Tíminn - 23.01.1949, Side 4
TÍMINN, sunnudaginn 23. janúar 1949.
16. blað
Bessastaðir og Bessastaðakirkja
Þegar ríkisstjóri tók viS
völdum konungs hér á landi,
t’engum ,við loks íslenzkan
fljóðhöfðingja. Var þá nauð-
synlegt að fá strax þjóðhöfð-
ingjasetur. — Hiö forna höf-
uðból, Bessastaðir á Álfta- j
nesi, var af þáverandi eig- (
‘anda, Sigurði Jónassyni, af
xausn boðið fram sem gjöf til
þjóöhöfðingjaseturs, og var
það þegið. —
Þáverandi rikisstjóri, Sveinn
Björnsson, gerði áætlun um
nauðsynlegar endurbætur, •
ekki aðeins inni, heldur og
úti. Var þegar hafizt handa.
Smátt og smátt var bætt úr
og endurbætt. Allt var það
gert með hófsemi, en þó með
þeim myndarskap, sem alltaf
ainkennir Svein Björnsson. i
Nú er svo komið, að Bessa-
staðir blasa við hverjum
peim, sem þangað kemur.
Myndarlega hýst og vel setið
stórbýli með mikla nýrækt,
þar sem myndarlegur bú-
skapur er rekinn og margs
konar tilraunir eru gerðar
með góðum árangri. Sérstak-
lega eru korn- og línakrarn- ,
ir ánægjuleg sjón og hvöt
hverjum sem áhuga hefir fyr
ir framtíðarbúskap á íslandi.
Þeir, sem til þekkja, vita,
að forseti íslands, Sveinn
Björnsson, hefir verið lífið og
sálin og aðal-driffjöðrin í öll-
um þessum búnaðarfram-
kvæmdum á Bessastöðum.
Eitt var það þó, sem enn
var áfátt og kallaði eftir að-
gerð. Það var Bessastaða-
kirkja. Hún var hrörleg, fú-
m og lek og algerlega óvið-
unandi bæði sem safnaðar-
kirkja og kirkja æðsta höf-
uðbóls íslands. Forsetinn
hafði fundið til þessa lengi,
haft orð á því og hvatt til,
að úr þessu yrði bætt. Fyrir
rösku ári mun hann hafa
borið fram við ríkisstjórnina
ákveðin tilmæli um, að hafizt
yrði handa um þetta verk.
Ríkisstjórnin sá, að þetta var
nauðsynlegt og ákvað að láta
fara fram gagngerða viðgerð
á kirkjunni. Verkið var falið
hinum reynda og ágæta
starfsmanni ríkisins, húsa-
meistara Guðjóni Samúels-
syni. Aðgjörðum er fyrir
nokkru lokið. Bessastaða-
kirkja er fullgerð, og hin
vandaðasta, hið prýðilegasta
guðshús, sem um komandi ár
og.aldir getur rækt sitt tvö-
falda hlutverk að vera safn-
aðarkirkja á Álftanesi og
kirkja þjóðhöfðingja íslands.
Þökk sé þeim öllum, sem að
þessu þarfa verki hafa unn-
ið. —
Svo undarlega hefir brugð-
.i$ við, að síðan þetta verk
var framkvæmt, hefir verið
um það ókyrrð og ófriður.
Fyrst byrjuðu skrif og ræður
’ um, að með breytingunum
væri kirkjan skemmd, helgi
hennar svipt af henni. Allir
. þeir, sem sáu kirkjuna áður
‘og sjá hana nú, vita um hina
stórmiklu framför, serrr orðin
ér. Síðan var rætt um, að að-
gerðin væri of dýr. Hvað er
það nú hér á landi, sem ekki
er dýrt?
En það undarlegasta er þó,
að síðan kirkjan var aftur
tekin í notkun, hefir ekki
iinnt ónotum, einnig til sjálfs
þjóðhöfðingjans, í sambandi
við kirkjuna. Eru í blaðaskrif
um bornar fram ásakanir og
aðfinnslur, en hér verður að-
eins bent á tvennt.
