Tíminn - 08.11.1949, Blaðsíða 4
4
TÍMINN, þriðjudaginn 8. nóvember 1949
240 blað
Samvinrian og fram-
leiðsluskipulag heimsins
Undanfarin hundrað ár hef
ir sú tizka verið við líði í
hinum menntaða heimi, að
tala um efnahags- og fram-
leiðsluskipulag þjóðanna, sem
kapitalískt, fasistískt, sócia-
listiskt, kommúnistískt eða
nazistískt skipulag. Menn
hafa nefnV efnahags- og fram
leiðsluskipulag þjóða sinna
eftir „ismunum“, sem mæla
með ýmsum efnahags- fram-
leiðslu- og stj órnskipulögum.
Þessi tízka hefir ekki leitt
neitt gott af sér svo vitað sé.
Þvert á móti. Menn hafa orð-
ið svo uppteknir af að hugsa
um hin ímynduðu sæluríki
ismanna að við sjálft hefir
legið að heimurinn tortímd-
ist vegna þess. í Kína hefir
verið barizt yfir ismum það
sem af þessari öld. Á Spáni
var barizt yfir þeim á milli
heimsstyrjaldanna tveggja, og
síðasta heimsstyrjöld átti að
nokkru leyti rætur sínar að
rekja til ismanna. Eins og út-
litið er nú í heiminum sýnist
ekkert líklegra en, að ef til
annarrar styrjaldar dregur
þá verði orsök hennar fyrst
og fremst sú, að tvær stór-
þjóðir vilja lifa eða deyja
fýrir átrúnaðarisma sína.
Mannlífið er ákaflega ein-
kennilegt og sumlr vegir þess
eru órannsakanlegir. Er það
t. d. ekki einkennilegt, að
menn og heilar þjóðir skuli
fylgja ismunum af svo miklu
ákaflyndi og svo mikilli
biindni, að fceir séu reiðubún-
ir að stofna sjálfum sér í
glötun og eyðileggja framtíð,
ekki aðeins sinnar eigin þjóð-
ar, heldur alls heimsins fyrir
þessa isma sína? Er þetta
ekki einkennilegt þegar þess
er gætt, að fleira er líkt en
ólíkt með efnahags- fram-
leiðslu- og stjórnskipulögum
þjóðanna, þrátt fyrir hina
ýmsu isma, sem sumir þeirra
byggja svo mikið á? Er þetta
ekki einkennilegt þegar þess
er gætt, að e>n hefir heim-
urinn ekki séð einn einasta
hagfélagsisma framkvæmd-
an þannig, að grundvallar
efnahags- og .framleiðslu-
skipulagi þjóðanna hafi verið
bréytt að nokkru verulegu
leyti?
Staðreyndin er sú, að þrátt
fyrir alla isma þá er og verður
efnahags- og framleiðslu-
skipulag heimsins alltaf
byggt á ósjálfráðri samvinnu
manna, stétta og heilla þjóða.
Efnaskiptingunni breyta,
einstökum framleiðsluháttum
má breyta, stjórnarfari má
breyta, og lögum má breyta.
En grundvellinum undir efna-
hags- og framleiðsluskipu-
lagi heimsins vetíur ekki
breytt. Einstakir menn, allar
stéttir og allar þjóðir eru nauð
beygðar til að lúta grund-
vallarlögmáli framleiðslunn-
ar sjálfrar og byggja fram-
leiðslu- og hagskipulag sitt
á ósjálfráðri samvinnu.
Hin ósjálfráða samvinna
er alls staðar.
Það skiptir litlu máli hvort
við lifum í Rússlandi komm-
únsmans, á Spáni fasismans,
í Englandi sósir^ismans, í
Bandaríkjum kapitalismans,
eða í Gyðingalandi samvinn-
unnar: við búum í öllum þess-
um tilfellum við efnahags-
og framleiðsluskipulag, sem
grundvallast fyrst og fremst
Eftir Hanncs Jónsson félagsfræðing
á ósjálfráðri samvinnu. Þessi
ósjálfráða samvinna er milli
einstaklinga, stétta og heilla
þjóða.
