Tíminn - 26.05.1949, Qupperneq 2
2
TÍMINN, fimmtudaginn 25. maí 1949.
113. blaif
I dag.
Sólift kom upp kl. 3.40.
Sólarlag kl. 23.12.
Árdegisflóð kl. 5.15.
Síðdegisflóð kl. 17.30.
f nótt:
Nœturlœknir veröur í læknavarð-
stofunni í Austurbæjarskólanum,
sími 5030. Næturvörður verður í
Reykjavíkur Apóteki, sími 1760.
Næturakstur annast Hreyfill, simi
6633.
Útvarpið
á Húnaflóa á norðurleið. Þyrill er í
Reykjavík. Oddur er á Breiðafirði.
Sambandið.
Hvassafell er væntanlegt til Pá-
skrúðsfjarðar í fyrramálið frá
Finnlandi.
Flugferbir
í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
20.00 Fréttir og veðurfregnir. —
20.20 Útvarpshjólmsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar) —
.20.45 Dagskrá Kvenréttindafélags
íslands. — Erindi: Viðhorf sveita-
konu til kaupstaðanna (eftir húsfrú
Önnu Bjarnadóttur á Botnastöðum
i Svartárdal. — Finnborg Örnólfs-
dóttir flytur). — 21.10 Tónleikar
(piötur). — 21.15 Upplestur: Frum
ort kvæði (Kristinn Pétursson). —
21.30 Tónleikar. — 21.45 Á innlend-
um vettvangi (Emil Björnsson
fréttamaður). — 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. — 22.05 Symfönískir
tónleikar (plötur). — 23.05 Dag-
skrárlok.
Á morgun
Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
20.00 Fréttir. — 20.30 Útvarpssagan.
— 21.00 Strokkvartett útvarpsins.
— 21.15 Frá útlöndum (Þórarinn
Þórarinsson ritstjóri). — 21.30 Er-
indi: Um jarðvinnslu; síðara erindi
(Árni G. Eylands stjórnarráðsfull-
trúi). — 22.00 Fréttir og veður-
fregnir. — 22.05 Vinsæl lög (plöt-
Úr). — 22.30 Dagskrárlok.
Messur í dag:
Dómkirkjan.
Mcssa kl. 11, síra Bjarni Jónsson.
Hallgríinskirkja.
Messa kl. 11 f. h. Sr. Jakob Jóns-
son. Kl. 5 e. h. sr. Sigurjón Árna-
son.
Elliheimilið.
Guðsþjónusta kl. 10.. Sr. Sigur-
björn Gíslason.
Fríkirkjan.
Messa kl. 2. Sr. Árni Sigurðsson.
Brautarholtskirkja
Messa. sem auglýst hefir verið á
Uppstigningardag fellur niður.
Sóknarpresturinn.
Útskálaprestakall
Hvalsneskirkja kl. 13.00 ferming
og altarisganga. Sr. Eiríkur Brynj-
ólfsson.
Árnað heiiia
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band af séra Hallgrími Hallgríms-
syni prófasti að Mosfelli, ungfrú
Hrefna Pétursdóttir frá Ásbjarn-
arnesi og Jón Ólafsson málari frá
Reynisvatni. Heimili ungu hjón-
anna er að Sjávarbergi Re.vkjavík.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Soffía Haraldsdóttir,
Leifsgötu 19 og Óli Kristjánsson,
húsgagnasmiður, Leifsgötu 28.
Hvar eru skipin?
Einarsson & Zoega.
Foldin fór frá Vestmannaeyjum
á þriðjudagskvöld áleiðis til New-
cast’.e. Lingestroom fór frá Húsa-
vík á mánudagskvöld áleiðis til
Hamborgar.
Kíkisskip.
Esja er á Austfjörðum á suður-
leið. Hekla er á Austfjörðum á norð
urleið. Herðubreið _er væntanleg til
Reykjavíkur í dag. Skjaldbreið er
Loftleið'ir.
Tvo daga verður flogið til Vest-
mannaeyja, Akureyrar og ísafjarð-
ar, einnig verður flogiö til Sands
og Bíldudals.
Hekla kom frá London í gær kl.
6.30 e. h. og fór aftur til London í
morgun og kemur í kvöld með
knattspyrnuflokk Lincoln City.
Flugfélag; íslands.
Gullfaxi kom frá London og
Prestwick í gær.
Tvo daga verður flogið til Reyð-
arfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Norð-
fjarðar, Seyðisfjarðar, einnig til
Akureyrar 'og Vestmannaeyja.
Úr ýmsum áttum
Gatnagerðin
Bæjarráð hefir samþykkt að
hefja eftirfarandi fremkvæmdir við
gatnagerð í sumar:
Miklabraut framlenging að Suð-
urlandsbraut. Vegur að Vesturbæj-
arspennistöð. Ónefnd bogagata við
Hjarðarhaga. Ægissíða, útrás hol-
ræsis. Ægissiða, malarvegur, Hofs-
vallagata útrás. Hjarðarhagi, vest-
urendi, malarvegur. Laugalækur.
