Tíminn - 05.02.1946, Blaðsíða 5

Tíminn - 05.02.1946, Blaðsíða 5
22. Mað TÓIIMV, þriðjudagrnn 5. felir. 1946 S LARS HANSEN: Fast jbeir sóttu sjóinn — Nú sekkur flakið, Lúlli, þegar þessi bætist við. Þegar svo hann Kristófer skreiddist upp á þiljur — með mikl- um erfiðismunum og þjáningum, — spurðu þeir Þór og Jens, hvort hann héldi nú ekki, að það gæti verið áhættusamt að sigla svona drekkhlöðnu skipi alla leið heim til Noregs. En þá hló hann Kristófer bara og spurði þá, hvort þeim hefði alls ekki flogið það í hug, að allur þessi dúnn væri einmitt það björgun- arbelti, sem skútan yrði að fljóta á, því sjálf væri hún alls ekki haffær. Hann sagðist fyrir sitt leyti telja gamla „Noreg“ allan einn bjarghring með þessum dúnfarmi, og nú ættu þeir ekki annars úrkostar en reyna að hanga á bjarghringnum heim. Loks var þá allt komið á skipsfjöl, og aftur var akkerum létt. Skol átti að setja á land í Barentsey, þar sem allt var búið undir vetursetu. Sjórinn var blágrænn og hvergi bólaði á einni einustu ísörðu, ekki einu sinni í loftspeglununum. Allar leiðir voru eins greiðar og verið gat, og „Noregur" var aftur á siglingu inn fló- ann — en samt kannske á leið til tortímingar. Vindurinn var orð- inn vestlægur, og það var góðs viti út af fyrir sig. En þar, sem „Noregur11 var mjög hlaðinn og byrinn lélegur, sóttist siglingin seint. Þeim gafst góður tími til þess að skrafa saman um eitt og annað. Allir voru glaðir og reifir og horfðu björtum augum til framtíðarinnar, því að þessi dúnfengur, sem nú var á skip- iriu, var sá stærsti fengur, er hingað til hafði verið lagt af stað með frá Svalbarða heim til Noregs á svona litlu skipi. — Það er nú bara hreint ekki víst, að við komumst af stað til Tromsö, áður en ísinn lokar okkur inni aftur — ha, piltar? sagði Jens og góndi upp í loftið. — Takist svo illa til, þá erum við þó að minnsta kosti sex saman — í þetta skipti, svaraði hann Kristófer. Þeir voru varla komnir hálfa leiðina að Barentsey, þegar sléttlygndi og „Noreg“ tók að reka fyrir straumi. Skolur skildi það svo ósköp vel, að bæði hann Kristófer og þeir hinir óskuðu þess í hjarta sínu, að hann væri kominn út í hafs- auga. Enginn vissi, hvað nú kynni að gerast. Hann sá, að nú veitti ekki af því að leiða huga þeirra frá því, hve óbyrlegt var, svo hann sagði: 1 — Þið sjáið langa nesið þarna, sem gengur út frá Barentsey. Þar hafði ég vetursetu með honum Klaus Andersen fyrir fimm- tán árum. Ég og einn unglingur. Við áttum ekki að vera þar nema eitt ár, en þá snerist það nú þannig hér í honum Miklaflóa, að ís- inn lónaði aldrei burt í fjögur ár samfleytt. Hingað komst eng- inn og héðan komst enginn. Þið sjáið nesið, sem gengur út frá sjálfum Barðanum þarna gegnt langa nesinu á Barentsey. Þar höfðu um þetta leyti vetursetu þrír Finnar eða Lappar. Við sáum bækistöðina þeirra, og ég gaf þeim daglega gætur allt fyrsta árið. 'Það ár hjörðu þeir allir þrír — veturinn eftir varð ég aldrei var við nema tvo. Þegar líða tók fram á vorið og birta, svo að vel sást yfir sundið, veitti ég því eftirtekt, að þótt stund- um ryki þar glatt, þá liðu svo oft margir dagar, að ekkert lífs- Ketill frá Króksnesi (Skozt œvintí/ri). bjó um hann á mjúkum mosa Svaf hann þar vært til morguns. Um leið og hann kvaddi, déplaði músarrindillinn skærum augunum til hans og tísti: „Minnstu mín, ef þú þarft einhvern tíma á hjálp að halda. Þá kem ég til þín á augabragði.