Tíminn - 19.08.1950, Blaðsíða 2
2,
180. blao.
TÍMINN, laugardaginn 19, ágúst 1950.
Útvarpið í dag:
Fastirllðir eins og venjulega.
Kl. 20.30 Útvarpstríóið leikur.
20.45 Upplestur og tónleikar: Úr
Karla-magnússögu (Finnbogi
Guðmundsson cand. mag. og
Bjarni Vilhjálmsson cand. mag.)
21.45 Danslög (plötur). 22.00
Fréttir og veðurfregnir. 22.05
Danslög (plötur). 24.00 Dagskrár
lok.
Hvar eru skipin?
'Ríkisskip.
Hekla fer frá Glasgow annað
kvöld áleiðis til Reykjavíkur.
Esja kom til Reykjavíkur í gær-
kvöld að austan og norðan.
Herðubreið er væntanleg til
Reykjavíkur í dag að austan og
norðan. Skjaldbreið er væntan-
leg til Reykjavíkur í dag frá
Breiðafjarðarhöfnum. Þyrill er í
Reykjavík.
hafi tii
Óháði Fríkirkjusöfnuðurinn.
Fyrirhuguð messa á morgun
fellur niður vegna hópferðar,
sem safnaðarfólkið efnir til út á
land þann dag, en messað verð-
ur um næstu helgi að öllu for-
fallalausu.
. Séra Emil Björnsson.
Ur ýmsum áttum
Skotfélagið fær athafnasvæði.
Bæjarstjórn hefir nú sam-
þykkt að veita Skotfélagi Reykja
víkur athafnasvæði í Grafar-,
holtslandi og skal lögreglan líta
eftir öllum öryggisútbúnaði þar.
Iþróttasamband Islands hefir
viðurkennt íþrótt félagsins.
Vatnsveituskuldabréf
Hafnfirðinga.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hefir ákveðið að bjóða út skulda
bréfalán að upphæð 1 millj. kr.
til 5 ára. með 6% vöxtum til þess
að koma upp fullkominni vatns-
veitu í kaupstaðnum.
Gerald Warner Brace. Sagan er
um þrjá ættliði fjölskyldu nokk-
urrar í Nýja Englandi.
Leaves of Grass, safn af kvæð
um Walt Whitman’s.
Song of the Pines, eftir Walter
og Marion Havighurst. Saga af
norskum skógarhöggsmönnum í
Bandaríkjunum.
Current affair‘s and Modern
Education, yfirlit um skólamál í
Bandarík j unum.
Sea for Sam um sjávarlíf,
strauma, bókin er prýdd mörg-
um myndum.
Fundamentals of Soil Mecha-
nics um jarðvegsfræði.
Þariun
(Framhald af 1. siSu.)
við matargerð. Efni þetta er
nokkuð dýrt, mun kosta um
þrjátíu krónur kílógrammið,,
og af því er um 4% í blautum
þara.
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Álaborg 17.
ág. til Reykjavíkur. Dettifoss er
1 Hull, fer þaðan til Rotterdam í
dag. Fjallfoss kom til Gauta- j
borgar 17. ág. Goðafoss er í
Reykjavík. Gullfoss kom til j
Kaupmannahafnar 17. ág., fer
þaðan í dag til Leith og Reykja-
víkur. Lagarfoss er í Reykjavík
fer um hádegi í dag til New
York. Selfoss er á Siglufirði.
Tröllafoss er í Reykjavík.
Fiugferðir
Loftleiðir.
Innanlandsflug: 1 dag er á-
ætlað að fljúga til Vestmanna-
eyja kl. 13.30. Til Akureyrar kl.
15.30. Til Isafjarðar, Patreks-
fjarðar og Hólmavíkur. Þá verða
flognar tvær ferðir milli Akur-
eyrar og Siglufjarðar.
Á morgun er átælað að fljúga
til Vestmannaeyja.
Millilandaflug: „Geysir“ fór
héðan til New York í gær kl.
17.00 með 30 farþega. Ráðgert
hafði verið að vélin færi til
Kaupmannahafnar áður og tæki
þar 20 farþega, en af því varð
ekki.
