Tíminn - 26.10.1945, Qupperneq 8
Þeir, sem. vilja kynna sér þjóðfélagsmál,
innlend og útlend, fmrfa að lesa Dagskrá
8
REYKJAVÍK
D A G S K R Á er bezta Islenzka
tlmaritib um þjóðfélagsmál
26. OKT. 1945
81. Iilað
r awwIjll TÍJWAWS V
Frv. um framkvæmdaráð
22. október, mánudagur:
Rætt um Bornholm.
Danmörk: Dönsk blöð segja
frá því, að Rússar muni ekki
fara frá Bornholmi a. m. k.
veturlangt, þar sem þeir séu ber-
sýnilega farnir að búast þar til
vetrarsetu.
Kína: Brotizt hefir út styrj-
öld í einu fylki landsins milli
hersveita kommúnista og herliðs
Chungkingst j órnarinnar.
Spánn: Lausafréttir herma, að
Bormann, einn aðalleiðtogi
þýzkra nazista, hafi sést þar í
landi.
23. október, þriðjudagur:
Horskylda í Banda-
ríkjiinum.
Bandaríkin: Truman forseti
lagði til við Bandaríkjaþingið,
að eins árs herskylda yrði lög-
leidd, en herskylda var þar ekki
fyrir stríðið.
Bretland: Dalton fjármálaráð-
herra lagði fjárlagafrv. fyrir
brezka þingið. í frv. er gert ráð
fyrir, að áfram verði greiðslu-
halli á ríkisrekstrinum, eins og
á stríðsárunum. Hann boðaði
lítilsháttar skattalækkun síðar
á fjárhagsárinu, einkum lækkun
persónufrádráttar. Aðaláherzlu
lagði hann á, að verðbólgunni
yrði haldið í skefjum.
Noregur: Miðstjórn Alþýðu-
flokksins samþykkti, að flokkur-
inn skyldi einn mynda stjórn
og hafnaði eindregið tilboði um
stjórnarsamvinnu við kommún-
ista.
„Fanney” komin
Síðastl. sunnudag kom til
Reykjavíkur síldveiðiskip það,
sem Síldarútvegsnefnd og Síld-
arverksmiðjur ríkisins hafa látið
smíða í Bandaríkjunum. Skip
þetta er af sömu gerð og skip
þau, er notuð eru við síldar og
sardinuveiðar við vesturströnd
Bandarikjanna. En skip af þess-
ari gerð hafa aldrei verið reynd
við síldveiðar hér við land.
Skipið er smíðað í Tacoma á
Kyrrahafsströnd og var því
siglt í gegnum Panamaskurð og
til New York og þaðan hingað.
Mun Fanney, en svo heitir skip-
ið, vera fyrsta íslenzka skipið,
sem fer gegnum Panamaskurð.
Ferðin frá New York tók hálfan
þrettánda sólarhring og er það
mjög góður hraði. Skipstjóri var
Ingvar Einarsson, en stýrimaður
Markús Sigurjónsson.
Skipið er 140 smál. að stærð
og ganghraði þess um 11 sjó-
mílur. Það er knúið 320 hestafla
„Atlas“ dieselvél. Á heimleiðinni
hreppti það hvassviðri á hlið
og reyndist skipið fara vel í sjó
og verja sig vel ágjöfum. Yfir-
byggingin og lag hennar er all-
nýstárlegt og ekki ósvipað og á
dráttarbát að því leyti, að
stjórnpallurinn er framarlega
en þilfarsrúm allt fyrir aftan
stjórnpall. Vistarverur skipverja
eru hinar viðkunnanlegustu. í
káetu er rúm fyrir 10—12 menn,
en aftur af henni er sérstakur
borðsalur óg eldhús, sem búið
er nýtízku þægindum, svo sem
kæliskápum, og olíukyntum
eldavélum.
Veiðiaðferð skipa af þessari
gerð er all frábrugðin þeirri,
sem íslendingar eiga að venjast.
Á skipinu eru engir nótabátar,
heldur stór flatbotnaður prammi
sem notaður er í stað nótabáta.
Skipverjar eru því í sjálfu skip-
inu meðan á veiðinni stendur en
nótin er dregin með spili.
Talið er að skipið geti borið um
1400 mál af síld. Á síldveiðum er
áhöfn skipsins 8—9 menn og er
það helmingi færri menn en
tíðkazt hefir hér á jafnstórum
skipum.