Efnahagsafkoma einstakra
þjóða byggist að svo miklu
leyti á efnahagsafkomu ann-
arra þjóða, að efnahagsleg
einangrun þeirra er algjörlega
óhugsandi i nútíð og framtíð.
Þjóðirnar verða að vinna sam
jan að framleiðslu neyzluvara
jheimsins. Þessi samvinlia er
í því fólgin, að ein þjóð leggur
áherzlu á að framleiða á-
kveðnar vörutegundir.
Danmörk leggur t. d. mesta
áherzlu á landbúnað, Banda-
rikin á iðnað, ísland á fiski-
veiðar, Tékkóslóvakía á iðnað,
England á verzlun og iðnað,
o. s. frv. Þessi lönd miða fram
leiðsluskipulag sitt við það að
framleiða tilcölulega fáar
gjaldeyrisvörur, sem þær nota»
svo til viðskipta við önnur
lönd, sem miða framleiðslu-
skipulag sitt við að framleiða
aðallega einhverjar aðrar
vörutegundir. Þannig er ósjálf
ráð samvinna milli þjóðanna.
Ein þjóðin sérgreinir fram-
leiðslu sína í þeirvi vissu, að
önnur þjóð hafi sérgreint
framleiðslu sína í einhverri
annarri vörutegund.
verzlun eða aðrar starfsgrein
ar af því að verkaskipting
nútímans hefir komið á ó-
sjálfráðri samvinnu milli at-
vinnustéttanna við fram-
leiðsluskipulagið.
j Sama máli gegnir með þjóð
félagsstéttirnar. Efnahags-
afkoma þeirra byggist fyrst og
fremst á ósjálfráðri samvinnu.
,Hafliði sjómaður veiðir fisk-
inn, en Jón fisksali selur
^hann; Guðmundur bóndi yrk
jir jöröina, en Grímur kaup-
j félagsstjóri selur markaðsvör
^urnar fyrir hann. Sigurjón
húsasmiður byggir húsin, en
■ Ólafur húsgagnasmiður smíð-
jar húsgögnin; Einar verka-
maður hleður og afhleður
skipin, léggur vegi, grefur
grunna fyrir húsum o. s. frv.,
en Andrés klæðskeri saumar
fötin. Þannig mjitti lengi
telja. Atvinnustéttj/nar vinna
hver ,sitt starf innan fram-
leiðsluskipulagsins og skipta
síðan á framleiðsluvörum sín
um og gjaldmiðli, sem gerir
þeim fært að kaupa fram-
leiðsluvörur hvaða atvinnu-
stéttar sem er. Þannig er
grundvöllur framleiðsluskipu
lagsins ósjálfráð samvinna.
Sjómaðurinn fæst ekki við
landbúnað, húsabyggingar,
Hagskipulag heimsins —
Samvinnuskipulag.
Hin ósjálfráða samvinna
manna, stétta og þjóða við
framleiðsluna er sennilega
eini vísindalegi grundvöllur-
inn fyrir einkennum fram-
leiðslu- og hagskipulags ]>cims
ins.
Það er augljóst mál, að ekki
er hægt að tala um hagskipu-
lag heimsins sem sósíalistískt,
fasistískt, nazístískt, komm-
únistískt, eða kapitaliskt. Ef
hagskipulag heimsins væri
sósialistískt eða kommúnis-
tískt væri þjóðnýtingin mest
áberandi í framleiðsluskipulag
inu; ef það væri fasistískt
eða nazitískt væri hlutafélags
rekstur undir ríkiseftirliti og
takmörkuð þjóðnýting mest
áberandi í framleiðslu- og
efnahagsskipulaginu; og ef
það væri kapitalískt þá væri
einkareksturinn öllu ráðandi
í framleiðslu- og hagskipu-
lagi heimsins. Staðreyndin er
jhinsvegar sú, að í heiminum
er sambland allra þessarra
rekstursforma.
