Tíminn - 28.01.1950, Page 2
TÍMINN, laugardaginn 28. janúar 1950
23. blað
Bæjarstjórnaríhaldiö holar
stofnunum sínum ávallt
niður í íbúðarhúsnæði
Eins og allir vita hefir bæjarstjórnaríhaldið á áratuga-
íöngum valdaferli sínum ekki ráðizt i að byggja yfir skrif-
stofur bæjarins og bæjarstjórnin á heldur ekkert þak yfir
höfuðið. En þetta er ekki undantekning frá reglunni. Segja
má, að bæwnn hafi varla byggt yfir nokkra stofnun sína.
Regla ihaldsins er sú að kaupa eldri íbúðarhús til starf-
lækslunnar, og eru nú langflestar stofnanir bæjarins í leigu
húsnæði eða íbúðarhúsum, sem keypt hafa verið og tekin
íil slíkra nota.
Skulu nú nefnd nokkur
í!æmi um þetta: Við stofnun
vöggustofu að Hlíðarenda er
keypt íbúðarhús, handa hús-
mæðraskóla Reykjavíkur var
keypt íbúðarhús, væntanlegt
oarnaheimili við Laufásveg
verður í íbúðarhúsi- Hið
fræga farsóttahús var að
visu byggt sem sjúkrahús,
en dæmt óhæft til slíkra nota
a öldinni sem leið; þá tekið
cil íbúðar, en síðar aftur gert
að sjúkrahúsi fyrir framtaks
semi íhaldsins. Hjálparstöð
íyrir áfengissjúklinga verður
væntanlega í Valhöll við
ðuðurgctu, sem einnig er
íbúðarhús.
* Venjan er því sú, þegar
oæjarstjórnaríhaldið setur
app einhverja stofnun, að
það kaupir íbúðarhús og þá
oft af einhverjum gæðing-
um flokksins, sem selja eign-
ina við uppsprengdu verði.
Oft stafar þetta af því, að
jhaldið hugsar ekki fyrir
þessu fyrr en allt er komið í
eindaga, og rýkur í að koma
upp ýmsum stofnunum til
málamynda í írafári og kosn
jngaótta. Gefst þá ekki tími
cil að byggja hús við hæfi
viðkomandi stofnunar, og ör-
prífaráðið verður að taka
Jbúðarhúsnæði, sem sannar-
.ega er ekki of mikið af.
Kostnaðurinn við þetta er
oftast miklu meiri en við að
bvggja nýtt hús, því að allar
orevtingar í samræmi við
stofnunina eru mjög dýrar
og^auk bess verður húsnæð-
jð aldrei fullkomlega við
parfir starfrækslunnar.
KaupiÍS Tímnnn!
Gerist kaupendur Tímans.
nú strax og þá fáið þið send
heim til ykkar blöð síðustu
víku (meðan endast) og til
mánaðamóta.
Askriftarsími Tímans er
2 3 2 3 .
Kj'ósið B-listann!
Bálaútvcg'urinii.
(Framhald af 1. siOu)
fjórar verbúðir, svo að hann
geti okrað á afkomu sjó-
manna og annarra bátaeig-
enda með því að láta setja
þeim stólinn fyrir dyrnar um
útgerðaraðstcðu frá Reykja-
víkurhöfn, sé ekki gengið að
afarkostunum.
Já, það er von að miklast
sé af því í auglýsingaskrumi
íhaldsins, aö vel sé búið að
útveginum í Reykjavík. Hitt
er scnnu nær, að vel sé búið
að gæðingum íhaldsins á
kostnað útvegsins.
Nýr fríkirkju-
söfnuður
Á fundi, sem tvö hundruð
og fimmtiu menn úr frikirkju
söfnuðinum í Reykjavík sátu 1
í gær, var samþykkt að stofna 1
hér í bænum nýjan fríkirkju- j
söfnuð. Skoruðu fundarmenn
jafnframt á Emil Björnsson, <
cand. theol., að gefa kost á
sér sem prestur hins nýja
safnaðar, og varð hann við
áskoruninni.
Kjarnorkuráðstefna
i
í Washington |
Innan skarnms mun hefjast
í Washington ráðstefna kjarn
orkufræðinga frá Bretum,1
Kanada og Bandarikjunum. [
Munu sérfræðingarnir fjalla
um þetta mál i ljósi þeirrar
vitneskju, að Rússar ráða nú
yfir kjarnorkusprengju. Eitt
aðalverkefni ráðstefnu þess-
arar verður það að ákveða,
hvað óhætt sé að láta uppi
og skýra almenningi frá um
kjarnorkumálin.
B-iistans verður í
Edduhúsinu á kjördag
Bílasímar:
6066, 80240, 80014 og 80087.
K j iir.sk rá rsíinar.
upplýsingar um hverjir kosið hafa og upp-
lýsingar fyrir trúnaðarmenn: 81300(5 línur),
ÝMSAR UPPLÝSINGAR í síma 5564.
Hitaveitan og'
g'æðingarnir.
(Framhald af 8. siðu).
einnig nokkrir menn, sem
eru sérstakir vildarmenn í-
haldsins í bænum, þótt eigi
séu margir. Gegna þeir ein
hverjum trúnaðarstörfum
fyrir þá, eða eru þeim sér-
staklega innan handar á
einhvern hátt. í eina eða
tvær íbúðir, þar sem þes-
ir menn búa, hafa bæjar-
yfirvöldin látið leggja hita
veitu. Hinar f jölskyldurnar
fá enn að búa við kolaofn
inn í stofunni eða hafa
fcngið sér einn hitaofn frá
eldavélinni.