Bretland: Hafnarverkföllin
halda áfram og fjölgar stöðugt
hermönnum, sem látnir eru
vinna við uppskipun.
24. október, miðvikudagur:
Þjóðabandalagið.
Bandaríkin: Byrnes utanrík-
ismálaráðherra tilkynnti, að
Þjóðabandalagið nýja væri
formlega stofnað, þar sem 29
ríki hefðu nú undirritað stofn-
skrá þess. Rússlánd varð sein-
ast þessara 29 ríkja til að und-
irrita stofnskrána, en öll hin
stórveldin höfðu gert það fyrir
nokkru.
Noregur: Dauðadómnum yfir
Kvisling var fullnægt. Var hann
skotinn af hermannaflokki í
fangelsisgarði í Oslo.
Javá: Kunnugt varð, að
bardagar hafa staðið um nokk-
urra daga skeið milli Hollend-
inga og þjóðernissinna. Bretar
eru sagðir vinna að því að miðla
málum.
Rúmenía: Rúmenska stjórnin
gaf út ný kosningalög. Vafa-
samt þykir, að Mikael konungur
staðfesti þau, þar sem hann við-
urkennir ekki stjórnina, en fyrr
öðlast þau ekki gildi.
PóIIand: Pólski forsetinn, sem
er kommúnisti, hefir látið svo
ummælt, að hann kærði sig ekk-
ert um erlenda blaðamenn, en
þeir hafa margir óskað eftir að
verða viðstaddir kosningarnar
þar.
Opinber fundur
nm áfengismálin
Næstkomandi mánudags-
kvöld verður í sýningaskálan-
um í Reykjavík almennur
borgarafundur um áfengis-
neyzlu þjóðarinnar.
Má búast við að til átaka
kunni að koma um málið, þvi að
sitt sýnist jafnan hvorum um
lausn þessa vandamáls, en
þarna fá bæði bannmenn og
andbanningar tækifæri til þess
að sækja sitt mál og verja, ef
þeim sýnist svo, því að frjálsar
umræður verða á fundinum, en
til hans er boðað í mótmæla-
skyni gegn því áfengisflóði, er
skollið hefir yfir þjóðina í
seinni tíð.
Tveir merkir háskólaborgar-
ar, þeir dr. Matthías Jónasson
uppeldisfræðingur og Sigur-
björn Einarsson dósent flytja
stutt framsöguerindi á fundin-
um. Helztu forráðamönnum rík-
is og bæjar hefir sérstaklega
verið boðið. Einnig verða sýnd
á fundinum áberandi línurit, er
sýna áhrif áfengislöggjafar og
áfengisneyzlu á réttarfarið í
landinu.
Voðaskot verður
manni að bana
Síðastl. sunnudag vildi það
slys til skammt frá Akureyri að
ungur maður, Pétur Hansen,
Hafnarstræti 88, varð fyrir
byssuskoti og beið bana ar.
Pétur heitinn var á rjúpna-
veiðum ásamt öðrum manni frá
Akureyri. Höfðu þeir snætt í
skólaseli gagnfræðaskólans og
voru að ferðbúast að nýju, þegar
slysið vildi til. Félagi Péturs var
nýlagður af stað, er hann heyrði
skothvell og sneri hann þá aftur
og fann Pétur liggjandi hreyf-
ingarlausan á gólfinu og byss-
una við hlið hans. Eftir nokkra
stund var búið að ná í lækni
frá Akureyri, en þegar hann
kom var Pétur örendur. Hafði
skotið hlaupið gegnum höfuð
hans. Pétur heitinn var 18 ára
að aldri, norskur að ætt og fyr-
irvinna móður sinnar.
hafa á hendi verðskráningu
grænmetis og garðávaxta milli
funda.“
Þriðji kafli frv. fjallar um
sláturleyfi og greiðslu verðjöfn-
unargjalds. Þar er það nýmæli,
að hafa má verðjöfnun á mjólk
milli sölusvæða. Þá er fram-
leiðsluráði heimilt að gera ráð-
stafanir, sem það telur þurfa,
til þess að innlendi markaður-
inn fyrir kjöt og slátur notist
sem bezt og fullnægt verði sann-
gjörnum óskum neytenda. Enn-
fremur er því heimilt að gera
hvers konar ráðstafanir til að
draga úr sölukostnaði.
