Tíminn - 11.12.1945, Blaðsíða 5
94. blað
TÍMITCN, þriðjndaginn 11. des. 1945
5
UR BÆNUM
Bifreiðastöðin Hreyfill
hefir tekið upp þá nýbreytni við af-
greiðslu leigubifreiða frá stöðinni að
nota hátalara til að tilícynna bifreiða-
stjórunum hvert þeir eigi að fara og
þurfa þelr þá ekki að fara úr bílum
sínum, þegar mikið er að gera.
Var ölvaður og ók tvisvar á.
í seinustu viku kom það fyrir í
Reykjavík, að ölvaður bílstjóri lenti í
tveim árekstrum sömu nóttina. í fyrra
skiptið ók hann á girðihgu og braut
hana á löngum kafla, en hélt ferð
sinni samt áfram, eins og ekkert hefði
í skorizt, en áhorfandi tók númerið
af bifreiðinni og tilkynnti lögreglunni,
er hóf þegar leit að manninum og
fann hann, þar sem hann hafði lent
í öðrum árekstri og hafði í það sinn
ekið fyrst á girðingu og síðan á ann-
an bíl. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem
slíkt hendir ölvaða bílstjóra og má
merkilegt heita, hve sjaldan verða
dauðaslys af akstri drukkinna manna,
því að.vitanlega eru vegfarendur í yf-
irvofandi hættu, þar sem ölvaður mað-
ur ekur bíl sínum um fjölfarnar götur.
Sjúkdómar af erlendum
nærfatnaði.
í Reykjavík hefir þess orðið vart að
undanförnu, að menn hafi fengið 111-
kynjaða húðsjúkdóma af erlendum
nærfatnaði, sem notaður hefir verið
án þess að hann væri áður þveginn.
Hefir héraðslæknirinn 'skorað á fólk
að nota ekki erlendan nærfatnað, fyrr
en hann hefir verið soðinn og skolað-
ur vandlega.
Strætisvagnabílstjórar/
segja upp samningum.
Fyrir síðasta fundi bæjarráðs, lá
bréf frá Bifreiðastjórafélaginu Hreyfli,
þar sem tilkynnt er, að félagið hafi
sagt upp samningum við Strætisvagna
Reykjavíkur, frá 1. marz 1946.
Hjúskapur,
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band af sr. Bjarna Jónssyni ungfrú
Birna Benjamínsdóttir, Bræðraborgar-
stíg 8 B og Ólafur Jónsson, Leifsgötu
27. Heimili þeirra verður að Leifsg. 27.
Brúarfoss
kom frá Leith síðastl. sunnudag.
Skipið hreppti versta veður á leiðinni
og fékk á sig brotsjóa. Ferðinni seink-
aði um einn sólarhring vegna óveðurs.
Með skipinu voru eftirtalidr farþegar:
Geir Borg framkvstj., frú Guðrún Borg
Tómas Pétursson stórkaupm., Guido
Bernhöft stórkaupm., Jón Möller full-
trúi,. Friðrik Bertelsen stórkaupm.,
Geir H. Zoega forstjóri. Héðinn Valdi-
marsson forstjóri, Gunnar Guðmunds-
son stórkaupm., Arthur Gook (frá
Akureyri) frú Wreight með barn, frú
E. J. G. Hannan með barn, frú Conney,
frú Lindsey með barn, úngfrú A. Jans-
son, ungfrú J. Taylor, A. Ledingham,
F. Carter, frú Valgerður Could, ungfrú
Witaker, B. Gíslason, R. Ólafsson,
Haraldur Bjarnason, G. Friðriksson,
Lárus Johannesson, R. T. Johannes-
son, Harding Johansen og A. Hagvaag.
Fra msóknarmenn!
Framsóknarmenn í Reykjavík eru
vinsamlega beðnir að koma í kosn-
ingaskrifstofuna í Edduhúsinu við
Lindargötu og m. a. gæta að, hvort
þeir eru á kjörskrá. Sími skrifstof-
unnar er 6066.
Samkoma.
Framsóknarfélögin í Reykjavík héldu
skemmtisamkomu í Sýningaskálanum
s.l. miðvikudagskvíld. Þar flutti Hall-
dór Kristjánsson snjalla ræðu. Spilað
var, sungið og dansað af miklu fjöri
fi>am á nótt. Húsið var troðfullt og
samkoman að vanda mjög skemmtileg.
Næsta skemmtun Framsóknarfélag-
anna verður föstudaginn 4. í jólum.
Þá verður jólatrégleðskapur fyrir börn
að deginum, en aðal jólaskemmtun
fullorðna fólksins að kvöldinu og fram
eftir nóttunni.
Aðalfundur verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur
var haldinn s.l. mánudagskvöld. í
stjórn voru kosnir Guðjón Einarsson
formaður. . Meðstjórnendur í 2 ár:
Baldur Pálmason, Carl Hemming
Sveinsson og Björgúlfur Sigurðsson.
Meðstjórnandi í eitt ár: Sveinn Ólafs-
son. í varastjórn hlutu kosningu:
Gunnar Ásgeirsson, Gunnar Magnús-
son og Sveinbjörn Árnason. Fyrir voru
í stjórninni: Konráð Gíslason og Pét-
ur Ólafsson.
Dómprófasturinn kveður.
Séra Friðrik Hallgrímsson dómpróf-
astur kvaddi söfnuð sinn síðastlðinn
sunnudag, við guðsþjónustu er hann
flutti í Dómkirkjunni. Við þetta tæki-
færi flutti biskup prófasti hugnæma
kveðju og séra Árni Sigurðsson kvaddi
hann einnig með nokkrum orðum.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
ungfrú Kristín Guðmundsdóttir frá
Þingeyri og Hermann Friðfinnsson
Kjaranstöðum, Dýrafirði.
