Tíminn - 14.12.1945, Side 7

Tíminn - 14.12.1945, Side 7
95. blað TÍMIM, föstiidaginn 14. des. 1945 7 BÖKIN, SEM MENN HAFA BEÐIÐ EFTIR Út er komin heildarútgáfa af öllum ljóðum og vísum KKISTJANS IV. JtLlUS (K. IV.) Heitir bók þessi Kvæöi og kviölingar Prófessor Richard Beck hefir gefið bókina út og skrif- að ítarlegan formála um skáldið og skýringar með kvæðunum. Haraldur Sigmar, prestur, hefir einnig skrif- að endurminningar sínar um K. N. í bókina. Það er óþarfi að kynna K. N. fyrir íslendingum, því að vísur hans hafa árum saman verið hér á hvers manns vörum og hefir það því þótt mikill skaði, að ljóð hans hafi hvergi verið til í heild. Það ætti því að vera öllum, sem unna græskulausum gamanljóðum og góðum kveð- skap, mikið fagnaðarefni, að nú hefir verið ráðizt í að safna öllum þessum ljóðum og lausavísum saman í eina veglega bók. Mjög hefir verið til bókarinnar vandað hvað ytri frá- gang snertir, svo óhætt mun að fullyrða, að pappír og band sé með ágætum. Ljóðabók K.N. veröur því vafalaust jólabókin í ár BÓKFELLSÚTGÁFAN \Ijjöt ikOL iiw ifa W* |i> Iprr Bændur láta ekki (Framhald aj 3. síðu) skipta, enda snerta þau bæði réttindi þeirra og lífsafkomu. Krafa bænda er því sú til Al- •þingis, að það rétti hlut þeirra og fái þeim sjálfum í hendur vald yfir sjóðum sínum og sölu- verði vara þeirra. Þá krefjast bændur einnig, að bygging áburðarverksmiðju verði hraðað eins og hægt er. Bændastéttin er elzta at- vinnustétt þessa lands og ein sú fjölmennasta. Þjóðin á vissu- lega þökk að gjalda hverjum þeim manni,sem unir við að erja jörðina, hvort sem hann er bóndi eða venjulegur verka- maður við það starf. Það er því æði kaldhæðnisleg örlagasvipa, er rekur þá menn og flokká áfram, er sífellt vinna að því að gem hlut þeirra, er í sveitunum búa, lakari en ann- ara manna. Mun það koma þeim sjálfum í koll og þjóðinni allri, fyrr en siðar, ef ekki verður skjótt hægt að stöðva framgang þeirra fylkinga, er nú reyna að skapa upplausn í sveitum landsins. Kaupfélögin, sem eru styrk- ustu stoðirnar i sjálfsbjargar- viðleitni sveitafólksins, eru nú ofsótt með sköttum og vöxtur þeirra heftur með óheilbrigðri stjórn á verzlunarmálum þjóð- arinna, þar að auki vinna hópar manna að sundrung og klofn- ingu í þessum samtökum, þar sem því verður við komið. Er þetta enn einn þátturinn í því miður göfuga starfi að beygja sveitafólkið og gera það bljúgt og undirgefið. Augu bænda eru nú almennt að opnast fyrir því, hvert stefn- ir í málum þeirra, enda munu þeir um langt skeið ekki hafa verið eins einhuga og' nú að halda í rétt sinn og afkomu- möguleika á við aðra borgara landsins. Þeir hafa stundum fyrr.ú sögu þjóðarinnar þurft að berjast fyrir tilveru sinni, sem þá var að visu barátta fyr- ir tilveru þjóðarinnar. Þá áttu þeir í höggi við erlenda þjóð, er beitti þá yfirgangi. Nú verður baráttan háð við yfirgangsseggi af þeirra eigin þjóðerni. Það voru bændur er lægðu yfirgang Jóns Gerrekssonar, Ljenharðs fógeta og fleiri slíkra kumpána. Og þó yfirgangsmenn nútímans hafi á sér annað snið og beiti öðrum aðferðum, Þá munu bændur enn láta hart mæta hörðu, þótt með öðrum hætti verði en fyrr á öldum. Ferðamenn! Tilvalin og varanleg jólagjöf handa frúnni og kærugtunni, er litprentuð rós. Handa bóndanum og unnust- anum skipa-, dýra og landlags- myndir. Fyrir börnin flugvéla-, barna- og dýramyndir. Allt í vönduðum og fallegum römmum. Verð og stærð við allra hæfi. RAMMAGERÐIN HÓTEL HEKLU (gengið inn frá Lækjartorgi). Hyacintulaukar hvitir, rauðir og bláir. Takmarkaðar birgðir. Blóm & Ávextir Sími 3717. Sam.vinnu.menn! Munið að brunatryggingar húsa og húsmuna eru mikilsverður þáttur í einstaklingsöryggi nú- tímans. Samband ísl. samvinnufélaga Móðir mín Ilólmfríður Snorradóttir frá Vogsósum andaöist mánudaginn 10. þessa mánaðar. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna. ÁSMUNDUR VILHJÁLMSSON. Heimsstyrjöldin 1939-1945 Saga þessa mikla hildarleiks kemur út í tveimur bindum á næsta ári. — Ólafur Hansson, sögukennari Mentaskólans í Reykjavík, semur bæði bindin. — Fyrra- bindið er nú fullsett og komið í prentun. Mun það koma út í janúar. Seinna bindið kemur út á næsta hausti. — í bókinni verður fjöldi mynda af mönnum og merk- ustu atburðum heimsstyrjaldarinnar, ennfremur margir uppdrættir, sem sérstaklega hafa verið gerðir fyrir út- gáfuna. Félagsmenn Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóð- vinafélagsins fá þetta sögurit, auk fjögurra annarra bóka, fyrir ársgjald sitt, sem er aðeins 20 krónur. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjó ðvinafélagsins Jólabækurnar í ár: JRItsafn Flims á Kjörseyri: Ævisögur og þjóðhættir frá 19. öld er tvímælalaust ein gagnmerkasta bókin, sem á markaði verður fyrir þessi- jól. Þetta er stór og forkunnarvönduð bók, sem hefir að geyma ó- hemjumikinn persónu-sögulegan fróðleik víðs veg- ar að af landinu, ættfræði, þjóðháttalýsingar og margvislegan fróðleik annan. Bókin er prýdd fjölda 1 teiknimynda eftir Finn sjálfan, sem aldrei hafa verið birtar áður. Ritsafn Finns á Kjörseyri er jóiabók hinna vand- | látu — Kemur fyrir jólin. ! Undir austrænum himni Þetta er nýjasta skáldsaga Pearl S. Buch, og af mörgum talin hennar allra skemmtilegasta bók. Sagan gerist á styrj aldarárunum í Kína og fjallar um njósnir, sprengjuárásir og vélabrögð, ástir og afbrýðisemi, en inn i þessa umgerð er fléttuð hug- ljúf ástarsaga, látlaus og hrífandi i Saga þessi hefir nú verið kvikmynduð.* fe / I I munarheimi er önnur skáldsaga eftir Pearl S. Buch, saga um ástir og ævintýr amerísks flugmanns í Kína, þar sem á vegi hans verður dularfull og töfrandi mær, sem hann verður ástfangimr af við fyrstu sýn. Þetta er ljóðræn, heillandi skáldsaga, sem enginn | getur verið ósnortinn af. í I»essar tvær töfrandi skáldsögnr Buch eru tvímælalaust jólaskáld- sögurnar í ár. Mansöngvar og minningar Ný Ijóðabók, eftir Steindór Sigurðsson, sem hef- ir að geyma ýmis hans beztu kvæði, þar á meðal hinn stórbrotna ljóðaflokk, er hann orti 17. júní í fyrra i tilefni lýðveldisstofnunarinnar. Viltur vegar Þetta er önnur ljóðabók hins efnilega skálds, Kristjáns Einarssonar frá Djúpalæk. Þessar tvær ljóðabækur eru vel valdar jólagjafir handa öllum ljóðavinum. Sfðasti víkingurinn eftir Bojer, er ein allra stórbrotnasta skáldsaga heimsbókmenntanna um sjósókn og sæfarir. Sjálfsögð jólagjöf handa öllum sjómönnum. Sjómenn Bráðskemmtilegar lýsingar á selveiðum í norður- höfum, prýddar skemmtilegum teikningum. Höf- undurinn er vinsæll rithöfundur, Peter Tutein. HANDA BÖRNUM OG UNGLINGUM: Töfragarðurinn Þetta er ein allra bezta og skemmtilegasta ung- lingabók, sem þýdd hefir verið á íslenzku og hentar jafnt drengjum sem stúlkum. Hún er eftir sama höfund og hin ágæta og vinsæla bók, Litli lávarð- urinn. Tröllin í Heydalsskógi Bráðskemmtileg norsk ævintýri, prýdd ágætum myndum. Handa yngstu lesendunum eru bækurnar Skógarævintýri Kalla og Hlustið þið krakkar, söngljóð handa börnum eftir Valdimar Hólm Hallstað. Báðar þessar bækur eru prýddar skemmtilegum myndum. Kaupið þessar bækur lijá næsta bók- sala ella pantitS þær frá útgefanda. Bokaútg.Pálma H. Jónssonar Aknreyri.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.