Tíminn - 06.11.1945, Qupperneq 8
Þeir, sem vilja kynna sér þjóðfélagsmát,
innlend og átlend, jjurfa að /esa Dagskrá
8
REYKJAVÍK
D A G S K R Á er bezta íslenzka
tímaritið um þjóðfélagsmál
6. \Ó V. 1945
84. blað
V AIVHÁLL TÍJHAMS V
1. október, fimmtudagur:
Endalok Hitlers.
Þýzkaland: Herstjórn Banda-
manna birti skýrslu um rann-
sóknir á því, hver héfðu orðið
endalok Hitlérs. Niðurstöður
rannsóknarinnar eru þær, að
Hitler og Eva Braun hafi gift sig
29. apríl s.l. og framið sjálfs-
morð í kanzlarahöllinni í Ber-
lín næsta dag. Hitler skaut sig,
en Eva Braun tók inn eitur.
Líkin voru brennd og sá Göbb-
els um það verk.
Bretland. Fóru fram bæjar-
stjórnarkosningar í Bretlandi.
Verkamannaflokkurinn vann
mikinn kosningasigur.
Rússland: Molotoff tilkynnti,
að ekki yrði íallizt á óskir er-
lendra blaðamanna um afnám
fréttaeftirlits í Rússlandi.
Grikkland: Canelopous, einn
af foringjum frjálslynda lýð-
ræðisflokksins, myndaði nýja
stjórn.
2. október, föstudagur:
BÍrgarastríðið í Kína.
Kína: Styrjöldin milli stjórn-
arhersins og kommúnista held-
ur áfram. Stjórnarherinn virð-
ist þó ekki beita sér tiúfulls. Til-
gangur kommúnista virðist sá
að hindra alla liðflutninga
stjórnarhersins til Mansjúríu.
Egyptaland: Verkföll og mót-
mælafundir hafa farið víða
fram í landinu til að andmæla
því, að Gyðingar verði fluttir
til Palestínu. Sumstaðar hefir
komið til óeirða.
Palestína: Gort landstjóri
hefir beðizt lausnar. Skemmda-
verk, sem Gyðingar standa fyr-
ir, fara mjög í vöxt.
Bretland: Horfur eru á því, að
atkæðagredðsla hjá hafnar-
verkamönnum lykti þannig, að
vinna hefjist aftur um næstu
helgi.
3. október, laugardagur:
Sáttaumleitanir í
Kína.
Kína: Sáttaumleitanir milli
stjórnarinnar og kommúnista
eru að hefjast. Bardagar halda
þó enn áfram.
Java: Óeirðir hafa brotizt þar
út aftur. Sokarno virðist ekki
lengur ráða við hina æstustu
þjóðernissinna.
Danmörk: Knud Kristensen,
foringi vinstri manna, hefir
tekið að sér stjórnarmyndun,
eftir að jafnaðarmenn höfðu
skorazt undan henni.
4. október, sunnudagur:
Kosningar
í Ungvcrjalandi.
Ungverjaland: Kosningar fóru
fram til ungverska þingsins. Úr-
slit verða ekki kunn fyrr en á
miðvikudag. Fyrir kosningarnar
höfðu helztu flokkarnir komið
sér saman um að halda áfram
stjórnarsamvinnunni, hver sem
kosningaúrslitin yrðu.
Java: Mjög ófriðvænlega horf
ir þar aftur. Þjóðernissinnar
draga að. sér lið og virðast ráða
yfir aj^miklum hergögnum.
Danmörk: íhaldsmenn og ra-
dikalir hafa neitað að mynda
stjórn með vinstri mönnum.
Rannsókn ágerlafjölda
(Framhald af 1. slðu)
í þá átt, að fyrir gerlafræðingn-
um hafi meira vakað að fá sem
óhagstæðastar niðurstöður, en
að gæta hlutleysis og vísinda-
legrar nákvæmni.
