Tíminn - 21.03.1950, Síða 8
„EiUÆ\T YFIRLYTí( I BAG
KGsnintgariwr í Danmörku.
Eyskens gengur iiia !
stjórnarmyndun |
í Belgíu
|
. Verkfallsalda að skella á í landinu.
Gaston Eyskens, leiðtogi kaþólska flokksins í Belgíu og
fyrrverandi forsætisráðherra, hefir í dag rætt við leiðtoga
ýmissa flokka um myndun nýrrar stjórnar. Meðal annars
ræddi hann við formenn jafnaðarmannaflokksins og frjáls-
lynda flokksins. Eyskens hafði áður tilkynnt blaðamönn-
um, að hann myndi birta yfirlýsingu um árangur viðræðn-
ánna í gærkvöldi, en einkaritari hans tilkynnti seinna, að
Cngin slík tiikynning myndi gefin út fyrr en í kvöld. Telja
fréttaritarar, að erfiðlega muni ganga fyrir Eyskens að ná
samkomulagi.
30 þús. í verkfalli
í Antwerpen.
Um 30.000 verkamenn í
Antwerpen hófu í gærmorg-
un sólarhrings verkfall, í
mótmælaskyni við það, að
Leopold verði aftur gerður
að konungi. Meðal þessara
verkamanna eru um 24.000
hafnarverkamenn, og hefir
vinna stöðvast við 100 belgisk
og erlend skip í höfninni í
Antwerpen.
Víðtæk mótmælaverkföll.
Verkaiýðsfélög, sem ka-
þólski flokkurinn stjórnar,
hafa hvatt félagsmenn sína
til þess að taka ekki þátt í
verkfalli þessu.
Þá gerðu um 10.000 verka-
menn í Briissel verkfall í gær,
einnig í mótmæiaskyni. Er
búist við, að seinna i þessari
viku mun víðtæk mótmæla-
verkfþll skella á í Belgíu.
Ráðstefna um
blindraletur
f gær hófst í París ráð-
stefna um blindraletur, sem
haldin er á vegum menning-
ar- og vísindastofnunar S.Þ.
Helmingur fulltrúanna á ráð-
stefnunni er blindur. Nú eru
notuð í heiminum eigi færri
en 8 blindraleturskerfi, og er
markmið ráðstefnunnar að
reyna að samræma þessi
blindraleturskerfi, eftir því
sem unnt er.
...........................................................
| Kornvörur keyptar frá útlöndum j
j í smápokum og pappaöskjum j
| Ó}>örf ssjíddevf'ispvðshi. Víinirnar af f
| þessieni KÖkum miklu dýrari fyrir
nc.ytendur en þær þurfa að vera.
Á síðustu árum hafa verzlanir keypt til landsins
1 allmikiö af kornvörum í litlum umbúðum, og hefir sá j
| innflutningur farið ört vaxandi. T. d. er hveiti selt í !
| smápokum, sem taka 5 og 10 ensk pund hver, en hafra- j
| grjón og hrísgrjón í % eða 1 kgr. pappaöskjum. Mun
| nú svo komið, t. d. hér í Reykjavík, að smásöluverzlan- i j
| ir selji miklu meira af kornvöru í slíkum smáumbúð- |
| um heldur en í lausri vigt eða heilum sekkjum. Þetta |
| tel ég mjög óheppilega verzlpnarhætti. Ég hefi aflað |
| mér upplýsinga um það, að hveiti í 5 og 10 punda pok- f
| um er 10—15% dýrara heldur en í 50 kgr. sekkjum. Og ]
| hafragrjónin og hrisgrjónin, sem seld eru í % eðal 1.
| kgr. pappaöskjum, eru 30—40% dýrari heldur en sömu 11
| vörutegundir í lausri vigt eða í heilum sekkjum. |
Með þessum smápakkainnflutningi er miklum er- §
| lendum gjaldeyri eytt að þarflauSu, og nauðsynlegar \
kornvörur til manneldis eru á þennan hátt gerðar i
| miklu dýrari fyrir neytendur en þær þurfa að vera.
Til þess að byrðar gengisbreytingarinnar verði i
| sem léttbærastar fyrir almenning er mjög nauðsyn- |
| legt að halda vöruverði í skef jum og gera það sem unnt |,
I er til þess, að menn geti fengið nauðsynjavörur með i
| sem hagstæðustum kjörum. Eitt af því, sem nú þarf \ i
| að gera, er að stöðva með öllu innflutning á kornvör- 1
| um í smápokum og litlum pappaumbúðum. Er máli |
þessu hér með skotið til gjaldeyrisyfirvaldanna til |,
I athugunar.
Skúli Guðmundsson. i
állllllllllllllllllllllllllllllMlllillllllillilllllrlllillllllllllllMlllllilrlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllM |
Á von á barni
Ensku blöðin skýra frá því,
að Elísabet krónprinsessa eigi
von á erfingja í september
næstk. Maður hennarí Philip
hertogi, hefir undanfarna
mánuði starfað sem sjóliðs-
foringi á Miðjarðarhafsflota
Breta, en hún var hjá hon-
um á Malta frá 20. nóv.—28.
des. í vetur.
Jazzblaðið efnir til
jazzhljómleika
Næstkomandi þriðjudags-
kvöld kl. 11,30 e. h. verða
haldnir jazzhljómieikar í
Austurtoæjarbíóá. Hljómleik-
ar þessi eru á vegum Jazz-
blaðsins og standa í sam-
bandi við kosningar, sem
blaðið lét fara fram meðal
lesenda sinna, um vinsæl-
ustu íslenzku jazzleikar-
ana.
Þeir sem fremstir voru í
kosningunum munu leika
þarna, og skiptast þeir niður
í nokkrar hljómsveitir. Auk
þess munu hljómsveitir
Kristjáns Kristjánssonar,
Jan Morávek og lítil híjóm-
sveit, sem Gunnar Egilson
hefir æft saman sérstaklega
fyrir þessa hljómleika,
koma þarna fram.
Af öðrum hljóðfæraleikur
um, sem koma þarna fram
má nefna þá Gunnar Orm-
slev, Ólaf Gauk, Vilhjálm
Guðjónsson, Jón Sigurðsson
og Braga Hliðberg.
Einnig munu þau Sigrún
Jónsdóttir söngkona . og
Haukur Morthens söngvari
koma fram á hljómleikun- j
um. Ásamt þeim munu þá j
um tuttugu og fimm manns
koma fram á hljómleikum
þessum.
Farinn til Riiss-
lands.
Rússinn Valentin Gubichev
er nú farinn frá Bandaríkj-
unum áleiðis til Rússlands.
Hann var, sem kunnugt er,
starfsmaður hjá Sameinuðu
þjóðunum og var hann fyrir
nokkru dæmdur fyrir að reka
njósnir fyrir Rússa í Banda-
ríkjunum. Hann kaus fremur
að snúa heim til Rússlands,
en afplána sekt sína í Banda-
ríkjunum.
Aldarafmæli Jóns
Ólafssonar ritstjóra
Blaðamannafélagi íslands gefið fundar-
iBoff Sians að stofnfundi félagsins.
í gær voyu liðin 100 ár frá fæðingu Jóns Ólafssonar rit-
stjóra og skálds. í tilefni af þessu aldarafmæli afhenti Há-
kon Bjarnason skógræktarstjóri Blaðamannafélagi íslands
til eignar fundarboð að stofnfundi Blaðamannafélags ís-
lands, er Jón Ólafsson sendi öðrum ritstjórum blaða í Reykja
vik 1S. nóv. 1897.
Jón Ólafsson var fæddur
að Kolfreyjustað 20. marz
1850. Hann var átstjóri fjöl-
margra blaða bæði hér á
landi og vestan>'>diafs. Má
segja, að hann sé fyrsti ís-
lendingurinn, sem gerði blaða
mennsku að lífsstarfi sínu.
Jón var alþingismaður Sunn
mýlinga um alllangt skeið.
Hann var svipmíkill og snjall
rithöfundur og þjóðkunnur
frá þeim tíma, -er hann hóf
blaðamennsku. Hann var
skáld gott og orti hinn kunna
íslendingabrag, sem frægur
hefir verið æ síðan og olli á
sínum tíma uppnámi miklu.
Fundarboðið.
Hákon Bjarnason skóg-
ræktarstjóri, dóttursonur
Jóns Ólafssonár, afhenti
Blaðamannafélagi íslands í
gær fundarboð-það, er Jón
sendi öðrum ritstjórum í
Reykjavík og varð það upp-
haf að stofnun Blaðamanna-
félagsins. Fundarboð þetta
var svohljóðandi:
„Það eru vinsamleg til-
mæli við yður, að þér vilduð
gera svo vel að -koma niður
á salinn á Hótel ísiand (þar
sem stúdentafélagið er vant
að halda fundi) föstudaginn
19. nóv. kl. 8yz síðd. Tilgang-
ur minn er að bera þar upp
við yður tillcgu um stofnun
blaðamannafélags bæði í því
skyni að efla hagsmuni stétt
ar vorrar á ýmsa lund og efla
félagslega umgengni og við-
kynni blaðamanna á milli.
Skal ég á fundi þessum reyna
að skýra fundarefnið ýtarlega
og benda á ýmisleg verkefni,
er mér hafa hugkvæmzt sem
sennileg viðfangsefni fyrir
blaðamannafélag, ef það
kæmist á“.
Fundarboð þetta sendi Jón
Hannesi Þorsteinssyni, Birni
Jónssyni, Einari Hjörleifs-
syni, Valdimar Ásmundar-
syni, Bríet Bjarnhéðinsdótt-
(Framhald á 2. síðu).
Opið bréf til
Jóhanns Þ.
í Tímanum á morgun verð-
ur birt opið bréf til Jóhanns
Þ. Jósefssonar alþingismanns
í Reykjavík frá Helga Bene-
diktssyni útvegsmanni í Vest-
mannaeyjum.
Stúdentafélag Reykjavíkur
heldur fund um „trú og
vísindi"
\
Mels Uun^al prófessor og’ séra Sig'urbjöru
Einarsson verða frunimælendur.
Stúdentafélag Reykjavíkur heldur fund í Tjarnarbíó í
kvöld og hefst hann kl. 8.30. Umræðuefni verður „Trú og
vídindi.*' Frummaelcndur verða, prófessorarnir Níefe P.
Dungal og Sigurbjörn Einarsson. Að ræðum þeirra loknum
verða frjálsar umræður eftir því sem tími leyfir.
Frummælendur hafa eins
og kunnugtæivdátíð þessi mál
mikið til .‘fín taka, og mun
því mörgum leiká hugur á
að hlýða á- rökraéður þeirra.
Einnig má' vænta, að ýmsir
aðrir fróðir menn taki til
máls á fundiríum.
Á fundum þelm, sem félag-
ið hefir haldið í vetur, hefir
verið svo mikið fjolmenni, að
ekki hafa allir íeiigið sæti og
er mönnum þvr ráðlagt að
koma stundvíslega.
Eins og fyrr, er öllum stú-
dentum, sem framvísa félags-
skírteinum, heimill aðgangur
að fundinum. Þeir stúdentar,
sem ekki hafa enn vitjað fé-
lagsskírteina, ættu að gera
það í Tjarnarbíó kl. 5,15—7,
og komast þannig hjá bið, því
að afgreiðsla hvers skírteinis
tekur nokkurn tíma.
Kvöldvaka.
Þá er ákveðið, að stúdenta-
félagið efni til kvöldvöku að
Hótel Borg n. k. föstudags-
kvöld. Þessi kvöldvaka verð-
ur með svipuðu sniði og fyrri
kvöldvökur félagsins í vetur.
Þar verður margt til skemmt-
unar, m. a. hinn vinsæli spurn
ingaþáttur. Þetta verður síð-
asta kvöldvaka félagsins á
þessum vetri.