Tíminn - 27.11.1947, Blaðsíða 8

Tíminn - 27.11.1947, Blaðsíða 8
Reykjavík 27. nóvember 1947 218. blað Að Grafarnesi getur risið myndarlegt þorp Þaðan er ntræ®i srllt árið, eia stórt lirssíS- féystilíflss vantar tllfinnanlega Að Grafarnesi við Grundarfjörð hefir síðan 1941 myndazt þorp n?eð 200 ífaúum. Er þar nú hraðfrystihús og útgerð árið um kring. Upphaflega var aðalbyggð- in vestan við fjörðinn að Kvíabryggju. Árið 1941 var byrjað á byggingu hafnar- g"erðs við Grafarnes, og hefir síðan myndazt þar talsvert þorp. Hafnargarðurinn er nú orðinn um 80 metrar að lengd, og mun hann lengdur enn að mun, en síðan settur á hann sérstakur haus. Þeg- ar þannig hefir verið gengið frá honum, geta stór skip lagzt að honum. Sem stendur er garðurinn notaður sem bryggja handa smáskipum og bátum. Veðursæld er mikil á þessum slóðum og aðdýpi nægilegt handa stórum skip- um, þannig að ^iegar lokið hefir verið við lengingu garðsin.s mun hann nægja- sem bryggja. Útgerð allt áriff. Piskur veiðist allt árið frá Grafarnesi. Nú eru þar alls um sex bátar. Kom einn þþirra í vor. Var hann smíð- áður í Neskaupstað og heitir ,,Runólfur.“ Er hann eign samnefnds hlutafélags í Grafarnesi. Árið 1941 var byggt þar hraðfrystihús. Hefir það haft mikla þýðingu fyrir myndun þorpsins. Þó vantar mikið á, að það sé nógu stórt til að fulinægja þeirri þörf, sem er fyrir hraðfrystingu fisjfcs. Hafa bátarnir í þorpinu orðið að sleppa mörgum róðrum, þótt gefið hafi, yegna þess að ekki hefir verið unnt að frysta aflann. Er stækkun hraðfrystihús.sins hið mesta nauðsynjamál þorpsins, og er nú unnið ötullega að því. Síldar hefir orðið vart í firð- inum, en sama og ekkert hefir verið veitt af henni. Á síðastliðinni vetrarvertíð öfl- uffu þeir fimm bátar, sem þá voru til í þorpinu, alls 16 til 17 hundruð smálestir af fiski, en hefðu getað aflað mun meira, ef meira hraðfrysti- Fé milli Blöndu og Héraðsvatna rann- sakað Guðmundur Gíslason lækn ir hefir um þessar mundir verið að rannsaka allt sauð- fé milli Blöndu og Héraðs- vatna. Er þetta gert til þess að komast að raun um, sversu. garnaveiki muni út- breidd í fé á þessu svæði. Á næsta hausti er ráðgerð- ur alger niðurskurður sauð- fjár á þessu svæði. rú.m hefði verið til á staðn- um. Færsla byggðarinnar. Eins og áður segir, færðist byggðin frá Kvíabryggju að Grafarnesi. Byggðin að Kvía- bryggju hefir nú svo að segja lagzt niður. Skilyrði fyrir aukna byggð í Grafarnesi eru hin ákjósanlegustu. Hvort tveggja er, að þar er mjög gott útræði og skilyrði til þess að reka þar nokkurn bú- skap eru einnig hentug. Vegasamband við þorpið er þó mjög lélegt. Vegur liggur bangað að vísu af Stykkis- hólmsveginum frá Kerling- arskarði, en hann er aðeins fær yfir sumartímann og þó jafnvel illfær þá. Minni hluti fulltrúa S.þ. með skiptingu Palestínu Tillögur Palestínunefndar um skiptingu Palestínu í tvö ríki, Gyðinga og Araba, kom til atkvæðagreiðslu á allsherjarþ. S. Þ. í fyrradag. Greiddu fulltrúar 25 þjóða atkvæði með tillögunni, en það er einu atkvæði minna en þarf til, að skiptingin hljóti samþykki þingsins. Tillögur nefndarinnar verða aftur bornar undir atkvæði í dag vegna þess að fulltrúar tveggja ríkja voru fjarver- andi, en stranglega er tekið fram í reglum þingsins, að allir fuhtrúar verði að vera mættir við atkvæðagreiðslu. 