Með þessu skal. því þó engan
vegin neitað, að ekki muni ein-
hverjar misfellur eiga sér stað í
þessum efnum, sem nauðsynlegt
sé að bæta úr. En vart virðist
Sigurður Pétursson rétti maður-
inn til að hafa þar forustu á
hendi, þar sem hann hefir haft
svipað eftirlit og stjórnin hefir
nú falið honum um 10 ára skeið,
sem starfsmaður Mjólkursam-
sölunnar, án þess að kunnugt
sé um, að hann hafi beitt sér
fyrir nokkrum endurbótum,
enda þótt honum bæri það öðr-
um fremur. Hins vegar hefir
vilji hans til að ófrægja bænda-
stéttina ekki farið dult, eins og
sést hefir á blaðaskrifum frá
hans hendi.
Það, sem hér þarf að gera, er
að ganga betur úr skugga um
það, hverjar aðalorsakirnar séu,
sem valda hinum miklum gerla-
fjölda, og síðan þarf að vinna
að þeim endurbótum, sem nauð-
'synlegar eru. Mun þá áreiðan-
lega ekki standa á bændum og
samtökum þeirra að vinna að
þeim eftir beztu getu, enda hafa
þau vöruvöndun fyrir eitt
helzta markmið sitt. En hins
verður að krefjast af þeim, sem
fyrir rannsóknunum standa, að
þeir sýni fyllsta hlutleysi og iáti
ekki mótast af óviðkomandi
sjónarmiðum. En því miður
benda súm atriði í skýrslu gerla-
fræðingsins til þess, að slíkt
hlutleysi sé honum ekki nægi-
lega í brjóst runnið, eins og
bent hefir verið á hér að fram-
an.
Það væri áreiðanlega vel at-
hugandji, að ríkisvaldið eða sam-
tök bælida fengju hingað fær-
ustu erlenda mjólkursérfræð-
inga til að athuga þessi mál,
útkljá þau þrætuefni, sem erf-
iðust kunna að vera, og gera til-
lögur til úrbæta. Af hálfu fram-
leiðenda væri slíkt vafala.ust
betur séð en að mál þessi séu
í höndum manna, sem eru berir
að óvild og fjandskap í garð
þeirra.
Hið mikla mannvirki, Mjólk-
Úrslit stúdentaráðs1
kosninganna
Stúdentaráðskosningarnar
fóru fram síðastl. laugardag.
Kjörsókn var ekki góð og neyttu
um 80 stúdentar ekki atkvæð-
isréttar síns. Þess ber þó að
gæta, að nokkrir þeirra, er á
kjörskrá voru, en kusu ekki,
voru ekki komnir til bæjarins.
Úrslit kosninganna urðu þau,
að A-listinn, listi lýðræðissinn
aðra sósíalista, fékk 49 atkvæði
og einn mann kjörinn. Listi
Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta, fékk 176 atkvæði og
fimm menn kjörna. Listi félags
frjálslyndra stúdenta fékk 40
atkvæði og einn mann kjörinn
og listi félags róttækra stúd-
enta fékk 87 atkvæði og tvo
mejin kjörna.
Verður Menntaskólinn
fluttur að Laugarnesií
Á síðastl. sumri skipaði
menntamálaráðherra þriggja
manna nefnd til að undirbúa
byggingu nýs menntaskóla í
Reykjavík og velja honum stað.
Nefnd þessi hefir fyrir nokkru
látið skoðanir sínar í ljós og
leggur til að skólinn verði reist-
ur í Laugarnesi, þar sem Laug-
arnesbærinn er nú. Á síðasta
fundi bæjarráðs var lagt fram
bréf frá menntamálaráðuneyt
inu varðandi þetta mál, en bæj
arráð vísaði málinu til skipu
lagsnefndar til frekari umsagn-
ar.
í nefndinni áttu sæti Pálmi
Hannesson rektor, Hörður
Bjarnason og Sigfús Sigurhjatt-
arson.
urstöðin nýja, sem senn mun
taka til starfa í Reykjavik, sýnir
vel þarin vilja bænda cig sam-
taka þeirra, að meðferð mjólk-
urinnar vertSi sem vönduðust og
fullkomnust. Þess vegna er líka
meira en ástæðulaust að ætla
að nota einhverjar misfellur,
sem reynt mun verða að bæta
úr eftir beztu getu, til að æsa
ribytendur til fjandskapar gegn
bændum fyrir það, að þeir hugsi
ekki nóg um að vanda meðferð
mjólkurinnar.
