Tíminn - 04.02.1948, Page 2
2
TÍMINN, miðvikudaginn 4. febr. 1948
27. blað
5* *á deai til di
a
fó
I dag:
Sólín kom upp kl. 9.02. Sólarlag
kl. 16.22. Árdegisflóð kl. 0.45. Síð-
degisflóð kl. 13.20.
í nótt:
Næturakstur annast bifreiðastöð-
Bifröst, sími 1508. Næturvörður er
í Reykjavikur Apóteki, sími 1760.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum, sími
5030.
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
20.00 Fréttir. 20.30 Kvöldvaka: a)
Oscar Clausen ' rithöfundur: Emil
Nielsen og stofnun Eimskipafélags-
:'ns; fyrra erindi. b) Ólöf Nordal:
„Litla stúlkan í apótekin" eftir
Sigurð Norðdal. c) Sigurður Skúla-
son magister: „Ferð í verið 1881“;
frásaga eftir Kristleif Þorsteinsson
á Stóra-Kroppi. Ennfremur tón-
leikar. 22.00 Fréttir. 22.05 Óskalög.
23.00 Dagskrárlok.
Skipfréttir.
Brúarfoss er á leið til Rodder-
dam. Lagarfoss er á leið til vestur
og norðurlandsins. Selfoss er á leiö
til Siglufjarðar. Fjallfoss er í Rvík.
Reykjafoss cr á leið til Reykjavík-
ur frá New York. Salmon Knot er
á leið til Baltimore. True Knot er
á leið til Siglufjarðar. Knob Knot
er á leið til Siglufjarðar. Lyngaa
er i Kaupmannahöfn. Horsa er í
\msterdam. Varg er á leið til New
York.
Söngskemmtun Einars Markan.
Einar Markan efnir til söng-
skemmtunar í Gamla Bíó. Fritz
’.Veisshappel aðstoðar. Á söng-
skránni eru verk eftir Sv. Svein-
’ojörnsson, Sigv. Kaldalóns, Árna
Thorsteinsson, Hans Meyer Peter-
sen, Richard Wagner og söngvar-
ann sjálfan.
Sameiginlegt mót Þingeyinga
eg Eyfirðinga.
Þinyeyingar og Eyfirðinagr halda
rameiginlega árshátíð á Hótel Borg
næsta föstudag. Mótið hefst með
eorðhaldi k'íikkan sex og verður
til- skemmtunar: ræður upplestur
og söngur.
Frá skákþinginu.
Eftir áttundu umferðina á skák-
bingi Reykjavíkur er Baldur Möll-
er eftur með 6 Vt vinning. Næstir
eru Ámi Stefánsson og Benóný
Senediktsson með 6 vinninga hvor.
Dregið í happdrætti Hraunbúa.
Dregið var í happdrætti Hraun-
búa Háfnarífrði 1. febr. og komu
upp þessi númer: Rafmagnselda-
vél nr. 3294, reiðhjól 2818, skiði
2379, skátabókasafn 2462. Vinning-
ana skal vitjað í verzl. Verðandi,
Reykjavíkurvegi 3, Hafnarfirði.
Skátablaðið.
1. og 2. hefti Skátablaðsins 1948
er nýkomið út. Flytur það margs
konar greinar, fréttir og frásagnir
um skátamái og skátastörf og er
prýtt fjölda mynda úr skátastarf-
nu. Blaöið er hið vandaðasta að
öllum frágangi.
Lvöldskemmtun leikara.
Leikarar munu endurtaka kvöld-
skemmtun sína á Hótel Ritz á
Reykjavíkurflugvellj næsta föstu-
dag og laugardag. Nokkrar breyt-
íngar verða gerðar á dagskrá og
mun Alfreð Andrésson skemmta m.
a. Leikarar búast ekki viö að geta
endurtekiö þessar skemmtanir oft-
ar vegna anna.
Aðalfundur Golfklúbbsins.
Golfklú'obur Reykjavíkur hélt
aðalfund sinn s:l. fimmtudag og
var Ólafur Gíslason kjörinn for-
maður í stað Fr. Hallgrímssonar,
sem verið hefir formaöur s.l. 4 ár.
íleklukvikmynd fjallamanna sýnd.
Ferðafélag íslands efnir til
skemmtunar í Sjálfstæðishúsinu í
Kvöid og hefst hún klukkan 9. Þar
mun Guðmundur Einarsson frá
Miðdal sýna kafla úr Heklu-kvik-
mynd Fjallamanna um gosið eins
og það var í haust og fyrri hluta
vetrar. Eru þær myndir teknar í
fjórum ferðum, þar af einni flug-
ferð. Aðgöngumiðar að þessari
skemmtun Ferðafélagsins eru seíd-
ir í Bókaverzl. ísafoldar og Sig-
fúsi Eymundson.
Skrifstofa British
Council hér lögð
niður
Mr. K. Willey, fulltrúi
Britich Council á íslandi er
á förum héðan á næstunni.
Er þá í ráði að leggja skrif-
stofuna niður hér. British
Council mun þó halda starfi
sínu áfram hér og styðja ís-
lenzka námsmenn til háskóla
náms í Bretlandi. í ár munu
nokkrir kandídatastyrkir
verða veittir og hefir þegar
verið um þá sótt, en úthlut-
un ekki búin.
Mr. Willey hefir nú verið
skipaður prófessor í ensku
við háskólann í Bukarest.
Fræg stúlka af ey-
firzku kyni
Ný hermdarverk í
Jerúsalem
Á sunnudag var sprengd upp
bygging í Jerúsalem ,þar sem
aðalmálgagn Gyðinga, Pale-
stine Post, hafði bækistöð
sína.
Meira en 20 manns særð-
ust í þessari sprengingu.
Bettý White, íslenzka stúlkan frá
Winnipeg, er fór til Englands til
að sitja brúðkaups Mountbattens,
þegar hann gekk að eiga Elísabetu
prinsessu, er ættuð úr Eyjafirðin-
um. Móðir hennar er Sigríður Sig-
urðardóttir Jónssonar, en kona
Sigurðar var Rebekka Jónsdóttir.
Bettý er sextán ára gömul og á
heima á 1283 Dominion St. í
Winnipeg. Hún hafði sent prins-
essunni. nylonsokka, því að hún
vissi, að r.á -varningur var fáséður
í Eretlandi. Og svo bauð prins-
essan henni til Englands í staðinn.
„Þetta var eins og í ævintýri,"
sagði móðir Bettýjar, þegar blaða-
menn komu að tala við hana.
„Sjálf var ég ekki nema seytján
ára, þegar ég yfirgaf föðurland
mitt og fór hingað til Kanada til
þess að leita mér fjár og frama.“
Félagslíf
Málfundadeild F.U.F.
í Reykjavík heldur umræðufund
í Eddu-húsinu kl. 8.30 í kvöld. —
Mætið stundvíslega.
Ferðafélagið.
Skemmtifundur í kvöld í Sjálf-
stæðishúsinu kl. 9.
Ármann.
Skemmtifundur í kvöld í Tjarn-
arkaffi kl. 9.
K.R.
Skíðaferð skíðadeildarinnar í
kvöld kl. 7 frá Ferðaskrifstofunni.
Skaftfellingafélagið.
heldur skemmtifund að Röðli
annað kvöld kl. 9.
Leikhúsið.
„Einu sinni var“ sýnt í Iðnó í
kvöld kl. 8-
Ódýrar auglýsingar
EöM !í©rð ©g
feeiíur veizlinnatnr
sendur út um allan bæ.
SILD & FISKUR
fSéiskur
drengur óskast til að selja
Tímann á götunum. Góð kjör.
Uppl. á afgr. Tímans..
Boriið á V-R.
(Verzlunarmannafél. Reykja
víkur) Vonarstræti 4, þegar
þér komið til bæjarins.
Fljót Qg góS afgreiðsla.
VíMisáS ©Éeillsga að
ErtlireSSslH TiMiasís.
FJALAEOlfUEIM
sýnir gamanleikinn
á fimmtudagskvöld kl. 8 í Iðnó.
Aðgöngumiðasala frá kl. 4—7 í dag.
20 sýning.
Á förnam. vegi
Það er ekki langt síðan frá því
var skýrt, að við manntalið i haust
hefðu reynzt vera 132750 menn á
landi hér. Það er að vísu ekki mik-
ill mannfjöldi, þegar um heila þjóð
er að ræða. En sé þessi tala borin
saman við það, sem var fyrir
nokkrum árum, kemur þó í ljós,
að þjóðinni fjölgar örar en menn
veita athygii í fljótu bragði.
Við skulum ekki fara lengra aft-
ur en til ársins 1912. Þá yotu að-
eins 86116 menn á íslandi Á þess-
um síðustu þrjátíu og fimm árum
hefir fólkinu með öðrum orðum
fjölgað um meira en 46 þúsundir.
í árslok 1927 rar mannfjöldinn
orðinn 103327. Síðustu tuttugu árln
hefir því fólksfjölgunin orðið ná-
lægt 29 þúsundum.
Þótt barnsfæðingum, miðað rið
hverjar þúsund konur í landinu,
hafi oftast farið fækkandi ár frá
ári á þessu tímabili, hefir fólks-
fjölgunin orðið meiri á ári hverju
á síðari hluta þessa þrjátíu og
fimm ára tímabils, er ég tek hér
til samanburðar. Veldur því meðal
annars, að barnadauði hefir sí-
fellt farið minnkandi, svo að nú
er ekki orðiö uema eitt land, sem
jafnast við ísland að þessu leyti —
Nýja-Sjáland. í cðru lagi verður
fólksfjölgunin stórstígari með
hverju nýju þúsundi, er bætist við
íbúatöluna.
Þessar tölur, sem hér hafa verið
nefndar, gefa talsverða hugmynd
um, hvað þjóðinni fjölgar ört, og af
þeim má draga nokkra ályktun
um það, hvers er að vænta á
næstu áratugum í þessu efni, ef
ekkert óvænt ber að höndum. Mér
virðist að þeir, sem nú eru um
þrítugt geti gert sér beztu vonir
um að lifa það, að þjóðin nái tvö
hundruð þú^»ndum. Ef svipað
stefnir og nú horfir, ætti það að
verða orðið jftir svo sem þrjátíu
og fimm ár. »Og haldi mannfjölg-
unin áfram með svipuðum hraða,
ætti ekki að þurfa nema önnur
j 'orjátíu og fimm ár til þess, að
. þjóðin yrði þrjú hundruð þúsundir.
I Þeir, sem eru að fæðast þessi
misseri, ættu margir hverjir að
• lifa þann dag.
j Þetta eru tölur, sem kunna að
í koma mörgum á óvart — menn
' haía ekki gefið gaum að því, hve
j mannfjölgunin er í rauninr.i ör.
Og núy' ekki ólíklegt, að r'.rmverj-
lr spyrji sem svo: „Eru þetta gleði-
tíðíndi eða óheillaspá?"
Slíkri spurningu er erfitt að
grara í fám orðum og að lítt at-
huguöu máli. Sá baggi leggst auð-
vitaff á þjóðina að skapa vaxandi
íjölda þegna atvinnuskilyrði og
lifsskllyrði. Það krefst aukins húsa-
kosts og nýrra atvinnutækja og
aukinna markaða í öðrum löndum.
En þar á móti kemur það, að
framleiðslugeta þjóðarinnar eykst
sífellt, svo framarlega sem aukn-
ingin verður ejkki minni en nemur
mannfjölguninni, og sá baggi, sem
þegnarnir verða hver og einn að
bera af sameiginlegum kostnaði við
stjórn land&ir^ ætti að léttast að
sama skapi og fólkinu fjölgar og
byrðarnar ge *, dreifzt á fleiri. En
mestu munaði sennilega sá aukni
máttur, sem þjóðin ætti yfir að
ráða, þegar hún væri til dæmis
oiffin tvö c:'*p þrjú hundruð þús-
undir, og þeir möguleikar, er henni
sköpuðust þá til þess að ráðast í
arðgæf stórvirki, er henni hefðu
verið ofviða, meðan hún var helm-
ingi minni eða meira en það.
É’g er þeirrar skoðunar, aö mun
betra væri fyrir allfjölmenna þjóð
að búa í landinu heldur en fá-
menna sem við nú erum. En ég
er ekki reiðubúinn til þess að færa
fram veigamikil og sannfærandi
rök fyrir því að svo stöddu, um-
íram það, sem ég hefi gert, og því
er bezt að fella þetta hjal að sinni.
J. H.
!
| Félsjg íislenzka'a leikara:
ÍKVÖLDSKEMMTUN!
! i
l ■ ö
I að KQTEL RITZ föstudaginn 6. l’ebrúar og laugar- |
daginn 7. — Félagar úr Félagi íslenzkra leikara 8
i
\
\
í skemmta yfir borðum ásamt hljómsveit J. Felzman.
i
i DansaS til klukkan 1. — Samkvæmisföt. — Húsinu
i
f lokað kl. 8. — Aðgöngumiðar seldir í Iðnó fimmtudag f
og föstudag kl. 1—3.
r
Sameiginleg ársháííð
Eyfirðinga og Þingeyinga í Reykj avík verður haldin að
Hótel Borg föstudaginn 6. þ.m. og hefst með borðhaldi
klukkan 6 síðdegis.
Til skemmtunar: Ræður, söngur með guitarundirleik
dans og fleira.
Aðgöngumiðar verða seldir í blómaverz. Flóru og hjá
Dýrleifu Pálsdóttur Laugaveg 13, sími 7641.
Reykjavík, 4. febrúar 1948.
Stjórnir félaganna.
Askriftarsími 5484. 1. og 2. tbl. þ. á. komið út.
Fæst í bókaverzlun Lárusar Blöndals, ísafold og hjá
Eymundsson.