Konurnar skrifuðu bæj-
arráði en fengu engin svör.
Fólkinu í þessum íbúðum
hefir að vonum þótt það und-
arlegt réttlæti að gengið
skyldi vera fram hjá þessum
íbúðum, þegar hitaveitan var
lögð um Bergþórugötuna. Það
hefir reynt að fá þetta leið-
rétt, og húsmæðurnar í þess-
um íbúðum tóku sig saman
fyrir a. m. k. tveim árum og
rituðu bæjarráði bréf, þar
sem bent var á þetta órétt-
læti og lýst þeirri nauðsyn,
sem á því væri að bæta úr
þessu. Svar hafa þær aldrei
fengið, en þegar eftir hefir
verið gengið, hafa yfirvöldin
alltaf sagt að málið væri í
athugun — en þeirri „athug-
un“ virðist ekki vera lokið
enn.
Viðhald húsanna ekkert.
Þá er viðhald þessara íbúða
svo illt, sem framast getur.
Stigar og gangar eru sundur-
gengnir og dúklausir árum
saman — nema þar sem gæð
ingar íhaldsins og hjálpar-
hellur búa — þar er allt ann-
að umhorf og virðist ekkert
sparað til viðhaldsins.
íhaldsréttlæti.
Flestum bæjarbúum mun
koma þetta á óvart. Menn
eiga bágt með að hugsa
sér að slíkt óréttlæti sé
viðhaft í Reykjavík — jafn
vel þótt íhaldsmenn ráði.
Flestir munu spyrja: Hvað
á þeíia að þýða? Hvers-
konar réttlætj er það að
ganga fram hjá íbúðum
barnafjölskyldna við götur,
þar sem hitaveitan er Iögð,
en leggja hana siðart inn
til einsíakra gæðinga sinna
í sömu húsum. Barnafjöl-
skyldunum, sem búa þarna
í þröngu og lélegu húsnæði
veitir þó sannarlega ekki
af þeim þægindum, sem
hitaveitan veitir. Hér er
um að ræða svo vítavert
misrétti, að ekki má láta
ómótmælt. Það er krafa
allra sanngjarnra manna,
að meðborgurum þeirra sé
ekki misboðið á þennan
hátt, og þeir látnir fá hita
veituna þegar í stað eins
og aðrir, sem búa við sömu
götu. Hitaveitan er sam-
eign allra Reykvíkinga, en
ekki nokkurra beztu hjálp
arkokka íhaldsins.
Stungið ú bliiðrunni.
(Framhald af 1. síOu)
Rannveig æti frumvarpið
ofan í sig, þegar hún
skýrði efni þess og færði
rök fyrir réttmæti þess, en
afhjúpaði íhaldið. Hann
vildi kalla það ofaníát að
reka ósannindin ofan í
hann og hans fólk. Og
þetta hélt hann að væri
góð frammistaða hjá sér!
S.K..T.
Eldrl dansarnlr í G. T.-húsln®
í kvöld kl. 9. — Húslnu lokað kL
10.30.
Aðgöngumiðasala kl. 4—6. — Slml 3355. —
■ ■■■■naaai
iuaaaoaMBii
i ■ ■ ■ ■ e ■ ■ ■
■! Ný íslenzk framleiðsla:
TÓMATSAFI
■! framleiddur úr nýjum íslenzkum tómötum. — Safa
I; þennan má nota bæði til drykkjar og í súpur eftir vild.
■! Reynið hinn holla, íslenzka tómatsafa.
í
— Fæst í næstu búð —
Söhifélufi Garftiirkjjumanna
!• — Sími 5836 —
,w.
Þakpappi
tvær gerðir.
MÚRHÚÐUNARNET
fyrirliggjandi.
A. Jóhannsson & Smith
Bergstaðastræti 52. — Sími 4616.
| Í
TILKYNNING:
" Z
o
v Frestur til að skila skattframtölum í Reykjavík, renn-
<>
{) i.r út kl. 24, þriðjudaginn 31. janúar.
ö
i > Þeirn, sem ekki hafa skilað skattframtöium fyrir * *
þann tíma, verður áætlaður skattur.
Skattstofan verður lokuð dagana 1. til 7. febrúar, að
báðum dögum meðtöldum.
Skattstjórinn í Reykjavík
Allt til að auka ánægjuna
Strákústar, Kúaburstar 3 teg., Gólfsópar,
Stufkústar, Klósettburstar 2 t. margar teg.,|
Stéttakústar, Fiskburstar, Hand-skrúbbur,
Miðst.-ofna- Naglaburstar 2 t. margar teg.,i
kústar, Uppþvottab. 4 teg. Skrúbbuhausar,
Glasakústar, Fataburstar,
Veggf.kústar, Hárburstar,
Bílþvottakústar, Skóburstar,
Gluggakústar, Skóáburðarb.,
2 teg. Brúsaburstar,
Kalkkústar.
2 teg.,
Barnaskrúbbur,
Pottaskrúbbur,
Pottaþvögur,
Kústasköft.
Komið, — skrifið, — símið, — sendið. — Takið bursta-
vörurnar um leið og þið seljið okkur: Flöskur, glös og
tuskur.
Verzlun Ingþórs, Selfossi
Sími 27.
X B-listinn