13 fulltrúar greiddu atkvæði á móti skiptingunni, en 17 sátu hjá. Tillögur Palestínunefndar- innar eru aðallega samdar af fulltrúum frá Bandaríkjun- um, Rússlandi, Kanada og Guatemala. Gera tillögurnar ráð fyrir, að stjórn Breta á landinu ljúki í næsta ágúst- mánuði, en hin nýju ríki verði formlega stofnuð í byrjun októbermánaðar 1948. Einnig hefir nefndin lagt til að fjárhagslegt samband verði milli hinna nýju ríkja og Jerúsalem sett undir al- þjóðlega stjórn. Connally /larðorður Prentaraverkfall í Ckicago Prentarar í borginni Chic- ago hafa gert verkfall. Við það hefir stöðvast útkoma 6 blaða þar á meðal Chicago Tribune, sem er eitt útbreidd- asta blað veraldarinnar. Ekki var neitt lát á verkfallinu í morgun eða séð fyrir endi þess. Tom Connally, einn helzti leiðtogi demókrata í Banda- ríkjunum hélt í gær þing- ræðu, bar sem hann ásakaði Rússa mjög fyrir að þeir ógn- uðu Vestur-Evrópu með ein- ræðislegri grimmdarstjórn, sem gæti jafnvel orðíð verri en i Siberiu á dögum keisar- anna rússnesku. Hélt hann þessa ræðu í þinginu við um- ræðu um bráðabirgðalán til Vestur-Evrópu. Hann lýsti því jafnframt yfir, að hann væri því meðmæltur, að sér- friður yrði saminn við Þýzkaland, Austurríki og fleiri lönd, er áttu í stríði við Bandaríkin, ef ekki næðist viðunandi samkomulag á fundi utanríkisráðherr- anna, sem haldinn er þessa dagana í Loirdon. Bradley yfirhers- höfðingi í stað Eisenhowers Fleiri SBflaisnaski|iti á valdastöiSisflfla í liernflim Omar N. Bradley hershöfð- ingi verður eftirmaður Dweigth D. Eisenhower sem yfirhershöfðin'gi Bandaríkj- anna, en Eisenhowor hefir verið kjörinn rektor Kolum- bíaháskólans í New York. Þetta var tilkynnt nýlega á fundi, er Truman forseti hélt með blaðamönnum. Ekki er enn vitað, hvenær Eisen- hower lætur af störfum, en ekki er talið ólíklegt, að það verði um næstu áramót. Á þessum sama blaða- mannafundi skýrði forsetinn frá því, að ákveðið hefði ver- ið, að Alexander A. Vande- gift, yfirmaður úrvalsher- sveitanna, léti af storfum, en við stjórn þeirra tæki Clifton R. Gray hershöfðingi. Bradley hershöfðingi á sér merka sögu í Bandaríkja- hernum í tveim styrjöldum. Meðal annars var það hann, sem gekk fyrstur á land.með herjunum í Norður-Afríku og stjórnaði sókn þerira þar. Seinna stjórnaði hann tólfta hernum og var fyrstur allra hershöfðingja stríðsins til að neyða þýzka hershöfðingja til skilyrðislausrar uppgjafar. Verða senniléga send tii Sigliiíjarðar. þeg* air Insað iteffii* veriffi aff þilfari Tvo seinustu sólarhringa veiddist meiri síld í Hvalfirði en nokkuru sinni áffur. Munu flest þau skip, sem ekki sprengdu jieetur sínar, hafa fyllt sig af síld á firffinum í gær og fyrra- dag. í morgun höfðu borizt um 50 þús. mál til Reykjavíkur seinustu tvo sólarhringana. Stjórn Landssambands út- vegsmanna er nú komin í ó- efni meff síldarflutningana, þar sem engin íslenzk flutn- ingaskip er aff fá, en hins vegar tekur langan tíma aff fá útlend skip. Fossarnir fást ekki, nema tveir, í flutning- ana og er nú lielzt í ráffi, aff skylda skipin til aff fara sjálf norður meff síldina, en losa þá síld, sem á þilfari er, eftir því sem flutningaskipa- kostur leyfir. í fyrrad. var gott veiðiveður í Hvalfirði, og síldin mun grynnra en áður, svo að auð- veldara var að ná henni í grunnnæturnar. Allur flot- inn var úti á miðunum aust- an