Tíminn - 24.08.1948, Side 6

Tíminn - 24.08.1948, Side 6
6 TÍMINN, þriðjudaginn 24. ágúst 1948. 1S5. blað Ifripcli-ltíc Hjartaþjófui’ism (Heartbeat) Afar spennandi amerísk saka- málakvikmynd eítir Morrie Ryskind. ASalhlutverk: Ginger Rogens Jean Pierre Aumont Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum yngri en 16 ára Erlent yfirlit (Framhald af 5. síOu). að leiða deilur Trumans og þings- ins um verölagsmálin sem mest hjá sér. Það er ekki í fyrsta sinn, er hann hefir sýnt þati klókindi að foröast umræður um mál, þar sem republikanar höfðu óþægilega af- stöðu. f kosningabaráttunni mun Dewey vafalaust leitast við að verða ekki bendlaður við syndir þingflokks ins, og reyna að koma kosnin'gun- um á þann grundvöll, að þær verði fyrst og fremst persónulegt val milli hans og Trumans. Til þess að syndir republikana verði honum ekki fjötur um fót, mun hann vafa laust láta í það skína, að hann sé óháður flokknum og muni ekki fara eftir neinum fyrirskipunum. Hann tók það strax fram, er hann játaði þeim tilmælum flokksþings republikana að verða frambjóðandi flokksins, að hann væri öllum ó- háður. í ræðum sínum mun hann ekki ræða svo mjög um muninn á stjórnmálastefnu sinni og Trumans,; lieldur leggja áherzlu á, að'hann j muni gera stjórn landsins traust- I ari og heiðarlegri og benda á því til sönnunar, hvernig hann og j Warren hafi reynzt sem landstjór- j ar. Perill beggja þykir hinn glæsilegasti á því sviði. Truman mun telja sig hinn rétta alþýðufulltrúa. 1 kosningabaráttu sinn mun Tru- man taka fullt ti’lit til þess, að Dewey er almennt talinn mikil- hæfari stjórnandi en hann. Tru- man mun því leggja áherzlu á, að. hann sé alþýðumaður, hafi lifað og starfað meðal alþýðunnar, skilji hana. og þekki og vilji vinna fyrir hana og sé því hinn rétti fulltrúi hennar í Hvíta húsinu. Pundi þá, sem hann heldur fyrirkosningarnar, ætlar hann að láta vera að nokkru leyti í samtalsformi eða ganga með al fundarmanna, ræða við þá og svara fyrirspurnum þeirra.. Telja ýmsir, að þetta geti gefist honum vel, því að hann er ekki mikill ræðumaður, en glaðlegur og hressi- legur í samræðum og fljótur í svör- um. Dewey mun hinsvegar láta slíkt verr, því að hann er einstrengings- Jegri í framkomu, en vel má vera að hann neyðist til að fylgja þessu fordæmi Trumans. Jíeztu úrslitin? Margt getur enn gerst þá tvo mánuði, sem eru eftir til kosninga, er áhrif getur haft á úrslitin. Sæmi leg lausn Berlínardeilunnar eða mikil verðhækkun í Bandaríkjun- um geta orðið Truman til styrktar, en hinsvegar myndi það sennilega hjálpa Dewey, ef horfur í alþjóða- málum versnuðu. Ýmsir þeirra, sem framsýnir þykja, telja að það gæti orðið bezta lausnin fyrir Banda- ríkin, að Dewey yrði kosinn, en republikanar fengju nauinan þing meirihluta eða yrðu jafnvel í minni hluta í öldungadeildinni. Dewey myndi þá geta stutt sig við hina frjálslyndari menn beggja flokk- ana. Pæri hinsvegar svo að repu- flýa Síó Dragesiwyclt Amerísk stórmynd byggð á sam nefndri sögu eftir Anya Selon, er komið hefir út í ísl. þýðingu. Sýnd kl. 9 Græna