Tíminn - 13.11.1947, Síða 2
2
TÍMINN, fimmtudaginn 13. nóv. 1947
207. bla'd
^drd clecji tlí dc
u
fó
t dag.
Sólin kom upp kl. 8.50. Sólar-
lag kl. 15.33. Árdegisflóð kl. 5.25.
Síðdegisflóð kl. 17.47.
f nótt:
Næturakstur fellur niður vegna
benzínskömmtunar. Næturlæknir
er í læknavarðstofunni í Austur-
bséjarskólanum, sími 5030. Nætur-
vörður er í Reykjavíkur apóteki,
sími 1760.
Veðrið í dag:
Allhvasst norð-austan, skýjað
með. köflum, hætt við smáéljum
síðdegis, 3—5 stiga frost.
Útvárpið í kvöld.
í’astir liðir eins og venjulega. Kl.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn • -Guömundsson stjórnar): a)
TítusforleikuWnn eftir Mozart. b)
Cavalleria Rusticana eftir Mascagni
20.45 Lestur íslendingasagna (Ein-
ar Ól. Sveinsson prófessor). _ 21.15
Dagskrá Kvenfélagasambands ís-
lánds: Erindi: Verzlunarmálin og
heimilin (Rannveig Þorsteinsdóttir
stud,- jur.). 21.40 Prá útlöndum
(Benedikt Gröndal blaöamaður).
22:00' Préttir. 22.05 Auglýst síðar.
23.00 Dagskrárlok.
Skipafréttir:
„Brúarfoss" kom til Reykjavíkur
ll./ll. frá Gautaborg. „Lagarfoss"
kö'm til Hull í gærmorgun frá
Reyls,avík. „Selfoss" fró frá Imm-
ingham 11./11. til Akureyrar.
„Pjallfoss" er í Reykjavík. „Reykja
foss“ kom til Leith ll./ll. frá Hull.
„Salmon Knot“ fór frá New York
29./10. til Reykjavíkur. „True Knot“
kom til Halifax lC./ll. frá New
York. „Lyngaa' kom til Helsing-
fors 3./11. frá Hamborg. „Horsa“
fór frá Reykjavík í gær til Leith
og Antwerpen.
Búið að draga í happdrætti
landbúnaðarsýningarinnar.
Nýlega hefir verið dregið í
happdrætti landbúnaðarsýningar-
innar. Handhafi miða 26.107
hreppir hestinn, handhafi m'iða
24.632 hreppir jeppabifreiðina og
hándhafi miða 20.465 hreppir
Farmalldráttarvélina.
Veröur menntaskólinn reistur
á Golfskálahæðinni.
Bæjarráð hefir nú endanlega
lágt til, að menntaskólinn verði
reistúr á Golfskálahæðinni við svo-
káilaða Litluhlíð. Telur bæjarráð
átj' áthuguðu máli, að skólinn sé
rníkiu betur settur þarna en í
Láúgarnesi. Er það álit samhljóða
Ulhsögn Einars Sveinssonar, sem
ey_. húsameistari Reykj avíkurbæj ar.
IVÍinning
Steinþórs Sigurðssonar.
Nokkrir viiiir og sámstarfsmenn
Stéinþórs heitins Sigurðssonar
m'agisters hafa hafið fjársöfnun í
því skýni að láta- gera af honuni
brjóstmynd, er varðveitt verði í
húsakynnum hins væntanlega
náttúr.ugripasafns. Þeir, sem taka
á móti framlögum þeirra, er minn-
as.t vilja Steinþórs með þessu móti,
eru Kristján Skagfjörð, Túngötu 5,
sími 3647, Ólafur Þorsteinsson,
Varðarhúsinu, sími 5898 og Pálmi
Pétursson í skrifstofu atvinnu-
deildar háskólans, sími 5460.
Einar Kristjánsson syngur
„Vetrarferðina í kvöld.“
Einar Kristjánsson óperusöngv-
ari heldur Schubertshljómleika á
vegum Tónlistarfélagsins í Austur-
bæjarbíó I kvöld. Syngur Einar
„Vetrarferðina,“ en hann hefir
einu sinni áfjir sungið þann laga-
flokk opinberlega í Reykjavík. Var
það í fyrra.