undir Akrafjalli, á svo- nefndu Galtarvíkurdjúpi, og fylltu skipin sig á tiltölulega litlu svæði frá því í birtingu í gærmorgun þar til um myrkur. í gær hélt sama veiðin áfram á þessum slóð- um, og voru skipin að veiða í alla nótt. Skipastraumur til Rvikur Tvo seinustu sólarhring- ana hafa skip alltaf verið að koma til Reykjavíkur fullfermd af síld, og önnur með sprengdar nætur. Alger löndunarstöðvun er á Akra- nesi, og komu því allir bát- arnir þaðan til Reykjavíkur. Tveir þeirra höfðu sprengt nætur sínár og farið heim síldarlausir. Fóru þeir báðir út í nótt og voru komnir í síld strax í birtingu. Allur veiðiflotinn i Reykja-. víkurhöfn í kvöld. Eru því allar horfur á því að þeir bátar, sem enn eru að veiðum í Hvalfiröi í dag, fylli sig af síld og komi hing- að inn í kvöld. Liggur þá allur flotinn að heita má í Reykjavíkurhöfn og bíður löndunar. Mikil umsvif i Keflavík. í Keflavík er byrjað að bræða síld í beina- og fiski- mjölsverksmiðju Huxleys Óiafssonar. Hafa þar verið brædd 500 mál á sólarhring, en nú er verið að auka af- köstin um helming að minnsta kosti. Er unnið þar tíag og nótt — og allt fullt af síld. Reynt að fá útlend skip til flutninganna. Þar sem Eimskipafélagið hefir ekki séð sér fært að láta nema tvö af sínum skip- um til síldarflutninganna, hafa nú verið gerðar ráð- stafanir til að reyna að fá leigð stór, útlend skip til þess að flytja síldina norður. Hélt stjórn Landssambands út- vegsmanna og síldarútvegs- nefnd fund um mál þetta í gær, og var þar tekin sú á- kvörðun að reyna að fá er- lend skip til flutninganna. Á þessu stigi málsins er ekki víst, hvenær þepsi skip geta verið komin hingaö. En fullvíst má telja, að unnt verði að fá skip og þau komi áður en langt líður. Heí'ir helzt verið talað um að leigja stór skip, á stærð við Fjall- foss eða stærri. „Ég býst við mikilli síldveiði í Hvalfirði í dag” segii* Óskar Gíslason skipsíjóri á Álsey. Tíminn átti í morgun tal viff Óskar Gíslason, skipstjóra á Álsey, sem er eitt af stærstu og feng- sælustu síldveiffiskipunum. Hann kom inn í nótt undir morguninn meff um þús- und mál, sem veiðzt höfffu í Hvaifirði í gær. — Við fengum síldina í þremur köstum, segir Óskar. Fyrsta kastið var fremur lít- ið, en svo fengum við 600 mála kast skömmu fyrir myrkur í gær og náðum því öllu. Við köstuðum svo aft- ur 'seint í gærkvöldi, þegar dimmt var orðið og fengum þá 400 mála kast. Þegar við höfðum náð því, köstuðum við enn á ný og ætluðum að fylla skipið i nótt, ef tök væru á, svo að við kæmumst tímanlega inn til Reykjavík- ur í biðina þar. Köstuðum við og fengum ágætt kast, en spiljð bilaði, áður en við gætum náð nema litlu af síld', og urðum við því að sleppa henni og halda til hafnar með rúm þúsund mál. Mjög mikil síld er nú í firðinum, sagði Óskar enn- fremur. — Síldin er nokkuð misjafnlega djúpt, suma tíma sólarhringsins kemur hún upp, og þá er hún grip- in. Flest skipanna fengu á- gæta veiði í gær og í nótt, en önnur hittu ekki á síld- ina eins og gengur. í dag gæti ég trúað því, aö mörg skip fylltu sig, svo að fá yrðu eftir á firðinum í kvöld. í gærmorgun voru um 60 skip í firðinum. Nú eru komin til hafnar fullfermd um 30 skip, en mörg nærri fullfermd inn í firði. Voru sum ski’nnna að veiðum i( alla nótt og fengu mikla síld.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.