Að því er fundiö, að við
vígslu kirkjunnar voru tekin
frá sæti fyrir ríkisstjórnina
og fulltrúa erlendra þjóðhöfð
ingja, alþingismenn og
nokkra gesti aöra. — í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík er það
oi’ðinn siður, að ríkisstjórn-
in lætur taka frá mikið rúm
fyrir séi’staklega boðna gesti
við margar guðsþjónustur.
Og sú venja er ævagömul, og
er enn í Dómkirkjunni, að
hvað full sem kirkjan er, er
haldið lokuðum nokkrum
bekkjum handa vissum emb-
ættismönnum. Hvaða ástæða
er til sérstakrar aðfinnslu í
Bessastaðakirkj u ?
Nýlega birtist rætin grein,
þar sem m. a. er sagt frá, að
aðeins dauf ljós hafi lýst upp
Bessastaöakirkju á gamlárs-
kvöld, þar til sóknarprestur-
inn og forseti hafi gengið í
kirkju, þá hafi öll Ijós kirkj-
unnar verið kveikt. Út af
þessu er svo lagt með óvið-
eigandi skýringum og útúr-
snúningum. Nú hagar svo til
í Bessastaðakirkju, að í stað
altaristöflu er útskorin
Kristsmynd á krossi. Ljósi er
þannig fyrir komið, að ljós-
kastari í lofti varpar skærri
birtu á myndina, 'en vegg-
Ijós lýsa kirkjuna sjálfa. —
Það er alveg sérstakur há-
tíðar- og helgiblær í kirkj-
unni, þegar ljósið frá ljós-
kastaranum lýsir upp Krists-
líkneskið og kórinn. Þannig
var ástatt, þegar gengið var
í kirkju á gamlárskvöld, —
Og í Dómkirkjunni í Reykja-
vík er sú venja, eins og í
mörgum öðrum kirkjum, sem
rafljós hafa, að meðan söfn-
uðurinn safnast saman, eru
áðeins lítil Ijós tendruð, en
um Íéið og prestur gengur í
kór og . guðsþjónustap byrj-
ar, er allt ljóshaf kirkjunn-
ar tendrað. — Fer þetta vel,
og er flestum hugleikið. —
Blaðið Tíminn, blað bænda
á íslandi, hefir hvað eftir
annað verið með slettur í
þessu máli. Hvað veldur? Er
það löngunin til að draga allt
og alla niður í dægurþras og
ríg? Má ekkert lengur vera
heilagt, háleitt eða ofar
venjulegu aui’kasti blaðanna?
Ekki þarf þó blaðið að halda,
að bændur á íslandi meti
ekki það sem vel er gert. Þeir
meta það og þakka, en fyrir-
líta nartið og riöldrið. Þeir
unna kirkju landsins og
skilja hlutverk hennar. Þeir
meta þjóðhöfðingja landsins,
hinn mætasta mann, sem
með mikilli skyldurækni og
trúmennsku hefir starfað fyr
ir þjóðina langt líf, sem í
ríkisstjóra- og forsetatíð
sinni hefir hvað eftir annað
sýnt yfirburðahæfileika síná
í þessari æðstu stöðu lands-
ins.
Bændur landsins, eins og
sjómenn og verkamenn, óska
þess, að þessi litla þjóð, ekki
síður en þær stærri, megi
eiga einn embættismann,
sem geti verið sameiningar-
tákn þjóðarinnar, þjóðhöfð-
ingja, sem allir geta litið upp
til. Fólkið hefir sýnt það
sjálft, alls staðar á landinu,
þegar Sveinn Björnsson ferð-
aöist um það fyrir nokkru.
Það sýndi sig árið 1945, þeg-
ar Sveinn Björnsson var sjálf
kjörinn forseti, og enn mun
fólkiö í landinu óska eftir að
fá að sýna það við forseta-
•kjörið á þessu ári.
Bóndasonur.
*
Tímanum er ánægja að því
að birta þessa grein, en telur
það á misskilningi byggt, að
hér í blaðinu hafi verið haft
í frammi nart eða sletbur í
garð kirkjunnar eða forset-
ans í sambandi við þetta mál.
Hinsvegar geta skoðanir ver-
ið skiptar um ýms minnihátt
ar framkvæmdaatriði, og þarf
það ekki að spilla fyrir góð-
um málum, nema síður sé,
þótt það sé rætt opinberléga.