*
Nefndarálit Bjarna Asgeirssonar og Jóns
á Reynistað um búnaðarráðslögin
(Framhald af 1. síðu)
En það teljum við aðalatriði
þessa máls, að þegar farið var
að raska hinu eldra skipulagi
um verðlagsvaldið yfir landbún-
aðarafurðunum, álítum við, að
sjálfsagt hefði verið að fá full-
trúum bændastéttarinnar sjálfr
ar og félagssamtaka hennar
vald þetta í sínar hendur.
Bændastéttin hefir jafnan sætt
sig við það, að nokkrar hömlur
væru settar á vald hennar yfir
verðlagsmálum sínum í bili, er
það hefir verið talíh alþjóðaþörf
og hið sama látið ganga yfir
aðrar stéttir og einstaklinga
þjóðfélagsins.
En þegar svo er ástatt sem nú,
að allar starfsgreinar þjóðfé-
lagsins virðast nær einráðar um
það, hvaða verð þær setja á
vinnu sína og varning innan
lands án nokkurs tillits til þess,
hvaða verð er á sams konar
vinnu og varningi í nágranna-
löndunum, er útílokað, að
bændastéttin ein geti sætt sig
við það að hafa enga íhlutun um
verðlag framleiðslu sinnar á
innlendum markaði eða með
öðrum orðum það, hvaða kaup-
gjald hún skuli úr býtum bera
fyrir vinnu sína.
Því hefir verið haldið_ fram af
ýmsum, að með stofnun land-
búnaðarráðsins hafi bændastétt
in fengið vald yfir málum þess-
um, þar sem það sé eingöngu
skipað bændum og starfsmönn-
um Iandbúnaðarins. En þetta er
að okkar áliti hin mesta fjar-
stæða. Það er sá aðili, sem valdið
hefir til að velja og skipa í ráð-
ið, er ábyrgð ber á því oð fram-
kvæmdum. þess, hverjir svo sem
í það veljast. Og í þessu falli er
það ríkisstj ó^nin, sem ræður.
Búnaðarráðið er þvi fulltrúi rik-
isstjórnarinnar, eri ekki bænda-
stéttarinnar.
Eins og kunnugt er, hefir Al-
þingi og ríkisstjórn oftsinnis á
undanförnum árum falið Bún-
aðarfélagi íslands að koma fram
fyrir hönd bændastéttarinnar,
er taka þurfti ákvarðanir um
verðlagsmál landbúnaðarins. Á-
lítum við, að svo hefði einnig
Byggingar- og
landnámssjobur
(Framhald af 1. síðu)
un lánanna. Hér er lagt til, að
árgjaldið verði 3y2% af allri
lánsupphæðinni jafnlangan
tíma, 42" ár, en það svarar til,
að lánin séu með 2% vöxtum og
iy2% í afborgun.
í frv. þessu er farið fram á,
að árgjald byggingarlánanna
verði lækkað um iy2% frá því,
sem nú er, og raunverulegir
vextir úr 4% í 2%. Sýnist það
eðlilegt með tilvísun til þess, sem
að framán er sagt, og með tilliti
til almennrar vaxtalækkunar í
landinu og að hiiju leytinu
hækkunar á byggingarkostnaði.
