Tíminn - 11.12.1945, Blaðsíða 3
94. blað
TmiTVN. |>rlðjndagiim 11. des. 1945
3
Halldór Kristjánsson:
ÞORPIN OKKAR
Þriðja grein
Hafairnar.
Hafnarskilyrðin eru lífsskil-
yrði allra sjóþorpa. Það er
næsta ólíkt hvernig náttúru-
skilyrðin eru í þeim greinum.
Sums staðar eru ágætar hafnir
hver við aðra, svo sem á Vest-
fjörðum. Annars staðar eru
langar strendur blómlegra hér-
aða hafnlausar að mestu eða
öllu.
Á þessu hefir orðið mikil
breyting síðustu ár. Stórkostleg
afrek hafa verið unnin og
byggðar ágætar bátahafnir og
hafskipabryggjur, þar sem áður
var opið fyrir ágangi hafsjó-
anna. Það hefir verið gert að
reglu að ríkið greiddi % af
kostnaði við hafnarmannvirki
og hefir það vitanlega skapað
alveg nýtt viðhorf í þessum efn-
um.
Siðustu árin hefir sú hug-
mynd verið borin fram til sig-
urs að byggja skuli landshafn-
ir, þar sem svo hagar til að
hentugt er fyrir bátaflota víðs-
vegar af landinu að liggja við
tíma úr árinu. Slíkir staðir eru
t. d. Njarðvíkur eða Keflavík og
Höfn í Hornafirði. Hafnargerð
þar, er nauðsynjamál allra
þeirra, sem skilyrði hafa til að
láta báta sína liggja þar við á
vetrarvertíð. Áreiðanlega tapast
nú miklir fjármunir vegna þess,
að þær leiðir, sém þessar hafn-
ir munu opna, eru lokaðar.
Það er mikið átak að koma
hafnarmálum landsins í gott
horf. Segja má að vel hafi verið
að því unnið undanfarið. En
framhaldið verður að vera í
samræmi við það. Hér má engin
kyrrstaða skapast. Allt atvinnu-
líf og velmegun þjóðarinnar er
undir því komin, að svo vel sé
frá hafnarmálunum gengið, að
þessar lífæðar þjóðfélagsins
geti gegnt hlutverki sínu.
Lóðirnar.
Víða eru það vandræði,að land
það, sem þorp stendur á, skuli
ekki vera félagsleg eignHér þarf
ekki að rekja þau vandræði,
sem af þvi leiða á margan hátt.
Stundum verður þá sveitarfé-
lagið sjálft hornreka með sín
fyrirtæki eða verður að sæta
ýmis konar ókjörum. Reynslan
af einstaklingseign byggingar-
lóða í þorpum er mjög misjöfn,
en oftar vond en góð. Hefir það
víða orðið þorpunum hið mesta
tjón og bæði truflað eðlilega
þróun og gert húsnæði allt
stórum dýrara en vera þurfti.
Úr þessu verður að bæta hið
bráðasta á þann hátt, að þorp-
unum sé hjálpað til að eignast
það land, sem þau standa á,
með viðunanlegum tilkostnaði.
Það þarf líka að hvetja og knýja
til þess, að sú þróun verði.
Almannaheill í nútíð og fram
tíð má ekki þoka fyrir stundar-
hagsmunum einstakra landeig
enda, þótt þeir e. t. v. eigi mik-
ið undir sér i þorpi sínu og séu
á margan hátt góðir menn og
gegnir.
Framsóknarmenn lögðu til á
Alþingi 1942, að ríkisstjórnin
léti athuga á hvern hátt mætti
veita kaupstöðum og þorpum
eignar- og umráðarétt yfir
nauðsynlegum löndum og lóð-
um, með sanngjörnum kjörum.
Jóhann Sæmundsson, þáver-
andi félagsmálaráðherra, skip-
aði fjögurra manna nefnd, sem
samdi frumvarp um málið og
sendi núverandi ríkisstjórn. í
þessu frumvarpi er lagt til að
sveitarfélög geti keypt lóðir,
sem þorp standa á og þurfa
endilega með samkvæmt nán-
ari ákvæðum. Jafnframt eru
þar ákvæði um það, að kaup-
verðið megi ekki vera tak-
markalaust og eigi að byggjast.
