Tíminn - 10.04.1948, Blaðsíða 8
Reykjavík
10. apríl 1948.
80. blað
Nýtt hraðírystihús fullgert í Kald-
rananesi við Bjarnarfjörð
iBiiÍiílÍl
Truman forseti hefir vafalaust vcrulegar áhyggjur af landsmálum og
Iieimsmálum, eins og eíSlilegt er um æðsta 'valdsmann mesta stór-
veldis veraldarinnar á viðsjárverðum tímum. En hann virðist líka
geta kastað frá sér áhyggjunum. Það bar til dæmis við, er hann var
á siglingu á lystisnekkju sér til hressingar, að hann brá sér í ham leik
fimikcnnara og stofnaði fimleikafiokk um borð, skipáðan skipsmönn-
unum. Myndin sýnir hann við æfingar með flokk sinn.
Skoriurinn knýr þýzku stúlk-
urnar til þess að leita ásta
hjá iiermönnunum -
Rætt vlð íslenzkan lif&sfcrÍEigja í amcríska
sctuliðima
Ungur maður frá Borgarnesi, Þorvaldur Friðriksson að
nafni, hefir undanfarin þrjú ár starfað á vegum ameríska
hersins, lengst af í Þýzkalandi. Þorvaldur er staddur í orlofi,
hér á landi um þessar mundir, og hitti tíðindamaður blaðs-
íns hann að máli í gær og innti hann eftir ástandinu á her-
námssvæði Bandaríkjanna í Þýzkalandi.
Úígei’ð á Ealdran^iicsi er aff aakast. og
nokkrar Iiafnarhaeátir iiafa verið gerðitr
Á Kaldrananesi við Bjarnarfjörð á Ströndum er nú vax-
andi kauptún með nokkurri útgerð. Þar er nú nýlokiö bygg-
:ngu hraðfrystihúss og unnið er að hafnarbótum. Sundlaug
er þar líka nýrisin og ráðgert er, að héraðið fái rafmagn frá
væntanlegri Þverárvirkjun. — Þorsteinn Matthíasson skóla-
stjóri í Iiaidrananesi er staddur í bænum um þessar mundir,
og hefir tíöindamaður Tímans hitt hann að máli og spurt
frétta úr héraði.
Þorvaldur, sem nú er orð-
inn liðsforingi að tign, hefir
haft sérstaklega góða aðstöðu
til að fylgjast með ástandinu
hjá almenningi í Þýzkalandi,
þar sem hann starfar i eftir-
litslögreglu og ferðast mikið
um landið, milli héraða og
smærri borga.
Mjög naumt úm föt og fæði.
Hahn hefir þá sögu að
segja, að yfirleitt fari ástand
ið nú batnandi, þótt hægt
miðj, Enn er mikill skortur
meðal almennings í Þýzka-
landi, og öll starfsemi og hugs
un fólksins snýst um það eitt
að hafa nóg að borða, og bó
fær almenningur aldrei að
borða nægju sína. Allir eru
meira og minna vannærðir,
vegna þess hve’matarskammt
urinn er naumur. Við þetta
bætist svo húsnæðisskorturog
klæðleysi. En þó er það svo,
að þrátt fyrir klæðleysið, sem
er svo mikið, að varla nokkur
Þjóðverji sést í góðum fötum,
reynir fólkið, alltaf að gera
sér dagamun.Á hátíðisdögum
fer fólk í sparifötin, sem ekki
eru reyndar lengur nein spari
föt, og ekki annað en við
myndum kalla slita garma.
Vili ekki fara í sveitirnar.
Fólkið, sem býr í sveitun-
um, hefir yfirleitt meira að
borða en borgabúar. Samt
gengur illa að fá borgabúa
til aö fara upp í sveitirnar til
þess að vinna þar. Þeir vilja
heldur búa við þröngan kost
í fjölmenninu. Margir eru rót
lausir og eirðarlausir og eru
á sífelldu ferðalagi og flakki
staða á milli í leit að ein-
hverju skárra en þeir hafa,
en er þó hvergi til.
| Henrsennirnir lifa við
nægtir.