Enn fremur er hér gert ráð
fyrir því, að lána megi að há-
marki 75% af kostnaðarverði
húsa. Þetta hámark er miðað við
venjulega tíma og að sjálfsögðu
á valdi bankastjórnarinnar að
takmarka það. Meðan verðlag
er óeðlilegt, er til þess ætlazt,
að svo verði gert í framkvæmd-
inni. í frumvarpi þessu er lagt
til, að lánastarfsemi nýbýlasjóðs
eftir lögum nr. 108 1941, 34. og
35. gr., falli niður. í stað þess er
byggingar- og landnámssjóði nú
ætl^ að veita lán til bygginga
íbúðarhúsa og sveitabæja al-
mennt, bæði á eldri jörðum og
nýbýlum. Þetta tekur þó aðeins
til búðarhúsa, því að Ræktunar-
sjógi íslands er ætlað að lána
til allra útihúsbygginga sam-
kvæmt frv., sem lagt er fram
samhliða þessu. Með frv. þessu,
ef að lögum verður, er leitazt
við að bæta úr bráðustu þörfum
í byggingaréfnum sveitanna með
því að gefa bændum kost á því,
að þeir fái byggingarlán með
sanngjörnum vaxtakjörum og
svo rífleg, að varanleg og góð
íbúðarhús verði reist þar, sem
þörfin er mest aðkallandi."
átt að vera í þetta skipti.
En þegar Búnaðarfélag ís-
lands vshð^þess áskynja, að rík-
isstjórnin taldi ekki lengur þörf
á afskiptum þess af málum þess-
um, beitti það sér fyrir því, að
komið yrði á sérstökum stéttar-
samtökum innan búnaðarfé-
lagssamtakanna í landinu, er
hefði með höndum þennan þátt
í hagsmunamálum bændastétt-
arinnar.. Þetta stéttarsamband
er nú formlega stofnað og tekið
ti lstarfa. Og þar sem stjórn
þess er kosin á lýðræðislegan
hátt af kjörnum fulltrúum
bændanna sjálfra, teljum við
einsætt, að henni verði falið
vald og framkvæmd þeirra mála
fyrst um sinn, sem verðlags-
nefnd landbúnaðarráðs fer með
samkv. bráðabirgðalögunum. En
tíllögur um framtíðarskipulag
þessara mála, eins og hún hefir
nýskeð verið mörkuð með sam-
þykktum frá búnaðarþingi og
búnaðarsamböndunum, liggja
nú þegar fyrir Alþingi í frum-
varpsformi. Samkvæmt því er
ætlazt til, að fulltrúar frá Stétt-
arsambandi bænda og ýmsum
sölufélögum þeirra fari í sam-
einingu með framkvæmd sölu-
skipulags og verðlagsmála land-
búnaðarins.
Teljum við, sem m. á. stöndum
að frv. þessu, að með því sé
mörkuð sú stefna í málum þess-
um, sem bændur gera nú kröfu
til og ein verður talin réttlát.
En þangað til að það frv. verður
að lögum, viljum við, að Stéttar
sambandi bænda og fram-
kvæmdastjórn þess verði falin
verðlagsmál landbúnaðarins.
eins og fjöldi bænda hefir þegar
gert kröfu til. Hefir komið mjög
berlega í ljós almenn óánægja
meðal bænda yfir bráðabirgða-
lögum þessum.Ber hvort tveggja
til, að þeir vilja ekki sætta sig
við þetta'fyrirkomulag, sem þeir
telja óviðunandi í sjálfu sér, svo
og hitt, að mikil gremja ríkir
meðal þeirra út af framkvæmd
laganna. Hafa þeir talið sig eiga
siðferðilegan rétt til þess að
setja verð á afurðir sínar á inn-
lendum markaði samkvæmt sex-
mannanefndargrundvellinum,
hvað sem hinum lagalega rétti
liði. En frá þvi hefir verðlags-
nefndin vikið svo, að nú eru
fyllstu horfur á, að kindakjöt,
sem er næstum eina söluvara
margra bænda, stórlækkaði í
verði til bænda frá því síðastlið
ið ár, þótt framleiðslukostnaður
líafi stórhækkað á sama tíma.
Veldur því hið háa verðjöfnun-
argjald, sem leggja varð á kjötið
til uppbótar verði á útflutt kjöt.
Auk þess hefir nokkur hluti
verðjöfnunargjaldsins verið tek-
inn til að greiða niður saltkjöt
á innlendum markaði og lækka
þannig innlenda verðið frá því,
sem áður hafði verið ákveðið.