á mati, sem m. a. sé gert með
hliðsjón af fasteignamati.
Það hefir verið sagt, að þetta
frumvarp bryti i bág við stjórn-
arskrána. Þar er svo ákveðið,
að enginn sé skyldur til að láta
af hendi eign sína, nema al-
menningsþörf krefji. Þarf til
þess lagafyrirmæli, og komi
fullt verð fyrir.
Fullt verð kalla menn það
sem hæst er boðið á frjálsum
markaði. Og ákvæðin um laga-
fyrirmælin skilja menn svo, að
hvert sinn þurfi að leita sam-
þykkis Alþingis um eignarnám
samkvæmt þessu.
Án þess að deila um skiln-
ing á stjórnarskránni og lögum
yfirleitt, er hægt að benda á
gildandi framkvæmd, sem ekki
er byggð á þessum skilningi.
Vegir eru lagðir gegnum tún
og jafnvel hús eru færð eða
rifin vegna opinberra fram-
kvæmda, án þess að eigandi
leyfi og án þess að leita til Al-
þingis í hvert sinn. Þar er litið
þannig á að lagafyrirmælin, sem
heimila eignarnám, geti verið
almenn og náð yfir fjölmörg
hliðstæð fyrirbæri.
Annars vegar eru svo til ýms
lög, sem eiga að fyrirbyggja það,
að menn noti sér neyð annarra.
Oft er þá um það að ræða, að
banna mönnum að taka hæsta
verð eða það, -sem ýmsir vilja
kalla „fullt verð.“ Það eru til
lög um hámarksverð og bann
við okri. Vera má að einhverj
um fi'nnist rétturinn misjafn
ef -„fullt verð“ fyrir fæði og
klæði er ákveðið af stjórnar-
völdunum, en „fullt verð“ fyrir
lönd og lóðir er takmarkalaust.
Það er hætt við því, að almenn
réttlætiskennd eigi erfitt með
að koma þessu saman.
Höfuðblað ríkisstjórnarinnar,
Morgunblaðið, birti nýlega
grein, sem skrifuð var til vernd
ar braskinu og okrinu með lóðir
og lönd. Það er þvi ekki að
vænta neinna lagfæringa úr
þeirri átt, enda ekki við því að
búast.
En allir þeir mörgu, sem þurfa
að lifa á þeim lóðum og löndum,
sem hér er um að ræða, verða
að standa saman í þesari bar-
áttu. Allir þeir sem vilja alþýð
lega velmegun og láta sér ekki
lynda að stórfé sé bundið í nökt-
um og alLsvana byggingarlóðum
og almenningur skattlagður
með þeirri tilhögun, munu
fyrr eða síðai taka höndum
höndum saman um að fylgja
því eftir, að þingsályktunar
tillaga Framsóknarmanna beri
hagnýtan árangur.-Og vitanlega
er bezt að skipa sér saman um
það mál sem fyrst. Það má ekki
dragast.
Ræktunarmál.
Úr mörgum þorpum er þá
sögu að segja, að á erfiðleika-
tímum hefir ræktað land og
nytjar þess • verið ómetandi
hjálp fyrir afkomu fólksins, og
beinlínis ráðið úrslitum á sum-
um stöðum, svo líft var i þorp-
inu. Það getur orkað tvímælis
hve langt beri að ganga í því,
að stuðla að landbúnaðarrekstri
í þorpum, en þó eru nokkur at-
riði hafin yfir allar deilur og
skoðanamun.
Sums staðar hagar þannig til,
að atvinna er mest á vetrarver-
tíð svo að blátt áfram fæst ekki
verkefni við sjávarafla að sumr-
inu. Þó að margt manna vinni
á þeim stöðum á vetr-arvertíð
en annars staðar á sumrin, er þó
alltaf margt fólk heimilisfast,
og það þarf eitthvað starf á
sumrin.
Mörg þorp eru þannig sett,
að daglegir aðflutningar að
vetrinum eru óvissir og því mik-
ið öryggi í því að nokkur neyzlu-
mjólk sé framleidd heima fyrir.
Það hefir menningarlega þýð-
ingu, að því fólki sem viíl, gef-
ist kostur á að stunda jarðyrkju,
garðrækt og heyskap í tóm-
stundum sínum og orlofi.