Lækjargata. Lindargata (Klapp.—
Frakk). Baldursgata (Bergst. —
Freyjug.). Nönnugata. Sölvhóls-
gata. Seljavegur (Vesturg.—Mýrar-
gata). Bókhlööustígur. Blómvalla-
gata. Brávallagata. Kárastígur. Veg
arstræti við Olíuverzlun íslands.
Vatnsstígur (Lindarg.—Hverfisg).
Hallveigarstígur. Sólvallagata.
Brekkustígur.
Blaöamannafélag
íslands
Fundur verður haldinn í Blaða-
mannafélagi íslands, að Hótel Borg
í dag og hefst hann klukkan tvö.
Ýms mál er snerta félagið verða
til umræðu.
Kjarnar
Kjarnar 9. hefti hefir blaðinu bor
izt. Heftið er 128 blaðsíður og flyt- j
ur ýmsa sögukjarna meðal annars:
Þegar flogið er hraðar en hljóðið,
Förin heim, Litli presturinn, Menn,
sem guðir, Dansfætur, Starfs-
mannahátíð, Launin og Sígnora
Chiara.
Útvarpstíðindi
Útvarpstíðindi 8. tbl. 12. árgangs
hefir blaðinu borizt. Flytur það með
al annars ferðapistla eftir Henndrik
Ottóson, Emil Björnsson, Sigurð
Sigurðsson, Stefán Jónsson og
Högna Torfason. Þá er grein um
útvarpsstöðvar í Brazilíu.
Leikfélag’ Ecykjavíkur sýnir
HÁMLET
eftir William Shakespeare i kvöld kl 8.
Leikstjóri: Edvin Tiemroth.
Miðasala í dag frá kl. 2. — Sími 3191
VDRIÐ ER KDMIÐ
KVDLDSYNING
í Sjálfstæöishúsinu í kvöld kl. 8.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2. Sími 2339
Dansað til kl. 1
Næsta sýning annað kvöld
WJá(verí?aáúnina
• •
í Listamannaskálanum. — Opin daglega kl. 11—23.
Gagnkværn vináttuheimboð milli landa
I nýútlcomnu hefti Menntamála,
tímarits Sambands ísl. barnakenn-
ara er frá því skýrt, að skólastjóri
barnaskóla í Charleston í Virginíu-
ríki í Bandaríkjunum, Elma Stark
að nafni, hafi boðiá einiiverjum
kennara íslenzkum, karli eða konu,
ókeypis dvöl á heimili sinu í sum-
arleyfi á þessu sumri eða því
næsta, ef engirm geti notfært sér
boðið í sumar.
í bréfi, sem frúin hefir ritað með
boði þessu varpar hún frarrl þeirri
tillögu, að kennarar í enskumæl-
andi löndum, þar sem enska er al-
geng námsgrein í æðri skólum,
bjóði starfsbræörum sínum ókeyp-
is sumarleyfisdvalir á víxl. Hún hef
ir gert þetta boð til aó styðja
þessa tillögu í verki og vonar að
það' geti verið upphaf að viötækri
starfsemi á þessurn grundvelli og
kynningarstarf'semi kennara um
heim allan. Scgist frúin ennfrem-
ur hafa mjög miknn áhuga fyrir
að kynnast íslandi og íslendingum
nánar og hafi því ákveðiö að bjóða
íslendingi fyrstum til sumarleyfis-
dvalar hjá sér.
Sem betur fer eru slik heimboð
milli stéttarbræðra landa á milli
ekkert einsdæmi en aitíð geta þau
ekki talizt. Þótt einn og einn mað-
ur hafi gert þetta hefir ekki kom-
izt á nein skipuleg starfsemi í þessu
efni. Hér er þó merkilegt mál á
ferðinni, sem síðar á eflaust eftir
að verða áhrifaríkur þáttur í kynn
ingu þjóða og öflugt ráð til að eyða
misskilningi, úlfúð og andúð milli
þjóða og vina að hugsjón friöarins
í heiminum.
Slík heimboð eru miklu sigur-
stranglegri til gagnkvæmrar vin-
áttu og skilnings milli þjóða en al-
menn ferðalög milli landa, þar sém
ferðamaðurinn kynnist engum ná-
ið. Með gagnkvæmum heimboðum
hnýtast vináttubönd, sem orðið
geta til margháttaðrar blessunar.
Það er vel að kennarar ríði á vað
ið í þessum efnum, því aö þeim
hlýtur að vera sú hugsjón, sein hér
liggur að baki, mjög hugstæð.
Mætti svo fara að aðrar stéttir
kærnu á eftir, og þetta yrða upp-
haf að mikilli kynningarstarfsemi.