Um sambúðina við herinn
er það helzt að segja, að hún
virðist fara batnandi. Þó gæt
ir allmikillar andúðar í garð
hersins hjá mörgum. Her
mönnum er bannað að fara
inn í þýzka skemmtistaði,
nema leikhús og óperur, en
þeir hafa sína eigin skemmti
staði. Annars er vistin að
sumu leyti fremur daufleg
(h'ramhald á 7. síðu)
Goðafossi fagnað á
Akureyri í dag
Goðafoss kemur til Akur-
eyrar í dag. Er hafður þar við
búnaður til að taka hátíðlega
á móti skipinu.
Þorsteinn M. Jónsson, for-
seti bæjarstjórnar, miui
halda ræðu og bjóða skipið
velkomið til Akureyrar. Lúðra
sveit mun leika við þetta tæki
færi, og má búast við al-
mennri þátttöku bæjarbúa
við þessi hátíðahöld, verði
veður skaplegt.
Nýtt hraðfrystihús
fullgert.
— Er ekki útvegur að auk-
ast í Kaldrananesi?
— Jú, mönnum leikur hug-
ur á að auka útgerðina þar,
og þaðan hafa verið gerðir út
nokkrir trillubátar að undan-
förnu, en langræði er oftast
heldur mikið fyrir þá. Einnig
hafa verið hin mestu vand-
jkvæði á nýtingu aflans og
ekki um annað en söltun að
ræða, en nú er þar nýlokið
. byggingu góðs hraðfrystihúss.
Hraðfrystihús þetta er byggt
af hlutafélaginu „ísborg“ h. f.
i Bjarnarfirði, og má segja, að
því nær hvert heimili í Bjarn-
arfirði sé þátttakandi í því,
auk kaupfélagsins.
. IIúsiö er mjög vandað að öll-
um frágangi og búið fullkomn
ustu vinnuvélum. Vélaverk-
jstæði Björgvins Friðriksson-
jar í Reykjavík hefir annazt
útvegun og niðursetningu
véla, og er allur frágangur á
þeirri vinnu hinn bezti.
Nokkrar hafnarbætur
j gerffar.
Jafnframt hraðfrystihúss-
byggingunni er unnið að hafn
arbótum í Kaldrananesi, og er
þess vænzt, að í sumar verði
þeim framkvæmdum komið
svo langt áleiðis, að öll hin
smærri fiski- og strandferða-
skip geti lagzt að bryggju, og
um leið sköpuð aðstaða til
síldarsöltunar; en Bjarnar-
fjörður er að margra dómi
mjög heppilegur til þess að
hafa þar síldarsöltunarstöð.
Ýmsir örðugleikar hafa ver-
ið á því að koma þessum mál-
um áleiðis, einkum hvað fjár-
öflun snertir, því erfitt er um
lánsfé og fátæk byggðarlög
hafa litla möguleika til mik-
illa framlaga, þó fullur vilji
sé fyrir hendi. Þó verður ekki
annað sagt, en til þessa hafi
þessar framkvæmdir mætt
skilningi og velvilja þeirra
opinberu aðila, sem um hafa
fjallað. Þingmaður kjördæm-
isins, I-Iermann Jónasson,
hefir í þessum málum sem
öðrum framkvæmdum byggð-
arlagsins stutt okkur með
ráðum og dáð.
Sundlaug og heimavistar-
skóli.
— En vantar ykkur ekki til-
finnanlegt skólahús?
— Jú, við höfum notazt við
samkomuhús til skólahalds í
Kaldrananesi, en það er illt og
algerlega ófullnægjandi. Ný-
lega er lokiö byggingu sund-
laugar aö Klúku í Bjarnar-
Nýr þilbátur til Kaldrana-
ness.
j Þrír bræður í Eyjum í Bjarn-
iarfirði hafa nú ráðizt í að
I kaupa 24 smálesta þilbát frá
Akranesi og hyggjast gera
hann út frá Kaldrananesi.
Báturinn er kominn norður
en hefir ekki hafið róðra enn.
Eru nú sköpuð skilyrði til
slíkrar útgerðar með býggingu
frystihússins, og gera menn
sér vonir um, að fieiri slíkir
Ibátar muni á eftir fýlgja.
Þorsteinn Matthíasson
skólastjóri.
firði. Er það ágæt laug, og er
nú í ráði að reisa þar einnig
heimavistarslcóla. Þess er
vænzt, aö byrjað verði á þeirri
byggingu á komandi sumri, ef
fjárfestingarleyfi fæst.sem við
j gerum okkur góðar vonir um.