Alls staðar þar, sem fiskur
berst á land, fellur til mikill
áburður, en því aðeins verður
þetta að gagni, að það sé notað
i nánd við höfnina, svo að flutn-
ingskostnaður sé lítill.
Fjárhagsleg afkoma við sjóinn
verður alltaf breytileg, svo mjög,
sem hún er háð árferði um veð-
urfar og fiskigöngur. Ræktun
þorpanna er mikil fjárhagsleg
trygging sem léttir áföll vondu
áranna fyrir þá, sem hún nær
til.
Þessar staðreyndir nægja al-
veg til að sanna það, að greið
ur eðlilegur aðgangur fólksins
þorpunum að ræktunarlönd-
um er oft og viða bæði menn
ingarlegt og fjárhagslegt atriði,
sem miklu máli skiptir.
Það, sem unnizt hefir í þess-
um efnum undanfarið, er fyrst
og fremst með stuðningi hinna
almennu jarðræktarlaga. Auk
þess má hér nefna lögin um
jarðakaup ríkisins vegna kaup
túna og sjávarþorpa frá 1941.
En þó er framtíð þessara mála
samkynja lausn lóðamálsins.
Baráttan við fasteignabraskar-
ana nær jafnt yfir bygginga
lóðir sem ræktunarlönd. En það
er viða talsvert mikið mál
hvernig fram úr ræðst í þessum
efnum með tilliti til ræktunar-
málanna.
Byggingar.
Einhver frumstæðasta lifs-
nauðsyn manna er að hafa þak
yfir höfuð. Byggingamálum
þorpanna hefir ekki verið ráðið
svo vel sem skyldi. Segja má að
kaupstöðunum og sveitunum
hafi verið gerð nokkur úrlausn
í þeim málum en þorpin orðið
útundan. Raunar átti löggjöfin
um verkamannabústaði að ná
tjil þorpanna samkvæmt orð-
anna hljóðan. En þau ákvæði
hlutu mestmegnis að verða
dauður bókstafur, þegar fjár
magn þjóðarinnar hafði mest-
alt safnazt á örfáa staði, og
þorpin svo félaus, að þeim var
ómögulegt að leggja fram sinn
skerf til að innleysa hjálp rík-
isvaldsins. Aðgöngumiðinn að
ríkissjóðnum var of dýr fyrir
þorpin. Að nafni til var látið
heita, að lögin væru fyrir þau
eins og aðra, en í framkvæmd-
inni var þeim ekki fært að njóta
þeirra.
Lögin um verkamannabústaði
og byggingarsamvinnufélög eru
hvort tveggja merkileg lög, sem
mörgu fólki hafa hjálpað til
iess að brjóta helsi húsaokurs-
ins. En löggjöfin þarf að vera
háð stöðugu eftirliti. Ef reynsl-
an sýnir að hún nær ekki til-
gangi sínum verður að gera bet-
ur. Auk þess þarf jafnan að fella
eldri ákvæði að breyttum á-
stæðum, svo vel fari.
Það sem liggur næst fyrir til
bjargar í þessum málum er, að
gera byggingar í þorpunum ó-
dýrari, tryggja það, að hentug
tæki og kunnáttumenn séu til
að vinna við byggingarnar og
að veita hagstæð lán til þess-
ara framkvæmda.
Frumvarp það, sem nú liggur
fyrir Alþingi og þeir Hermann
Jónasson og Páll Hermannsson
fluttu, miðar að því að ná þess-
um árangri. Þar er lagt til að
auka mjög fjármagn það, sem
ríkið hefir gangandi í þessari
byggingarstarfsemi og gera lán-
in ódýrari. Auk þess er lagt til
að sjóðurinn eignist sína teikni-
stofu til aðstoðar og leiðbein-
inga. Á þann hátt mætti eflaust
spara drjúgan pening.
Þá er ennfremur gert ráð fyr-
ir því, að byggingarfélögin fái
sjálf innflutningsleyfi á bygg-
ingarefni og er það eflaust hið
þarfasta nýmæli og gæti orðið
til þess, að losa margan fátæk-
an mann, sem brýzt í því að
byggja yfir sig, við óþarfar og
ranglátar . skattgreiðslur til
verzlunarfyrirtækja, sem launa
það litlu.