Umferðaslys.
Undanfarna daga hafa orðið mörg
umferðaslys í Reykjavík, endá slæm
færð, krap og hálka á götunum. Fyrra
sunnudag ók bifreið á ljósastaur á
TÓBAKSEINKASALA RÍKISINS
i r
REYKJAVIK
SÍMAR 1620—1625 (5 límir). PÓSTHÓLF 427. SÍMNEFM: MONOPOL—TOBAK
Útsöluverð í sraásölu á eftirtöldum vindlategundum má eigi vera
hærra en hér segir:
Jamaica vincUar
Brazil vindlar
Havana vindlar
Golofina Perfectos (í y4 ks.) kassinn kr. 82.50
Golofina Londres (í Vz —) — — 130.00
Golofina Conchas (i % — ) — — 97.50
Golofina Royal Cheroots (íVi —) — — 62.50
Machado’s Gems (smávindlar) . (í 50 stk. búntum) pakkinn — 23.75
Suerdieck: -
Cesarios (í % ks.) kassinn kr. 53.75
Mandarim large (í V2 ks.) — — 66.25
Mandarim small (í y2 —) — — 51.25
Hollandezes (í y2 —) — — 85.00
Oura de Cuba, Brazil (í y2 —) — — 100.00
Oura de Cuba, Sumatra 0 y2 —) — — 112.50
Florinha-Havana . *. (í y4 —) — — 31,25
Baroneza Erna small (í y4 —) — — 40.00
Fidalgos smávindlar (í 10 stk. pk.) pakkinn — 8.00
Costa Peima:
Democraticos (í y2 ks.) kassinn kr. 61.25
Violeta ...;. (í y2 —) — — 62.50
Stela No. 1 (í y2 ) — — 63.75
Principe de Gales No. 3 (í y2 —) — — 100.00
Prinripe de Gales No. 2 (í y2 —) — 112.50
Preciosa (í y2 —) — — 47.50
Pistolas (í y2 —) — — 60.00
Bengalinhas • a y2 ) — — 77.50
Bengalinhas * (í y4 —) — — 40.00
Luzos small (i y2 ) — — 77.50
Luzos small * (í y4 —) — — 40.00
La Corona:
Corona (i y4 —) kassinn kr. 170.00
Half-a-corona (í y4 ) — — 97.50
Grenadiers (í y4 ) — — 86.25
Young Ladies (í y2 -) — — 120.00
Demi Tasse (í y2 —) — — 125.00
Bock:
Rotschilds (í y4 —) kassinn kr. 130.00
Elegantes Espanolas (í. y4 —) — — 96.25
Panetelas (i y2 —) — — 143.75
Henry Clay:
Regentes kassinn kr. 98.75
Jockey Club (í y4 —) — — 82.50
Golondrinas . .: (í y4 —) — — 77.50
Bouquets de Salon (i y4 — * — — 77.50
Ltan Reykjavíkur oj* Hafnarfjarðar rná ótsöluverð á viiiclluiii vera 5% hærra vegna flutningskostnaðar.
Njálsgötu og slasaðist farþegi og bif-
reiðin skemmdlst mikið. Síðastliðinn
þriðjudag varð stúlkubarn, sem var
að leika sér á skíðasleða, fyrir bif-
reið, en slasaðist ekki hættulega. Sama
dag urðu tvö önnur umferðaslys. Mað-
ur á reiðhjóli varð fyrir bifreiö á
gatnamótum Tryggvagötu og Nausta-
götu, slasaðist hann allmikið og var
fluttur í sjúkrahús. Þá varð annar
maður á reiðhjóli fyrir bifreið á gatna
mótum Hafnarstrætis og Pósthús-
strætis. Slasaðist hann allmikið.
Maður finnst örendur.
Síðdegis fyrra sunnudag hvarf
Guðmundur Tómasson, til heimilis að
Fálkagötu 6' í Reykjavík að heiman
frá sér. Þegar hann var ekki komlnn
heim á þriðjudagsmorgunn og hans
hafði verið leitað, var lögreglunni tii-
kynnt um hvarf hans. Fékk hún þá
hjálparsveitir skáta til að leita dg
fundú þeir manninn eftir skamma leit
Kosningaskrifstofa
Framsóknarmanna
til undirbúnings bæjarstjórnarkosninga í Reykjavík
er í Edduhúsinu við Lindargötu. Opin daglega kl.
5—7 e. h.
Kjörskráin liggur þar frammi og ættu sem flestir
að athuga hvort þeir eru á kjörskrá.
í skurði einum í Vatnsmýri, sem er
skammt frá Fálkagötu, og var hann
þar örendur. Guðmundur heitinn hafði
verið lasinn, er hann fór að heiman
frá sér á sunnudag og hefir sennilega
steypzt í skurðinn, fengið aðsvif og
flækzt í vír, sem var í skurðinum.
Guðmundur heitinn Tómasson var
fjörutíu og tveggja ára gamall, kvænt-
ur og átti 4 börn, það yngsta innan
við fermingu.
Hjónaefni.
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Auður Stefánsdóttir (Ólafss.
framkv.stjóra frá Kálfholti) og Helgi
T. Hjartarson (Hanssonar kaupm),
Laufásveg 19.
Bréfaskóli S.Í.S.
veitir yður haldgóða kennslu í hagnýtum reikningi.
Efni bréfanna m. a.:
Metrakerfið, myntir mál og vog, félagsreikningur,
jöfnur, flatarmál og rúmmál.
Upplýsingar hjá Bréfaskóla S. f. S.,
Sambandshúsinu, Reykjavík.
Orðsending til kaupenda Tímans
Ef kaupendur verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru þeir vin-
samlega beðnir að tilkynna það afgreiðslunni í sima 2323.