Tíminn - 11.11.1947, Page 5
206. blað
TÍMINN, þriðjudaginn 11. nóv. 1947
5
Þnðjtid. II. nóv>.
,Ferðin til tunglsins’
ÞaS bar saman í þetta sinn,
að út kom þjóðhátíðarblað
Þjóðviljans í tilefni af bylt-
ingarafmælinu rússneska, og
blaðið skýrði frá tillögum
þeim, sem samþykktar voru
á flokksþingi þess hér í
Reykjavík.
Einn af hagfræðingum
flokksins skrifar um áætlun-
arbúskap Ráðstjórnarríkj-
anna. Og þar er nú frá
nokkru að segja, enda blaða-
maður f rá Bandaríkj unum
frumheimiidin, en þeir hafa
löngum þótt vandaðir og ná-
kvæmir í frásögnum. En sam-
kvæmt því vottorði er þetta:
„Vanalegum dauðlegum
manni mundj ekki vi'rðast
ferð til tunglsins neitt meiri
fjarstæða", heldur en fyrsta
fimm ára áætlunin.
Og svo segir hagfræðingur-
ínn:
„Ferðin til tunglsins hafði
tekizt og meira en það“.
■ Á minningarhátíð þessara
geimferða gerir Sameining-
arflokkur alþýðu sínar álykt-
anir, og er vorkynn þó að
þær séu nokkuð loftkenndar.
Það hefði að vissu leyti verið
einfaldara fyrir flokkinn að
taka upp úr rímum af Oddi
sterka þetta ágæta kosninga-
loforð:
Lýðnum gef ég Fróða frið,
fylli rígaþorski mið,
bind í sveitum sólskiniö.
Sérhvert loforð stend ég við.
Ein af samþykktum flokks-
þingsins er t. d. sú, að járn-
smiðir eigi að fá kauphækk-
un, en viðgerðarkostnaöur hjá
vélsmiöjunum á að lækka.
Landbúnaðarvísitalan á að
miðast við „heilbrigðan bú-
rekstur við skilyrði, sem telj-
ast mega viðunandi á núver-
andi tækni og þróunarstigi
landbúnaðarins". Þetta er
loðið og óljóst orðalag eins
og fleira, en ef til vill á þetta
við Búkollu og myndi þó
neytendum enginn hagur í því
að upp væri tekin Búkollu-
visitala eða Korpúlfstaða.
Það er annars undarleg
náttúra, sem Sósíalistaflokk-
urinn hefir. Sigfús Sigur-
hjartarson talaði vel og fall-
ega um heilbrigða verzlun og
rétt samvinnuhreyfingarinn-
ar í útvarpið um daginn. Þá
sáu menn, hvernig þeir flokks
bræður eignast almennar
hugsjónir, þegar þeir eru
nógu fjarri ráðherrastólun-
um, en reynslan hefir sýnt,
að ef þeim býðst að láta eitt-
hvað af sínu fólki setjast í
ráðherrastól, þá er hugsjón-
unum jafnframt stungið
undir stólinn og geymdar þar
kyrfilega, þangað til völdun-
um er lokið og aftur þarf að
ERLENT YFIRLIT:
Miklar viðsjár i Frakklandi
Kcimnr til borgarastyrjaidar, ef ISasaia-
sller stjórjilst fellaar, og verHst |tá Hóssar og
Basielarslclamesiat hííEiJaaasir?
Þann 13. þessa mánaðar kemur
franska þingið saman til fundar á
ný. Eftir að kunn voru úrslitin í
bæja- og sveitastj órnarkosningun-
um 19. og 26. f. m. kalláði Rama-
dier þingið saman til aukafundar,
þar sem hann krafðist traustsyfir-
lýsingar til handa stjórn sinni.
Eftir harðar umræður var trausts-
yfirlýsing samþykkt með 300:280
atkvæðum. 18 þingmenn sátu hjá
og 15 voru fjarverandi. Með
traustsyfirlýsingunni greiddu at-
kvæði jafnaðarmenn, katólskir
lýðveldissinnar og meirihluti radi-
kala. Kommúnistar og íhaldsmenn
greiddu atkvæði gegn stjórninni.
Atkvæðagreiðsla þessi þykir sýna,
að stjórn Ramadiers sé ekki föst í
sessi og vænta megi alvarlegra tíð-
inda, þegar þingið kemur aftur
saman um næstu helgi.
Ákjósanlegur jarðvegur
fyrir öfgastefnurnar.