Þessi tvö nýmæli eru merki-
legri en virðast kann í fljótu
bragði. Það á ekki að leyfa
neinum að leggjast eins og
blóðsuga á íbúðir fólksins.
Verzlun með byggingarefni og
vinna fræðimanna og nieistara
við byggingar á að vera hóflega
greidd þjónusta við þarfir al-
mennings. Það sem hér er um
að ræða er raunverulega þetta.
Fyrir hverja er verið að byggja?
Eigum við að byggja fyrir fólk-
ið eða braskarana?
Ef það sjónarmið, að byggja
fyrir fólkið, fær að ráða, þá
verður því hætt að gréiða mörg
þúsund krónur af hverri íbúð
fyrir teikningu, eftirlit og út
borgun vinnulauna. Þá verður
hætt að ala fjölmenna hátekju-
stétt á braski og okri við að
byggja og selja húsin, sem þjófr
in lifir í. Frumvarp þeirra Her-
manns og Páls miðar að því.
Það er satt, að braskið er
mest og stórkostlegast í Reykja
vík og mörg smáþorp hafa litið
eða ekki af þvi að segja. En hér
er hætta sem vofir yfir öllum
vaxandi stöðum. Það er aðkall-
andi nauðsynjamál að leysa
þetta mál, — fyrst og fremst
fyrir Reykvíkinga, en auk þess
vofir þessi hætta yfir hverjum
manni.
Framh.
Nokkrar nýjar bækur
FYLGIST MEÐ
Þið, sem l drelfbýlinu búið
hvort heldur er við sjó eða i
sveit! Mlnnlst þess, að Timinn
er ykkar málgagn og málsvarl.
Sýnið kunnlngjum ykkar blaðið
og grennsllzt eftlr þvl, hvort þeir
vllja ekki gerast fastir áskrif-
endur.
Það hefir löngum verið býsn-
ast yfir bókaflóðinu fyrir jólin,
og satt er það mikil hefir bóka
útgáfan verið síðustu árin, og
sjálfsagt er hvergi í heimi 120
þúsund sálum ætlaður jafn
mikill bókakostur sem hér á
okkar landi. Nú á þessu hausti
verður þó sennilega hnekkt
fyrra meti í bókaútgáfu íslend-
inga. Á hverjum degi koma
nýjar og nýjar bækur í búðirn-
ar — stórar og vandaðar og dýr-
ar bækur — góðar og merkileg-
ar bækur — léttlæsilegar og
íburðarminni bækur — og loks
talsvert af rusli eins og gengur
og gerist.
Jólavaka.
Ein meðal hinna fallegu og
eigulegu bóka, er Jólavaka, sem
Þórhallur Bjarnarson gefur út,
en Jóhannes úr Kötlum hefir
valið. Er í þessari bók saman
dregið allt það, sem bezt er til
íslenzkum bókmenntum um
jólin og atburði er þá hafa gerzt.
Eru þarna sögur, ljóð, frásagn
ir og ritgerðir eða kaflar úr
þessu. Meðal þessa eru helgi
kvæði frá miðöldunum, kaflar
úr fornritunum, þjóðsögur,
þættir úr predikunum, bæði í
kaþólskum og lúterskum sið,
smásögur eftir fjölda höfunda,
minningar frá ýmsum öldum
og kvæði allt frá Lofti ríka til
Steins ■Steinarrs. Syngur það
hver með sínu nefi í þessum
jólakór kynslóðanna,“ eins og
komizt er að orði í formála
bókarinnar. „Maður veit ekki,
hvort ómar innar í hjartanu,
sögn Lúkasar guðspjallamanns
um fjárhirðana á Betlehems
völlum eða sögn gömlu konunn
ar úr Rangárþingi um nátt-
rröllið á glugganum — hvort
tveggja er tær uppspretta þeirr
ar fegurðar, sem vér þráum. ..“
En einkunnarorð bókarinnar
er brot úr kvæði Einars Bene-
diktssonar um landið helga:
Þótt allir knerrir berist fram á bárum
til brots við eina og sömu kletta-
strönd,
ein minning fylgir mér frá yngstu
árum
' þar er sem bliki á höfn .við
friðuð lönd.
Ég man. Ein bæn var lesin lágt
í tárum
við ljós, sem blakti gegnum
vetrarhúmið.
Og svo var strokið lokki af léttri hönd,
sem litla kertið slökkti og signdi
rúmið.
