Tíminn - 15.08.1950, Qupperneq 7
176. blað
TÍMINN, þriðjudaginn 15. ágúst 1950
7
MeSstaramót íslands:
Bob Mathias og Brusselfararnir
heppa á íprótíavellinum kl. tt.lS í hvötd. Allir verða að sjjá heimsmeistaránn í tnq-
þruut kcppa við beztu ípróttamenn iandsins.
SpiiAAelHeýndi*
Erlent yfirllt
(Framhald a} 5. síOu.J
stríðsgæfan snerist gegn Chiang
Kai Shek, en eftir það var lít-
illi skipan við komið. Wu reyndi
þó að halda í horfinu eftir beztu
getu, en ofreyndi sig og varð
að vera rúmliggjandi um all-
langt skeið. Áður en hann hafði
náð fullri heilsu aftur, sendi
Chiang Kai Shek hann til For-
mósu, sem hann hafði þá á-
kveðið að gera að seinustu
bækistöð sinni. |
Stjórn Wu á Formósu.
Á Formósu fékk Wu fyrst
hvíld eftir margra ára þrotlaust
og hvíldarlaust starf Hann fékk
ekki aðeins tóm til að gera sér
ljóst, hvað orsakað hafði ósigur
Kuomingtangstjórnarinnar,
heldur gat einnig kynnt sér þau
mistök, sem þegar var búið að
gera á Formósu, en þar voru
embættismenn Kuomingtang,
er komið höfðu þangað í stríðs-
lokin, orðnir enn óvinsælli en á
meginlandinu. íbúar Formósu
voru á góðum vegi að ganga
kommúnistum á hönd.
í desember síðastl. var Wu
orðinn heill heilsu og Chiang
Kai Shek fól honum þá land-
stjórnina á Formósu. Hann tók
strax til óspilltra mála. Breytt
var um menn í flestum emb-
ættum og voru Formósumenn
skipaðir í mörg þeirra. Hafizt
var handa um ýmsar umbætur,
eins og jarðaskiptingu, sem
hlotið hefir. miklar vinsældir.
Herstjórnin var endurskipu-
lögð á sama hátt.
Fyrir stjórn Chiang Kai Shek
er það mikilvægur styrkur að
geta bent á þennan árangur á
Formósu. Það hefir líka sitt að
segja, þegar deilt er á ákvörð-
un Bandaríkjamanna um að
verja Formósu, að þar er nú
eini herinn í Asiu, sem er lik-
legur til að geta veitt kom-
múnistum verulega mótspyrnu,
ef til meiri hernaðarátaka
kynni að koma.
Haldið á rétti f slands
(Framhald af 5. síðu.)
til ca. 15. ág. er fiskur er þar
lausastur við botn] þegar
hér er tregast um afla.
Mjög leikur á tveim tung-
um um aðra landskosti á
Grænlandi. Þó vita menn, að
þar eru málmar í jörðu og
námugröftur nokkur rekinn.
Kol eru þar á sumum stöð-
um. Landbúnaður var þar
mikill meðan íslendingar sátu
landið. Útigangur er þar mik-
ill og góður. Hefir þróazt á-
gætlega fé það, er þangað
var flutt frá íslandi fyrir
nokkrum árum, og lifað hefir
á útigangi.
Blaðið Dimmalætting bolla-
leggur um það fyrir
skemmstu, að Færeyingar
byggi landið, flytji þangað
sauðfé úr eyjunum.
Sigurður Sigurðsson búnað-
armálastjóri, sem komið hef-
ir til Grænlands og ferðast
þar um — að vísu um hávet-
ur — hefir hvatt danska
bœndasyni til þess að hverfla
til Grænlands að stunda þar
landbúnað, að því er „Nati-
onaltidende" skýrðu frá í vet-
ur. Virðist þá sem íslendingar
hefðu þar og eftir nokkru að
slægjast, því að hingað til
eru þeir eina þjóðin, sem hef-
ir sýnt, að hún geti rekið bú-
skap á Grænlandi, og sakir
staðhátta líklegastir til þess,
að kunna einna bezt tök á
búskap þar.
Um gögn og gæði landsins
skal nú annars ótalað.
En hver er réttur vor til
þessara hlunninda? Eru ekki
„öll sund lokuð“ — harðlok-
uð og læst þeirri þjóð, sem
fyrst fann og byggði landið,
hæfust mundi að hagnýta sér
það, og liggur því næst.
Ríkisþing Dana setti lög í
vetur um bann gegn fisk-
veiðum í landhelgi Græn-
iands og ströng sektarákvæði.
Nær bann þetta til allra nema
Skrælingja og þeirra, sem
eru í þjónustu einokunarinn-
ar.
Þing Norðmanna hefir og
sett lög í vetur — eða hefir
með höndum — um athafnir \
Norðmanna á Austur-Græn-
landi.
Það er því með öllu tími til
kominn, að Alþingi íslend-
inga taki allt Grænlandsmál-
ið til rækilegrar athugunar.
Alþingi setti þriggja manna
nefnd á einkafundi í þinglok
, í fyrra til þess að kynna sér
og rannsaka þessi mál.
j Nefndinni hefir orðið nokkuð
örðugt um aðdrætti nauðsyn-
legra rita og upplýsinga, því
þeirra er lítt kostur hér í
landinu. Hefir starfið orðið
miklu torsóttara fyrir þá sök,
að nefndin var ekki opinber-
lega skipuð. Hefir hún þvi
ekki lokið starfi sínu. Nefnd-
armenn hafa nú orðið ásáttir
um að flytja tillögu þá um
skipun nýrrar nefndar, sam-
kvæmt þingsköpum, sem hér
kemur fram á þingskjali 498.
Ætlumst vér til þess, að
nefnd þessi verði kosin nú
þegar hér á fundi, og munum
vér afhenda þeirri nefnd
það, sem einkanefndin hefir
saman dregið af gögnum og
hefir til málanna að leggja.
Tilætlun vor er, að nefndin
starfi ríkissjóði kostnaðar-
laust.
Ég hefi -drepið á verksvið
nefndarinnar. Það er í stuttu
máli, eins og tillagan greinir,
að rannsaka alla réttarstöðu
Grænlands að fornu og nýju,
að því er ísland varðar, eða
bæði „fornstöðu“ og „ný-
stöðu“ landsins í sambandi
við ríkjandi réttarhugmyndir
nútímans."
Ég vil að lokum taka það
skýrt fram fyrir hönd einka-
nefndarihnar, að vér teljum
mál þetta alþjóðarmál ís-
lendinga, en alls ékki flokks-
mál, jafnvel þótt skoðanir
kunni að vera — eða verða —
nokkuð mismunandi um ein-
hver einstök atriði þess, og
hver sem niðurstaða rann-
sóknarinnar verður að lokum.
Tel ég þjóðinni það hollt og
gagnkvæmlegt, að hafa stór
og göfug mál fyrir stafni, þau
er tengt geti saman krafta
hennar og eflt sjálfstæðis-
vitund hennar. Nóg er til, sem
tvístrar og sundurdreifir."
Þingsályktunin var sam-
þykkt með 29 atkvæðum gegn
1. Þá var kosið í Grænlands-
nefndina og hlutfallskosning
við höfð. Komu fram tveir
listar, A og B. Á A-lista voru:
Benedikt Sveinsson, Magnús
Jónsson og Tryggvi Þórhalls-
son, en á B-iista: Stefán Jó-
hann Stefánsson, Hlaut A-
listinn 32 atkvæði, en B-list-
inn eitt. Forseti lýsti rétt
kjörna i nefndina: Benedikt
Sveinsson, Magnús Jónsson
og Tryggva Þórhallsson.
Þessi atburður á Alþingi
1924 og 1925 eru merkilegir
vegna þess, að þeir sýna ljós-
lega, að hugur Alþingis er
þegar þá sá, að standa fast á
rétti íslands til Grænlands'
og sækja hann lagavegínn i i
hendur Dana, er ísland fengi;
aðstöðu til að geta sótt mál- j
ið í alþjóðadóm. J. D. j
Auglýsingasími
Tímans er 81 300
SKIPAUTG6HO
RIKISINS
Ármann
til Vestmannaeyja í dag. Tek
ið á móti flutningi daglega.
BergurJónsson
Málaflutningsskrifstofa
Heima: Vitastig 14.
Laugaveg 65, sími 5833
Minningar frá íslandi
Minningar frá íslandi heitir myhdahefti, sem kemur út í dag.
í heftinu eru marar gullfallegar ijósmyndir af landi og þjóð.
Myndahefti þetta er sérstaklega ætlað fyrir innlenda og erlenda ferðamenn, en
óhætt má telja að það verði kærkomið á hverju heimili.
Heftið er á islenzku. ensku og dönsku. Formáli ásamt myhdatextum á íslenzku og
ensku er skrifaður af Bjarna Guðmundssyni blaðafulltrúa af hans alkunnu smekk-
vísi. Einnig hefir hann skrifað Annál íslands, sem er í heftinu og vafalaust mun
vekja verðskuldaða athygli. Dönsk þýðing ér eftir Martin Larsen fulltrúa í sendiráði
Dana gerð af samvizkusemi og þekkingu.
★ Þctta cr bók, sem vcrSnr vinsael af fcrða-
mönritnm, hvorí scm viðstaðan cr 2 tímar
cða 20 dagar.
★ Þctta cr hók, sem handhægt cr að scnda
vinum sínnin hcima og crlendis — ckki of
stór — ckkl of lítil — einmitt mátnlcg.
★ Þctta cr hók, scm vcrður til ánægju og
fræðsln fyrir utlcnda scm innlcnda mcnn.