Tíminn - 25.08.1949, Blaðsíða 5

Tíminn - 25.08.1949, Blaðsíða 5
177. blað TÍMINN, fimmtudaginn 25. ágúst 1949 5 Fhmntud. 25. áyúst Úrræðalausir flokkar Það liggur öllum hugsancli mönnum í augum uppi, að stórkostleg vantíamál bíða framundan við næsta fótmál á sviði fjárhags- og atvinnu- mála. Á siðastl. vori hleypti meirihluti ríkisstj órnarinnar af stokkunum nýrri kaup- hækkunarbylgju vegna þess, að hann vildi enn vernda sér hagsmuni braskaranna og hafnaði því réttmætum kröf- um verkalýðssamtakanna um ráðstafanir til að draga úr dýrtíðinni. Af þessum ástæð- um hefir bæði framleiðslu- kostnaðurinn hækkað og rík- isútgjöldin aukizt. Þegar þar við bætist, að verðlag margra útflutningsvara fer nú lækk- andi, er það meira en aug- ljóst, að þorskveiðar verða. ekki tryggðar á næstu vertíð né fjárlögum komið saman á næsta þingi, nema gerðar verði nýjar stóríelldar ráð- stafanir. Framsóknarflokkurimi taldi það óhjákvæmilegt, að gerðar væru ráðstafanir, sem líkleg- ar væru til árangurs, strax í sumar. Á seinasta þingi reyndi hann að fá slíkar ráð- stafanir gerðar og flutti þar mörg frumvörp og tillögur, sem gengu í sömu átt og kröf- ur verkalýðsfélaganna. Þeim var hafnað af Sjálfstæðis- flokknum og Alþýðuflokkn- um. í raun réttri þýddi þetta sama og- samvinnuslit, þar sem hér var rofið fyrirheit stjórnarsáttmálans um við- nám gegn dýrtíðinni. Vegna hins erfiða útlits framundan, kaus Framsóknarflokkurinn þó að gera nýja samkomu- lagstilraun í sumar, eins og áður segir, en hún mistókst. Þá var ekki um annað að gera en að skjóta málunum undir úrskurð þjóðarinnar, ef ekki átti að stefha út í algert stjórnleysi í haust og kosn- ingar um miðjan vetur. Strax í júníbyrjun lögðu ráðherrar Framsóknarflokks- ins fram í ríkisstjórninni þær tillögur, sem nauðsynlegt er nú að gera í fjárhagsmálun- um að dómi hans. Hinir stjórnarflokkarnir vöruðust að svara þeim eða að bjóða gagntillögur, unz þeim var settur sá úrslitafrestur að hafa gert það fyrir 10. þ. m. Fyrst þann 9. þ. m. lögðu þeir fram svör, sem raunar engin svör voru. Tillögum Framsóknarmanna var hafn- að, en hins vegar engar gagn- tillögur gerðar. Það eina, sem þessir flokkar buðu upp á, var að fljóta áfram sofandi að feigöarósi og stefna fyrir- sjáanlega út í stjórnleysi og öngþveiti, eins og nú er gert. Þetta stefnuleysi völdu þeir heldur en að þurfa að gera ráðstafanir, sem hefðu skert hagsmuni braskaranna, en það var aðalkjarninn í tillög- um Framsóknarflokksins, sem voru í meginatriðum á sömu leið og kröfur verkalýðsfélag- anna. Af þessum svörum Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðu- flokksins er það ljóst, að þess- ir flokkar eru annaö tveggja ráðalausir gagnvart þeim ERLENT YFIRLIT: Olían í Bandaríkjunum Ijeiíin a!6 nýjisin oláulimltmi ber mikinu ;ir- angur og óttinn við olíuskort því ialinn ástæSSulaus Olíuæðið hefir nú á ný gripið Bandaríkin. Á árunum um og eftir 1930 voru menn þeirrar skoðunar, að olíulindir lands- ins myndu tæmdar eftir 10 eða 12 ár. En það reyndist of mikil svartsýni. Nýjar, vísindalegar aðferðir erú nú notaðar við að leita olíunnar, og hefir árang- urinn af því oi'ðið glæsilegur. Menn óttast nú ekki lengur, að olíulindir