Éinmenningskeppni Bridge-
félagsins lokið.
Einmenningskeppni í bridge í
Beykjavík er nú lokið. Úrslit urðu
þau, að Jón Þorsteinsson varð efst-
ur með 62 V4 stig. Annar varð Árni
Þorvaldsson með 55 stig, þriðji
Kristinn Bergþórsson með 55 stig,
íjórði Hallldór Dungal með 54%
«tig, fimmti Örn Guömundsson
með-48 stig.
Ný hljómsveit.
Stofnuð hefir verið ný „klassisk"
hljómsveit í Reykjavík, Er hér um
að ræða stóra hljómsveit, sem skip-
uð er 30 mönnum, en stjórnandi
hennar er dr. Urbantschitsch.
Hefir þessi hljómsveit þegar haldið
fyrstu æfingu sína í Hljómskálan-
um. Ætlunin er að halda þrjár æfr
ingar í þessari- viku, og standa
vonir til að hljómsveitin geti hald-
ið fyrstu hljómleika sína í des-
ember í vetur. Á fyrstu æfingunni
voru leikin lög eftir Schubert,
Smetana og Tschaikovsky. Hljóm-
listarlífi bæjarins er mikill fengur
aö tilveru þessarar nýju hljóm-
sveitar, þvi að slíka hljómsveit
hefir lengi vántað hér.
Héraðslæknirinn veikur.
Mágnús Pétursson, héraðslæknir
í Reykjavík, héfir verið veikur að
undanförnu. En hann er nú á
batavegi og getur væntanlega tekið
við störfum . sínum aftur. innan
skamms. Páll Sigurösson læknir
gegnir s’törfum héraðslæknis í for-
föllum hans.
Iðnneminn,
blað iðnnemasambands íslands,
er -nýkomið út. Af efni þess má
nefna greinar um málefni iðn-
nema, sem margar eru athyglis-
verðar. Fjöldi mynda prýðir heftið.
Gróttuvitinn nýi
var tekinn í notkun í fyrrad. Var
þá kveikt í fyrsta sinn á hir.um
nýja vita, sem er mun fullkomnari
og langdrægari en hinn gamli. Er
Gróttuvitinn, einhver mesta vita-
bygging hérlendis. Pyrst um sinn
verður notast við Ijósatækin úr
gamla vitanum, en síðar meir verða
fengin ný ljósatæki í vitann. Óráð-
ið er hvað gert verður við gamla
vitarin.
Árnað he 'dla
Gefin hafa verið saman í hjóna-
baricf:
Ungfrú Helga Þorkelsdóttir á
Grund i Sogamýri og Sigurður B.
Guðbrandsson frá Borgamesi.
Ungfrú Gunnhildur Eiríksdóttir
hjúkrunarkona frá Eskifirði og Sig-
urður P. Árnason múrari, Berg-
þórugötu 45, Reykjavík.
Svo bar til...
Skyldi hann hafa
látið huggást? - ».*.>
Frú Rolofson í Dacatur í Illinios
brá sér í vöruhús. Þegar hún hafði
keypt það, sem hún girntist, fór
hún að gjaldkerastúkunni og lét
töskuna sína á borðið fyrir framan
hana meöan hún beið eftir af-
greiðslu. Þá beindist athygli henn-
ar að gömlum og hrumlegum
manni, sem' hékk grátandi á bekk
og barmaði sér hástöfum yfir því,
að nú væri blessaður lífsförunaut-
urinn sinn dáinn. Konan komst
mjög mikið við, gekk til gamla
mannsins og tók að reyna að
hugga hann. En þegar hún sneri
aftur að gjaldkerastúkunni og ætl-
aði að borga það, sem hún hafði
keypt, komst hún að raun um, að
bókin, sem hún geymdi peningana
sína í, var horfin. Og sama máli
gilti um hinn syrgjandi ekkju-
mann.
Lausnin er fundin.
Það hefir oft verið kvartað und-
an skrjáfinu í sælgætispokunum í
Iðnó á leiksýningum Leikfélagsins.
En allar kvartanir hafa verið þýð-
ingarlausar hingað til — það hefir
skrjáfað í pokaskröttunum eftir
sem áður. En nú kvað lausnin vera
fundin. Hann heitir Irving M.