iyftan (Der Mustergatte) BráðskemmtiJeg þý zk gaman- mynd byggð á samnefndu leik- riti eftir Avery Hopwoods, sem Fjalakötturinn sýndi hér nýlega. Sýnd kl. 5 og 7. í myndinni eru skýringar- textar á dönsku. Sala hefst kl. 11. Ástleiíni Sýnd kl. 9. Síðasta sinn Kvciiliatariim Sprenghlægileg sænsk gaman- mynd með hinum afar vinsæla gamanleikara Nils'Poppe. Sýnd kl. 5 og 7 Síðasta sinn blikanar fengu yfirgnæfandi meiri- hluta í þinginu, myndu íhaldsmenn irnir í flokknum ráða stefnunni þar. Svar til Vigfúsar Ciuðmiuidssonar. (Framhald af 3. síðu) Einu sinni voru þau orð lát- in falla í garð Vigfúsar við há tíðlegt tækifæri að hann hefði farið á „hundasundi“ í gegnum lífið og fleytzt vel. Ef til vill treystir Vigfús svo vel á „hundasund" sitt, að sér fleytist að hafa í frammi víta veröan verknað gagnvart þeim, sem ekki eru honum samþykkir, einkum ef hagn- aðarvon hans er annar vegar. Ég held að Vigfúsi væri sæmra að koma veitingastarf semi sinni í fullkomnara horf og á þann.hátt sína í verki, að annað og meira liggi á bak við starfsemi hans en hagn- aðurinn einn, með sem mimistri fyrirhöfn. GrænlaiuIsmúlIS. (Framhald af 3. síðu) andæfði utanríkismálaráð- herra aðeins skoðun Vil- hjálms Finsens á því, að orð- in „í várum lögum“ í Grgs. Ia, 226, II, 70 vísi til Grænlands, sagði, að ýmsir merkir lög- fræðingar neituðu því. Þetta mun aðeins hafa verið mælt af vangá, því mér vitanlega hefir enginn lögfræðingur neitað þessari skoðun Vil- hjálms. Knud Berlin, sem sumir muna enn, telur t. d„ að það sé efalaust, að þessi orð vísi til Grænlands; og Ólafur Lárusson, sem ekki er það síður kappsmál en K. Ber lin, að afsanna rétt íslands til Grænlands, telur, að til þesS að skoðun Vilhjálms sé ekki rétt, þurfi hugsunarleysi eða alveg óþarfa nákvæmni hjá þeim, sem ákveðið rituðu, og að „líkurnar hljóti að vera á móti þessu hvoru um sig.“ Um þenna stað í Grágás er rætt í Réttarstöðu Græn- lands bls. 367—374, og vísast til þess. Hér skal þessu einu við bætt: Nýmæli þetta bann ar í rauninni íslenzkum mönn um tvíkvæmi utanlands og innan, nema í þeim löndum, þar sem tvíkvæmi var enn leyft í landslögum, þ. e. í Nor- land iiefði haft sérstakt lög- gjafarvald, eru engar líkur egskonungs veldi. Ef Græn- til, að það hefði orðði á und- an íslandi að nema tvíkvæmi úr lögum. Tvíkvæmi,hefði því átt að vera ísl. mönnum leyfi- legt á Grænlandi, hefði ný- mælið í Grgs. Ia, 226 ekki numið það úr gildi þar. En lögin gera aðeins ráð fyrir, að menn, sem fara utan (vest- an) taki sér konur erlendis eða fyrir austan ísland, og þau gera aðeins ráð fyrir, að löglegir arfar síðara (tvíkvæn is)hjónabandsins geti komið að austan. Þetta verður í sam bandi við aðra skilgreiningu þessara laga og aðra stað ií Grágás ekki skýrt öðruvísi en svo, að nýmælið í Grgs. Ia, 226 nemi tvíkvæmi úr lögum á Grænlandi, og að Grænland sé innanlands. Svo mælti ráðh. nokkur ó- skýr orð um „lög“, er bentu til, að það væri í sömu þoku fyrir honum og Ólafi Lárus- syni (sbr. Andvaragreinina) og Knud Berlin, hvað „lög“ eða þetta forna germ. þjóö- félag væri. Önnur bein gagnrýni á rit- um J. D. komu ekki fram. En til þess að sýna, hversu hald- laus þau væru, og sennilega einnig málstaður alls lands- ins í Grænlandsmálinu, las hann upp niðurlagið á ritgerð Ólafs Lárussonar í Andvara 1924, enda þótt grein Ólafs væri svar við skrifum Einars Benediktssonar, og J. D. væri búinn að hrekja hana í 9. kap. í réttarstöðu Grænlands. Þá kom utanríkismálaráðh. fram með þessa furðulegu staðhæfingu: Því mun verða haldið fram gegn okkur, að það sé ótrúlegt, að ekki skuli hafa verið settar skýrar regl- ur af Alþingi hinu forna um, að Grænland væri hluti af ís- lenzka þjóðfélaginu, ef svo hefði verið, en slík lög séu ekki til í Grágás. Framhald. Mikilvægi land- IiEgieaðarfi’ain- leiðslimnar. (Framhald af 5. síðu). atvinnurekstur sinn á ýmsum sviðum, þótt landbúnaðurinn fengi minni hlutdeild í stríðs gjaldeyrinum en aðrar at- vinnugreinar. A komandi árum munu all- ir verða að viðurkenna, að landbúnaðurinn sé þjóðinni mikilvægur og ómissandi at- vinnuvegur, engu síður en sjávarútvegurinn og iðnaður- inn. Bændurnir ættu því að eiga von á velvild og aðstoö annarra stétta í þeirri við- leitni að koma atvinnuvegi sínum í sem mest nýtízku- horf, enda er það hagur allr- ar þjóðarinnar. Ekkert mun bændum kærkomnara en eiga um það góða samvinnu við aðrar stéttir. En öruggaát er það samt fyrir bændur að tryggja vel samtök sín og gera þau þess megnug að halda fram rétti þeirra. Að- staða þeirra er öruggari og sterkari nú en meðan víma stríðsgróðans drottnaði í land inu og margir héldu, að land- búnaðurinn væri óþarfur og bjóða mætti bændunum allt. X+Y. •MinijiiiiuiiiMiiiiMiitimtiimuiiimiiumiiiiiniiiiinimiiimMíiMiiímmrMriMiimpnmiiiiMnmmiMmmiiiiiiiil ÍGUNNÁR WIDEGREN: 83. dagur ? / >r | U ng f r ú Ast rós | mér með útbreidda armaiia. Varir hans höfnuðu ein- | hvers staöar i námunda við vinstra muanvikiö. Þetta | var í sannleika sagt klaufalegur koss, og má það kann- | 'Ske kenna því; hvernig til hans var stoínað. Vegna Gretu í vonaði ég, að hann myndi taka góðum framförum, þeg- i ar hann fengi nauösynlega æfingu. — Svona, börnin góð, sagði Signhildur og þrýsti mér \ upp að hinum miklu brjóstum sínum. Láttu það sjást, i að þú verðir Utterclou-ættinni ekki til minnfcunar. I Hiakkarou ekki til ao komast í tsngdir við okkur? — Þ>að niyndi sjálfsagt sérhver ung stúlka teija sér i mikla sæmd áð giftast manni af Utterclou-ættinni, I sagöi ég, auornjúk og niðurlút — ég vildi+kki eiga það | á hættu á þessari stundu að mæta augnaráði Krispers. — Það er einmitt mín skoðun, sagði Signhiidur og | gerðist nú léttbrýn. Þetta vildi ég einmitt segja. Hváð i finnst þér, Krisper? Ég er þér alveg sammála, sagði Krisper. En þaö var I samt engu líkara en hann væri með munninn fullan | af kartöflum. — Jæja — það er gott, að þetta mál er útkljáð, sagði i Signhildur. Nú fhinst mér, að við ættum aö fá okkur | eitthvað gott að borða til minningar um þessa stund. Hún arkaði af stað á undan okkur, en við Krisper | töltum á eftir. Við litum hvort á annað og grettum I okkur. Samræðurnar