Tíminn - 18.05.1949, Síða 2
2
TÍMINN, miðvikudaginn 18. maí 1949.
108. blaff
'Jrá hafi tii keiia
Leikfélag' Rcykjavíkur sýnlr
HÁMLET
í nótt. !
Næturlæknir verður í lækna-
varðstofunni í Austurbæjarskólan- í
um, sími 5030. Næturvörður verð-
ur í Laugavegs apóteki, sími 1616. 1
Næturakstur annast Hreyfill, sími
6633.
Útvarpið
J kvöld.
19.30 Þingfréttir. — 20.00 Préttir.
— 20.30 Erindi: Danskt hervald
gegn íslenzkum bónda (Ragnar Jó-
hannesson skólastjóri). — 21.00
Tónleikar: Strengjakvartett í B-
dúr eftir Mozart,— 21.25 Söngur og
upplestur: Draumkvæðið norska, í
þýðingu Kristjáns Eldjárns þjóð-
minjavarðar. — 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. — 22.05 Danslög (plöt
ur) ti 12.230.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip.
Esja fer frá Reykjavík kl. 112 á
hádegi í dag vestur um land í hring
ferð. Hekla var á Borgarfirði
eystr ía gær á norðurleið. Herðu-
breið er á leið frá Austfjörðum til
Reykjavíkur. Skjaldbreði er í Rvík.
Þyrill var á Kollafirði í gær.
Laxfoss i
fer til Akraness og' Borgarness kl.
8 í fyrramálið.
Einarsson & Zoega.
Foldin fór frá Færeyjum kl. 6 á
mánudag, væntanleg til Reykja-
.víkur síðdegis á fimmtudag. Linges
troom er í Stykkisliólmi.
Eimskip
Brúarfoss kom til Antwerpen 16.
maí frá Griinsby. Dettifoss er í
Hull. Fjallfoss er í Antwerpen.
Goðafoss var væntanlegur til Ak-
ureyarr í gærkvöldi. Lagarfoss er
væntanelgur til Reykjavíkur ár-
degis í dag frá Gautaborg og Kaup
mannahöfn. Reykjafoss er í Vest-
mannaeyjum, fer þaðan í dag til
Hamborgar. Selfoss fór frá Rvík í
gærkvöidi til Immingham og' Ant-
werpen. Tröllafoss er í New York.
Vatnajökull kom til Reykjavíkur
16. maí frá Leith.
Fíugferbir
Flugfúlag íslands.
Gullfaxi er væntanlegur í dag ki.
5.30 síöd. frá London og Prestvík.
í gær var flogið tii Akureyrar,
Vestmannaeyja og Seyðisfjarðar.
Loftlciðir.
Hekia er væntanleg frá Kaup-
mannahöfn og Stokkhólmi í dag.
í gær var flogið til Akureyrar,
Vestmannaevja (2 ferðir), Flateyr-
ar, Patreksfjarðar og ísafjarðar.
Árnað heilla
Attræður.
Hinti kunni öldungur og athafna
maður Páll Stefánsson frá Þverá
er 80 ára í dag. Páll er óvenjuleg-
ur maður, nokkuð harðyrtur stund-
um, en höfðingi i lund og drengur
hinn bezti, segja þeir, sem bezt
þekkja liann.
Trúlofanir.
Um síðustu lielgi birtu hjúskap-
arheit sitt ungfrú Guðiún Guðjóns
dóttir frá Djúpavogi og Gunnlaug-
ur Sigurðsson, Stafafelli.
Um síðustu helgi birtu hjúskap-
arheit sitt ungfrú Sigríður Markús
dóttir .Drápuhlíð 28 og Sófus
Bender bifreiðastjóri, Mjóuhlíð 12.
Úr ýmsum áttum
Gestir í bænum.
Ingimunduv Jónsson bóndi að
Brekku í Núpnsveit. Helgi Ólafs-
son útibússtjóri á Stokbseyri, Sverr
ir Críslaso'n bóndi í Hvamcr.i, Gunn
laugur Magnússon bóndi að Mið-
felli í Hrunamannahreppi.
Vegirnir.
Verið er að ryðja Höfðabrekku-
heiði, búð aö ryðja Skaftártung-
úna. — Gert er ráð fyrir, að ak-
fært verði aila leið til Kirkjubæj-
arklausturs eftir eins og tvo daga.
Mosfellsheiði varð fær í gær og er
verið að laga veginn í dag. Kerl-
ingarskarð kvað/ vera orðiö slark-
fært. Brattabrekka er líka fær. En
nokkuð erfitt fyrir bíla að mætast
þar í iöngum og ajúpum snjótröð-
um. Byrjað er að moka upp í Holta
vörðuheiðinni beggja megin frá.
Er ætlunin að komast að sunnan
a.m.k. upp að Hæðarsteini og að
norðan upp að Dældarlæk. En ekki
er afráöið enn, hvort háheiðin
verðu rmokuð þá strax á eftir.
Úr Hrunamannahreppi.