Bándaríkjanna tæm- ist innan fárra ára. Kanada Tekur einnig þátt í þessu „olíuæfintýri“, ef svo mætti að orði kveða. í Alberta- fylki hafá nýlega fundist stærstu olíulindir í vesturhluta Norður-Ameríku. Ráðgert hefir verið, að leggja 700 km. langa leiðslu, frá Edmonton-svæðinu til Vancouver — sömu vegalengd og frá S'kagen til Berlínar. Kostnaðurinn við ' olíuleiðslu þessa verður um 175 millj. doll- ara. Það liggur í augum uppi, að það hlýtur að vera um geysi- mikið olíumagn að ræða, fýrst það borgar sig að koma á fót svo dýru mannvirki. — Fólkið í Alberta dreymir nú glæsilega framtíðardrauma. Þegar olíu- framleiðslán er tekin að aukast fyrir alvöru, á að lækka skatt- ana, en tekjur fylkisins munu samt aukast. 1 fyrra voru tekj- ur fylkisins af olíu 5 millj. doll- ara, enda þótt ekki væri þá byrjað að vinna við hinar nýju olíulindir neitt að ráði. Stjórn- endur fylkisins hafa þegar gert áætlanir um nýjar vegalagn- ingar, endurbætt skólakerfi og meira þjóðfélagslegt öryggi fyrir þegnana. Allt þetta á að borgast með olíunni. íbúarnir í Alberta reikna með, að það verði auðugasta fylkið í Kan- ada. En olíuæfintýrið er ef til vill stórkostlegast í Texas, en þar verða menn ekki uppnæmir fyrir nýjum olíulindum, nema þær séu óvenju stórar, því að það er svo mikið fyrir af olíu á þeim slóðum. Stóru olíufélög- in þar hafa látið bora allt að þrjá kílómetra í jörð niður eftir olíu, með prýðilegum árangri. „US News and World Report" skýrir nýlega frá því, að á- stæðulaust sé nú að óttast, að olíulindirnar í Texas verði tæmdar á næstu árum, því að þar hafi þegar fundist 4 mill- jarðar tunna af olíu — nær fimmti hluti af allri þeirri olíu, sem til er í Bandaríkjunum. Svo virðist, sem þeir, er fyrstir koma, hreppi þessi nýju auðævi. í Texas er borað eftir olíu eftir vísindalegum aðferðum og þar eru aðeins notaðar nýjustu vél- ar. Það eru stærstu olíufélög veraldarinnar, sem þar eru að verki. í Kiettafjöllunum er aðferðin önnur. Þar eru það smáfyrir- tæki eða einstaklingar, sem bora eftir olíu. Á degi hverjum þyrpast hópar manna til smá- bæjanna, í leit að olíu. Barist er um réttinn yfir landinu, verð- lagið hækkar, blöðin birta æsi- fregnir af nýjum olíufundum. Það er samt ekki einasta olía, sem menn finna. Það hefir einnig komið allmikið gas upp úr jörðu þar. Og það hafa jafn- vel fundist olíulindir í mor- mónafylkinu Utah, og er það í fyrsta sinn. Einu sinni var Kalifornia stærsta olíusvæðið í Bandaríkj- unum. En olian þar gekk til þurrðar, og talið var víst, að eftir 1951 yrði Kalifornía að kaupa olíu frá öðrum fylkjum. En nú er þeim áhyggjum einn- ig aflétt. í Cuyama-dalnum hefir fundizt geysimikið af olíu, eða 73 olíulindir, og von á fleirum. Á þessu ári hefir fund- izt ný olíulind 14. hverju mín- útu í Bandaríkjunum. Þessar olíulindir hafa geysi- John D. Rockefeller, sem um langt skeið var fræg- asti olíukongur Banda- ríkjanna. Á víðavangi AHRIFALEYSI JONS OG PÉTURS. Morgunblaðið lýsir yfir því í forustugrein sinni í fyrra- dag, að „Sjálfstæðismenn munu berjast fyrir sömu stefnu framvegis“ í landbún- aðarmálunum og fyrrv. stjórn hafði gert. Þessari stefnu er nokkuð lýst í grein, sem birt ist á öðrum stað í