll útsvör til bæjarsjóðs Reykjavíkur skv. aðalniðurjöfnun 1945, féllu
í gjalddaga að fullu hinn 1. þ. m. þannig, að allt útsvarið 1945 er fallið
í gjalddaga.
Undantekin eru útsvör þeirra gjaldenda einna, sem greiða og
hafa greitt útsvör sín reglulega, t. d. af kaupi, svo sem venjulegt er,
eða með öðrum hætti. Gjalddagar þeirra útsvara verða hinir
sömu og undanfarandi ár.
2) Dráttarvextir af vangreiddum útsvörum og útsvarshlutum hækka mán-
aðarlega um 1%. Dráttarvextir eru sektir fyrir vanskil, ekki venju-
legir vextir.
3) Þeir, sem skulda gjaldkræf útsvör 1945 (og því fremur þeir, sem skulda
eldri útsvör) mega búast við sérstökum innheimtuaðgerðum (lögtaki),
án frekari aðvörunar.
Lögtökin eru þegar hafin.
;tokin
;iðið a
t
4) Greiðið afallnar útsvarsskuldir til bæjargjaldkera nú þegar.
Reykjavík, 3. október 1945.
Borgarritarinn
Tiikynning
frá ríkisstjórninni
Samkvæmt tilkynningu amerísku herstjórnarinnar er
hreinsun lokið á fyrrverandi bannsvæði milli Gróttu og
• \
Akraness, sbr. tilkynningu ríkisstjórnarinnar, dags. 6. júlí
þ. á. í 35. tölublaði Löghirtingablaðsins 1945.
t 3 ^
Aðvörun
Samgönguniálaráðuneytið,
5. oktober 1945.
Atvinnurekendur og aðrlr kaupgreitðendur, sem hafa í þjónustu sinni
útsvarsgjaldendur til bæjarsjóðs Reykjavíkur, eru enn minntir á, að skila
til innheimtuskrifstofu bæjargjaldkerans skýrslum um starfsfólk og kaup-
greiðslur þess, svo sem fyrir er mælt í g-, z-, h-liðum 29. greinar útsvars-
laganna frá 12. apríl 1945.
Nöfn gjaldenda og heimilisföng verður að greina, svo að ekki verði um
villzt.
Forðist skammstafanir og gangið úr skugga am, hvort gjaldandinn heit-
ir fleiri nöfnum en einu.
Kaupgreiðendur athugi vel, að vanræksla u:m skýrslugjafir og vanræksla
um að halda eftir af kaupi starfsfólks upp í útsvarsskuldir, veldur því,
að kaupgreiðandinn bpr sjálfur ábyrgð á útsvari starfsmannsins.
Frestur til að skila skýrslum er til 13. þ. m.
Reykjavík, 5. október 1945.
% - ■ - 1 , 1 ■ >f' 1 ■
Borgarritarinn