“ Ketill þakkaði músarrindlinum fyrir sig og lagði enn af stað. Átti hann nú skammt á leiðarenda, því að þá um kvöldið kom hann til hallar risans. Þar sat eiginkonan hans fagra í forsalnum. Augu hennar ljómuðu af gleði, þegar hún sá hann. „En varaðu þighvíslaði hún. „Risinn drepur þig og vafalaust, ef hann finnur þig hér. Hann er nú á heim- leið af dýraveiðum. Þú verður að fela þig. Hún faldi Ketil bak við stóra kistu í forsalnum. Risinn kom nú inn, lafmóður og glorhungraður. „Hæ, hæ og hó?“ æpti hann. „Hér er svikaraþefur.“ „Þessi lykt, sem þú finnur, er af fugli, sem kötturinn kom með áðan. Ég er að steikja hann.“ Eftir kvöldverð sátu þau við eldinn um stund, risinn og konan fagra. „Ég hefi heyrt það sagt,“ sagði hún, „að ekki sé hægt að drepa þig, sökum þess hvað sterkur þú ert.“ Þetta líkaði risanum. Hann hallaði sér aftur á bak í stólnum og teygði úr sér svo að brakaði í öllum liðamót- um. Brakið ætlaði alveg að æra Ketil, sem húkti í fel- um bak við kistuna. „Satt er það,“ mselti risinn,“ að ekki er hægt að drepa mig á venjulegan hátt. En komdu nær, þá skal ég segja þér leyndarmál. Hefurðu séð trjábútinn, sem stendur 1 hallargarðinum?“ Konan kinkaði kolli. Búskaparsaga Sjötugs bónda Sveinn Sveinsson bóndi frá Asum í Skaftártungu og Fossi í Mýrdal, varð sjötugur 5. des- ember síðastliðinn. Ég ætla að leyfa mér að rekja hér búskap- arsögu þessa merka bónda. Uppruni Sveins. Sveinn er fæddur árið 1875 í Hörgsdal á Síðu, sonur séra Sveins Eiríkssonar og konu hans Gyðríðar Pálsdóttur prófasts í Hörgsdal. Á fyrsta ári fluttist hann með foreldrum sínum að Kálfafelli í Fljótshverfi og það- an að Sandfelli í Öræfum, þaðan aftur að Kálfafellsstað í Suður- sveit og loks að Ásum í Skaftár- tungu. Þar bjuggu þau lengst. Hjá foreldrum sínum var Sveinn síðan allt til 28 ára aldurs, og var þeirra aðalstoð við búskap- séra Sveinn Eiríksson andaðist, en sóknin lagðist undir Þykkva- Bjarni áleit hana vera að nokkru leyti ættaróðal Sveins. — Fluttu þau hjónin svo um vorið 1908 að Ásum með búslóð sína, 2 börn og 1 dreng, sem þau ólu að nokkru upp. Við Hólana og Eyfellinga skildu þau í bezta vinfengi, en á Ásum vildi Sveinn helzt búa. Þegar nú Sveinn og Jóhanna voru komin að Ásum í hið fyrir- heitna land sitt, sem þau köll- uðu, öðluðust þau nýtt fjör og nýjan áhuga, en Sveinn vissi vel, að ekki dygði að búa á Ásum | sauðfjárlaus. Brá hann sér þá enn undir Eyjafjöll og fékk pen- ingalán hjá góðvini sínum þar, bæjarklaustursprestakall og hafði þáverandi prestur þar, Jóhanna Sigurðardóttir ng Sveimi Sveinsson inn eftir að hann komst upp, því að bræður hans tveir, er á lífi voru, gengu menntaveginn. En það eru þeir Páll, sem lengi var yfirkennari við menntaskól- ann í Reykjavík, og Gísli sýslu- maður og alþingismaður í Vík. Er Sveinn var kominn á þenn- an aldur, orðinn 28 ára, kvænt- ist hann Jóhönnu, þá 24 ára, dóttur Sigurðar snikkara og Guðríðar ljósmóður, er lengst bjuggu að Breiðabólstað á Síðu og áttu 14 börn. Ungu hjónin setja saman bú. En nú vantaði ungu hjónin jarðnæði, en hvergi í Skafta- fellssýslu var þá laus jörð, er þeim hentaði, en ekki var um annað að tala hjá Sveini en að reisa bú. Dvöldu þau þá í hús- mennsku eitt ár á Leiðvelli í Meðallandi, en urðu þó að heyja mest á annarri jörð þar í hreppnum við erfið skilyrði. Eigi byrjuðu þau með mikil efni, áttu vel 20 ær, 1 hest og 1 kvígu, enga peninga og engin búsá- höld, en á þessu