Maður frá Tímanum átti ta.l.j
gær við Gunnlaug Magnússon,
Miðfelli i Hrunamannalrreppi.
Kvað Gunnlaugur allt fé vera á
gjöf þar eystra. engin nbúinn að
sleppa. Ær væru að byrja að bera.
Allur fénaður væri í ágætum hold-
um, en lítið væri orðið um hey hjá
einstaka manni.
Félagslíf væri hið bezta i sveit-
inni. Unga fólkið færi ekki í burtu,
eða þó að það færi um tíma, kæmi
þaö aftur. Ungmennafélagið væri
prýðilega lifandi og héldi uppi
skemmtunum og menningu í sveit-
inni. Söngkór, sjónleikir, íþrcttir:
sund, leikfimi o. s. frv. gerði lííið
tilbreytingaríkára og tilgangsmeira
fyrir æskufólkiö. Skárphéðinsmót-
ið yrði að Flúðum 29. þ. m.
Á Flúðum væri að myndast smá-
þorp og væri búið að gera skipu-
lagsuppdrátt aó því. Þar væri garð
rækt, smáiðr.aöur o. s. frv. Jarð-
ir, sem hefðu farið í eyði í sveit-
, inni, væru að byggjast aftur og
sjáifstæðum búendum væri talsvert
' að fjölga.
F.|árskipti.
Atkvæðagreiösiu þeirri, sem fara
átti fram meðal fjáreigenda á Snæ
íellsnesi um fjárskipti er nú lokið.
Fór'hún fram í átta hreppum, eða
! i öllum hreppunum, sem eru fyrir
; vestan varnargirðinguna, er liggur
úr Skógarnesi i Álftafjörð.
Nægur meirihluti greiddi at-
kvæði með fjárskiptunum. Er ósk
fjáreigenda, að f járskiptin fari
j fram á næstkomandi hausti.
Flugvallarmenn.
Auglýst er nú eítir ýmsum starfs
mönnum til þjálfunar á Keflavík-
urflugvelli. Er það vel farið og
bráðnauðsynlegt að íslendingar
þjálfist í sem flestu, er að flug-
vallarstörfum lýtur. Þess meiri lík-
ur eru til, að íslendingar g'eti al-
gerlega tckið starfrækslu flugvall-
anna í síriar hendur — og er það
einkum Keflavikurflugvöllurinn,
sem þá er um að ræða.
EHiheimili.
ísiendingarnir vestra eru nýbún-
ir að koma upp ellihcimili i Blaine
vestur undir Kvrrahafi. Tók það
til starfa í febrúarb'yrjun i vetur.
Sr í því um 20 gamalt fólk, allt
íslerizkt, en getur tekið um 30
manns.
Heldur er að heyra, nð fjarhag-
uririn sé .hrcngur, en þe:r cru scig-
ir ís'endingarnir vestra. að kiiúfa
ýmsan rekstur meðai h'ns dréifða,
j ];t!s þjóðrrbróts — og allt með
f: iálsum framlögum fórnfúsra og
þióörark'nnn knrla og kvenna, er
sln. nldur s'nn larigt frá siri'ri
göm’u ættjörð.
SVEiTALIFIÐ
Þegar vorar, lifnar yfír flestu. ;
Þó ber meira á því í sveitunum
heldur en kaupstööunum. Þá er.
ungviðið að fæðast. Lömbin leika
sér um hóla og börð og folöldin
hlaupa á liarða sprettum í iiagan- !
um, farfuglarnir, sem nýkomnir j
eru sunnan yfir veglaus höf á æsku
stöðvar sínar, syngja án afláts í
ástaþrá og fögnuði að vera nú al- ;
frjálsir hér norður á þessu fjalla-
landi.
Og þá eru þaö ekki sízt börnin,
sem fagna vorinu, þótt þau yndu
sér vel við að vaöa snjóinn, fara
á skiðum og skautum, við að
byggja sér snjóhús og snjókerling-
ar að vetrinum, þá er þó meira
gaman að „búa" úti í holti eða hól,
þegar blessað vorið er komið.
Og bóndinn hefir mörgu að ,
sinna: slóðadraga túnið, hugsa um
skepnurnar, laga húsin og máske
reisa ný, dreifa útlenda áburðin-
um á grcðurlendið, setja í garð-
ana, brjóta nýtt land til ræktunar,
stækka trjáreitina, laga girðing-
arnar og ótal mörg verkefni knýja
bóndann til dáða, þegar vorið er
komið.
Þá er ekki lilutur liúsfreyjunnar
minnstur. Húsverkin eru þar
drýgst og virðast nær óþrjótandi.
En vorið kemur lika í bæinn. Hús-
móðirin viðrar allt úti úr bænum,
hreinsar, þvær og sópar, skiptir
um mold á innib'.ómunum sínum,
fegrar og prýðir ailt.
,,B!essað er inni bjart og hlýtt
hjá börnunum eiskulegu'',
— þeim minnstu.