Því ber ekki að neita, að
hægt væri að tala um fram-
leiðslu- og hagskipulag ein-
stakra þjóða sem mest megn-
is eru sósíalistískt, fasitískt,
kapítalískt eða kommúnis-
tískt. En er talað er um fram-
leiðslu- og hagskipulag alls
heimsins þá er augljóst, að
það er ekki hægt að skorða
það við einn eða neinn þess-
ara isma. Hins vegar mætti
vel tala um framleiðslu- og
hagskipulag heimsins sem
samvinnuskipulag, þ. e. að
mest einkennandi atriði hag-
skipulags heimsins sé verka-
skiptingin, sem í eðli sínu er
byggð á ósjálfráðri samvinnu
milli einstaklinga, stétta og
þjóða. Þetta kemur til af því,
að ósjálfráð samvinna i formi
verkaskiptingarinnar eða sér-
greiningar framleiðslu þjóð-
anna er mest áberandi og ein-
kennandi þáttur alls fram-
leiðsluskipulags alls heimsins.
Framh.
Ég gat þess um daginn, að í
Mbl. hefði gætt nokkurrar óþreyju
eftir því, að Rannveig Þorsteins-
dóttir færi að efna kosningaloforð
sín. Víkverji hafði engan frið fyr-
ir bréfum, sem gengu eftir þeim
efndum. Það er vel, að menn
hlakki til að stefna Framsóknar-1
manna fái að ráða, — en sumir j
munu kvíða því, ef íhaldið kemur
einhverju fram. En nú hefi ég ver-
ið beðinn að koma á framfæri
skilaboðum til frú Kristínar Sig-
urðardóttur.
Mbl. hrósaði Heimdalli af því
litlu fyrir kosningar, að hann hefði
náð inn 600 nýjum félögum í
haust. Ég hefi bent á það, að þess-
um félögum er meðal annars náð
á þann hátt, að safna áskriftum
fyrir Heimdall í skólum bæjarins,
gegn þvi, að hverjum þeim, sem
leyfir að láta skrá nafn sitt í bæk- j
ur Heimdallar, er heitið ríflegum
afslætti af aðgöngumiðum að
kvöldskemmtunum „Bláu stjörn-
unnar“ í Sjálfstæðishúsinu. Þetta
mun ekki vera byggt á samning-
um við Bláu stjörnuna, heldur
Sjálfstæðishúsið, sem tekur þennan
halla á sig, en eins og allir vita,
veitir Bjarni Benediktsson dóms-
málaráðherra undanþágu frá lög-
um, svo að Sjálfstæðishúsið megl
selja vín á þeim skemmtunum öll-
um. Það mun vera arðvænlegasti
rekstur hússins og þá sennilega sá,
sem ber uppi áskriftasöfnun Heim-
dallar, og þann tilkostnað, sem
henni fylgir.
Nú eru þetta bara ágizkanir um
þátttöku hússins í þessum kostn-
aði, því að enga reikninga hefi ég
séð, en einhver borgar þetta. Ef
það er ekki Sjálfstæðishúsið, er
það sennilega félagssjóður Heim-
dallar, hvaðan sem honum koma
tekjur, eða kosningasjóður Sjálf-
stæðisflokksins. En ég lít svo á,
sem bókfærsla þessara atriða sé
nánast innanbæjarmál hjá íhald-
inu, og málið í heild horfi eins við
almenningi, hvernig sem það er í
bækur fært.
Fyrstu bekkir framhaldsskólanna
eru barnaskólar, þar sem eru ófull-
veðja og ósjálfráða börn, 13—15 ára
gömul. Veit ég vel, að sumt af
þeim hefir ákveðnar stjórnmála-
fkoðanir. Um þetta er ekki nema
gott að segja og það fólk er lík-
legast til að hafa framvegis sjálf-
stæðar stjórnmálaskoðanir, hversu
lengi sem það heldur sinni barna-
trú. En meginhluti barna hefir eng
ar stjórnmálaskoðanir og vafasamt
að kaupa þau með ódýrum böll-
um til að ganga á hönd ákveðn-
um stjórnmálaflokki. Og nú hefi
ég skýrt málið og þá er ég kom-
inn að skilaboðunum til frúarinnar.