Stjórnmálaástandið í Prakklandi
virðist nú á ýmsan hátt svipað því
og var í Þýzkalandi rétt fyrir
valdatöku nazista.. Afkoma al-
mennings er mjög bág og verð-
bólga fer sívaxandi. Kommúnistar
ráða yfir verkalýðssamtökunum og
vinnuófriður er því mjög mikill.
Hvert verkfalliö hefir rekið annað.
Engin von er til skjótrar éndur-
reisnar, nema Frakkar fái mikla
fjárhagslega hjálp. Fullar horfur
eru meira að segja á því, að al-
gert neyðarástand verði.i Frakk-
landi í vetur, ef Bandaríkin veita
ekki stórfellda fjárhagslega aðstoð
næstu vikurnar.
Slíkt fjárhagsástand og nú ríkir
í Frakklandi, er vissulega eins og
til þess skapað að gefa öfgahreyf-
ingunum byr í seglin. Sú hefir líka
orðið raunin þar. Kommúnistar
eiga þar öflugra fylgi en í nokkru
öðru landi Vestur-Evrópu. Til and-
stöðu gegn þeim hefir svo risið
hreyfing de Gaulle líkt og þýzki
nazistaflokkurinn á sinni tíð. Að
vísu er stefna þjóðfylkingar de
Gaulle miklu óljósari en stefna
nazista. En hinu er ekki að neita,
að undir merki de Gaulle hafa
skipað sér flest sömu öflin og
studdu nazista á sinni tíð. Kjarn-
inn í liði hans eru þeir menn, sem
fastast studdu Vichystjórnina. Til
viðbótar hefir hann svo fengið, a.
m. k. í bili, allmikið af óánægðu
miðstéttarfólki, sem jafnframt ótt-
ast yfirgagn kommúnista.
T, ' Æ •
• 1 . “ ■ i’-v- 1 * S pi
Hver er de Gaulle?
Eftir sigur þjóðfylkingar de
Gaulle í bæja- og sveitastjórnar-
kosningunum í seinasta mánuði,
hefir sú spurning heyrst víða:
Hvers konar maður er de Gaulle?
Er hann hinn „sterki maöur,“ sem
er líklegur til þess að leiða Frakka
út úr ógöngunum? Sannleikurinn
er sá, að de Gaulle he'fir enn ekki
sýnt neitt, er gefur ástæðu til að
halda hann einhvern afburða-
mann. Fyrir styrjöldina var ham
hversdagslegur hershöfðingi, e
hafði sérstaklega kynnt sér véla
hernað. Þegar Frakkland gafst upp
þurftu Bretar að halda á manni,
sem gæti gerst foringi „frjálsra
Frakka," en sú hreyfing varð til fyrir
atbeina brezku stjórnarinnar. Eng-
um af helztu stjórnmálamönnum
eða hershöfðingjum Frakka tókst
að komast úr landi, og því varð
de Gaulle fyrir valinu. Brezka út-
varpið auglýsti síðan de Gaulle og
hreyfingu hans ákaflega, og eiga
vinsældir hans ekki sízt rætur að
rekja til þessa áróðurs. Þegar tim-
ar liðu fram, reyndist hann
Bandamönnum mjög ósamvinnu-
þýður og fengu bæði Churchill og
Roosevelt alidúð á honum, einkum
þó Roosevelt. Eftir að Frp/tkland
varð frjálst aftur, hafði de Gaulle
stjórnarforustuna um nokkurt
skeið, en hún gafst illa og hann
lét af henni við lítinn orðstir.
Stjórnmálastefna de Gaulle hef-
ir jafnan' verið nokkuð þokukennd,
að öðru leyti en því, að hann er
andstæður þingræðinu. — Fyrir
styrjöldina var hann talinn í hópi
afturhaldssömustu hægri manna,
er höfðu vantrú á þingræðinu. Sú
skoðun hefir virzt líka koma aft-
ur fram hjá honum í seinni tíð.
Hann vill valdalítið þing, en vold-
ugan forseta. Og forsetinn á að
vera de Gaulle.
Hreyfing de Gaulle er enn svo
lausmótuö, að erfitt er að spá um
framtíð hennar. Hún getur mótast
og eflst enn, en hún getur líka
reynst stundarbóla. Það er ekki
óþekkt í sögu Frakklands, að slík-
ar hreyfingar hverfi eins fljótlega
og þær rísa fljótt á legg.
Samtök miðflokkanna.
