Tíminn - 04.02.1948, Side 8
Reykjavík
4. fébrúar 1948
27. blað
Hólmavíkurbáíar
afla vel, þegar gefur
Veður hins vegar
stormasamt
Tíðindamaður átti í gær
símtal við Jónatan Benedikts
son, kaupfélagsstjóra á
Hólmavík. Sagðist honum svo
frá, að veður hefðu verið
stormasöm þar norður frá í
vetur og því oft gæftalítið,
enda alllangt að sækja á fiski
miðin, en afli sæmilegur og
siundum góður, þegar gefur
á sjó.
Fiskveiðar frá Hólmavík
hefjast þegar á haustin, og
stunda nú þrír vélbátar, rúm-
lega tuttugu lestir að stærð,
sjó frá Hólmavík. Hafa þeir
oftast fengið 5—8 smálestir
í róðri upp á síðkastið, og
þykir það dágóður afli.
Fiskurinn er látinn í hrað-
frystihús kaupfélagsins á
Hólmavík. En mjög er það til
baga, hve tregt gengur að
losna við fiskinn, sem þar er
fyrir, svo að heita má, að allt
sé fullt.
Fáeinir trillubátar eru
einnig á Hólmavík, en þeir
eru lítið hreyfðir á vetrum.
Svipaða sögu er að segja frá
Drangsnesi við Steingríms-
fjörð. Þar eru aðallega trillu-
bátar, og ekki hægt að sækja
sjó á þeim fyrr en vorar.
Valda því meðal annars vond
hafnarskilyrði. Er þar ill-lend
andi, þegar út af ber um veð-
ur og sjólag.
*
Séra Arni Þórarins-
son látinn
(slenzku íþróttamennirnir, sem til
greina komatilQlympíufararinnar
þjálfaðir af kappi
Si’etai* liafa gíthEutað Islendil^iúii 180
áhsrfendasætam, en miklu 'Sleiri vilja
komast að
Undirbúningu Ólympíuleikanna, sem halda á í Lundúnum
á sumri komanda, er nú hafinn af fullum krafti, bæði í
Lundúnum og eins í þeim löndum, sem ætla“að' senda kepp-
cndur til leikanna. Hér liefir verið starfað að undirbúningi
að þátttöku íslands síðastliðin tvö ár og helir Ólympíu-
neladin íslenzka þegar unnið mikið verk?" Fundir hafa
verið haldnir hálfsmánaðarlega.
Stefán Jóh. Stefáns-
son á norrænum for-
sætisráðherrafnndi
Stefán Jóh. Stefánsson,
forsætisráðherra, fór í dag
flugleiðis til Stokkhólms.
Mun hann sitja þar fund
forsætisráðherra Norður-
landa, sem haldinn verður
7.—9. febrúar.
Framsóknarvistin
í Hafnarfirði í gær
Framsóknarmenn í Hafn-
urfirði efndu til samkomu í
Alþýðuhúsinu í gærkvöldi.
Var spiluð þar Framsókn-
arvist af miklu fjöri og á-
nægju. Hermann Jónasson
flutti ræðu.
Var þetta fyrsta Framsókn
arvistin, sem Framsóknar-
menn í Hafnarfirði hafa efnt
til og var a ðheyra á þeim
að ekki liði langur tími, þar
til þeir efndu til þ eirrar
næstu.
Séra Árni Þórarinsson lézt
að heimili sínu hér í Reykja-
vík í gær. Hann var 88 ára
að aldri. Hann var lengst af
prestur og prófastur i Snæ-
fells- og Hnappadalssýslu,
eða til ársins 1934. Hann var
kvæntur Elísabetu Sigurðar-
dóttur frá Fáskrúðarbakka.
Lýst yfir sjálfstæði
Ceylonbúa
Ceylonbúar fengu á mið-
nætti í nótt fullt sjálfstæði
innan brezka heimsveldisins.
Yfirlýsingunni um sjálfstæð-
ið var þó frestað, þar til í
morgun, og var það gert að
ráði stjörnuspekinga, sem
enn eru í miklum metum á
Ceylon.
Iþróttaviennirnir þjálf-
aðir.
Ekki er ennþá fullráðið,
hve marga íþróttamenn ís-
lendingar senda til leikjanna,
og fer það fyrst og fremst eft-
ir afrekum þeirra á vori kom-
anda. í vetur hefir stór hóp-
ur íþróttamanna, nærri fjöru
tíu talsins, verið þjálfaðir, en
aðeins þeir beztu þeirra verða
sendir á Ólympíuleikina.
Þjálfarinn, sem er sænskur
maður, Olle Ekberg að nafni,
telur góðar horfur á, að við
getum sent myndarlegt lið til
leikanna, þó ekki megi vænta
þess, að komið verði heim með
verðlaunapeninga.
J
Keppni við Korðmenn þol-
rauii Ólympiufaranna.
Ákveðið er fyrir nokkru, að
Norðmenn og íslendingar
hafi millilandskeppni i frjáls
um íþróttum hér í Reykjavík
mánuði áður én Ólympíu-
Tíu læknishéruð
laus til urasóknar
Tíu læknishéruð hafa ver-
ið auglýst laus til umsóknar,
og er þar víðast um hin
strjálbýlli og afskekktari
byggðarlög landsins að ræða.
Sum þessara læknishéraða
hafa verið læknislaus um
langt skeið.
Tvö dauðaslys af völdum
bifreiöa
Annað í IlafiÐarfirði, Isstí í 8&«ykjavsk
Tvö dauðaslys urðu í gær, annað í Hafnarfirði og hitt í
Reykjavílc. í bæði skiptin voru það bifreiðar sem ollu slys-
unum. í Hafnarfirði varð átta ára gömul telpa, Gyða Þor-
leifsdótfcir fyrir bíl og lézt af völdum þess skömmu síðar.
Hitt slysið vildi til í Suðurgötu. Þar varð maður á reið-
hjóli fyrir bifreið og lézt samstundis.
leikirnir eiga að byrja eða 28.
júní. Það ýérður þolraun
væntanlegra Olympiufara
og árangur sá^ ér næst á því
móti, verðu^látinn skera
endanlega úr Ai'm það, hvaða
íslenzkir íþrpttamenn verða
valdir til Lufiöúnafararinn-
ar
Engan mann- má senda til
keppni, nemá;”hann uppfylli
lágmarksskilýrSi í viðkom-
andi íþróttagréin.
Hörmulegur atburður
í Hafnarfirði.
Slysið í Hafnarfirði vildi til
með þeim hætti, að kennslu-
bifreiðinni G-374 var ekið
eftir Hverfisgötu, og var ver-
ið að beygja inn á Reykjavík
urveg. Nemandinn, sem var
við stýrið hafði ekki fulla
stjórn á bíinum, og náði ekki
beygjunni við fyrstu tvær til-
raunirnar. — En er hann í
þriðja sinn ætlaði að reyna
að ná beygjunni, fór bíllinn
í afturábakskiptingu og rann
á mikilli ferö aftur á bak. En
í því bar þær að, Gyðu litlu
og móður hennar, frú Sigur-
línu Jóhannesdóttur. Skipti
það engum togum, að þær
urðu báðar fyrir bílnum. —
I-Ilutu þær báöar áverkun,
og lézt Gyða Iitla skömmu
eftir að hún hafði verið flutt
í sjúkrahús. Meiðsli frú Sig-
urlínu eru hins vegar ekki
talin hættuleg.
Gyða litla var dóttir hjón-
anna, Sigurlínu Jóhannes-
dóttur og Þorleifs Guðmunds
sonar verkstjóra í Hafnar-
firði. Var litla telpan yngst
fjögurra barna þeirra hjóna.
Slysið á Herkastala-
liorninu.
Hitt dauðaslysið vildi til
með þeim hætti, að bifreið-
inni R-5617 var ekið norður
eftir Suðurgötu. Er hún kom
á móts við hornið hjá Her-
kastalanum varð maður á
reiðhjóli fyrir bílnum, og
beið hann þegar bana. Mað-
urinn hét Sigurður Kr. Guð-
mundsson', til heimilis ac
Ránargötu 19. Bílstjórir.n á
R-5617, sem er flutningabíll,
segist ekki lrafa séð til ferða
Sigurðar, en annars er ekki
fullljóst enn með hverium
hætti slysið hefir viljað til.
Sigurður heitinn var maöur
um sextugt of lætur hann
eftir sig konu og uppkomin
börn.
íslendingar fá 180 á-
horfendur.
Brezka Ólympíunefndin út
hlutar hverri þjóð vissum
fjölda áhorféftdasæta, þar
sem miklu fiéiri áhorfendur
vilja komast á‘ð á leikjunum
en hægt er að koma við. Ilef-
ir þegar verið ákveðið, að héð
an megi 180 áhorfendur fara,
en ef svo skyldi vilja til, að
eitthvað af áðgöngumiðum
yrði afgangs, þegar búið er
að úthluta öllúm þjóðum,
sem sækja leikina, verður út-
hlutað aftur viðbót til hvers
lands, og getur því svo farið,
að við fáum eitthvað fleiri
áhorfendasæti.
Margir íslendingar vilja
komast að.
Ólympíunefndinni hafa bor
izt fjölda fyrirspurna frá
mönnum víðs vegar um land-
ið, sem hafa hug á að komast
til London til þess aö horfa
á leikina. Er hér einkum um
að ræöa íþróttafólk, íþrótta-
kennara og aðra, sem áhuga
hafa á ýmsum greinum íþrótt
anna. Er þegar ljóst, að miklu
færri geta notið aðgöngumiða
þeirra, sem íslandi hefir verið
úthlutað, en vilja komast að.
Verður reynt að velja sem
sanngjarnast úr umsóknun-
um, og þeir látnir sitja fyrir,
sem mesta þörf eru taldir
hafa á að komast á leikina.
Hins vegar er svo nokkur ó-
vissa ríkjandi um þann gjald
eyri, sem hægt verður að veita
til þeirrar farar, og má vera,
að tala áhorfenda takmark-
ist eitthvað frekar af þeim
orsökum.
Ólympíunefndin mun þegar
vera búin að fá loforð fyrir
nokkrum gjaldeyri til að
kaupa aðgöngumiðana, en það
á að gerast nú þegar. Mun
láta nærri, að aðgöngumiðar
fyrir hvern áhorfenda á þá
þætti leikjanna, sem búast
má við að íslendingar hafi
heizt áhuga á, svo sem frjáls-
ar íþróttir, sund og fleira,
kosti um sex sterlingspund.
Áhorfendum og keppend-
um séð fyrir húsnœði.
Ólympíunefndin’mun, þeg-
ar til kemur reyna að sjá
þeim, er fara utan á hennar
vegum, hvort heldur um er að
ræða áhorfendur eða íþrótta
menn, fyrir dvalarstað á með-
an leikirnir standa yfir. Hef-
ir nefndin spurzt fyrir um
kostnað viö dvöl í ýmsum
gistihúsúm og einnig í tjöld-
nm. Sennilega verður ekki af
hópferð íslendinga með skipi,
sem bíða myndi eftir þeim.
Kom til tals að fá Esju til
fararinnar og láta hana bíða
á Tempsánni á meðan leik-
irnir færu fram. Var þá hug-
myndin, að landarnir héldu
til um borð í skipinu. Ýms
tonnerki hafa komið í ljós
við athugun á þessari ráða-
gerð. Vafasamt er, hvort hægt
er að taka Esju í slíka ferð,
og hafnarstjórn Lundúna
benti einnig á þá staðreynd,
að Esja yrði að liggja við fest-
ar langt út á ánni, þannig
að erfiðleikum væri bundið
að koma farþegum að
og frá borði eins greiðlega
og þyrfti.
Ný herferð gegn
Viet-Nam-Iýðveid-
mnr
Frakkar hafa lítinn heiður
áunnið sér fyrir hegðun sína
í Indó-Kina á seinni árum og
afstöðu sína til Viet-Nam-
lýðveldisins.
Fyrir nokkru síðan var þó
fulltrúum lýðveldismánna
boðið til Parísar til þess að
ræða við frönsku stjórnina
um framtíð Indó-Kína. Nú
herma aftur á móti fregnir,
sem að vísu eru frá Moskvu
og hafa verið staðfestar ann-
ars staðar, að franska stjórn
in láti handtaka alla áhang-
endur Viet-Nam-lýðveldisins,
er hún nái til, og meðal
þeirra séu samningamenn-
irnir frá Indó-Kína.
\ FramsóknarvLst
| á föstudaglnn
I Næsta Framsóknarvist veröur
E f samkomusalnum í mjólkur-
1 stöðinni næstkomandi föstu-
E öagskvöld. Sérstaklcga slcal á
I það bcnt, að SAMKOMAN
I HEFST NÚ KLUKKAN ÁTTA,
jj en ekki 8,30 eins cg verið hefir.
I Eysteinn Jónsson mennta-
| máiaráðherra flytsir crindi á
| samkomunni.
§ Fólk er vinsamlega beðið að
1 mæta stundvíslega, þar cð
| skemmtunin stendur ekki yíir
\ lengur en til klukkan eitt.
S Tryggið ykkur miða sem fyrst.
\ Tekið á móti pöntunum í
| síma 6066.
riuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiii
iiiiiihuiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii*i,iiii*ii,ii*,**,,,ii*'i,,,*,*,iiii*'*,,,,'","|',,*i,i,,**',,,*,,,,,*,,'*,,*,i,i ij