Tíminn - 17.05.1949, Qupperneq 2
2
TXMINN, þriðjudaglnn 17. maí 1949.
105. bla®
í nótt.
Næturlæknir verður í lækna-
v&rðstofunni í Austurbæjarskólan-
iim,, sími 5030. Næturvörður verð-
ur í Laugavegs apóteki, sími 1616.
Næturakstur annast Hreyfill, sími
6633.
Útvarpið
X kvöld.
19.30 Þingfréttir. — 20.00 Fréttir.
— 20.15 Útvarp frá Alþingi: Fram-
liald þriðju umræðu um frumvarp
til fjárlaga fyrir árið 1949 (eldhús-
dagsumræða). — 23.35 eða síðar:
Veðurfregnir.
Hvar eru skipin?
JEimskip
Brúarfoss er í Antwerpen. Detti-
foss er í Hull. Fjallfoss er í Ant-
werpen. Goðafoss var við Reykja-
nes í gær. Lagarfoss fór frá Gauta
borg 14. maí til ítvíkur. Reykja-
föss er í Vestmannaeyjum. Selfoss
er í Reykjavik. Tröllafoss er í New
York. Vatnjaökull er í Rvík.
Ríkisskip.
Esja er í Rvík. Hekla var á Reyð
arfirði í gærmorgun á norðurleið.
Herðubreið var á Bakkafirði síð-
degis í gær. Skjaldbrei ðer í Rvík.
Þyrill var í Stykkishólmi í gær.
Oddur var á Hvammstanga í gær-
morgun á xrorðurleið.
I^axfoss
fer til Borgarness og Akraness kl.
8 í fyrramálið og til Akraness kl.
7 síðdegis.
Sambandið.
Hvassafell er í Helsingfors og
lestar timbur til Norður- og Aust-
urlandsns.
Einarsson & Zoega.
Foldin er á förum frá Færeyjum,
væntanieg tii Rvíkur á miðviku-
dag. Lingestroom er í Borgarnesi.
Er brúarefnið frá Bretlandi og
eru um 200 smálestir af járni ný-
lcomnar þaðan hingað til Reykja-
víkur, með Vatnajökli. Er nú ver-
ið að reyna aö laga veginn austur
yfir Hellisheiði með jarðýtum, sem
veriö hafa þar að vinna undan-
farið, og tveim vegheflum, sem
sendir voru austur á heiðina í gær.
Ætlunin er svo að flytja járnið
til Þjórsár hið fyrsta að fært verð-
ur með tengivagna austur yfir Hell
isheiðina.
Vestur í Dali.
Undanfarið hefir verið að moka
snjó af veginum á Bröttubrekku.
Fór bifreið vestur í Dali s.l. föstu-
dag, en komst ekki til baka aftur
fyrr en búið var á ný að moka snjó
úr snjótröðunum, sem skafið hafði
í þær meðan bifreiðin var vestra.
Næstkomandi föstudag er gert
ráö fyrir, að áætlunai'bifreið héð-
an reyni að fara vestur.
Til Vestmannaeyja.
í gær flaug flugvél frá Flugfé-
lagi íslands til Vestmannaeyja með
leikflokk Templara, er ætlaði að
leika í Vestmannaeyjum í gær-
kvöldi. en flugvélin átti að bíða
þar á meðan og koma til baka í
j nótt sem leiö.
Flugvéiarnar eru orðnar þægi-
. legt farartæki.
Byggingalóxjir.
Á síðasta bæjarráðsfundi var sam
þykkt að afturkalla úthlutun allra
byggingarlóða i Reykjavík til íbúð
arhúsabygginga, þar sem ekki er-
unnið að framkvæmdum við bygg-
ingar. Var borgax'stjóra falið að til-
kynna þetta viðkomandi mönnum,
en listi yfir þá hafði verið lagður
fram.
Þykja falleaar vestra.
Lögberg segir frá þvi nýlega, að
Flugferðir
Flugfélag' íslands.
Gullfaxi fór í morgun til Prest-
víkur og London með 35 farþega.
Væntanlegur til baka á morgun.
í gær var flogið tii Akureyrar og
tvisvar til Vestmannaeyja.
Ijoftleiðir.
Hekla fór í morgun til Stokk-
hólms og Kaupmannahafnar með
35 farþega. Væntanleg til baka á
morgun síðdegis.
í gær var flogið til Akureyrar
tvisvar), Vestmannaeyja (týisvar),
Sands (tvisvar), Hólmavíkur og
ísáfjarðar.
Árnað heitla
Sextus: í dag.
í dag er sextug Guörún Jóhanns
dóttir húsfreyja í Sandvík á Akra-
nesi. Hún er gift Jóni Péturssyni
fiskvigtarmanni og eiga þau hjón-
in sjö börn, sem öll eru uppkomin.
Þau lijónin eru búin að búa í Sand
vík á Akranesi í fjölda mörg ár og
er heimili þeirra mjög myndarlegt.
Frú Guðrún er fædd og alin upp
vestur í Staðarsveit á Snæfells-
nesi.
Áttræð.
í dag á 80 ára afmæli merkis- og
myndai-konan Áslaug Torfadóttir
(frá Ólafsdal), að Ljótsstöðum í
Laxárda! í Suður-Þingeyjarsýslu.
Úr ýmsum áttum
Þjórsárbrúin.
í sumar á að leggja nýja brú yfir
Þjórsá. Eru farnir austur 10—20
menn að vinna að brúargerðinni,
þar á meðal 5 Bretar, sem unnu
við brún.rsmxðina á Jökulsá á Fjöil-
um.
þar í Winnipeg hafi fjöldi félaga
valið sameiginlega stúlku af ís-
lenzkum ættum til að vera fegurð-
ardrotnting sína. Heitir hún Gloria
Gray (ekki mjög íslenzkt nafnið)
og hafi hún fengiö nafnbótina:
Miss Wimripeg fyrir árið 1949.
Áður hefir Mbl. sagt mikið frá
heiðri, er dóttir sendiherrahjón-
anna íslenzku í Washington hlaut,
er hún var kosin „drottníng" á
samkomu vestan hafs.
Mánudagur til mæð'u.
Götublað eitt, sem langar til
þess að illskast eitthvað við Tím-
ann og stai'fsmenn hans og kenn-
ir sig við mánudaginn, fann helzt
fróun i því í gær að tilfæra tölur,
sem mispre.ntast höfðu í Tímanum
fyrir nokkru og allir nema þeir
allra þéttheimskustu gátu skilið að
var prentvilla.
Matjurtabókin.
Ein af þeim vaxandi atvinnu-
greinum, sem benda á framför í
þjóðlífinu, er garðyrkjan. Garö-
yrkjufélag íslands hefir lengi ver-
ið til, en ekki alltaf boriö mikið á
því, þó hefir það gefið út ársrit
af og til eíðan skömmu eftir alda-
mótin. Nú virðist félagið vera að
færast í aukana. Er það nýbúið að
gefa út allstóra bók i stað ársrits-
ins, er nefirist: Matjurtabókin. —
Þetta er yfir 100 bls. bók í allstóru
broti og hefir inni að halda marg-
háttaðar leiöbeiningar um ræktun
matjurta. í ritnefnd bókarinnar
eru fimm einhverjir fremstu garð-
yrkjuxnenn landsins.
Þó að mikið sé gefið út af bók-
um, er fagnaðarefni að hverri góöri
bók, seih leiðbeinir og fræðir vel
um hagnýt mál, er þjóðarheiil
kx'efst að sé fullur sómi sýndur.
Hugheilar hjartans þakkir til allra fjær og nær sem
sýndu mér vináttu með heimsókn, gjöfum og skeyt-
um á sjötugsafmæli mínu 17. apríl.
Þorsteinn Bjarnason, Garðakoti.
HiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiniiiiiiiiiiiiiiHiiuiiitiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiuiiiiiiii.’i
1 Yfirljósmóðurstaðan (
1 við fæðingadeild Landspítalans er laus til umsóknar. §
1 Umsóknir sendist til skrifstofu ríkisspítalanna fyrir \
| 1. ágúst næstkomandi. §
Staðan verður veitt frá 1. október. I
f i
Reykjavík, 13. maí 1949
I ;í
1 Stjórnarnefnd ríkisspítalanna.
= 1
i i
HIHIUUUUIHlllHUIIIIHIIIIIUIHHHIIHHIIIIIIIIIIIIIIHlUHIHIHHIHIIIIIIIIIIIIIIIIHIUIHIIIIIHIIÍlllllllllHIIHIHIIllllim
«
8
AugbjAii í Tíjnahm
Gesíahei mili — Samkomustaðui
Framsóknarmenn eru að stofna
tii hapþdrættis fyrir húsbygging-
arjsóð sinn.
Rétt fyrir styi'jöldina var komin
dálítil hreyfing á að koina upp
saxnkomustað og gestaheimili
Framsóknarmanna í Reykjavík.
En það fékk samt litinn byr hjá
ýmsum þáverandi ráðamönnum
ilokksins og varð minna úr hreyf-
ingúnni heldur en skyldi.
Þó gáfu ýmsir — aðallega óbreytt
ir liðsmenn — dálítið af pening-
um til sjóðmyndunar i þessu
skyni og var myndaöur húsbygg-
ingarsjóður, er skiptir nú fáeinum
■ tugum þúsunda ki'óna.
| Sjóðurinn hefir aukizt fremur
; liægt að krónutölu, og öllum
I cr kunnugt um, hvernig þjóöfélag-
iö hefir gert alla slíka sjóði verð-
litla, þótt þægilegt sé fyrir það og
j einstaklingana aö hafa þá fyrir
veltufé.
Nú hefir verið ákveöið að gera
dálítið átak til muna og afla sjóðn-
um fjár meö happdrætti.
Máske finnst mörgum yfirfullt af
happdrættum. En þar sem heild-
arsamtök Framsóknarmanna haía
aldrei áður reynt þessa fjáröflun-
, arleið, er fastlega vænzt eftir, að
, happdrættinu verði vel tekið um
. land allt.
! Það eru áreiðanlega margir, sem
j vilja styðja að þessu húsbygging-
! armáli, en margir þeirra, sem ekki
kunna við að vera að senda sjóðn-
| um 10—20 krónur, cn nota þá held-
J ur tækifærið að kaupa 1—2 happ-
, drættismiða. Og sá. er vildi senda
i sjóðnum 50—100 krónur, honum
I á að vera eins hugljúft að kaupa
með innbyggðum vask og skápum til sölu. Upplýsingar
::
«
aö Fossmúla á Selfossi.
«
••
♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦•♦♦••♦♦♦♦••»♦.
■•*•♦♦♦♦♦♦♦♦♦**♦♦*♦♦•»♦♦♦♦♦.
IIHHIIHIIHIHIIIIIIIIIIIHIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIHHIIIHIIIIIIIII
III■IIHIHII]IHH1JIIIIIIIHIHHIHIIHHIIIIIHII•IIIHHHH9
iTILKYNNINGj
I Nr. 13/1949
| Viðskiptanefndin hefir ákveðið eftirfarandi há- §
l marksverð á benzíni og olíum frá og með 17. maí 1949 |
I að telja: 1
1. Benzín .................... kr. 0.96 pr. ltr. |
I 2. Hráolía ..................... — 350.00 pr. tonn |
3. Ljósolía ................... — 640.00 pr. tonn |
AÖ öðru leyti eru ákvæði tilkynningar viðskiptaráðs |
I frá 10. júlí 1947 áfram í gildi. Söluslcattur á benzíni og |
| ljósaolíu er innifalinn í veröinu. |
Reykjavík, 16. maí 1949.
| Verðlagsstjórinn [
IIIIHinillllHIIIIIIIIIIIIIHHIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIHIIIHIIIIIHHIIIIIIIIIIIHHIIHIHIIIHIIIIIIHIHIIIHHIIIIIIIIIHIIIHIIlHHHIII)
5—10 miða. í viðbót við að láta
kröuurnar til styrktar málefninu,
er þó alltaf vonin í góðurn vinn-
ingum.
Nú munu máske einhverjir
mæla: Eru ckki komnar nógar
byggingar í Reykjavík? Máske er
það. Og ekki er heldur víst, að
þurfi að byggja nýtt, heldur aðeins
laga"" til eldra hús, a. m. k. til
bráðabh'gða.
En áreiðanlega vantar snoturt.
heimili fyrir ferðamenn 1 höfuð-
staðnum. Höfuðgtaðurinn er þó
líka alltaf höfuðstaður og sómi
hans er sómi allrar þjóðarinnar,
þótt yfirgangur - hans við aðra
landshluta þurfi að vera í hófi.
Góðar veitingastofur með góðum,
einföldum, íslenzkum mat, ekki
mjög dýrum, væru dýrmætar, en
þó sérstaklega lítil, lagleg svefn-
herbergi með viðráðanlegu verði.
Og á margan hátt væri hægt að'
gera þetta vistlegan stað.
Væri ólíkt betra fyrir menn ut-
an af landi að geta átt slíkt sam-
eiginlegt lieimili í höfuðstaðnum,
þar sem þeir þurfa svo oft að
koma og dvelja um tíma, heldur en
að vera tætt.ir hingað og þangað
um bæinn og fá máske stundum
tæpast húsaskjól. j
Feröamannaheimili svipað og
tíðkast hjá norsku ungmennafélög
unum í bæjunum þar í landi og
víöa hjá ýmsum félögum erlendis,
væri sannkallaö þjóðþrifamál að
reka í höfuðstuðnum. Og stendur
nærri skyldu Framsóknarmanna
að beita séf .fyrir slíliu máli.
V. G.
*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
Frístundamálara Laugaveg 166, opin daglega kl.
|| 1—11 e.h. :|
?! §
•♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦*•♦•♦♦♦♦♦♦*♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦•♦♦♦♦♦•♦♦♦•♦•♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦*•♦••*•«••♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦-•♦♦••♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦••♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦Ý*v
Leigugaröar bæjarins
Þeir garðleigendur, sem enn hafa ekki gert aðvart
um, hvort þeir óski eftir að nota garða sína í sumar,
eru hér með áminntir um að gera það nú þegar, og
greiða leiguna í skrifstofu minni i síðasta lagi föstu-
daginn 20. þ. m. að öörum kosti verða garðarnir leigðir
öðrum.
Skrifstofan er opin daglega kl. 10—12 og 1—3 nema
laugardaga aðeins kl. 10—12.
Baejarverkfræðingur