Levin og er leikhússtjóri í San
Prancisco, sá sem leysti þrautina.
Þessi plága hefir nefnilega þjak-
að þá líka vestan við Atlantshafið.
Þessi leikhússtjóri þarna í Iðnó
þeirra á Kyrrahafsströndinni hefir
fundið upp nýja meðhöndlun á
sellófani, sem gerir það að verk-
um, að það skrjáfar ekki lengur.
En það er við hann að tala um
það, hver þessi meðhöndlun er,
ef ekki á að biða eftir því, að ein-
hver íslendingur finni hana upp
líka.
Hann merkti sér hana.
Það bar við í New Orleans í
haúst, að eigandi veitingakrór
einnar Var borinn þeim sökum, að
hann hefði stúlku í haldi í her-
bergi inn af veitingakrónni. Lög-
reglan skarst í málið og fann
stúlkuna. Við frekari rannsókn
kom í ljós, að veitingamaðurinn
hafði merkt sér stúlkuna á öllum
þeim stöðum, sem honum þóttu
hafa mesta hernaðarlega þýðingu.
Haföi hann brennt fangamark sitt
meö logandi sígarettu á bæði
brjóst hennar og læri, innan fót-
ar og utan.
Ódýrar augíýsingar
Auglýsingar eru mikill
máttur. Ög það er þægilegt
fyrir fólk að nota sér þann
mátt til margs konar ágóða.
En auglýsnigar eru yfirleitt
dýrar. í 1—2 dálkum hér á
þessum stað í blaðinu verða
birtar smáauglýsingar með
sérstaklega lágu verði. Er það
ætlað lesendum Tímans til
þæginda, þegar þeir vilja
auglýsa sitthvað smávegis.
Vonast Tíminn eftir að fólk
noti sér þetta. Líklegt er að
auglýsingarnar beri oft ár-
angur, þar sem Tíminn er
annað fjöllesnasta blað
landsins.
A.ssj|lýsiiígasMaaI
Tímans er 2323. — Hringið í
þann síma, ef þið viljið fá aug-
lýsingu í blaðinu á morgun.
TÍSMÍBaEH
til áramóta kostar aoeins 10
krónur og þar í er fjölbreytt
jólablað. — Gerist áskrifendur
strax i dag. Sími 2323.
Je|B|5Í
óskast í skiptum fýrir fyrsta
flokks vörubifreið. Uppl. Tó-
baksverzlunin Boston Laugaveg
8. Sími 3383.
Nokkrar
döniukápnr
lítið eitt gallaðar. Seljast án
skömmtunarmiða.
ÚLTÍMA
Bergstaðastíg 28.
Klæðaskápur
Óskast til kaups. Sími 2323.
Ostsýiiiíag
Jóns Þorleifssonar og Kolbrún-
ar Jónsdóttur í Sýningarskála
myndlistarmanna er opin dag-
lega frá kl. 11—23.
Sæaigurk®saur
Tek sængurkonur heim til mín
og geng í hús, ef óskað er. —
Upplýsingar í síma 7745.
Matsveiiam.
Vanur matsveinn óskar eftir
skiprúmi. Uppl. í síma 7292
næstu daga.
UTFOR
úsar Sigurðssonar
bankastjóra
fer fram fostudaginn 14. þ. m. frá Dómkirkjunni í
Reykjavík kl. 1 y2 e. h.
Athöfninni í kirkjunhi verður útvarpað.
Þeim, sem kynnu að vilja minnast hins látna, skal
bent á, að honum var mjög annt um Slysavarnafé-
lag íslands.
Reykjavík, 11. nóv. 1947
Aðstandendur.
Á förnum vegi
. íslendingar hafa verið rányrkju-
þjóð tíl skárnrhs tíma og eru það
að verúlegu léyti érin ý mörgum
svíðum. Þáu sár, sem þáu ‘hafa
veitt- landi sínu, eru mörg og: stðr.
Þau-landsgæöi, sem þeir hafa gert
aö engu á liðnum árum, eru meiri
og mik-ilvægari en okkur grunar í
fljótu bragði. En nú er mikið tal-
að um að græða þessi sár, eins og
kóstur er á og bolmagn til, og bæta
fyrir það, er misgert hefir verið.!
