Tíminn - 27.11.1947, Blaðsíða 3

Tíminn - 27.11.1947, Blaðsíða 3
218. blað TÍMINN, fimmtudaginn 27. nóv. 1947 3 NÝJAR BÆKUR Steingrímur Matthías- son: Annaö . líf í þessu lífi. Stærð: 114 bls. 20x13 sm. Verð kr. 22.00 innb. Helgafell. Það er flestum kunnugt, að Steingrímur læknir er manna skemmtilegastur, en þessir pistlar hans frá Danmörku eru líka þjóðlegir. Hann minnist þar á ýmsa merki- lega hluti og gerir það jafn- an á sinn sérstaka, létta og glaðlega hátt. Hér verða ekki sögur hans endursagðar, en svo mikið er víst, að auk þess, sem þetta eru upplýsingar um feril og störf ágæts ís- lendings er kverið prýðilegur skemmtilestur, sums staðar bráðhlægilegt og fróðlegt. Dýrasögur. Jóhannes Friðlaugsson kennari valdi. Stærð: 135 bls. 18x12 sm. Verð kr. 15.00 innb. Norðri. Þessar sögur eru næstum allar teknar upp úr Dýra- vininum og fyrstu árgöng- um Dýraverndarans. Þeir, sem óiust upp með Dýravini Tryggva Gunnarssonar, vita það vel, að þangað er margt gott og merkilegt að sækja, og bregður því ekki við, þó að fram komi gott kver úr því safni. Nú hefir þeirri reglu verið fylgt, að taka engar sögur eftir menn, sem gefið hafa út sérstakar bækur með dýrá&ogúni. Því; eru þárna ekki sumir okkar slyngustu meistara á þessu sviði eins og Þorgils gjallandi, Guð- mundur Friðjónsson og Þor- steinn Erlingsson. Tryggvi Gunnarsson spar- aði hvergi til að gera Dýravin inn vinsælan og áhrifamik- inn. Þar birtust bæði kvæði og myndir og sumt af því er ógleymanlegt þeim, sem sáu það ungir. Mér finnst það nú afturför, þegar farið er að endurprenta og gefa þeim, sem nú eru ungir, kost á að njóta þessara gömlu fjár- sjóða, að þá fylgir engin myndin með, og er það sizt í samræmi við breytta tíma og framþróun. En sögurnar Heildarútgáfa á verkura Guðrúnar Lárusdóttur Bókagerðin Lilja hefir á- kveðið að gefa út heildarút- gáfu af ritum Guðrúnar Láyusdóttur. Er ráðgert að það verði fjögur bindl, um 400 blaðsíður hvert. í siðasta bindinu eiga að verða, auk skáldsagna, nokkrir fyrirlestr ar, en Guðrún Lárusdóttir var,, eins og alkúnnugt er, áhugasöm mjög um bindind- ismál o'g fleiri menningarmál. Lárus Sigurbjörnsson rit- höfundur, sonur skáldkon- unnar, sér um þessa útgáfu, en sr. Sígúrbjörn Á Gíslason mun skrifa æviágrip konu sinnar og skýringar með út- gáfunni. Ráðgert er, að útkoma þess- ara rita hefjist á næsta ári, en í ágúst næsta sumar eru 10 ár frá því slysið varö við Tungnafljót. eru auðvitað jafngóðar fyrir því. Þó óska ég þess eindregið, að næsta hefti, en hér er gert ráð fyrir framhaldi, verði með myndum. Þegar farið er að gefa út fyrir börn og unglinga úr- val úr íslenzkum dýxasög- um, þá má ekki una öðru, en vel sé til þess vandað, og það þoli samanburð við út- gáfustarfsemi fyrir meira en hálfri öld. Eva Hjálmarsdóttir: Það er gaman að lifa. Stærð: 121 bls. 20x13 sm. -f 8 heilsíðumyndir. Verð kr. 20.00 innbundin. Norðri. Þetta eru smásögur fyrir börn, flest minningar höf- undar frá ýmsum tímum. — Frásögnin er létt og Ijúf og bak við hverja sögu er gott og’ hlýtt hjarta, sem hvar- vetna leitar fegurðarinnar. — Vinarhugur til dýra kemur mjög víða fram og yfirleytt má segja það, að bæði sé hollt og gott að sjá hlutina með augunum hennar Evu. Það þarf því