Tíminn - 15.08.1950, Blaðsíða 8

Tíminn - 15.08.1950, Blaðsíða 8
1 — -■ y 9 -ÍC5 34. árg. Reykjavík 15.ágúst 1950 176. blað i MLrmLrLgarháttb Jóns biskups Arasonar að Hólum: Kirkjuturninn á að minna Islend- inga á skyldurnar við ættjörðina I lóla? afíar kúsíaSnr kirkjuiesíra irik» — PisÉtaskipíi á scigss staðarins á ný. Baðaður í sólskini breiddi Skagaf jörður faðminn móti gestum sínnm og heimamönnum síðastliðinn sunnudag, er haldið var „hehn til II6!a“ eins og Skagfirðingar orða það. Minningarhátíð Jóns biskups Arasonar fór fram að Ilólum þann dag með miklum glæsibrag, enda var í hvivetna vandað hið bezía til samkomunnar. Það er jaínan vel þegið þegar upp styttir eftir lang- varandi rigningu á miðjum slætti. Siíkir dagar eru heilla dagar í islenzkri sveit. Þann- ig var það í Skagafirði síðast liðinn sunnudag, daginn sem minningarhátíö Jóns biskups Arasonar fór fram að Hólum. Hafi góðir vættir einhvern tíma vakað yfir hinu fagra héraði hafa þteer gert það þennan dag og mörgum af þeim hundruðum Skagfirð- inga, sem riðu heim til Hóla í sólskininu um hið fagra lrér að, fannst eins og guðleg for sjá, hefði séð þeim fyrir þessu veðri á hátiðlegri stund. Sumum finnst það kannske hjátrú, en mörgum fannst andi hins stórbrotna mikils- mennis svifi yfir Héraðsvötn unum og hinum fögru byggð um þennan dag. Og engin hjá trú er það að ætla, að fyrir bænarstað hins bænheita biskups hafi Skagafjörður tjaldað sínu fegursta skarti á þessum tyllidegi. Riðið heim til Hóla. Frá því snemma morguns lá straumurinn til Hóla, úr öll um greiðfærum áttum. Heim til Hóla héldu Skagfirðingar hundruðum saman hvaðan- æfa af landinu, og margir gestir gistu héraðið þennan dag. Óvenjulegur fjöldi hesta var á ferð á öllum götum heim til Hóla, og svo til stanz laus straumur hinna nýju vélfláka brunuðu yfir brýr stórfljótanna, sem þróttmikl- ir gæðingar hafa brúað í þús und ár. En Skagafjörður er þrátt fyrir bílaöldina enn í dag hesta- og hestamanna- hérað. Það ber honum lika að vera. | Hólar í viðhafnar- búningi. Heima á Hólum stendur mikið til. Þetta glæsilega höfuðból, sem ber vott um ó- venjulega snyrtimennsku og reglusemi, er þó jafnvel venj ulega snyrtimennsku og reglusemi, er þó jafnvel venju fremur viðhafnarbúið í dag. Heim að Hólum liggur lang ur og beinn vegur. Síðasti á- fangi leiðarinnar verður mönn um eftirminnilegur, því á heimreiðinni með Hóla fyrir framan sig hafa menn tíma til að komast í snertingu við söguna, sem lifir í hugum fólksins í landinu og verður bráðlifandi á heimreiöinni til fíóla. Við veginn heim að staðn- um, eru tvö viðhafnarhlið með nokkuð lcngu millibili. Þau eru óvenjuleg og smekkleg. Yfir hliðið við brúna er strengdur dúkur, þar sem á er letrað! 400 ára minningarhátíð Jóns biskups Arasonar. En á það, sem nær er staðnum, er letrað Velkom in heim til Hóla. Hlýleg kveðja til þeirra, sem gista Hólastað þennan viðhafnar- dag. Vegvísirinn upp úr fánaborginni. Heima á staðnum, er mikil fánaborg. En ofar öllu gnæf- ir þó minningarturninn, sem á ókomnum öldum á að bera kynslóðum vitni um afrek Jóns biskups Arasonar og soná hans. Hann er tákn þess fórnarvilja og þeirrar trúmennsku sem islenzka þjóðin þarf nú mest á að halda. Hann vísar þjóðinni heim að Hólum og leiöina til að vera góður íslendingur. Klukkur fornar. kirkju hringja. Þegar klukkur frægustu kirkjunnar á íslandi dóm- kirkjunnar á Hólum, hringdu inn hátíðina, nákvæmlega klukkan hálftvö, var orðið mannmargt undir kirkjuveggj unum. Klukknahljómurinn bergmálaði vel um staðinn, og meðan á honum stóð fannst mönnum, að Hólar væri aftur orðnir miðstöð kristninnar og kirkjunnar í Norðurlandi. Ef til vill hefir það verið fyrirboði þeirrar ó- væntu frétta, er forsætisráð- herrann færði mönnum síðar um daginn. Þegar tónar kirkj uklukk- unnar dóu út var samkomu- gestum tilkynnt, að allir ættu að ganga í skrúðgöngu til kirkju, frá gamla bænum. Söfnuðust samkomugestir því þar saman. Síðan var lagt af stað í kirkjugönguna þaðan. Fór hún vel og skipulega fram og var hin hátíðlegasta. Fremstir gengu biskup landsins, Sigurgeir Sigurðs- son, og forsætisráðherra Steingrimur Steinþórsson, sem jafnframt er þingmaður Skagfirðinga, eins og kunn- ugt er. Næstir gengu vígslu- biskuparnir tveir séra Bjarni Jónsson, að sunnan og séra Jónas Rrafnar að norðan. Þar næst komu í göngunni þrjá- tíu hempuklæddir prestar, þá Bjarni Benediktsson, utan- ríkisráðherra, og sendiherra Norðmanna á íslandi, Thor- sten Andersson-Rysst. Var mönnum mikið fagnaðar- efni að sjá hann heima að Hól um við þetta tækifæri. Á- nægjulegt að fulltrúar þeirr- ar þjóðar, sem íslendingar elska mest og virða og eru enda skyldastir, skyldi taka þátt í hátíð þjóðarinnar þenn an dag. Þá komu svo Hólamenn og loks almennir hátíöargestir, skiptu þúsundum. Minnismerkið 27 metra hár turn. Guðþjónusta í Hólakirkju (Framhald á 2. síöu.) Þessi mynd er tekin, þegar skrúðganga samkomugesta að Hólum hélt til kirkjunnar heiman frá bænum. Efsta myndin til vinstri er af hliðskreytingu á leiðinni heim til Hóla. — Næsta mynd neðan við er séð heim a ð staðnum úr gróðrarstöðinni. Þriðja myndin ofanfrá er af biskupunum á tröppum turnsins við vígslu hans. Fjórða myndi í er af Steingrími Steinþórssyni forsætisráðhcrra, er hann flytu r ræðu sína að Hólum, og neðst a myndin er tekin yfir sam- komusvæðið við kirkjuna og turninn, meðan vígsla hans fór fram. Sér út Hjaltadal á mynd- inni, en Tindastóll blasir við mynr.i dalsins. (Ljósm. Guðni Þórðarson)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.