Að einu leyti virðist stjórnmála-
ástandið í Frakklandi nú ósvipað
því og það var í Þýzkalandi fyrir
valdatöku nazista. Miðflokkunum
virðist ljóst það hlutverk, sem þeim
ber að rækja, en það er að koma
í veg fyrir, að annarri hvorri öfga-
hreyfingunni takist að verða ofan
á. Strax eftir að úrslit bæja- og
sveitastjórnarkosninganna voru
kunn, endurskipulagði Ramadier
stjórn sína og kvaddi þingið til
aukafundar, þar sem hann kraföist
traustsyfirlýsingar, eins • og áður
segír. Ramadier flutti mjög snjalla
ræðu við það tækifæri, þar sem
hann skoraði á alla miðflokksmenn
að sameinast í baráttunni gegn
öfgahreyfingunum til hægri og
vinstri. Mollet, sem er leiðtogi
vinstri arms jafnaðarmanna og
hefir verið andvígur Ramadiers-
stjórninni, tók í sama streng. For-
ingjar katólska flokksins létu einn-
ig sömu skoöun í ljós. Helztu á-
hrifamenn radikala flokksins,
Herriot og Delbos, hafa einnig lát-
ið sama álit ,uppi. Sama hefir og
Reynaud, fyrrv. forsætisráðherra,
gert, en hann telur sig óháðan
ihaldsmann. Hann hefir heyrst til-
nefndur sem væntanlegur fjár-
málaráðherra í nýrri stjórn mið-
flokkanna.
Verður byltingu afstýrt?
Það virðist nokkurn veginn ljóst,
að misheppnist þessi samtök mið-
flokkanna, - verður vart afstýrt
byltingu og borgarastyrjöld í
Frakklandi. Bæði kommúnistar og
fylgismenn de Gaulle virðast óska
eftir þeirri rás viðburðanna, svo
að þeir geti reynt kraftana til
þrautar. Liösmenn de Gaulle
treysta á herinn, kommúnistar á
verkfallsvopnið. Báðar snúa þessar
öfgahreyfingar því vopnum sínum
fyrst og fremst gegn miðflokkun-
um, eins og í Þýzkalandi fyrir
valdatöku nazista. Jafnaðarmönn-
um hefir tekizt að standast þessar
árásir frá kommúnistum, en kat-
ólski flokkurinn hefir oröið fyrir
.miklu áfalli, a. m. k. í bili.
Falli stjórn Ramadiers og engin
ný miðflokksstjórn kemur í stað-
inn, virðist stjórnleysi og bylting
framundan í Frakklandi. Þau verða
endalokin oftast, þar sem mið-
flokkarnir eru ekki nógu stórir og
almenningur skiptist í tvo öfga-
flokka, annan sósialistiskan, en
hinn íhaldssaman. Stjórnmála-
ástandið í Frakklandi sýnir glöggt,
hve hlutverk miðflokkanna er
mikilsvert og nauösynlegt er, að
þeir séu öflugir. Annars er
skammt til fasismans eða komm-
únismans. Og hvað myndi svo taka
við, ef kommúnistar og Gaullistar
færu að berjast í Frakklandi?
Myndu Rússar ekki reyna að veita
sínum mönnum lið? Myndu
Bandaríkin þá sitja hjá? Hið ugg-
vænlega stjórnmálaástand í Frakk-
landi getur varðað fleiri en Frakka
eina, jafnvel allt mannkynið.
fara að vinna hylli fólksins.
Framsóknarflokkurinn t. d.
er samvinnuflokkur, jafnt í
stjórn sem stjórnarandstöðu,
eins og allir vita. En Samein-
ingarflokkur alþýðu — Sósíal-
istaflokkurinn hefir eina
stefnuskrá til sýnis, þegar
hann er á móti ríkisstjórn-
inni, en aðra til notkunar,
þegar hann er stjórnarflokk-
ur. Hann hefir tvær náttúrur.
Svo eru ævintýrin, krafta-
verkin og ferðalög til tungls-
ins gott pólitískt sætabrauð
á tyllidögum fyrir þá, sem
þykir raunhæf og hversdags-
leg umbótabarátta í mann-
legu samfélagi alltaf þreyt-
andi og grámygluleg.
Reykjavíkurbær
kann að tapa
Ein þeirra atvinnugreina,
sem hefir dafnaff vel á und-
anförnum árum, er gróffur-
húsárækt. Markaffurinn fyrir
grænmeti og blóm hefir veriff
nægur og verðiff hagstætt,
einkum á blómunum. Þess
eru mörg dæmi, að menn,
sem hafa stundaff þessa at-
vinnugrein af dugnaffi og
forsjálni, hafa efnast vel á
skömmum tíma.