enginn að vera hræddur við að fá börnum sínum þau til að virða lifið fyrir sér. Ingeborg Sigur j ónsson: Iíeimsókn minninganna. Anna Guðmundsdóttir þýddi. Stærð 99 bls. 13x 20 sm. Verð kr. 18.00 innb. Helgafell. Jóhann Sigurjónsson á þau itök í hugum þjóðar sinnar, að marga mun fýsa að kynn- ast þessum endurminningum konu hans. Þær eru líka að vissu leyti fengur fyrir ís- ienzkar bókmenntir, að því leyti, sem þær eru heimildir um líf og sögu Jóhanns Sig- urjónssonar. Ingeborg segir hér frá því, er hún barnung kynntist fyrri manni sínum, skipstjóra nokkrum, og giftist honum. Það var góður maður, sem hún ber vel söguna, þó að honum auðnaðist ekki að deyja fyrr en nokkrum árum eftir að hið íslenzka skáld hafði unnið allan hug frúar- innar, þó að hún væri svo gamaldags, eins og hún segir sjálf, að hún vildi ekki gift- ast skáldi sínu fyrr en ár var liðið frá andláti fyrra manns ins. Svo segir hún hokkuð af heimilislífi þeii'ra Jó- hanns og virðist það hafa verið frjálslegt og oft glatt, en ekki að öllu leyti til fyrir- myndar þó, því að sérhverju mannfélagi er það nauðsyn, að í það minnsta nokkur hluti fólksins sé gæddur ráð- deild og ábyrgðartilfinningu að vissu marki. Annie Fellows Johnston: Drengurinn frá Galileu. Erlendur Sigmundsson þýddi. Stærð: 234 bls. 18x12 sm. Verð kr. 23.00 innb. Bókag'erðin Lilja. Saga þessi er frá Krists dögum .og rekur ýmsar frá- sagnir guðspjallanna og hversu söguhetjan verður vitni að þeim. Höfundurinn hefir kynnt sér allmjög trú- arsiði og þjóölíf Gyöinga og er að sjálfsögðu ærinn fróð- leik að finna um þau efni í bókinni. Hins vegar virðist mér miður hafa tekizt að gæða frásögnina skáldlegu lífi og meira hefir mér fund- izt til um frásagnir Olferts Richards, að ekki sé minnst á helgisögur Selmu Lagerlöf. Ejnar Schroll: Litli Sœ- garpurinn. Stærð: 123 bls. 18x12 sm. Verð kr. 13.00 innb. Bókagerðin Lilja. Þetta er dönsk hetjusaga frá tímum Napóleonsstyrj- aldanna og segir frá því, hvernig pörupilturinn Niels Jakob mannast í alvöru lífs- ins og mannraunum. Sagan er raunsæ og laus við ævin- týraljóma, hressandi og góð drengjasaga, eins og ætlast er til. H. Kr. Rit lögfræðinema Lögfræðinemar í háskólan- um hafa meö sér félagsskap er Órator heitir. Á síðastliðn- um vetri byrjaði féiag þetta að gefa út blað eða tímarit. Heitir það Úlfljótur og er eina tímarit landsins um lög- fræðileg efni. Þriðja hefti þess er nýlega komið út. Sú regla er höfð að byrja hvert hefti með ritgerð um lögfræðilegt efni. í þessu síð- asta hefti er sú grein eftir Theódór Líndal og er um 34. grein bifreiðalaganna, en hún ef um ábyrgð og sektir vegna ökuslysa. Er það því fljótséö, að efni ritsins varðar al- menning, þó að vitanlega sé nokkuð af því síúrstaklega snertandi félagsskap lög- fræðinema. Að frágangi og útliti er Úlfljótur hinn snotrasti. Höfn í Hindisvík Frv. frá Skúla Guðmundssyni Skúli Guðmundsson flytur frumvarp þess efnis, að lögin um hafnargerðir og lending- arbætur nái til Hindisvíkur á Vatnsnesi. Hér er lagt til, að Hind- isvík á Vatnsnesi verði tekin í töiu þeirra staða, sem lögin frá 1946 um hafnargerðir og lendingarbætur ná til. Árið 1946 var aftur ggröur upp- dráttur af staðnum, og ný- lega hefir einnig verið gerð lausleg