Ritstj.
Leiðrétting og afsökunarbeiðni
I tilefni af grein minni, sem
birtist hér í blaðinu 19. þ. m.
verð ég að taka fram eftirfar
andi atriði:
Þar sem sagt er frá átökun
um um það, hvort áfengi
skyldi haft um hönd í skólan
um á ísafirði er leiðinleg mis
sögn. Tiþaga um að svo skyldi
ekki vera var samþykkt í
bæjarstjórninni og greiddi
fulltrúi sósíalista og einn full
trúi Sjálfstæðismanna henni
atkvæði auk Alþýðuflokks-
mannanna.
Ranghermi mitt bið ég
hlutaðeigendur að virða á
betri veg og fyrirgefa ef þeir
geta. Það var ekki ætlun min
að gera þessi mál á neinn hátt
að persónulegu rógsmáli, en
aðeins að vekja athygli á
þeim ágreiningi, sem um það
er, hvort hafa skuli áfengi
um hönd í skólum hins opin-
bera.
í öðru lagi vænti ég, að þau
ummæli, sem ég hef um þaö,
að siðspilling stafi af því að
lögvernda áfengisverzlun í
landinu, verði ekki tekin sem
ádeila á Áfengsverzlun ríkis-
V
♦
t
l
l
t
t
t
ins sem stofnun eða starfs-
memx hennar. Hitt munu flest
ir hafa heyrt, að sagt væri
sem svo um vafasamar ráð-
stafanir, að það væri ekki
verra en að flytj a inn og selj a
brennivín. Og þannig vildi ég
ræða þetta málefnilega.
Halldór Krlstjánsson
Lækjargötu 10 B. Siml 6530.
Annast sölu fastelgna, sklpa,
bifreiða o. fl. Ennfremur alls
konar tryggingar, svo sem
brunatryggmgar, innbús-, líí
tryggingar o. fl. I xxmboði Sjó-
vátryggingarfélag íslands h.
f. Viðtalstími alla virka daga
kl. 10—5 aðra tima eftlr sam-
komulagi.
Augtýsingasími
Tímans er nú
81300
i
♦
I
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiio
| Hafnarf jörður
Auglýsing um lögtak
I ógreiddra gjalda til bæjar-
sjóðs Hafnarfjarðar
Samkvæmt kröfu bæjarstjórans í Hafnarfirði úr-
| skurðast hér með lögtök fyrir ógreiddum útsvörum til
1 bæjarsjóðs Hafnarfjarðar, er féllu í gjalddaga 1. marz,
Í 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst, 1. september,
| 1. október og 1. nóvember.
Ennfremur úrskurðast lögtak fyrir fasteignaskatti
i og fasteignagjöldum, er féllu í gjalddaga 1. janúar og -
[ 1. júlí 1948.
Lögtakið verður framkvæmt fyrir gjöldunum með
I dráttarvöxtum og kostnaði að átta dögum liðnum frá
í birtingu þessa úrskurðar, verði eigi gerð skil fyrir
I þann tíma.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, 20. janúar 1949.
Guðm. í. Guðmundsson.
riiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii^iiiiiiiiiii^iiii||itiiiiiiiiiitiiiiaiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiif
Gautagulrófufræ
rússneskt gulrófufræ, allskonar matjurta- og blóma-
fræ. (Pantað gegnum söllufélag garðýrkjumanna frá
A. Hansen.) Sendum gegn pöntunum um land; allt.
Blómaverzluuin Hvammur h.f.
(Sími 2434) Njálsgötu 65, Reykjavík.
i
náFUM FYRIRLIGGJANDS:
FISKILÍNUR
ÖNGLA
Iimkauiiadeil d
Landssambands ísl. líivegsmanna.
I
VANLJR
SKRIFSTDFUMAÐUR
óskast í rafmagnsdeild vora. Þarf að hafa kunnáttu
í enskri og danskri tungu.
SAMBANÖ ÍSL. SAMVIAMFÉLAÍiA
VÉLADEILD.
iiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiitiiiiiiiiiitiiitiiiiKrvrtrrrrffiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiv