Tíminn - 13.04.1949, Blaðsíða 2

Tíminn - 13.04.1949, Blaðsíða 2
2 TÍMINN, miðvikudaginn 13. apríl 1949. 76. blað í nótt. Næturlæknir er í lækn;_varðstof- unni í AusturbæjarskólantÆi, sími, 5030. Næturvörður er £ Ingólfs Apóteki, sími 1330 Næturakstur annast Litla Bilstöðin, sími 1380. Útvarpib í kvöld: Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 20.00 Fréttir. — 20.30 Kvöldvaka: a) Frásöguþáttur eftir Bjarna Jóns son fangavörð: Fyrsta sjóferð mín á þilskipi (Þulur flytur). b) Sigurð- ur Skagfield syngur lög eftir pró- fes^or Sveinbjörn Sveinbjörnsson með undirleik tónskáldsins (gaml- ar plötur). c) Upplestur (Einar Fáisson leikari). — 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.05 Passíusálm- ar. — 22.15 Óskalög. — 23.00 Dag- skrárlok, Hvar eru skipin? Sambandið. Hvassafell kemur væntanlega á morguh til Keflavíkur fré Álaborg, með sement þaðan. Laxfoss fer á morgun til Akraness ðg Borg- arness kl. 2.30 e. h. Frá Akranesi á suðurleið kl. 9 síðdegis. Einarsson & Zoega. Foldin fermir í Hull á miðviku- dag. Spaarnestroom er í Reykjavík. Reykjanes fór frá Vestmannaeyj- um s.i. sunnudag áleiðis til Amster dam. Ríkisskip. Esja var á Akureyri síðdegis í gær á vesturleið. Hekla fer frá Reykjavík kl. 24 í kvöld vestur um land til Akureyrar. Herðubreið er á Vestfjörðum á norðurlei.ð Skjald- breið er væntanleg til Reykjavík- ur í dag. Þyrill er í olíuflutningum í Faxaflóa. Flugferbir Flugfélag fslands. Gullfaxi fór til - Prestvíkur og Kaupmannahafnar í gormorgun með 42 farþega. Er væntsaiegur til baka um kl. 6 síðd. í dag, í gær voru farnar tvær serðir til Akureyrar, einnig flogið til Vest- mannaeyja og Keflavíkur. Loftleiðir. Geysir fór til New York í gær- morgun með 24 farþega. Ætlaði hann að fljúga í einúm áfanga og koma þá til New York um kl. 21.30 í gærkveldi. í gær var flogið tilt Akureyrar og Vestmarínaeyja. Biöð oa tímarit Gerpir. Marzhefti Gerpis er nýkomið. Fiytur það: Verðbólgan og atvinnu- vegirnir, eftir G. J. Hvað er sann- leikur, eftlr Vilhjálm Hjálmarsson. Um strönd og dal, (Mjóifjörður), eftir Hjálmar Vilhjálmsson og ým- islegt fleira er í þessu riti þeirra Austfirðinga Forsíðumyndin er af Hofsár- gljúfri í Mjóafirði. Úr ýmsum áttam Snjór. Mikill snjcr er hér víoa i upp- sveitum sunnanlands. Maður úr Biskupstungum, sem var á ferð i bænum í gær sagð þar í sveit svo mikinn snjó að slétt væri yfir allt af fönn. Síðaslliðinn laugardag fór maður á jeppa upp að Fornahvammi. Meö an hann stóð þar við gerði svo mikinn snjó í viðbót við þann sem fyrír var, að hann varð að skilja jeppann eftir og ganga langar leið- ir þangað sem bílfært var. Annars er mjög mikill snjór í íajf/ tíl heila öllum Norðurárdalnum og niður í Stafholtstungur. Frá forsætisráðuneytinu. Vegna orðróms, sem komið hef- ir upp í Kaupmannahöfn, um að forseti íslands liafi áformaö opin- bera heimsókn til Ðanmerkur, Noregs og Svíþjóðar skal það upp- lýýst að þetta hefir komið til tals, en nauðsynlegur undirbúningur hefir ekki verið geröur ennþá og því heldur ekki ákveðið hvenær | slik heimsókn verði, ef til kemur. I Frá Hafnarfirði. Framsóknarfélag Hafnarfjarðar lieldur fund í kvöld kl 8.30 í Vöru- bilastöðinni i Hafnarfirði. Veröur þar rætt um stjórnmála- viðhorfið og bæjarmálefni Hafnar- fjarðar. Hahdbók. utanríkisráðuneytisins 1949 átti að Vera í smáklausu hér í dálknum í gær, en ekki 1939 eins og misrit- ast haföi. Einherji. segir frá því að hinn vinsæli söng- vari Þorsteinn Hannesson muni koma heim í sumar og syngja opin- berlega. Einherji færir fram úr ensku blaði, sem dæmi um hve söngur Þorsteins líki vel þar úti á Eng- landi: „Hannesson er úrvalssöngvari. Hann er eins og fæddur Siegfield- sönvvari. eðlilegur hetjutenór, sem birtist beint út úr goðsögninni, og hann var alls ráðandi á leiksviðinu eins og honum ba.r“ í afarstóru húsi þar sem Þor- steinn söng, er þessi umsögn var um hann, þá lék 65 manna hljóm- sveit undir. Málverkasýning. Svavar Guðnason opnar mál- verkasýningu á morgun (skírdag) kl. 1 e. h. í Sýningarsal Ásmundar Sveinssonar að Freyjugötu 41. Mun Svavar sýna þar 20—30 olíu- málverk og nokkrar vatnslitamynd- Ræktarsemi. 1 nýkominni skýrslu Mennta- skólans í Reykjavík skólaárið 1947 til 1948, getur Pálmi rektor þess við skólauppsögn s.l. vor hafi Bjarni Jónsson fyrrv. banka stjóri flutt ræðu og afhent skól- anum að gjöf frá 50 ára stúdent- ! um málaoa mynd af Birni Jens- , syni. Einar B. Guðmundsson hæstaréttarlögmaður hafi talað ! og fært skólanum að gjöf frá 25 ára stúdentum málaða mynd af Boga Ólafssyni. Og Björn Þórðar son dr. juris hafi talað fyrir hönd nemendasambands skól- ans og tilkynnt að söfnun til Bi-æðrasjóðs væri nú lokið og hefðu safnast tvö hundruð þús- und krónur, sem síðar yrðu af- hentar. Loks gat rektor þess að tíu ára stúdentar hefðu afhent skólanum minningarsjóð Krist- jáns Tryggva Jóhannssonar, verkfræðings. ^Jéíacjóííj- SkiSafélag Reykjavíkur mælist til þess, að þeir meðlimir eða aðrir, sem njóta vilja gistingar eða geriða í Skíðaskálanum um hátíðina, noti skíðaíerðir þess að öðru jöfnu. Skiðaferðir alla dag- ana kl. 10. Fariö frá Austurvelli og Litlu Bílstöðinni. Farmiðar við bílána.. Hreinsum gólfteppi, einnig bólstruð húsgögn. Gólitcppa- hreinsuHÍn Barónsstíg—Skúlagötu. Sími 7360. Köld borð og lieitm* veizlumatur sendur út um allan bæ. SÍLD & FISKUR LEIKFÉLAG REYKJAVIKUR sýnir ll ♦♦ ♦« Draugaskipið I í dag kl. 3. — Miðasala frá kl. 2 e. h. p :: í; :: Anfi'án í páskum kl. 8. Miðasala í dag kl. 4—7. Sími 3191 « FLEYGT PENINGUM I vetur hefir einstaka sinnum hér i blaðinu verið leidd athygli að því dauðans leiðinda ráóle.vsi, að vera að skipuleggja fólks- og vöruflutn- inga inn fyrir Hvalfjörð, einkum þegar.þar er rnjög vond færð eða þyrfti að vera að moka snjó af veginum með ærnum kostnaði. En hins vegar. væri ágætur flóabátur, Laxfoss, hálftómur í ílestum feiö- um milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness. Gekk þetta svo langt aö farið var aö ráðgera að þyrfti aö neyð- ast til að selja Laxfoss, án þess að tími sá væri kominn, sem hann mætti missast frá sínu dýrmæta hlutverki, sem hann hefir innt af hendi síðan hann var smíðað'ur og á eftir að gera um einhverja fram- tíð ennþá. En þaö er víðar pottur brotinn i þessum efnUm, heldur en með flutningana íyrir Hvalfjörð. Nú er kominn góðm- skipa kostur til þess að annast strandferðirnar. En á sama tíma og þau skip skrölta hálf tóm meðfram ströndunum með miklum taprekstri, er veiið að moka snjó af fjallvegum óg draga far- artæki yfir þá með ærnum kostn- aði og erfiði. Þannig hefir póstur og farþegar, öðruhvoru síðan á nýjári, verð dregið norður yfir Holtavörðuheiði og stundum verið meira en dægur í þeim drætti. Hef- ir þetta verið oft liið versta verk og auðvitað ákaflega kostnaðar- samt. Meðal annars hafa verð átta bilstjórar á liáu kaupi við þetta ferðalag fyrir utan þá menn, sem liafa verið á jarðýtum og ýmis kon- ar öðrum verkfærum við snjóruðn- inginn. Þó að þetta séu duglegir menn og alls góðs maklegir, þá er þetta lítið ráðdeildarlegt hjá hinu opinbera, að vera -að henda tugum og hundruðum þúsunda króna nið ur í þessa kleppsvinnu. Þriðjutíaginn fyrir rúiBl. hálf- um mánuði síöan var t, d, farið að moka Keriingarskarö og var svo haldið áfrarn alla vikuna með jarð ýtu og fl. verkfærum og talsverð- um mannafla. Loks á sunnudag skröltu einstaka bílar í gegn Á mánudaginn strax, lokaðist vegur- | . • | mn alveg aftur og hefir verið ófær síðan. Einnig var farið að moka Öxnadalsheiði um hávetur! Það gegnir allt öðru máli þótt eitthi að sé’ mokað að vorinu á stöku stað- til þess aö flýta fyrir sumarakstrinum. En það er litiö vit i að fleygja peningum í snjómokstur á heiðum uppi um miðjan vetur, nema þá í sérstaklega aðkallandi þörf. Þegar traðirnar eru komnar eins og áKerl ingarskarði um daginn og Öxna- dalsheiði í vetur, skeflir jafnharð- j an niður í þær, þótt slarkast megi j máske eftir tröðunum eina dag- I stund. Á sama tíma þjóta skipin | meðfram ströndunum hálftóm á | skemmri iíma vestur í Stykkishólm og norður með landi, heldur en I verið er að brjótast á þessa staði j í gegnum snjófannirnar. | Nei, skipulagning á lítinn rétt á sér frá ríkisvaldinu, ef hún verður til þess að fleygja peningum til snjómoksturs á heiðunum. Og það verður svo aftur m. a. til þess að draga úr víðlialdi og nýlagningu vega, þar sem þeirra er mikil þörf. V. G. O O o o GLATT Á HJALLA KVÖLDSÝNIND í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8.30. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2. — Sími 2339. Dansað til kl. 1. hátíðarmatinn S V í N A K J 6 T í steik og kótelettur. * NAUTAKJÖT buff — gullash — hakk 3S«pinlaiESÍr fuglai* iílíkasvið — ílrvais iiangikíjöt Fólk er vinsamlega beðið a'ð gera innkaupin sem fyrst. Kjötbúöin KRON Skólavörðustíg 12. — Sími 2108. Vesturgötu 15. — Sími 4769 ♦♦♦♦•♦♦♦♦•♦♦♦♦♦*••♦♦♦♦♦»♦♦•♦♦♦♦<“♦••■♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦«... ... -*♦*♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦•♦••♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦••♦♦♦•♦♦♦♦•♦«• ♦•«♦•♦♦•♦♦♦' ngling vantár til þess að bera út blaðið í Túnin. T í M I N N Lindargötu 9 A. — Sími 2323. :: 1 :: >♦♦♦♦•♦♦♦•' ::::::::::::::::::::::::R»R«R::::a:«:::::RRR: Hefilbekkir Getum útvefaö litla hefilbekki, sérstaklega hentuga fyrir skóla og til notkunar í heimahúsum. — Þeir sem vildu tryggja sér slíka hefilbekki, eru beðnir að leggja inn pantanir sem fyrst. — Sýnishorn fyrirliggjandi. JárhVöruverzlun Jes Zimsen h.f. Reykjavík

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.