tókst þeim að ráða nokkra bót, með því að Sveinn fékk tvo hesta leigða, er hann keypti síðar, og áhöld, svo sem reiðinga, reipi og fleira fékk hann, er selt var bú þar eystra um þessar mundir. Þeim varð nú ljóst á fyrsta búskap- arárinu, að ekki myndi það verða mikill framtíðarvegur að búa á flæðiskeri húsmennsk- unnar. Tck Sveinn sér því ferð á hendur næsta vor vestur á bóginn að leita sér jarðnæðis og allt út undir Eyjafjöll. Þar frétti hann, að Eyvindarhólar, sem var kirkjujörð, þá lögð undir Holts- prestakall, væri laus til ábúðar. Sveinn fékk þessa jörð til ábúð- ar, sneri við það aftur austur, sótti konu sína með ungbarn þeirra og eina vinnukonu, svo og þá litlu búslóð, sem þau áttu. Tóku Eyfellingar þeim einkar hlýlega. í Eyvindarhólum var í- búðarhús þolanlegl og kúgildi voru þar 2 kýr og 12 ær, og þó að þessu yrði að skila aftur, hjálpaði það frumbýlingunum eigi lítið. Afgjald af þessu öllu var mjög viðunanlegt, eftir því sem þá gerðist, Bjuggu þau síð- an í Hólum í 4 ár og farnaðist vel. Fjölguðu þau kúm og öðr- um nautkindum, svo og hross- um, en eigi gátu þar þrifizt þessar fáu ær þeirra austan úr Skaftártungu. Flutt um set. Eftir 4 ár eða 1907—08 losnaði jörðin Ásar í Skaftártungu, er séra Bjarni Einarsson á Mýrum í Álftaveri, ráð á Ásum. Leitaði Svéinn nú eftir þessari jörð, sem var auðfengin, því að séra og keypti fyrir það ær, færði síð- an frá þegar fyrsta sumarið allt að 100 ám, enda varð brátt á- berandi, hvað búskapurinn þarna blómgaðist vel hjá þeim, svo að segja mátti að tvö höfuð yxu á hverri kind. Var og mjög rómað, hvað mikilli vinnu þau hjónin afköstuðu með allri þeirri gestanauð, sem þá var í Ásum, því að þá voru þeir í þjóð- braut. Mátti og taka með í reikninginn, að barn áttu þau svo að segja á hverju ári. En það var vissulega eins og á þeim rættist málshátturinn, að bless- un fylgir barni hverju. Þegar a fyrstu árum þurfti Sveinn að byggja upp í Ásum öll fénaðar- hús og hlöður, auk þess sem hann girti þá allt túnið fjár- heldri gaddavírsgirðingu, sem ekki þekktist þá þar eystra. En þar eð sjálfur bærinn stóð á sjálfum Eldvatnsbakkanum og vatnið var að brjóta upp að hon- um, var og óumflýjanlegt að flytja hann frá hættunni. Sótti Sveinn þá um styrk til þess hjá kirkjustjórninni, því að jörðin var áfram prestsetur, en ekki fékk það áheyrn. Varð hapn því að flytja og byggja upp íbúðar- hús á eigin spýtur. Varð hann að flytja allt byggingarefni á klökkum yfir eyður og óbrúuð vötn, en þá voru vagnar ekki komnir í notkun að heitið gæti, hvað þá bílar. Þá var ekki held- ur komin sú tíð, að styrkja frumbýlinga og bændur með byggingar- og nýbýlastyrkjum og nýjum jarðyrkjuvélum. Búferli enn. Þegar þau hjónin, Sveinn og Jóhanna, voru búin að búa í Ásum í 15 ár við mikla rausn og góðan orðstír, er kominn nýr og ungur prestur i prestakallið. Langaði hann til að fá jörðina og reisa þar bú, enda átti hann rétt til þess. En þá fannst ekki laus jörð í sýslunni, nema Norð- ur-Foss í Mýrdal. Fékk Sveinn hana keypta og flutti nú enn á ný búferlum vestur yfir Mýr- dalssand. Allir, sem til þekktu, hörmuðu þetta •— vissu að báðir myndu tapa, prestur á búskapn- um og Sveinn á jarðaskiptunum. Enginn vildi missa þau hjónin frá Ásum, barnahópurinn meira og minna í ómegð og Fossinn rýr jörð. Áður en þau Sveinn og Jó- hanna fluttu frá Ásum héldu Skaftártungumenn þeim veg- legt samsæti og heiðrúðu þau á ýmsan hátt. Hafði Sveinn og gegnt þar ýmsum trúnaðarstörf- um, átti sæti í hreppsnefnd og sýslunéfndarmaður var hann fyrir hreppinn og deildarstjóri kaupfélagsins. En í stjórn kaup- félagsins hefir Sveinn verið nær frá byrjun og er enn, og svo ullarmatsmaður frá þvi fyrst, að ull var tekin við Skaftárós. En atvikin réðu nú því, að Sveinn var ekki alveg skilinn' við Skaftártunguna, þó að hann flytti þaðan búferlum. Óteljandi ferðir átti hann eftir ófarnar yfir Mýrdalssand, þegar hér var komið sögu. Bú beggja megin Mýrdalssands. ■ Þegar Sveinn flutti frá Ás- um, rak hann ekki sauðfé sitt, því að hús og heyfyrningar átti hann í Ásum, sem dugði í tvo vetur, og eftir þau 2 ár hætti presturinn búskap I Ásum og fékk Sveinn þá aftur Ásana leigða hjá presti og hefir því alltaf haft þar sauðfé sitt og hross, því að Ásar eru fjárjörð mikil, en ekki Fossinn. Á milli Foss og Ása eru nær 60 kílómetr- ar og er eitt mesta snjóþyngsla- olássið á Suðurlandi. Hefir bví oft verið strangt og harð- cótt yfir að fara, enda ekki alltaf cofið fram á hádegið, þvi að Sveini hefir nægt, þegar því hef- ir verið að skipta, 3—4 klukku- stunda svefn á sólarhring og aidrei brugðizt að vakna. Oft kom það fyrir, að Sveinn færi seinni hluta nætur frá Fossi og var kominn að jmorgni til smala- mennsku að Ásum og var svo allan daginn við fénað fram á næstu nótt, og fann hvorki til svefns né þreytu. Eru ferðalög Sveins óteljandi og vart mun "íðan land byggðist nokkur maður hafa farið til líka eins oft yfir Mýrdalssand á öllum tímum árs. Hafa fæstir menn farið eins fljótt yfir með hesta sína óskemmda. Sveinn er allra manna létt- astur og hefir það komið sér vel á hans tíðu ferðalögum. ^á hesta sína, sem Sveinn brúk- aði á vetrum, tók hann á gjöf ■um veturnætur, gaf þeim aldrei fóðurbæti, en snemmslegið, ljúf- fengt hey. Það lentu líka á Sveini fleiri ferðalög en að fara yfir Mýr- rialssand. Hann átti margar ferðir út að Garðsauka og Fljótshlíð. Var hann þá í póst- ferðum, að flytja sjómenn. reiða a’ls konar ferðafólk og börn og flytja' strandmenn. .Tarðabætur og húsabætur. Þegar Sveinn kom að Fossi ^ar mikið af túninu kargaþýft, illa þurrkað og gaf af sér innan 100 hesta af töðu eða þrjú kýr- fóður. Nú er túnið allt sléttað, vandlega þurrkað, girt og ^tækkað, svo nú má hafa þar 10 kýr í staðinn fyrir 3 og til við- bótar er búið að girða marga hektara lands til framræslu og ræktunar. í stað 3 kúa fjóss, er bar var, er nú komið 10 kúa fjós með tilheyrandi for, haughúsi o. frv. Ennfremur fjárhús, hest- hús og hlöður fyrir allt hey, og allar eni byggingar þessar vand- aðar. íbúðarhúsið þurfti Sveinn úrax á fyrsta ári að gera við og -tækka um he’ming. Reist hefir hann lika rafstöð fyrir heimilið +il eldunar, ljósa og hita. Vatns- ’eiðsla er í öll hús. Hafa þeir 'ynir Sveins unnið með honum að öllu þessu með miklum dugn- aði. Börnin. Meðan synir Sveins voru allir heima, hafði hann mikinn á- huga fyrir því að vinna sem mest að jarðabótum, því að hann bjóst við því, að sá sona únna, sem tæki við jörðinni, gæti orðið einyrki til að byrja með. En til þess að geta unnið allt með vélum, þarf landið að vera ræktað og slétt, eins og all- ir vita. Nú eru þau hjónin Sveinn og Jóhanna að hætta búskap. og hefir nú Sveinn selt sauðfjárbú sitt í Ásum eftir rúm 20 ár, sem hann hefur haft Ásana undir. En búið á Fossi hefir hann feng- ið elzta syni sínum í hendur, með þeim kjörum, að hann get- ur byrjað búskapinn sem einn gildasti bóndi hreppsins, og hef- ir Sveinn sýnt það, við son sinn, að hann hefir munað sina fyrri daga. Segist Sveinn ekki hafa viljað vinna það fyrir búskaplnn lengur, að halda sonum sinum heima frá atvinnu og menntun. 