Fyrir nokkru síðan eignað-
ist Reykjavíkurbær garð-
yrkjustöð í nágrenni Reykja-
víkur, garðyrkjustöffina í
Reykjahlíff, og tók jafnframt
viff rekstri hennar. Rekstrar-
afkoma fyrsta starfsársins
liggur nú fyrir í bæjarreikn-
ingunum 1946. Samkvæmt
honum hafa öll útgjöld garff-
yrkjustöffvarinnar orffiff 243
þús. kr. og er þar einvörff-
ungu um rekstrarútgjöld aff
ræffa, en engar nýjar fram-
kvæmdir. Tekjurnar hafa
orffiff stórum minni, og er
rekstrarhallinn talinn 72 þús.
kr., þótt ýmsar birgffir um
áramótin virffist ríflega
reiknaffar.
Þetta mun vera ein af ör-
fáum effa aleina garffyrkju-
stöffin, sem var rekin meff
rekstrarhalla á árinu 1946.
Þaff er mál út af fyrir sig,
hvort nokkur eðlileg rök
mæli meff því, aff Reykjavík-
urbær reki garðyrkjustöff, —
og þaff affaliega til fram-
leiðslu á blómum. Bærinn
hefir nóg verkefni vanrækt,
er heyra. undir verkahring
| hans, og ætti hann vissu-
lega aff sinna þeim áffur en
hann færi inn á starfrækslu,
! sem virffist bezt leyst meff
einkarekstri. En hér er sér-
staklega á þetta mál minnst,
því aff þaff er gott dæmi þess,
hvernig stjórn og starfræksla
fer stjórnendum Reykjavík-
urbæjar úr hendi. Jafnvel
þaff, sem allir affrir græffa á,
verffur taprekstur í höndum
þeirra. Er ekki kominn tími
til, að þessir menn séu ekki
lengur einvaldir í bæjar-
stjórn Reykjavíkur? X+Y.
Frv. um dýralækna
Lágt til, aff þeir verði 11.
Landbúnaðarnefnd n. d.
hefir lagt fram frumvarp um
dýralækna. Frv. er undirbúið
að tilhlutan landbúnaðarráð-
herra af þeim Árna G. Ey-
lands fulltrúa, Ásgeiri Ól-
afssyni dýralækni og Páli
Pálssyni dýralækni.
Samkvæmt frv. verða alls
11 starfandi dýralæknar í
landinu. Héraðsdýralæknar
verða sem hér segir:
1. Gullbringu- og Kjósar-
sýsluumdæmi, nær yfir
Reykjavík, Hafnarfjörð, Gull
bringu- og Kjósarsýslu.
2. Borgarfjarðarumdæmi,
nær yfir Borgarfjarðarsýslu
og Akranes, Mýrasýslu, Snæ-
fellsnes- og Hnappadalssýslu
að Skógarstrandarhreppi.
3. Dalasýsluumdæmi, nær
yfir Skógarstrandarhrepp í
Snæfellsnessýslu, Dalasýslu
Austur-Barðastrandarsýslu
Mbl. óánægt
Breyting Tímans er mjög
vel tekið í Reykjavík og
fjölgar nú áskrifendum
blaðsins ört daglega. Ein er
þó undantekning á viðtök-
unum. Hún er hjá Morgun-
blaðinu. í 1. tölublaðinu
slæddist inn prentvilla, sem
allir sáu að stafaði af lítils-
háttar línuruglingi. Þetta
notaði Mbl. til þess að rang-
færa frásögnina og spinna
upp út af þvi ósannindalopa.
Og aftur í fyrradag í Reykja-
víkurbréfi Mbl. andar kalt
með rangfærslum og öðru út
af nýja búningnum.
Er ágætt að Mbl. skuli vera
eitt síns liðs með ónot út af
breytingu blaðsins. — Það
talar sínu máli. Kári.
og Strandasýslu að Arnes-
hreppi.
4. ísafjarðarumdæmi, nær
yfir Vestur-Barðastrandar-
sýslu, ísafjarðarsýslur báð-
ar, ísafjarðarkaupstað og
Árneshrepp í Strandasýslu.
5. Varmahl$Sarumdæmi,
nær yfir Skagafjarðarsýslu,
(Framhald á 6. síðu)