Fjórði kafli frv. fjallar um
sölu stórgripakjöts. Þar er á-
kveðið, að framleiðsluráð skuli
hafa eftirlit með sölu þess. Það
getur fyrirskipað, að nautgrip-
um verði slátrað á viðurkennd-
um sláturstöðvum. Ennfremur
getur það sett ýms ákvæði um
sölu á hrossakjöti, m. a. ákveðið
verð þess, en þó verður félag,
sem framleiðendur sláturhrossa
mynda, að óska þess..
Fimmti kaflinn fjallar um yf-
irstjórn mjólkurmála og verð-
miðlun. Eru þar m. a. ákvæði
um ýmsar ráðstafanir, sem
framleiðsluráði er heimilt að
grípa til, til að bæta úr mjólk-
urskorti, eins og t. d. aðstoð við
að koma upp mjólkurstöðvunum
og leyfa hærra verðlag undir
vissum kringumstæðum meðan
verið er að örfa framleiðsluna.
Sjötti kafli fjallar um iðnað
úr landbúnaðarvörum. Þar er
ákveðið, að framleiðsluráð skuli
fylgjast með möguleikum til
aukins iðnaðar á þessu sviði og
vinna að því, að þeir séu hag-
nýttir.
Sjöundi kafli fjallar svo um
ýms ákvæði, m. a. afnám laga,
sem koma í bága við fyrirmæli
frv.
Greinargerð frv.
í greinargerð frv. segir á þessa
leið:
„Á Búnaðarþingi því, er háð
var síðari hluta vetrar 1943,
voru afurðasölumál og fram-
leiðsluskipulag landbúnaðarins
tekin til meðferðar. í lok þings-
ins var svo skipuð milliþinga-
nefnd til að fjalla um endur-
skoðun á málum þessum fyrst
og fremst ásamt ýmsum öðrum
landbúnaðarmálum, er biðu úr-
lausnar.'Milliþinganefndin skil-
aði síðan áliti og tillögum í
frumvarpsformi, er lagðar voru
fyrir aðalbúnaðarþing 1945.
Búnaðarþing tók siðan málið til
meðferðar og gerði ýmsar breyt-
ingartill. við frv. milliþinga-
nefndarinnar. Síðan var mál-
ið sent til búnaðarsamband-
anna, er tóku það til meðferðar
á aðalfundum sinum síðastliðið
vor og skiluðu áliti og tillögum,
er lagðar yoru fyrir aukabúna-
arþing það, er háð var í ágúst-
mánuði síðastliðnum. Aukabún-
aðarþ. gekk síðan frá málinu
til fullnaðar í samræmi við þær
megintillögur, er borizt höfðu
frá búnaðarsamböndunum og
allar voru í aðalatriðunum í
samræmi við það álit um málið,
er ríkti á Búnaðarþingi.
Hér skulu nú raktar nokkrar
af þeim meginbreytingum frá
hinu eldra skipulagi, er í frum-
varpi þesu felast.
1. Með frv. er lagt til, að
bændastéttin fái sjálf óskorað
vald yfir málum þessum, bæði
um verðlagsákvörðun og sölu-
meðferð. Samkv. því skal stofna
verðlagsráð landbúnaðarins, er
skipað sé sameiginlegum full-
trúum frá Stéttarsambandi
bænda og sölufélögum bænda-
stéttarinnar. Verðlagsráðið á-
kveður síðan verðlag landbún-
aðarvara á innlendum markaði,
ákveður og sér um verðmiðlun
á vörum, aðra en þá, sem fram
fer innan mjólkursölusvæða, og
hefir íhlutun um vinnslu vör-
unnar og dreifingu á hina ýmsu
markaði.