Ég hitti tvœr konur úti í bæ og
þær höfðu talsverða trú á dugn-
aði frú Kristínar Siguiðardóttur og
vitnúðu í áhuga hennar á bind-
indismálum og einbeittan vilja
hennar til að sporna við því, að
kommúnistar spilltu hjörtum ungl-
inganna með guðlausum hugsun-
um og saurugu tali. Og nú eru
skilaboðin þau, að þessar konur
treysti frú Kristínu til þess að
taka fyrir þann sið, að hennar
flokkur og hennar hús reki áfeng-
issölu til að kaupa skólabörn inn
í Heimdall fyrir ágóðann af brenni
vínssölunni. Þær treysta því, þess-
ar gcðu konur, að frú Kristín láti
ekki börnin þeirra sjá fyrir sér
drykkjuskap í hennar eigin húsi,
Sjálfstæðishúsinu. Og það þarf
ekki að biða eftir því, að þing
komi saman, og ekki að sækja neitt
undir menn 1 öðrum flokkum, —
kommúnista, hálfkommúnista og
þeirra vini, til að koma þessaTl
sjálfsögðu siðabót á, því að hún er
bara heimilismál. Húsfreyja Sjálf-
stæðisflokksins, fulltrúi reykvískra
mæðra og eiginkvenna, verður
væntanlega ekki lengi að koma
þessu í lag á hcimavigstöðvunum.
Starkaður gamli.
I Vinum mínum nær og fjær, jafnt samtökum sem ein- |
| staklingum, þakka ég hjartanlega kveðjur allar og |
1 gjafir, heiður og ástúð á afmælisdegi mínum 4. nóv. |
í s. 1., um leið og ég árna þeim allrar blessunar.
Hveragerði, 6. nóv. 1949
Jóhannes úr Kötlum.
E 5
uuMuitimmmmmmmmmmmimmimmiimimmimiimmmmmmmmiiiiimmiiiiiiitmmmmmimimu
UTAN Ú R HEJMI
Elzti maður heimsins
Rússnesku blöðin hafa nýlega
skýrt frá þvi, að elzti maður heims
ins sé nú í Sovétríkjunum. Hann
heitir Mahmet Buzakov og hefir
verið bóndi að atvinnu. Hann varð
nýlega 140 ára gamall. Konan hans,
sem enn er á lífi, er 117 ára göm-
ul og elzta barn þeirra, sem er
dóttir, varð nýlega 100 ára. Alls
eiga þau nú 112 afkomendur á lífi.
Týnda borgin
Leiðangursmenn frá American
Museum of Natrual History hafa
nýlega ferðast um Dauðadalinn
svonefnda í Afganistan. För þeirra
hefir borið þann árangur, að þeir
hafa fundið rústir Peshawarun-
borgar, sem undanfarið hefir geng
ið undir nafninu týnda borgin. Á
dögum Alexanders mikla hafði
hún um 100 þús. íbúa, en síðar
urðu náttúrubreytingar. er orsök-
uðu algert vatnsleysi á þessum
slóðum. Geysilega stórt landssvæði,
sem nú nefnist Dauðadalurinn,
lagðist í auðn og borgin var yfir-
gefin og hefir hennar ekki verið
leitað með árangri fyrr en nú.
Márgar byggingar hennar, eins og
vígi og musteri standa enn uppi
og er búist við miklum straumi
fornfræðinga þangað á næstunni.
Fyrir níu krónur.
Danska blaðið Information seg-
ir nýlega eftirfarandi sögu frá Sví
þjóð og segif að hún sé sönn.
Kona ein, sem hafði keypt svefn-
klefafarmiða með járnbrautarlest
á stöðinni í Vesturási sagði var-
færnislega um leið og hún tók
við miðanum, að það væri víst
enginn karlmaður í klefanum. Af
greiðslumaðurinn svaraði: Nei.
Frúin getun ekki ætlast til að hún
fáj allt fyrir einar 9 krónur.
j.
Allt til aö auka ánægjuna
Stofuskápar — rúmfastakassar 3 gerðir. Borð marg-
ar tegundir, kommóður (ekki úr pappa). Eldhússtæði
og sérlega góðir eldhúskollar ný komnir. Borðstofu-
stólar væntanlegir í byrjun nóvember.
Dívanar ýmsar stæröir og rúmstæði.
Verzl. Ingþórs
Sími 27 — Selfossi
Auglýsingasími Tímans 81300