kostnaðaráætlun um bryggjugerð þar. Er þó vafa- laust þörf nákvæmari rann- sókná og áætlana áður en til framkvæmda kemur. Til síuðnings þeirri skoðun, að hagkvæmt getið verið að gera lendingarbætur í Hind- isvík, má einkum nefna, að þaðán cr stutt á fiskimið og síldveiði er oft mikil í Húna- flóa nálægt Vatnsnesi. Þess má og geta, aö með lögum nr. 8 frá 4. júní 1924 var Hindis- vík löggiltur verzlunarstaöur. Yiimið ötullega að iítlsreiðslu Tímans. Anglýsið í Tímanum. ii u ii Vi 8 I :: LUNNINDI Selskism, Æðardiín og Rjikpur ii 1 ii ii ♦♦ u I fsi menn iiagkvæmast verð fyrir með || ♦♦ ♦♦ þvá að afhenda kaupfélögunum þessar :: vörur til sölu. I: ■♦♦ .I SAMBAND ÍSL SAMVINNUFÉLAGa! ♦♦ u H I ♦♦ ♦♦ ♦♦ H llúsmæður! Sparið peninga, kaupið þennan gólfgljáa. Heildsölu Efnagerðin STJARNAN. Sími 7049. :: ♦+ :: :: ■u u r—--—------------------------------— ------, Karlmannáföt úr íslenzkum efnum. Allar .venjulegar stærðir frá nr. 34 til 42. Einhrieppt: og tvíhneppt, Vérð frá kr. 348.00: t-il kr. 595D0 • . \ Gott snið. Vandaður frágangur. .„„.j, _ Einnig fyrirliggjandi karlmannavetrarfrakkar. ÚLTÍMA' Bergstaðastíg 28 Athugaserad | Vegna ummæla hr. Hall- dórs Kristjánssonar í „Tím- anum“ þ. 19. nóv. þ. á. vill Skólafélag Gagnfræðaskóla Reykvíkinga taka það fram, að þau eru mjög óverðskuld- uð og telur þau tilhæfulausa árás á skólann og nemendur hans. Þess skal getið að allar skemmtanir og ferðalög skól- ans eru undir eftirliti kenn- ara hans og að það er burt- rekstrarsök af skemmtunum skólans, ef nemandi er undir áhrifum áfengis og er því strangt fylgt fram. Bindindis starfsemi í G. R. mun sízí standa að baki slíkri starf- semi í öðrum framhaldsskól- um hér í bænum. Að lokum vill Skólafélag Gagnfræðaskóla Reykvík- inga skora á Halldór Krist- jánsson og aðra bindinöis- frömuði, að láta af núverandi afskiptaleysi sínu um bind- indisfræðslu í skólum én taka upp baráttu fyrir slíkri fræðslu og láta þangáð til . marklausar blaðagreinar sem þessa sitja á hakanum. Skólafélag G. R. Þau upimæli, sem hér mun vera vikið að eru þessi: „Er skynsamlegt að reikna með því, að t. d. krakkarnir eða segjum unglingarnir í Gagnfræðaskóla Reykvík- inga, þeir sem nú drekka vín í skemmtiferðum skóla síns, geri sér ölið að jjóðu í þess stað?“ ;i; Það má hver sem vill kalla þetta „árás á skólann og nemendur hans“ en það er jafnsatt fyrir því, að nem- endur hans hafa haft áfengi með sér i skemmtiferð. Því miður mun það ekki eíns dæmi um -unglinga í skólum, enda sagði ég: „t. d. krakk- arnir“ .... í G. R. Um bindindisfræðslu í skól um er það að segja, að til eru ákveðin fyrirmæli um hana og æriö svigrúm fyrir áhúga- sama skólastjóra og bindind- isfélög innan skóla til að starfa samkvæmt henni. Ég mun ekki að svo komnu máli, taka þátt f árás á þenrian skóla vegna vanefnda á þvi sviði, en ef skólafélagið hefir ekki orðið varý við neitt starf að bindindisfræðslu, er eitt- hvað bogið við nemendur eða kennara skólans. Svo vænti ég þess, aö hg.fi nemendum Gagnfræðaskól- ans sárnað ummæli míri, gæti þeir þess, að láta aldrei framar áfengi eða áhrif þess sjást á skemmtunum skólans, úti né inni. Á það skulum. við sættast. Halldór Kristjánsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.