15 börn hafa þau hjónin eign- azt, misst 3 ung, en 12 eru á lífi öll uppkomin og öll uppalin heima. Þau eru sem nú skal greina: 7 synir taldir eftir aldri: — Sigursveinn, sem tekur við búi föður síns, að mestu leyti sjálf- menntaður, kvæntur Solveigu Ólafsdóttur frá Fagradal. Run- ólfur skólastjóri á Hvanneyri, kvæntur Valgerði Halldórsdótt- ur frá Hvanneyri. Kjartan raf- magnsfræðingur, kvæntur Berg- þóru Gunnarsdóttur í Reykja- vík. Sveinn er lokið hefir Sam- vinnuskólaprófi. Guðmundur, nú í landbúnaðarvélaverk- smiðju í Ameríku. Páll, búfræð- ingur frá Hólum, er nú i Amer- íku í landbúnaðarháskóla, við sandgræðslunám, og Gísli, yngstur. Dæturnar eru fimm: Gyðríð- ur, yfirsetukona, og hefir verið ráðskona hjá bróður sínum á Hvanneyri, en ætlar nú til Sví- þjóðar í vefnaðarskóla. Guðríð- ur, gift Lofti Guðmundssyni ljósmyndara í Reykjavík. Rós- hildur, gift Benedikt Guðjóns- syni kennara við Laugarnes- skólann. Ingunn, gift Ara Eyj- ólfssyni verkstjóra hjá S. í. S. Sigríður, gift Guðmundi Hjalta- syni í Reykjavík. Trúin á lífið. Innan þessarar stóru fjöl- '■'kyldu hefir ríkt mikil lífsgleði og gott samkomulag, og öll heimilisstörf verið unnin með forsjá og miklum áhuga. Sveinn Sveinsson hefir alltaf verið mikill samvinnumaður, og einn af þeim mönnum, sem bezt vann að samvinnumálum bænda í Vestur-Skaftafellssýslu á sín- um tíma, bæði að sláturfélags- og kaupfélagsmálum, var einn aðalhvatamaður að kaupfélags- útibúi við Skaftárós og síðar að Kirkjubæjarklaustri. Hann hefir mjög skýrar skoöanir á sam- vinnumálum, telur hann það mikið metnaðarmál bænda að vera kaupfélagsmenn. Álítur hann það þroska bændur að ráða sinum hagsmuna- og verzlunarmálum sjálfir, og geta ráðið sjálfir sína beztu og fær- ustu menn til forustu í sínum verzlunarmálum, enda er Sveinn einn af þeim mönnum, sem bekkir bezt mismuninn á því, sem áður var, og nú er, að fá vörur sínar heim í hlað. Við þessi tímamót í ævi Sveins bótti mér hlíða að skrifa þessar framanritaðar línur, því að bú- -kaparferill Sveins er að mörgu ’eyti óvanalegur og mjög merki- ’egur, því að hann sýnir svo vel, hverju dugnaður og trú á 'ífið getur áorkað. Og alls staðar bar sem Sveinn hefir farið, komið og verið, hvort sem það hefir verið í sorg eða gleði, þá hefir nærvera hans haft góð áhrif á menn. Það er haft fyrir satt, að aldrei hafi Sveinn b’akað hendi við '"arni, hvorki sínum né annarra, °nda hefir hann ekki trú á því að það sé betra að laða fram bað góða í barninu með bar- "míð og hörku en lipurð og nær- gætni. Jóhs. H. Bændaförin (Framhald af 4. síOu) ingar i staðinn í bílum Árnes- inga. Á leiðinni að Selfossi var stanzað i skarðinu við Seyðis- hóla og gengið þar upp í hlíð- arnar. Er þar viðsýnt um hérað- 'ð og fjallasýn fögur. Farið var tramhjá Þrastaskógi, sem Tryggvi Gunnarson gaf Ung- mennafélagi íslands. Skógurinn er á fögrum stað við Sogið, aegnt Ingólfsfjalli. Langaði marga að koma inn í skóginn, an ekki vannst tími til þess. Framh. SHIPAUTCERÐ Drarm „Hrsmfaxi” til Austfjarða um miðja næstu viku. Tekið á móti flutningi til þafna frá Hornafirði til Seyðis- fjarðar á mánudag.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.