yfir matnum voru mjög fjörug- 1 ar, þótt Signhildur talaði raunar ein. Ég fékk að vita, | hvernig brúðarkjólinn minn átti að vera og hvernig ég | átti að vera klædd í brúðkaupsferðinni. Hun tiikynnti \ okkur líka, hvert við ættum að fara, í hvaða g'stihús- e um við æ'ttum að búa og hvað mikið við skyldum gefa 1 í drykkjupeninga. En hún rnátti gjarnan masa og bolla | leggja mín vegna. Mér bregzt aldrei matarlyst, og ég var | þakklát fyrir það, aö ég fékk að borða í friöi. Kilsper I var áreiðanlega með allan hugann við Gretu. — En mér finnst þið ekkert glaðleg á svipinn, hróp- I aði Signhildur allt í einu. Hvernig stendur á þessu? — Ég held, að það geti ekki verið rétt, svaraöi ég. — Það held ég, að sé misskilningur, svaraði Krisper | um leið og hann strauk sér um munninn með þurrk- | unni. — í dag er föstudagur, hélt Signhildur áfram. Á | sunnudaginn tilkynnum við trúlofunina, því að ég | ætla til útlanda í lok næstu viku. Hjónavígslan fer | fram á afmælisdaginn mlnn, 17. nóvember, og þá fari.ð | þið undir eins í brúökaupsferðina, svo að þið getið 1 vejið komin'heim fyrir jólin. Svona verður það — 1 þetta er líka ágætt. Í — Já, móöir mín, sagöi Krisper. — En ef eitthvað skyidi nú að verða því til fyrir- | stöðu, að þetta geti gerzt svona fljótt? leyfði ég mér | að segja. | — Hvað ætti þaö að geta verið? spurði Signhildur | og lagði frá sér hnifinn og gaffalinn. Ég vildi sjá fram I an í þann, sem breytti mínum fyrirætlunum. | — Líttu þá á mig, hugsaði ég. 1 En upphátt sagði ég: i — Ég ávið, ef viö kynnum nú aö veikjast eoa eitt- | hvað þess háttar. Maður vei.t aldrei, hvað fyrir kann að 1 koma. i Signhildur skálaði nú fyrir trúlofun okkar, og við I áhrif vínsins varð mér léttara um mál. Það .var eitt- I hvað, sem ólgaði í huga mínum — eitthvað, sem ég | vildi segja. Hóf glasið mitt á loft og byrjaði: — Fyrirgefðu, S'gnhildur. En mig langaði til þess | að skála við Kri&per — Krisper einan. Mig langar til § þess að drekka honum til ng óska honum hamingju | og farsældar í lífinu. Mér finnst ekki neinum standa | það nær en mér, -fyrst heill hans hefir að svo miklu | leyti verið lögð í m’ínar hendur. Ég vona, að aliar góð- 1 ir' vættir hjálpi mér til þess að leiða til lykta þann | vanda, sem ég" hefi tekizt á hendur, á farsællegan | hátt. Skál, Krisper. 1 — Æ, æ, sagði Signhildur. Þessa skál/verð ég að I drekka líka. Ég vona, aö allar þær fögru óskir, sem i Birgetta hefir bórið fram megi rætast sem bezt. | Við Krisper þ.orðum ekki, að líta hvert á annað. Ef •MiiuimiMiMiiiimiu***uuuiumnmm»iniii»niiiiniiiiiinmiiiiui!mmmmminmímiiniHiiJMMi»«m«nnmii*»*j ................................................................................IIIIIIII.IIIIIIIIIIIIIIIIIIII......................................minmini...............................................................................................................................................................itmnnnnnii...........iiiiiii................................innmr

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.