2. Frumvarpið breytir einnig
til um yfirstjórn þessara mála
frá hinu eldra skipulagi, þannig,
að það fær einni nefnd (fram-
leiðsluráði) í hendur vald yfir
öllum framleiðsluvörum land-
búnaðarins, í stað þess, að-áður
var þetta vald í höndum margra
nefnda, en náði þó ekki til að
skipuleggja sölu og dreifingu
nema nokkurs hluta framleiðsl-
unnar. Þannig er allur sá hluti
mjólkurframleiðslunnar, sem
ekki er stundaður innan mjólk-
ursölusvæðanna, svo að öll sala
nauta- og hrossakjöts utan alls
heildarsöluskipulags, og getur
það hæglega valdið tjóni og
glundroða í framleiðslu og verð-
lagsmálum landbúnaðarins. Er
það og auðsætt, að eigi að hafa
áhrif á það, í hvaða átt skuli
beina landbúnaðarframleiðsl-
unni í einstökum greinum eða
einstökum landshlutum, er
nauðsynlegt að einn og sami að-
ilinn hafi yfirsýn og íhlutun um
þessi mál öll.
3. Þá er enn það nýmæli í
frv., að lögboðin er verðmiðlun
á mjólk á milli sölusvæða, þann-
ig að unnt sé að veita þeim
mjólkur- og rjómabúum, sem
ekki hafa aðstöðu til að koma
afurðum sínum á nýmjólkur-
markaðinn, stuðning og upp-
örvun til framleiðslu og vinnslu
mjólkurvara og hafa áhrif á
það, að lögð sé aukin áherzla á
framleiðslu þeirra vörutegunda,
sem mest þörf er á hverju sinni.
Önnur nýmæli þessa frum-
varps eru öll áframhald eða af-
leiðing af þeim meginatriðum,
sem nefnd eru hér að framan.
Frumvarpið byggir á þeirri
meginreglu hinna eldri afurða-
sölulaga, að framleiðendur fái
allir sama verð fyrir sams konar
vöru á sama sölustað. — í kjöt-
sölumálunum er nú svo komið,
að landið allt er eitt verðjöfn-
unarsvæði, þannig að sams
konar kindakjöt (þ. e. sami
matsflokkur) er nú greitt fram-
leiðendum sama verði miðað við
markaðsstaði, hvar sem það er
framleitt á landinu. Hitt er svo
annað mál, að ýmsir álíta, að
ástæða væri til að beita nokkru
strangara gæðamati í verðflokk-
un kjötsins og hafa þannig á-
hrif á það, að kjötframleiðslan
verði sem mest bundin við þá
staði, þar sem skilyrðin eru bezt
til sauðfjárræktar af náttúr-
unnar hendi, og að önnur svæði
landsins snúi sér meir að naut-
griparækt og mjólkurfram-
leiðslu.
Ekki eru hér gerðar tillögur
um verðjöfnun stórgripakjöts,
enda minni ástæða til þess að
svo stöddu. Hins vegar ætti að
mega takast að koma sölu og
verðlagi þess í meira samræmi
við sölu og verðlag kindakjöts
en nú er með afskiptum, sem
verðlagsráðinu eru ætluð um
þau mál samkvæmt frv.
Um mjólkursöluna er aðstað-
an enn svo ólík víða um landið,
að ekki getur talizt eðlilegt að
upphefja skiptingu þess í ein-
stök mjólkursölusvagði. Með
bættum samgöngum og fleiri
mjólkurbúum getur þetta hins
vegar tekið skjótum breytingum,
og má því gera ráð fyrir, að áð-
ur langir tímar líða, fari svo, að
landið verði allt eða mestallt
eitt og sama verðjöfnunarsvæð-
ið, eins og nú er orðið um kjöt-
ið.
Hér er stigið spor í þá átt, að
unnt sé að hafa áhrif á aukna
framleiðslu sérstakra mjólkur-
vara á einstökum framleiðslu-
stöðvum utan núverandi mjólk-
ursölusvæða“.
Frv. var til 1. umræðu í neðri
deild í gær og var að lokinni
ræðu 1. flutningsmanns vísað
til landbúnaðarnefndar.
Bæjarsíma
Reykjavíkur
vantar nú þegar nokkra verka-
menn til jarðsímalagninga.
Upplýsingar gefur Kristján
Snorrason, verkstjóri. Til viðtals
daglega kl. 10—11 í Landssíma-
húsinu.
Bæjarsímastjórmn.
(jattxia Síó
SPITFIRE
Kvikmynd um B. J. Mitchell,
sem smíðaði flugvélina frægu.
Leikarar:
Leslie Howard,
Ðavid Niven.
Aukamynd:
FRÉTTAMYND.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
ttijja Síé
imtnsT.ióitiw
Hets)
— Sænsk mynd. —
Aðalhlutverk:
Stig Járrel,
Alf Kjcllin,
Mai Zetterling.
Sýnd kl. 9.
Börn fá ekki aðgang.
Floltlnn
úr fangafiiiðunnin
(„Bombers Moon“)
Spennandi og vel leikin mynd.
Annabella,
George Montgomery.
Bönnuð yngri en 15 ára.
Sýnd kl. 5 og 7.
U R B Æ N U
Lagarfoss kominn
með 35 farþega.
í fyrrinótt kom Lagarfoss úr annarri
för sinni til Noröurlanda og komu 35
farþegar með skipinu. Skipið var með
fullfermi af vörum frá Svíþjóð og
Danmörku. Farþegar með skipinu
hingað voru þessir: Bjarni Oddsson
læknir, með konu og 3 börn. Dr.
Kristján Þorvarðarson, með konu og
3 börn. Dr. Bjarni Sigurðsson og frú.
Gísli Hermannsson, verkfræðingur.
Cristian Lehn, Akureyri, Paul Jakob-
sen með frú, Anton Schneder og frú,
með tvær dætur sínar, Willy Fridrik-
sen og frú með tvær dætur sínar, Frú
Brynveig Þorvarðardóttir, ungfrú Olga
Stefáns, Sigríður Sveinbjarnardóttir,
hjúkrunarkona, Sigurd A. Nielsen,
Bjarni Sigurjónsson, Margrét Jóns-
dóttir, Ólafur Einarsson, Keflavík,
Björn Björnsson, Ragna Sigurðardóttir
kaupkona, Jens K. Sigurðsson.
Dansk-íslenzka félagið.
íslandsdeild Dansk-íslenska félags-
ins hélt aðalfund sinn s. 1. mánudags-
kvöld. Var stjórn félagsins öll endur-
kosin, en hana skipa þessir menn:
Kristinn Ármannsson yfirkennari, for-
maður, Hallgrímur Jónasson, kennari
ritari og Klemens Tryggvason, hagfr.
gjaldkeri. Auk þeirra eru i stjórninni
þeir Ásmundur Guðmundsson, próf-
sssor, Ólafur Björnsson dósent, Peter
L. Mogensen, lyfsali og Steinþór Guð-
mundsson, kennari. Félagatalan hef-
ir þvinær tvöfaldazt á árinu. — Á að-
ilfundinum flutti Gísli Kristjánsson
2rindi: Frá Danmörku, en Hallgrímur
Jónasson sýndi skuggamyndir þaðan.
— Mikill áhugi ríkir meðal félags-
manna um það að efla starfsemi fé-
lagsins sem mest.
Skemmtanir Hringsins
s.l. sunnudag voru fjölsóttar. Alls
kom inn fyrir skemmtanirnar og aðra
tekjuliði í sambandi við daginn um 43
þús. kr. Hins vegar er ekki fullkunn-
ugt ennþá hver kostnaður hefir orðið
við skemmtanirnar og aðra starfsemi
élagsins þennan dag.
Lík finnst.
Lík piltsins, sem hvarf fyrir nokkru
síðan héðan úr bænum hefir nú fund-
izt rekið á land austanvert á Örfirisey.
Bifreiðaslys í Hafnarfirði.
Síðastl. þriðjulag vildi það slys til
í Hafnarfirði að ung stúlka, Hrafn-
hildur Halldórsdóttir varð fyrir bifreið
og meiddist allmikið á höfði og fæti.
Slysið vildl til með þeim hætti, að
Difreiðin var að aka um Austurgötu
og var að beygja fyrir brúnina á Lækj-
irgötu, móts við Brekkugötu, en þar
vildi slysið til.
Frá Svíþjóð
eru nýlega komin loftleiðis próf. Sig-
urður Nordal, dr. Páll ísólfsson, Árni
G. Eylands og frú og Baldvin Einars-
son, Hafnarfirði.
Frá Bretlandi
eru nýlega komnir lofleiðis Stefán
Ögmundsson, prentari, Gunnar Ás-
geirsson, heildsali, Gísli Jónsson, al-
þingism., Aðalsteinn Pálsson, skipstjóri
Björn Bjarnason, form. Iðju.
Sjómannafélag Rvíkur
átti þrjátíu ára afmæli síðastliðinn
þriðjudag og var þess minnzt með
virðulegu samsæti, sem haldið var í
Iðnó þá um kvöldið. Fjölmenni var og
flutti formaður félagsins Sigurjón Á.
Ólafsson aðalræðuna. Félaginu barst
fjöldi heíllaskeyta á afmælinu.
Til Svíþjóðar
eru nýlega farin loftleiðis: Ásta
Ólafsdóttir Jóhansen, Jósef H. Jósefs-
son, Knud Niélsen Höjgaard, Ólafur
Ólafsson. Astrid F. Ellerup, Gisli F.
Petersen, Agnar Bj. Tryggvason, Er-
lig Edwald, Sigríöur H. Aðalsteins-
dóttir, Sverre H. Valtýsson, Elín Júl-
íusdóttir Jóhannesson, Haraldui' og
Dóra Sigurðsson, Steinunn Arnórs-
dóttir, Guðjón Samúelsson, Bryndís
Kristjánsdóttir, Sólveig Jónsdóttir,
Marta Jónsdóttir, Friðrik Einarsson og
frú með 2 börn sín, Olíver Guðmunds-
son og Jakob S. Kvaran.
Til Bretlands
eru nýlega farin loftleiðis. Héðínn
Valdimarsson forstjóri og Katrín dóttir
hans, Alexander Jóhannesson, Guð-
mundur Jóhannesson, Pálmi Guð-
mundsson, Pétur Halldórsson, Har-
aldur Björnss. og Runólfur Sæmunds-
son.
Aflasölur
Þessi skip seldu afla sinn í Bret-
landi í síðastl. viku: Vörður seldi 3530
vættir fiskjar fyrir 8703 sterlingspund,
Tryggvi gamli seldi 3250 vættir fyrir
7630 pund, Surprise seldi 3270 vættir
fyrir 7503 pund, Haukanes seldi 3074
vættir fyrir 7092 pund, Skinfaxi seldi
2633 kit fyrir 7887 pund, Skutull seldi
3262 vættir fyrh' 7648 pund, Drangey
seldi 3168 vættir fyrir 7440 pund,
Kópanes seldi 2920 vættir fyrir 7182 og
Júní seldi 3303 kit fyrir 7011 pund.
Bifreiðaslys.
Síðastl. mánudagskvöld vildi það
slys til fyrlr framan Alþýðuhúsið við
Hverfisgötu, að gamall maður, Guð-
mundur Sæmundsson, varð fyrir bif-
reið og fótbrotnaði mjög illa.
Ýmsar fréttir í stuttu máli
Annað íslenzka skipið hefir
nú selt afla sinn í Antwerpen.
Það var ms. Fagriklettur frá
Hafnarfirði, sem seldi 95 smál.
fiskjar fyrir 7.473 sterlingspund.
Skipið kom þangið sl. fimmtu-
dag og fór þaðan sl. laugardag.
Nú eru á leið til Antwerpen
ms. Eldborg frá Borgarnesi og
Siglunes frá Siglufirði.
Kristján Danakonungur hefir
veitt íslenzkum lækni, Sigurði
Samúelssyni, 4800 kr. styrk úr
konungssjóði til að fást við
rannsóknir á hjartasjúkdómum.
Til Keflavíkur er nýkominn
sænskur bátur, sem Jóhann
Guðjónsson hefir keypt. Er hann
75 smál. og er 6 ára gamall.
Þann 19. september 1945
sæmdi forseti íslands eftir-
greinda Svía hinni íslenzku
Fálkaorðu:
R. Sohlman utanríkisráð
stórriddarakrossi með stjörnu,
Svere Sohlman framkvæmda-
stjóra, Torsten Petterson fram-
kvæmdastjóra og L. Belfrage
skrifstofustjóra í utanríkis-
ráðuneyti Svía stórriddarakrossi
hinnar íslenzku Fálkaorðu, O.
Leffleh framkvæmdastjóra
riddarakrossi hinnar íslenzku
Fálkaorðu.
Þessir menn hafa unnið að
viðskiptasamningi milli íslands
og Svíþjóðar, sem undirritaður
var 7. apríl s. 1.
Pétur Magnússon fjármála-
ráðherra hefir sagt af sér
bankastjóraembættinu við
Landsbankann.
Jóni Maríussyni, aðalbókara,
er settuf var bankastjóri, þegar
Pétur Magnússon gerðist fjár-
málaráðherra, hefir verið veitt
bankastjórastaðan.