Tíminn - 08.11.1949, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarjlokkurinn
c~--------------- i
Skrifstofur l Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusimi 2323
Auglýsingasimi 81300
Prentsmiðjan Edda
i. -----—-——
33. árg.
Reykjavík, þriðjudaginn 8. nóvember 1949
240 blað
Einkennilegt framferði útgerðarmanns:
Sendir fjögur skip í aðra heimsálfu
og rekur síðan áhafnirnar heim
I’etta cr nýjasta nýtt frá Paris. Skór þessir voru á tízku-
sýningu, sem nýlega var haldin í London. Skórnir eru úr
sléttu skinni og með leðursólum. Á hinum háa hæl er út-
skurður skreyttur gylltu flúri.
4 skozkir sjómenn
drukkna út af Jökli
lok út ifið vinnia sísaa á líiiuvoiðaraninn
Eastlmrn frá AlÐcrdeen
Línuveiðarinn Eastburn frá Aberdeen varð fyrir brot-
sjó út af Jökli snemma síðastliðinn laugardagsmorgun og
tók út fjóra menn, og drukknuðu þeir allir. Kom línuveið-
arinn til Reykjavíkur á sunnudagskvöldið, en fór síðan
til Skotlands.
Skipverjar á Eastburn voru
að leggja línur sínar 85 mílur
út af Snæfellsnesjökli, er
slysið varð. Var veður allsæmi
legt, en nokkuð mikil alda.
Allt í einu reið brotsjór yfir
skut skipsins, og sogaði hann
með sér fyrir borð fjóra menn,
sem þar voru að vinnu sinni.
Voru það skipstjórinn, er var
sonur stýrimannsins á skip-
ínu, bátsmaðurinn og tveir
hásetar og var annar þeirra
tengdasonur stýrimannsins.
Tókst ekki að ná neinum
þeirra. Var stýrimaðurinn í
brúnni er þetta gerðist.
Engar skemmdir urðu á
skípinu við áfall þetta.
Ráðstefna bif-
reiðarstjóra
Ráðstefna bifreiðarstjóra
hófst í Reykjavík á laugardag
inn var og er gert ráð fyrir
að henni ljúki i dag. Er ráð
stefna þessi haldin að tilhlut
an Alþýðusambands íslands
til þess að ræða skipulagsmál
og kjaramál bifreiðastjóra og
undirbúa landsamband
þeirra. Helgi Hannesson for-
seti Alþýðusambandsins setti
ráðstefnuna. Hana sitja 28
fulltrúar félaga og félags-
deilda víðsvegar að af land-
inu.
Aflalítið hjá Skaga-
strandarbátum
Frá fréttaritara Tímans
á Skagaströnd.
Frá því í október hafa 4 þil
bátar og nokkrar trillur róið
frá Skagaströnd en aflað treg
lega. Fiskurinn hefir verið
frystur.
Kaupfélagið á Skagaströnd
hefir að undanförnu verið að
láta stækka frystihústjygg-
ingu sína. Er viðbótarbygging
! in komin undir þak.
| Undanfarna daga hefir ver
, ið frem'ur slæmt veður og
nokkur snjókoma þar nyrðra.
Engin síld gengin
í Hvalfjörð
eða Sundin
Bátur frá Akranesi lagði
fyrir nokkru net i Hvalfjörð,
Kollafjörð og sundin við
Reykjavík, en varð ekki var
síidar. Virðist af þessu sýnt,
að engin síld er enn gengin
hér inn, hvort sem hún kann
að koma síðar í lraust eða
ekki.
Slífjpfn v«ni á Gra‘nlandsvciðiim í suiiiar
tsflÉHtss saldsar Sketiim, e« cngum gjald-
eyri skilað
ísknzkur útjeríarRiaður, Bjcrgvin Bjarnason frá ísa-
firði, tók sig í haust upp með fjögur skip sín og hélt til
annsrrar heimrálfu. Mun hann ætla að gsra skip sín út
í Nýfundnaiandi. Vcru islenzku sjómennirnir sóttir vestur
fiugvélum, cn Björgvin ætlaði að ráða útienda fiskimenn
á skipin. Mun það þykja furðulegt, að slikar ráðstaf-
rr.ir skuli geta áít sér stað, ekki sízt þegar tekið er tillit
tiJ þess, að sjómenn, sem unnu á þessum skipum í sumar,
munu ckki hafa fengið kaup sitt greitt og gjaldeyri ekki
f.kilað fra Græniandsfiskveiðum þeirra í sumar. Tíminn
hefir af’að sér nckkurra upplýsinga um þetta mál.
Fróðlegur skemmti-
fundur Ferða-
félagsins
Cræulandsmynd
Árna Stefánssonar
og frásögn Stefáns
Jónssonar
Á Grænlandsmiðum.
Skip Björgvins Bjarnason-
ar, útgerðarmanns á ísafirði,
Grótta, Richard og Huginn I
og H, voru öll á Grænlands-
veiðum í sumar. íslenzkir
sjómenn voru þá á skipunum,
og munu þau hafa selt afla
!nn til skozks fyrirtækis, án
nokkurs samráðs við íslenzk
yfirvöld.
Þegar leiðangurinn kom frá
Grænlandi í sumar, var gjald
eyriseftirliti bankanna ekki
gefin nein skýring á þvi, hvað
orðið hefði af andvirði hins
selda afla og hefir engin slik
skýring, né hin minnsta
greinargerð yfirleitt, fengizt
á þvi enn i dag. Sjó-
mennirnir, sem á skipunum
voru, fengu ekki kaup sitt
greitt og.'hafa orðið að leita
aðstoðar yfirvaldanna.
Hörfað til fjarlægra
vígstöðva.
En sagan er þar með
ekki nema hálfsögð. í
haust lögðu þessi sömu skip
af síað íil Nýfundnalands,
og þegar þangað’ kom, voru
íslenzku sjómennirnir rekn
ir af, en til sícð að ráða er
Ienda menn í staðinn. Síð
an voru íslenzku sjómenn-
irnir fluttir til Reykjavík-
ur með flugvélum, en út-
gerðarmaðurinn og skipin
urðu efíir í Veslurálfu.
Þegar hér var komið, munu
^msir, sem átt höfðu kröfur
á fyrirtækin, þar á meðal
’ánstofnanir, hafa farið að
verða alláhyggjufullir. Kom
svo, að viðskiptamálaráðu-
neytið kærðí útgerðina vegna
tilmæla frá gjaldeyriseftirliti
bankanna, sem vildi fá ein-
’averja vitneskju um hvað orð
ið hefði af andvirði alls þess
afla, sem þessi fjögur skip
fengu við Grænland í sumar.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið hefir afláð sér frá
sakadómara, liggur sú kæra
þar, og hefir ekkert verið
hægt að aðhafast í málinu,
nema að yfirheyrðir hafa ver
ið ýmsir kunnugir menn hér
heima. En höfuðpaurinn,
Björgvin Bjarnason, er sjálf-
ur víðsfjarri öllum þessum
réttarhöldum, önnum kafinn
við útgerð sína á Nýíundna-
landi.
Býst sakadómari við honum
heim á næstu vikum, og er
því dregið að gera ráðstafan-
ir til að flýta för hans aftur
til íslands.
Hefir þetta farið fram-
hjá ráðherranum?
Hitt er annars óneitanlega
furðulegt, að svo virðist sem
sjálfur sjávarútvegsmálaráð
herra, Jóhann Þ. Jósefsson,
hafi alls ekki veitt þessari
einkennilegu útgerðarstarf-
semi athygli.
Timinn hefir aflað sér upp
lýsinga um það, bæði frá
(Framhald á 2 síðu.J
S
| B-listafagnaður-
[ inn að Hótel Borg
1 B-listafagnaðurinn að
f Hótel Borg á fimmtudags-
I kvöldið byrjar klukkan
j hálf-níu með kaffidrykkju.
| Meðan setið verður að borð
j um flytja stuttar ræður
| meðal annarra Rannveig
I Þorsteinsdótíir, Hermann
| Jónasson og Eysteinn Jóns
I son.
j Því næst skcmmtir
= Brynjólfur Jóhannesson
j leikari. Síðan verður sung-
| ið og dansað.
I Nú er þegar búið að
j panta flesta aðgöngumiða
í að kvöldfagnaðinum, enda
| útrunninn hinn auglýsti
i tími, er starf'» ólk B-listans
i hafði forgangsrétt að mið
! unum.
{ Æskilegt er, að þátttak-
j endur sæki aðgöngumiða
j sína í flokksskrifstofuna í
! Edduhúsi í dag. Símar
j skrifstofunnar eru 6066 og
i 5564.
'uniiiiiiiiiiitiiHiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiMiiiiiiiiiiumniiM*..
Stefán Jónsson
| Ferðafélag Islands hélt
skemmtifund í gærkvöldi, og
var þar sýnd Grænlandskvik
mynd Árna Stefánssonar vél-
virkja, en Stefán Jónsson
fréttamaður sagði frá Græn-
landsför Súðarinnar og dvöl-
inni við Grænland. Var frá-
sögnin öll hin skemmtilegasta
og fróðle>asta, og kunnu sam
komugestir honum og Árna
Stefánssyni beztu þakkir
.fyrir erindið og myndina.
i Að loknu erindinu og sýn-
ingunni var dansað, eins og
venja er til j skemmtifund-
um Ferðafélagsins.
Sr.Guðmundur Guð-
mundsson kosiim
prestur í Bol-
ungarvík
Prestkosning fór fram i
Hólsprestakalli í Bolungarvík
íyrir sk^mmu og voru at-
kvæði talin i skrifstofu
biskups í gær. Umsækjendur
voru aðeins tveir. Séra Guð-
mundur Guðmundsson fyrr-
lum prestur á Brjánslæk var
'löglega kjörinn með 258 at-
kvæðum. Séra Sigurður M.
.Pétursson fékk 45 atkvæði.