Tíminn - 18.11.1948, Síða 8

Tíminn - 18.11.1948, Síða 8
32. árg. Reykjavík 18. nóv. 1948. 256. blað íeröir til Norð urlanda m Skotlands Að andanförnu hafa bæði íslenzku flugfélögin Loftleiðir og Fluglélag íslands haft vikulegar áætlunarferðir til Skot- ianas og Noröurlanda. Mzkinn hluta ársins er fátt fólk að íiytja á þessari leið, og væri því miklu hagkvæmara að fé- lögin skiptust á að fara þessar ferðir, og mun nú slík sam- vinna vera í undirbúnmgi. Dagens Nyheter í Stokkhólmi birti nýlega ir.ynd af hópi tékkneskra flóítamanna, sem komizt liöfðu frá Rússlandi, og voru nú á Ieið til Vestur-Þýzkalanls. Tékknesk flóttakona, sem lengi hafði harmað horfinn son sinn, þekkti hann á myndinni. Hér er myndin úr Dagens Nyheter, og konan og fundni sonur hennar sitt til hverrar handar Blaðið Faxi í Keflavík hefir komið út í átta ár Félag tólf áhugamaima hefir séð um útgáfu þess frá upphafl í Keflavik er geíiS út blað, sem heitir Faxi. I*aö varð átta ára í s. 1. mánuði. Samnefnt félag gefur blaðið út. Það ræðir aöallega menningar- og framfararmál Keflavikur og ná- grennis og er htð vandaðasta og snotrasta að búningi. Félagið Faxi var stofnað í Kefl'avík 10. okt. fyrir níu ár um. Það var málfundafélag og félagsmenn þess voru tólf. Skyldi sú tala haldast og félagsmenn vera hvorki fleiri né færri. Ef einn gekk úr félaginu var aðeiixs einum bs^tt við. Félagið ræðir menn ingar- og framfaramál Kefla víkur og nágrennis á fundum sínum, sem eru haldnir reglulega hvern fimmtudag, og skiptast félagsmenn á um að hafa fundina heima hjá sér. Fyrir átta árum ákvað fé- lagið s.ð gefa út blað, sem nefndist Faxi og skyldi það helgaö sömu áhugamálum og félagið og bera sama nafn. Fyrsta blaðið kom út 21. des. 1940 og hefir það komið út síðan. Blaðið er vandað að frágangi, flytur myndir og fréttir sem varða Keflavík og ræðir ýmis áhugamál hér- aðsins. Oftast munu hafa komið út um 10 blöð á ári. Það, kemur út 1 700 eintök- um. Félagið gengst fyrir þrem samkomum á ári til styrktar blaðinu. Verður það að telj- ast mjög lofsverður áhugi og dugnaður að gefa út blað í svo litlum bæ sem Keflavík, og að þar skuli aldrei hafa orðið hlé á í þau átta ár sem liðin eru síðan blaðið hóf göngu sína. Það þarf og mikía' elj u til þess að halda þrjár samkomur á ári til þess að tryggja fjárhag blaðsins, og kemur dugnaður hins fá- menna félags ljóst fram í því. Þetta er menningarlegt afrek sem vert er að halda á loft, og mikils virðj fyrir bæ á stærð við Keflavík að eiga blað sem ræðir framfara- og menningarmál héraðsins. f stjórn félagsins eru nú Ragnar Guðlaugsson, formað ur, Steindór Pétursson, vara- formaðuT og Kristinn Péturs son gjaldkeri. Ritstjórn Faxa skipa nú Jón Tómasson, Hall- grímur Th. Björnsson og Val- týr Guðjónsson. íhaldsmenn vilja víkja brezka stál- Aðalfundnr F.U.F. í Reykjavík Félag ungra Framsókn armanna hélt aðalfund sinn í gærkvöldi. Fundur- inn var vel sóttur og gengu margz'r í félagið. f stjórn, voru kosnir: Skúli Bene- diktsson formaður og með- stjórnendur þeir Torfi ’ Torfason, Eznar Sverrisson, Björn Jónsson og Stefán Jónsson. — f varastjórn: Kristján H. Benediktsson varaformaður, Bjarni V. Magnússon og Björn Bene- diktsson. Á eftir aðalfundarstörf- unum var rætt um stjórn- málavzðhorfið og hafði Skúli Benediktsson fram- sögu. Urðu allmiklar og fjörugar umræður um það. Einnig var rætt um starf- semz félagsins á vetrinum og má gera sér vonir um, að félagiö starfi af miklu fjcri í vetur. Flugvélin Geysir fer á morgun héðan til Parísar og Rómaborgar, en þangað á hún aö sækja innflytjendur, sem ætla til Suður-Ameríku. Kernur vélin við hér í Reykja vík á leið sinni vestur, en flýgur svo til Caracaz í Vene- zúela. Ekki er alveg fullvíst, hve margir farþegar verða með vélinni þessa ferð. Loftleiðir hafa farið tvær áætlunarferðir til Bandaríkj anna, síðan félagið fékk rétt- indi til að fljúga áætlunar- flug til Bandaríkjanna. Það hefir komið í ljós, að tiltölu- lega fátt fólk þarf að ferð- ast á milli íslands og Banda- ríkjanna, að minnsta kosti á þessum tíma árs. Verða áætl- unarferðirnar vestur því fyrst um sinn í sambandi við flug íslenzku flugvélanna vestur um haf með ítalska innflytjendur, en allmargar ferðir hafa verið farnar með ítali og Frakka í haust, sem ætla að setjast að í Banda- ríkjunum. Þetta er hins vegar fyrsta feðrin, sem íslenzku flugvél- arnar fara að þessu sinni til Suður-Ameríku, en i fyrra voru farnar allmargar ferðir þangað með Heklu. Þegar Geysir kemur hing- að frá Ítalíu, tekur hún nokkra farþega í Reykjavík, sem ætla vestur um haf til New York. De Gauíle ræðir við blaðamenn De Gaulle ræddi við blaða- menn í gær. Ræddi hann um Ruhrmálin og varnarbanda- lag Vestur-Evrópu. Einnig krafðist hann nýrra kosninga í Frakklandi og lcvaðst ekki mundi telja sig bundinn af stjórnarskránni ef hann nái meirihluta í þinginu. L mn Umræður um frumvarp brezku stjórnarinnar um þjóð nýtingu járn- og stáliðnaðar- ins fóru enn fram í brezka þinginu í gær. íhaldsmenn hafa borið fram tillögu um að vísa máiinu frá. Málið verður enn til umræðu á morgun og er Morrison þá á moíiendaskrá en að ræðu hans lokinni verður gengið atkvæða um frávísunartil- löguna. Litla allsherjarþing- ið starfi í eitt ár Stjórnmáianefnd allsherj- arþingsins hélt fund í gær og flutti dr. Bunche þar ræðu. Lagði hann til að litla alls- herjarþingið yrði látið starfa í eitt ár eftir að þessu alls- herjarþingi lyki og fjalla um ýmis mál, sem úrlausnar biðu. Vesturveldin hafa svarað sáttatilmælum Lie og Ewatts Seg’pst ekkl sitja ráðstefuu hisi deilama fyrr en fliitningaSiaiminn til Berlínar sé aflétt. Vesturveldin þrjú hafa nú svarað sáttatilmælum Trj'ggve Lie og dr. Ewatts. Segja þau, að ekkz þurfi að minn- así á fjórveldaráðstefnu um Berlínardeiluna fyrr en Rússar hafi aflétt flutningabanninu tzl Berlínar. Þau segja einnig í svari sínu, að reyndar hafi verið allar hugsanlegar leiðir til sátta, en allt hafi til þessa strandað á óbilgirni og ill- vilja Rússa. Segja þau nú, að ekki hafi verið annað ráð til úr því sem komið var en að vísa deilunni til Öryggis- ráðsins, og þar sem það sé nú gert, sé Öryggisráðið eini rétti vettvangurinn til um- ræðna um þetta mál. Varðandi íjórveldaráðstefnu um Berlínardeiluna segja þau, að hún komi ekki til Bára blá - sjó- mannabókin 1948 í fyrra gaf Farmanna- og fiskimannasamband íslands út bók er nefnist Bára blá og er safn frásagna og ljóða um sjó og sæfarir. Var þetta eins konar árbók sjómanna 1947. Sá Gils Guðmundsson, ritstjóri, um útgáfuna og valdi efnið. Nú er Bára blá — sjómannabókin 1948 komin út og er með sama sniði og fyrr. Er þar margt frásagna og ljóða allt í stuttu máli, um sjómenn og sæfarir. Efnið er valið hvaöanæva, J,afnt gamalt sem nýtt. Mest af því er tekið úr áður prentuð- um ritum, en þar er einnig að finna frásagnir, sem ekki hafa sézt á prenti áður. Efnið virðist vel valiö’, frásagnir yfirleitt stuttar og ljóðum og Ijóðabrotum skotiö inn á milli. Er bókin því líkleg til þess að verða skemmtilegur og heppilegur lestur í stop- ulum tómstundum auk þess, sem þarna verður um að ræða ailstórt og vel valið safn sæ- farasagna, ef útgáfa þessara árbóka sambandsins heldur áfram. Bækurnar eru vand- aðar að frágangi og efni hæfi lega og vel þjappað saman. mála fyrr en Rússar hafi af- létt flutningabanninu til Berlínar, enda hafi þau margoft sett það að ófrávíkj- anlegu skilyrði fyrir siíkri ráðstefnu. Rússar hafa líka svarað til mælunum og segjast fagna þeim, þar sem í þeim birtist auknar vonir um sættir milli Rússa og vesturveldanna. Bramuglia forseti Öryggis- ráðsins mun að líkindum halda. . sáttaumleitunum.. í Berlínardeilunni áfram. Nýtt tímarit um andíeg mál Fyrir nokkru hóf göngu sína nýtt tímarit um andleg mál, sem gefið e.r út af fé- iaginu Alvara í Reykjavík. Ritstjörinn er Sigfús Eiíasson og flytur ritið einungis efni aldlegs efnis, dulheyrnir, bréf til biskupsins. Við landa mærin, kvæði eftir ritstjór- ann og margt fleira. Komin eru út tvö hefti af ritinu og er það hið vandaðasta að öllum ytri frágangi og prent- að á góðan pappír.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.