Og óneitanlega er sú viðleitni dá-
lítið komin á rekspöl, þótt enn sé
aðeins stutt skref- stigið, miðað við
þá löngu leið, sem fyrir höndum
er, ef miklu skal áorkað.
Þorkell Pétursson, bóndi i Litla- ]
Botni við Hvalfjörð, var á ferð hér
í höfuðstaðnum á dögunum. Hann
sagðL mér athyglisvert dæmi um
það, hversu bætt hefir verið fyrir
eina tegund rányrkju liðins tíma. '
Um Botnsdal rennur á, ékki vatns- 1
rrilkll nema í leysingum og rign-
irigum. Foss er i henni, nokkuð
innan við miðjan dal, ófær laxi
og silungi. Mun vegalengdin frá
sjó að þessum fossi vera nálægt
3—4 kílómétrar.
Sé flett upp í jarðabók Árna |
Magnússonar má lesa, að mikil.
laxgengd hefir verið í þessa á, en
er þá stórum minnkandi, auðvitað
vegna ofmikillar áníðslu. Pyrir ein-
um mannsaldri var enn í henni lax
eða að minnsta kosti stór silungur, '
en mjög til þurrðar genginn. Á
seinustu áratugum hefir aðeins
verið í henni silungur, helzt frem-
ur smár, og ekki mikið af honum.
En nú. hefir ijiaðurinn komið til
sögunnar með úrræði sín til þess
áð hjálpa náttúrunni. Fyrir níu
árum var byrjað að láta laxaseyði
í þessa á. Síðan hefir það verið
gert á hverju ári, og hefir þar
haft framkvæmdir Helgi Eyjólfs-
son, húsameistari í Reykjavík, sem
á ána á móti Þorkeli bónda í
Litla-Botni. Munu 20—25 þúsund
seyði hafa verið látin i hana ár-
lega.
Á fimmta ári tók að sjást ár-
angur af þessu starfi. Pyrstu lax-
arnir voru farnir að vitja upp-
eldisstöðva sinna. Síðan hefir lax-
gengdin aukizt ár frá ári — meiri
lax og stærri.
Þessi saga er lærdómsrík, og því
er hún sögö hér. Sem betur fer
er hún þó ekki einstæð. Fleiri gætu
sagt svipaðar sögur um ræktun ís-
lenzkra straumvatna. En eigi að
síður er hér á landi fjöldamargar
ár, sem hafa verið fiskiár með góð-
um lífsskilyröum handa laxi, þar
sem varla sést nú nokkur branda.
Mörg hinna stærri vatna og vatna-
kerfa eru fátæk aö laxi eða að
minnsta kosti miklu fátækari en
þau gætu verið.
Hér er mikið verk að vinna —
verk, sem áreiðanlega ber árang-
ur, ef það er unniö af kostgæfni
og - skynsamleg samvinna er höfð
um það. Og hvað snertir ýmsar
smáár, líkt og þá, sem hér hefir
verið sagt frá, þá hafa oft einn eða
tveir menn það á valdi sínu að
gera þær með litlum tilkostnaöi
iðandi af lífi, sem færir þeim arð
og yndi innan fárra ára.
J. H.
Maffurinn minn
ESnarssoia,
andaðist 10. þ. m. aff heimili okkar. Nýja-bæ í Ölfusi
Jarffarförin ákveffin síffar.
Árný Eiríksdóttir.
úr íslenzkum efnum. Allar venjulegar stærðir frá nr.
34 til 42. Einhneppt og tvíhneppt. Verð frá kr. 348.00
til kr. 595.00
Gott snið. Vandaður frágangur.
Einnig fyrirliggjandi karlmannavetrarfrakkar.
ÍTLTÍ MA
Bergstaðastíg 28
BilLjardborð
til sölu.
Tvö vönduð billiard-
borð til sölu. Tilboð
óskast lögð inn fyrir 15.
þ. m.
Birgðastöff
Reykjavíkurflugvallar.
Uílarsokkar
fyrir karlmenn, silki-
sokkar fyrir konur
á kr. 7,50.
DYJVCM H.F.
Laugavegi 25.