blaðinu, en annars er hún bændum enn í fersku minni. Það voru ekki aðeins Framsóknarmenn í bændastétt sem voru henni andvígir, heldur líka flestir Sjálfstæðisbændur undir for- ustu þeirra Jóns á Reynistað, Péturs Ottesens og Gísla Sveinss. M. ö. o. þeir þingm. Sjálfstæðisflokksins, sem voru nátengdastir landbúnað inum og hlynntastir bonum, börðust gegn þessari stefnu. Yfirlýsing Mbl. þýðir það, að Sjálfstæðisfl. tekur nú ekki fremur en fyrri dag- inn, tillit til þessara manna, mikil áhrif á þjóðarbúskapinn. 1 lok heimsstyrjaldarinnar síðari töldu allir, að innan fárra ára myndu Bandaríkin neyðast til hcldur fylgir s‘tefnu landbún aðarmálum, sem þeir hafa þess að kaupa olíu frá Austur löndum og Kyrrahafslöndun- um. En eins og nú standa sakir, litur út fyrir að olían frá lönd- unum fyrir botni Miðjarðar- hafs, fari til nálægari landa, Indlands, Evrópulandanna og Afríku. Yfirmenn hersins í Bandaríkjunum vorú og hrædd- ir um það um skeið, að olían kynni að ganga svo til þurrðar í Bandaríkjunum, að hin banda- ríska stríðsvél yrði háð öðrum löndum á því sviði. Áætlað var, (Framhald á 6. síðuj vanda, sem framundan er, eða þeir bora ekki að nefna fyrir kosningar þau úrræði, sem þeir telja að helzt komi til mála. Þeir ætla m. ö. o. enn einu sinni að blekkja þjóðina, láta eins og allt sé í lagi og öllu megi bjarga með eirlu einföldu pennastriki, sem nógur tími sé að nefna eftir kosningar. Á þennan hátt telja þeir sér vænlegast að ná hylli kjósendanna, en hitt skipti minna máli, þótt þeir verði strax sviknir eftir kosningar. Þennah léik þeirra má þjóð- in ekki láta heppnast. Henni má vera íjóst, að fram úr vandamálunum vérður ekki ráðið, nema með nýjum, rót- tækum ráðstöfunum. Annars er stefnt út í fjárhagslegt öng þveiti og ósjálfstæði. Hún verður að krefjast þess af flokknum, að þeir svari því fyrir kosningar, hvernig þeir ætla sér að leysa þennan vanda. Hún á ekki að láta sér nægja neitt skrum eöa orða- gjálfur. Þeir, sem ekki svara skýrt og skorinort, verðskulda ekki minnsta traust hennar. Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn, sem þegar hefir lýst úrræðum sínum. Hinir flokkarnir hafa aðeins látið sér nægja að reyna að ófrægja þau, en hins vegar ekki bent á nein önnur. Þeir standa þannig stefnulausir og úrræðalausir frammi fyrir vandamálunum. Ef til vill hafa þeir einhver úrræði í huga, en þau eru þá slík, að þeir þora ekki að nefna þau fyrir kosningarnar. Það væri ekki heldur neitt undarlegt, þótt Sjálfstæðisílokkurinn og Alþýðuflokkurinn reyndu þannig að fela stefnu sína fram yfir kosningarnar, ef þeir hefðu ekki upp á annað að bjóða en það, sem þeir hafa staðið saman um að und anförnu, en það er að vernda hagsmuni braskaranna og koma byrðunum á bak al- mennings. Heldur þjóðin, að henni sé björgun í því á þessum tím- um að fela umboð sitt flokk- um, sem eru annað hvort úr- ræðalausir eða þora ekki að leggja úrræði sín undir úr- skurð kjósendanna? Þeir flokkar, sem þannig ganga til leiks, verðskulda sannarlega ekki annað en óvirðingu og fylgisleysi og sú mun líka verða uppskera þeirra í kosn- ingunum. Raddir nábúanna Alþýðublaðið lýsir í gær ástandinu i verzlunarmálun- um m. a. á þessa leið: „Þessu hlutverki hafa verzlunarmenn brugðizt hrapallega. Þegar þeir fá „partí“ af eftirsóttri vöru, geta óbreyttir neytendur þessa lands hrósað happi, ef helmingur vörunnar kemur á frjálsan markað, og oft er hún öll seld á bak við tjöldin. í þess stað dreifa verzlunar- mennirnir vörunni til ætt- ingja, vina og kunningja, og „redda“ öðrum „business- mönnum“ gegn því að þeir muni greiðann, þegar þeir sjálfir fá „parti“. Og engum getur dulizt, að mikið af alls konar vöru hækkar smátt og smátt í verði, eftir því sem fleiri „reddarar“ fara um hana höndum, unz úr þessu öllu verður gífurlegur svart- ur markaður.“ Vissulega er þetta rétt hjá Alþbl-, en það eru sannarlega ekki verzlunarmennirnir, sem eiga hér eihir sökina. Sökin liggur miklu fremur hjá yf- irstjórn viðskiptamálanna, sem hagar framkvæmd þeirra þannig, að svartur markaður og önnur spilling á sem auð- veldast uppdráttar. Með breyttu fyrirkomulagi mætti vel koma í veg fyrir þetta, en öll viðleitni í þá átt hefir strandað á oddaatkvæði Al- þýðuflokksins í viðskipta- nefndunum og ríkisstjórn- inni. Með þvi að deila á þetta ástand er Alþýðublaðið því fyrst og fremst að deila á flokk sinn, sem á þessu sviði eins og flestum öðrum hefir að undanförnu hjálpað Sjálf stæðisflokknum til að vernda og verja hagsmuni og' gróða- aðstöðu braskaranna. verið og eru mjög mótfallnir. Það er þá ekki heldur neitt undarlegt, þótt þeir Jón á Reynistað og Pétur Ottesen séu tregir til framboðs fyrir flokkinn, þar sem fyrir ligg- ur yfirlýsing í sjálfu flokks- blaðinu, að ekkert tillit sé til þeirra tekið og allt önnur stefna í landbúnaðarmálum en þeir vilja fylgja, ráði þar ríkjum. Þeir bændur, sem hafa glæpst til fylgis við Sjálfstæð isflokkinn vegna þess, að menn eins og Pétur Ottesen og Jón á Reynistað haldast þar við, ættu ekki að gera það lengur. Þessir bændaleiðtogar ráða þar engu, og aðeins gam all vani heldur þeim kyrrum í flokknum. Með því að fylgja Sjálfstæðisflokknum, eru þess ir bændur aðeins að styðja stefnu, sem er þeim andstæð og fráhverf á allan hátt. ★ ACHESON OG ÞÝZKU KOSNINGARNAR. Mbl. ræðst harðlega á Tím- ann í gær í tilefni af því, að hann hafi haldið því fram, að miðflokkarnir hafi unnið á í þýzku kosningunum. í raun réttri hefir þó Tíminn ekki haldið þcssu fram, heldur birti hann aðeins þau um- mæli Acheson utanríkismála- ráðherra, að kosningaúrslitin hefðu verið sigur fyrir mið- flokkana. Því til sönnunar benti Acheson á það, að flokk arnir, sem eru lengst til hægri og vinstri, hefðu að- eins fengið 15% af atkvæða- magninu. Ef Mbl. telur þessi ummæli Achesons ranglega eftir höfð, getur það snúið sér til ameríska sendiráðsins, en um mæli Achesons voru þýdd úr fréttayfirliti, sem það sendi blöðunum. Annars þarf Mbl. ekki að kippa sér upp við þennan dóm Achesons, því að það var yfirleitt sammála álit er- lendra blaða um kosningaúr- slitin, að þau hefðu verið ó- sigur fyrir flokkana lengst til vinstri og hægri, þ. e. komm- únista og afturhaldsöm- ustu þjóðernissinna. Mbl. er vitanlega illa við þessi úrslit, því að þau eru óþægileg fyrir öfgaflokkana, sem eru lengst til vinstri og (Framhald á 6. slðuj.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.