íslenzkir kennarar ættu því að
vinna að því öilum árum, að ein-
hver úr stétt þeirra þæði þetta
heimboö og gyldi það síðar í sömu
mynt. .
Þaó er sagt, að heiinurinn sé orð
inn svo UndarlitiU og allar fjar-
lægöir hafi að verulegu leyti þurrk
ast út með hinum bættu samgöngu-
tækjum. Þetta er að vísu rétt, en
álmenningur í flestum löndum
finnur þó íremur iítið enn til þess,
hve grannarnir hafa færzt nær
hver öðrum. Og þótt mikið sé um
feröalög milli landa, vill brenna
við, að það séu sömu mennirnir,
sem eru- á sífelldu flugi fram og
aftur um heiminn, en almenningur
á þess sjaldan kost að skreppa þess
ar stuttu bæjarleiðir, senr orðnar
eru. Heimurinn er því ennþá að-
eins lítili fyrir suma og vegalengd-
irnar stuttar fyrir tiltölulega fáa
menn. Þetta þarf að breytast. Hver
einasti maður, sem kemst til vits
og ára þarf helzt að eíga þess kost
einhvern tíma ævinnar, að skreppa
út fyrir pollinn, eins og íslendingar
kalla það. Að þvi er ótrúlega mikil
upplyfting og menningarauki og lít
illi þjóð, sem elur aldur sinn við
fábreytt skilyrði á margan hátt er
þetta nauðsyn öðrum fremur.
Gagnkvæmu heimboðin, sem hér
var minnzt á eru hagkvæmt og
heppilegt ráð til að örva utanfarir
og auðvelda lausn þess gjaldeyris
vandamáls, sem er þeim samfara
og margar þjóðir eiga erfitt með að
leysa.
íslendingar þurfa að kynnast
heiminum, og sá tími þarf að koma,
að bændur og verkamenn geti
skroppið suður að Miðjarðarhafi
snemma vors, lielzt á eigin far-
kosti, til þess að lengja liið stutta
sumar og auka á víðsýni og fegurð
lífs síns. Slík kynning af framandi
löndum og þjóðháttum, þótt lítil
sé, gerir mehn að betri borgurum
heima fyrir. A. K.
Frístiindamálara Laugaveg: 166, opin daglega kl. «
1—11 e.h.
nniiiiiiiiMiiiiiii ii iii iii ii lml||||||||Mlll■lllllll|||||lllllllll 11111111111 nimiuiiniiiiiimii
UNDU
1 Skógræktarfélags Reykjavíkur
| verður haldinn í Félagsheimili Verzlunarmanna, Von- |
I arstræti 4, Reykjavík, mið'vikudaginn 8. júní, og hefst I
| fundurinn klukkan 20,30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
STJÓRNIN.
1 I
lllltMIIIIIIIIIIIIMIIIIHIIIMIIIÍIIIMIIIIItMllllltlllMIMIIIIIIIIIIIIIimilllllllimiltlllllllllllMtliMllllllMIIIIIIIIMItlllllllllll
MMIMIMMIIIIIIIIMimillllllllllMIIIIIMIIIIMIMMMIIIMMIIIMIMIMIIIIMIIIIIIIIIIIIIMMMIIIIMIIIIIIIMMMilllM.IIIMMIIIIIim
Æöardúnshreinsun
Dúnhreinsunarstöð Péturs Jónssonar, Sólvöllum, I
| Vogum, verður rekin framvegis með fullum krafti. — 1
Kaupi óhreinsaðan og hreinsaðan dún háu verði.
Tek dún til hreinsunar hvaðan sem er af landinu. 1
Þeir, sem enn eiga óhreinsaðan dún frá fyrra ári, 1
| ættu nú ekki að láta dragast, að senda mér hann til 1
I hreinsunar. Nýr varptimi er byrjaður. Þið, dúneigend- \
| ur sem þurfið, látið mig létta ykkur starfið með því I
I aö hreinsa fyrir ykkur í vél minni. Sendið mér nýju |
í framleiðsluna eins fljótt og þið getið. Látið dúninn f
1 ekki hggja óhreinsaðan frá ári til árs. Þið þurfið ekk- |
| ert að tína úr dúninum, bara þurrka hann vel, og §
| hrista þá úr stæðsta ruslið. Ég staðhæfi, að rýrnun |
| verður minni hjá mér, en við handhreinsun, ef dúnn- f
| inn er ófúinn. Ég vártyggi dúninn. — Þið fáið verkið 1
| vel unnið og trúverðuglega. — Talið við mig, eða skrif- f
| ið'. — Símstöð Hábæ, Yogum. 1
iiiiiiiiiMiMiiiMiiitmmmiiimiimiiimiiimMMmiMMiiiiiiiMiiiiMiiMMiK.i