Samkvæmt framansögðu ber-
um við fram á sérstöku þing-
skjali breytingartillögur um, að
Stéttarsambandi bænda verði
falið vald það, sem búnaðarráði
er ætlað samkv. bráðabirgðalög-
unum. Verði þær samþykktar,
munum við fylgja frumv. svo
breyttu sem bráðabirgðaskipu-
lagi í þeirri von, að frv. um verð-
lagsráð verði fljótlega gert að
lögum. Verði breytingartillög-
urnar felldar, munum við greiða
atkvæði á móti frumvarpinu.“
Kaup á strandf.skipum
(Framhald af 1. síðu)
lendum skipasmíðastöðvum
Það mun mjög hafa ýtt und-
ir þessa ákvörðun ráðherrans
að Framsóknarmenn fluttu á
þingi í fyrra tillögu um bygg
ingu strandferðaskips eins og
Esju, en hún fann þá ekki náð
fyrir augum stjórnarliðsins. En
slík andstaða hefir ekki þótt
hyggileg til lengdar og því hef-
ir ráðherrann tekið málið upp.
E_r vissulega ekki aðeins gott
um það að segja, heldur er
fyllsta ástæða til að fagna því,
þegar einstakir ráðherrar taka
upp góð og sjálfsögð mál.
(jamta Síó
CLAUDIA
Amerísk kvikmynd, er sýnir
fallega og skemmtilega hjú-
skaparsögu ungra hjóna.
Aðalhlutverkin leika:
Dorothy McGuire,
Robert Young.
Sýbd kl. 5, 7 og 9.
*
ttijja Bíi
Einkaritarinn
(Government Girl).
Olivia de Havilland,
Sonny Tufts,
Anne Shirley.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
u
AÝTT
íslcnzkt leikrit.
\ppstlanina
I
eftir H. H.
Friiiiisýninj* á i'iiiiiiitinlnj* (8. þ. m.) kl. 8.
Fastir áskrifendur og gestir vitji aðgöngumiða sinna á
morgun (miðvikudag) kl. 4—7.
NB. Sæki áskrifandi ekki miða sína á þessum tíma, verð-
ur litið svo á, að hann óski ekki að hafa þá framvegis.
|
II
II
II
?:
Skagfirðingafélagið
heldur skemmtifund í Tjarnarcafé þriðjudaginn 6.
nóv. kl. 8.30.
TIL SKEMMTUNAR:
Ræða: dr. Magnús Sigurðsson.
Hátíðakvikmynd Lofts.
Dans.
Aðgöngumiðar í „Flóru“ og Söluturninum á þriðjudag.
STJÓMIA.
U R B Æ N U
S. A. Friid blaðafulltrúi
og kona hans
eru nú á förum héðan af landi burt.
En Friid hefir eins og kunnugt er, ver-
ið norskur blaðafulltrúi hér á styrj-
aldarárunum og aflað sér mikilla vin-
sælda meðal íslenzkra blaðamanna.
Blaðamannafélag íslands hélt hjón-
unum kveðjusamsæti á Hótel Borg
fyrir nokkrum dögum.
Silfurbrúðkaup
eiga í dag Anna J. Norðdal og Ing-
ólfur Þorvaldsson, prestur, Ólafsfirði.
Þau hafa búið í Ólafsfirði síðastliðin
20 ár og eiga þau þrjá syni barna.
Leikfélag Reykjavíkur.
hefir frumsýningu á nýju, íslenzku
leikriti næstkomandi fimmtudagskvöld.
Er það leikritið „Uppstigning" eftir
H. H. (dulnefni) í fjórum þáttum, sjö
sýningum. Tvöhundraðasta leikritið,
sem Leikfélag Reykjavíkur sýnir. Leik-
endur eru: Arndís Björnsdóttir, Anna
Guðmundsdóttir, Regína Þórðardóttir,
Emilía Jónasdóttir, Helga Möller, Inga
Þórðardóttir, Sigríður Hagalín, Gestur
Pálsson, Haraldur Björnsson, Þorst.
Ö. Stephensen, Valur Gíslason og Lár-
us Pálsson, sem einnig er leikstjóri.
Athygli fastra áskrifenda að frumsýn-
ingu skal vakin á augslýsingu í blað-
inu í dag, þar sem þeir eru beðnir að
vitja aðgöngumiða sinna á auglýstum
tíma, ella verður litið svo á, að þeir
óski ekki að halda þeim framvegis.
Reykjavíkurdeild
Fiskifélags íslands
var stofnuð síðastl. föstud. Á fund-
inum var kosin stjórn fyrir deildina
og hlutu þessir kosningu: Ingvar Vil-
hjálmsson, Sveinn Benediktsson og
Óskar Halldórsson. Kjörnir voru 4
fulltrúar á Fiskiþing, sem kemur sam-
an í þessum máriuði, og hlutu kosn-
ingu: Sveinn Benediktsson, Óskar
Halldórsson, Ingvar Vilhjálmsson og
Þorvarður Björnsson. Eru þeir kjörnir
til fjögurra ára. Til vara voru kjörnir:
Hafsteinn Bergþórsson, Ólafur Þórðar-
son, Jón Þórðarson og Þórður Ólafss.
Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur
hefir nýlega verið skipt í þrjár deild-
ir, sem þó starfa allar innan félags-
ins, sem heldur nafni sínu. Þær eru
deild sölumanna, deild afgreiðslu-
manna og deild skrifstofufólks.
Yfirkjörstjórn
fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar
í Reykjavík voru kosnir á síðasta bæj-
arstjörnarfundi þessir menn: Geir G.
Zoéga, Einar B. Guðmundsson, Ragnar
Ólafsson. Til vara: Gunnar Möller,
Ólafur Sveinbjörnsson og Sigurhjörtur
Pétursson.
í niðurjöfnunarnefnd
voru kosnir á seinasta bæjarstjórn-
arfundi eftirtaldii- menn: Sigurbjörn
Þorkelsson, Gunnar Viðar, Björn
Björnsson, Zophónías Jónsson og Ingi-
mar Jónsson. Til Vara voru kosnir:
Björn Snæbjörnsson, Guðmundm- Ás-
bjórnsson, Einar Erlendsson. Steinþór
Guðumundsson og Jón Brynjólfsson.
Gunnar Viðar var á sama fundi kos-
inn formaður nefndarinnar.
Aflasala í Belgíu.
Þriðja íslenzka fiskiskipið þefir selt
afla sinn á markað í Belgíu. Það var
m.s. Eldborg frá Borgarnesi. — Afli
skipsins, 119 smálestir, var seldur fyrir
9.439 sterlingspund. Það var hinn 30.
okt. s.l. sem skipið landaði í Antwerpen
Bifreiðum stolið. <
Um seinustu helgi var tveimur bif-
reiðum stolið ’í Reykjavík. Bifreiðinni
R-3131 ^ar stolið, þar sem hún stóð
á veginum skammt frá Þóroddsstöð-
um og fannst hún tölpvert skemmd
í skurði á gatnamótum Reykjanes-
brautar og Miklubrautar: Tveir menn,
er haft hafa tal af lögreglunni sáu
stúlku og hermann koma út úr bif-
reiðinni. Þá var bifreiðinni Z-70 stolið
héðan úr bænum og fannst hún suður
í Keflavík.
40 þús. kr. til Sumargjafar.
Á seinasta bæjarstjórnarfundi var
samþykkt að verða við umsókn Barna-
vinafélagsins Sumargjöf um að bær-
inn veitti 40 þús. króna aukafjárveit-
ingu til starfsemi félagsins á þessu ári.
Hjúskapur.
Síðastliðinn laugardag voru gefin
samap í ^ijónaband af séra Sigurjóni
Árnasyiir ungfrú Vigfúsína Daníels-
dóttir, Sandi, Snæfellsás og Baldur
Karlsson, Spítalastíg 2 Rvík. Heimili
ungu hjónanna verður við Egilsgötu 28.
/