Höfundarnir eru eins og áður
er að vikið, mjög margir og frá
mörgum öldum, og verða nöfn
þeirra ekki þulin hér. En full-
yrða má, að valið sé mjög
smekkegt, þótt hér sem ætíð,
þegar um svona úrval er að
ræða, hljóti einstakir menn að
sakna einhvers, er þeir hefðu
kosið að sjá í bókinni. Skal hér
getið lítillar frásagnar eftir
Pálma Hannesson rektor um fá-
tækan drenghnokka, sem stend-
ur við búðarglugga og horfir á
jólaskrautið inni fyrir, er höf-
undur þessara orða saknar —
frásögn, sem að fegurð og sam-
úð minnir á sögu H. C. Ander-
sen um Litlu stúlkuna með eld-
spýturnar. En ekki meira um
það.
Bókin er mjög vel úr garði
gerð, prýdd mörgum myndum
af íslenzkum listaverkum og
teikningum, prentuð á ágætan
pappír, í myndarlegu broti og
prófarkir lesnar af natni.
Sjósókn.
Önnur bók, sem verðskuldar
fyllilega, að hennar sé loflega
getið, er Sjósókn, mikið rit, sam-
in af séra Jóni Thorarensen
eftir frásögn hins aldna sæ-
garps, Erlends Björnssonar á
Breiðabólsstað. Það er skemmst
af þessari bók að segja, að hún
er gagnmerkasta heimildarrit,
sem við höfum eignazt um öld,
sem nú er liðin, lokaþáttinn í
árabátaútvegi íslendinga og
umskiptatímann, þótt eðlilega
sé frásögnin miðuð við Faxa-
flóa, þar sem Erlendur hefir
alið aldur sinn og var meðal
hinna fremstu sjósóknara um
langa ævi. Verða því ekki born-
ar brigður á sannfróða frásögn
hans. Hér koma og við sögu
mjög margir samtíðarmanna
hans, er lögðu stund á sjósókn
og útveg um Suðurnes, auk
ýmsra annarra, svo að fyrir þá
skuld er bókin einnig merkileg,
að þar geymast margvislegar
heimildir um menn og máleíni,
er ella hefðu fallið í fyrnsku.
í bókinni er fjöldi mynda og
uppdrátta, einkum af bát-
um, veiðarfærum, verkfærum
og áhöldum, er notuð voru á sjó
eða í sambandi við nýtingu afl-
ans.
Öldungurinn á Breiðabóls-
stað á Álftanesi hefir þannig
að lokinni langri og merkilegri
starfsævi á sjó og landi, reist
sétf-í ellinni óbrotgjarnan minn-
isvarða á nýju sviði og ólíku
harðræði sæfaranna, er hann
sagði fyrir um þessa bók. Séra
Jón Thorarensen hefir síðan
lagt þar að sína listamannshönd,
en fágaður stíll hans er al-
kunnur af þjóðsagnasafni hans,
Rauðskinnu.
Útgefandi bókarinnar er ísa-
foldarprentsmiðj a.
Bók eftir Nordahl Grieg.
í haust kom út hér stór skáld-
saga eftir norsku þjóðhetjuna
Nordahl Grieg. Heitir hún á ís-
lenzkunni „Vor um alla veröld“,
en á frummálinu nefndist hún
„Ung má verden ennu være“, og
var það nafn sótt í ljóð stór-
skáldsins Wergelands.
Bók þessa ritaði Grieg á tím-
um Spánarstyrjaldarinnar, og
gerist fyrri hluti hennar aðal-
lega í Rússlandi, litlu áður og
um það leyti, er hin miklu
réttarhöld gegn gömlu bolsé-
vikkaforingjunum fara þar
fram og þeir sekir fundnir og
dæmdir fyrir föðurlandssvik og
hvers konar glæpi. Síðari hlut-
innn gerist að mestu leyti á
Spáni, er stjórnin og hersveitir
heyja baráttu sína gegn upp-
reistarmönnum af ítölskum og
þýzkum hjálparsveitum þeirra.
En auk þessa gerast sumir
þættir bókarinnar i Noregi,
Englandi og víðar. Fjölda marg-
ar persónur koma þarna við
sögu, og eru manngerðirnar
(Frawhald á 4. síSu).