En nú eru ílest barnanna úti.
Þatt eru örugg, glöð og kát við
ieik og stnrf úti í friðsælli náttúr-
unni. Sveitakonan þarf ekki eins
og stallsystur hennar í kaupstöð-
unum að vera sí og æ hrædd uni,
að henni sé fært barnið sitt stór-
slasað eða liðið lík, af því að það
hafi orðið undir bíl.
Nei, öryggi og friðsæld sveitar-
innar vegur svo vel upp á móti
mörgu því, sem kaupstaöirnir hafa
að bjóöa.
Og þegar timi gefst, fer sveita-
konan út til staría. Hún fer að
laga til trén í garðinum sínum, og
jafnvel planta nýjum, hún sáir í
og lagar blóma- og matjurtabeö-
in sín.
Hún tekur innilega þátt i — a.
m. k. í huganum — störfum bónda
síns. sem er að brjóta nýtt land,
sá i nýja sléttu, láta græna túnið
umhverfis bæinn þeirra verða
stærra og fallegra og þar með að
tryggja og bæta lífr.afkomu hjón-
anna og barnanna þeirra í fram-
tíðinni. Hún grípur jafnvel í aö
mála húsin úti og inni og gleðst
yfir því, að með því verður heim-
ilið fegurra og meira aðiaðandi.
Allsstaðar eru nóg verkefni, og
við að leysa þau eykst ánægjan,
öryggistilfinningin, og sköpunar-
þráin, sem hverjum manni er i
blóð borin, fær meiri útrás og
tækifæri úti í sveitunum heldur en
í tækifæraskortinum, þar sem
máske ekkert svigrúm er nema
griót og ryk götunnar.
í sveitunum er stundum erfitt, en
a.m.k. þegar vorar, er þar marg-
háttaður, athygksverður og yndir-
legur gróand i— gróandi, sem hver
viðkvæm sál hlýtur að verða
snortin af — þótt það sé stund-
um óafvitandi: V. G.
^ í kvöld kl. 8. — Miðasala í dag frá kl. 2
♦ Aögöngumiðar að síðustu sýningu, sem féll niður
I vegna veikinda Lárusar Pálssonar gilda í kvöld.
♦ Sími 3191
t
VDRIÐ ER KE3MIÐ
KVDLDSÝNING
í Sjálfstæöishúsinu í kvöld kl. 8,30
Aögöngumiðar seldir frá kl. 2. Sími 2339
Dansað til kl. 1
Fiugféiags íslands h.f
» V.
veröur haldinn í Kaupþingssalnum í Reykjavík, föstu
daginn 24. júni 1949 kl. 2 e. h.
DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar aö fundinum og atkvæðaseðlar verða
afhentir í skrifstofu félagsins, Lsékjargötu 4, dagana
22. og 23. júní
STJÓRNIN
«
8
1
n
•■>
H
h
i ■ ii iiii iin i n i ii iiiiiiiiiiiiiiHiiimiimiiiiu 11111111 in
iiMnmniinininiiiiMiininimiiiiiiiiinnnniiinniinuiii
Aðstoðarráðskonu
vantar í Þvottahús Landspítalans frá 1. júní n.k Um-
sóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist til
skrifstofu ríkisspítalanna fyrir næstkomandi mánaða
mót.
innnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnniinnnnnnnnnnninnnniiinniniinniiiiM
*♦♦•♦♦♦♦♦•♦*♦♦♦•♦•♦^**♦♦♦♦♦••♦♦♦♦•♦♦•••♦♦♦•♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦•*♦•♦♦♦♦♦♦•♦••♦•••♦♦^
AUGLÝSING
í í'áði er að fjölga mönnum, er þjálfa skal í flugvall-
artækni, til starfa á Keflavíkurflugvelli i eftirtöldum
starfsgreinum:
Flugumferðarstjórn
Flugumsjón
Loftskeytaþjónustu
Viðgerðum á fjarskiptitækjum
Starfsemi biindlendingakerfa
Viðhaldi flugvallarins.
Þeir, sem hafa hug á einhverri af ofangreindum
starfsgreinum, sendi skriflegar umsóknir, með upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf, til flugvallastjóra
ríkisins fyrir 23. þ. m.
Flugvallastjóri ríkisins.
8
*»
::
♦♦♦•♦♦♦••♦♦♦♦•♦
♦•♦♦•♦♦♦••♦♦♦♦•♦♦•♦•••♦♦♦••••♦••••••<
i
8
nnnnnnnninnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnunnlnnnninnnninnnnnnnitnnnMninnMiinni
Atvinna
11
Nokkrir bifvélavirkjar og pípulagningamenn, geta
fengið atvinnu á Keflavikurflugvelli. Upplýsingar gefn
ar á skrifstofu Flugvallarstj óra ríkisins, Keflavíkurflug
velli.
iiuiiininiuiiiniiuiiniuuniuunnniunnnnniuiuiiuniuinunn
luniuuuuUi iinuuuiuuiuiuuiiniiimii