I Vantar tilfinnanlega vegi.
| — Er fært bifreiðum úr
Bjarnarfirði til Hólmavíkur?
| — Já, svo á það að heita, að
minnsta kosti jeppabifreið-
um. — En verkefnin þar
eru mikil og von að seint sæk-
ist. Vonum við þó, að stórum
áfanga verði náð á næsta
sumri, þegar lokið verður.við
Bitruveginn, og brúin fæst á
Selá í Steingrímsfirði. Eru þá
líkur til ,að rýmra verði um
fjáryeitingu til vegarins norð-
ur. —
Nokkur jarðhiti á flestum
bæjum í Bjarnarfirði.
í ræktunarmálunum er allt-
af unnið nokkuð, þó að mikiö
, skorti á í því efni að vel sé, en
i ástandið í þeim málum getur
j ekki talizt gott fyrr en því tak
i marki er náð, að bændur geti
framfleytt lífvænlegum búuhi
á ræktuðu landi einu. Rækt-
unarskilyrði eru allgóð í
Bjarnarfirði og þar er til
dæmis nokkur jarðhiti á
flestum bæjuin.
Rafmagn frá Þverár-
virkjun.
Nú er ráðgert að hefja inn-
an skamms framkvæmdir við
ivæntanlega Þverárvirkj un og
er ráðgert, að Kaldrananes fái
rafmagn þaðan jafnhliða
Hólmavík og mun áreiðanlega
verða haldið fast á því máli.
Þaff verffur aff bæta skilyrffi
dreifbýlisins til atvinnu-
og Jífsþæginda.
Að lokum sagði Þorsteinn
þetta:
— Þessar framkvæmdir eru
sprottnar af því, að fólkinu
er ekki ljúft að yfirgefa byggð
sína, en vill fremur leitast við
að hagnýta þá möguleika, sem
náttúran hefir í té látiö og
skapá samtíð og framtíð mögu
leika til bættrar lífsafkomu og
betri daga. Þetta er oft að
ýmsu leyti erfitt og hvílir
þungt á herðum beirra, sem í
stappinu standa meöan verið
er að koma framkvæmdunum
á. En beri fólkið gæfu til að
standa saman og missi ekki
trúna, þótt í móti blási, mun
nokkuð vinnast, og ég get ekki
látið hjá líða aö láta þá skoð-
un í ljós, aö gæfa þjóðarinn-
ar í nútíð og framtíð byggist
á því, að takast megi að stöðva
flóttann úr byggðum landsins.
En það verður aldrei gert
nema með þvi að fólkiö eign-
ist þar aðgang að svipuðum
atvinnuskilyrðum og þægind-
um og þeir hafa, sem búa í
stærri bæjum. En til þess að
það geti orðið, verður að veita
meira fjármagni til atvinnu-
lífsins í byggðunum.
Ráðstefna um Tri-
este-málin í París
Bretar hafa nú boðið Rúss-
um að taka þátt i umræðum
um Trieste og undirbúning
þess að skila ítölum aftur
héraðinu. Eiga þessar umræð-
ur að fara fram í París í næsta
mánuði. Rússar hafa hins veg-
ar ekki látið uppi álit sitt um
þetta mál enn, en með þess-
ari orðsendingu munu Bretar
vilja reyna að fá að vita um
afstöðu Rússa. Bandaríkja-
menn munu hafa sent Rússum
sams konar tilmæli.
„Karlinn í kass-
anum“ sýndur á
Akranesi í kvöid
Leikfélag Hafnarfjarðar fer
í dag í leikför upp á Akranes
og ætlar að sýna gamanleik-
inn „Karlinn í kassí\num“ í
kvöld ög á morgun í bíóhöll-
inni.
Leikstjóri er Indriöi Waage,
en aðalhlutverkiö leikur Har-
aldur Á. Sigurðsson.
Leikfélagið er búið að fara
með leikinn til Keflavíkur og
sýna hann þar við ágætar
undirtektir, auk þess sem enn
er verið aö sýna leikinn í Hafn
arfirði. Fyrirhugað er að sýna
leikinn einnig fyrir austan
fjall.