Flugstjóri á „Geysi“ vestur er
Magnús Guðmundsson. Meðal
farþega með „Geysi“ vestur er
Baldur Bjarnason flugvélavirki,
starfsmaður hjá Loftleiðum h.f.
Fer Baldur tjl Californíu, en þar
er verið að gera miklar breyt-
ingar á „Heklu“ skymastervél
Loftleiða. Mun Baldur fylgjast
með verkinu og kynna sér ný-
ungar í starfi sínu. Gert er ráð
fyrir að viðgerðinni á „Heklu“
verði lokið innan 6 vikna.
Messur á morgun
Hallgrímskirkja.
Messa klukkan 11 fyrir hádegi
á morgun, séra Jakob Jónsson:
Syndatilfinning nútímamanns-
ins.
Nesprestakall.
Messað í kapellu háskólans kl.
2 á morgun, séra Jón Thoraren-
sen.
Laugarneskirkja.
Messa kl. 11 f. h. á morgun.
Séra Garðar Svavarsson.
Nýtt hefti af Dagrenningu.
Hefti af tímaritinu Dagrenn-
ing er nýkomið út, meðal griena
þess má nefna: Upphaf þriðju
heimsstyrjaldarinnar, Athyglis-
verð ártöl í sögu íslendinga og
^thugun við prédikun og dans
á eftir. Allar þessar greinar eru
eftir Jónas Guðmundsson, rit-
stjóra tímaritsins. Einnig eru í
heftinu greinarnar Alb. Hiarth
eftir Skúla Tómasson, Kristin-
dómur gegn kommúnisma og
Sál og,andi og fleiri greinar.
Eftirfarandi bækur
hafa Bókasafni Bandaríkjanna
á Laugaveg 24, borizt nýlega og
má fá þær lánaðar til viku í
senn.
The Garretson Chronicle eftir
1 góðu berjaári vaknar sú
spurning, hvort þeir, sem berja-
löndin eiga, gætu ekki hagnýtt
þau meira og betur en verið hef
ir. Að vísu munu sum heimili,
er eiga land, þar sem berjavöxt-
ur er góður og nokkuð öruggur,
hafa lagt á undanförnum árum
tglsverða stund á berjatínslu,
ekki sízt þar sem margt er ungl-
inga heima fyrir. Munu sum
sveitaheimili jafnvel hafa haft
verulegar tekjur af berjasölu til
verzlana og stofnana, er þeirra
þurfa með.
En sú spurning vaknar, hvort
ekki sé hægt að koma skipulagi
á nýtingh berjanna, þannig að
fleiri heimili gætu fengið tekjur
sinar með berjalestri, án þess að
hætta væri á því, að aukið fram
boð felldi svo verðið, að tínslan
gæfi ekki lengur neitt í aðra
hönd.
í efnagerðum hér er framleitt
mikið af saft, sem i rauninni er
ekki annað en litað sykurvatn
með einhverjum smávægilegum
íbæti. Þessi saft er léleg, hvern-
ig sem á hana er litið, bragðdauf
og bætiefnasnauð, það er í raun
Skilyrði til vinnslu.
Þar sem þari er skorinn í
stórum stíl, eru notaðar eins
konar sláttuvélar, sem dregn-
ar eru eftir sjávarbotni, en
þarinn síðan tekinn í vörpu.
Grær þarinn aftur á þremur
til fimm árum, þótt hann sé
sleginn eða skorinn.
Við vinnslu þarans þarf
heitt vatn, sem er fyrir hendi
á Reykjanesi, og að sjálf-
sögðu einnig rafmagn, en raf-
virkjun er þar engin. Hins
vegar er mjög kostnaðarsamt
að flytja þarann langar leiðir
óunninn.
tftbretíil T/ntanh
inni ekki annað í henni en syk-
urinn, sem gefur henni minnsta
gildi. Berin, sem spretta á víða-
vangi, eru þrungin sólskini og
gróðurmagni. Þau eru hin á-
kjósanlegustu til saftgerðar og
fleiri nota. Úr þeim má búa til
úrvalsvöru, sem tæki sykur-
vatni og mauki ýmsu, sem selt
er dýrum dómum, langt fram.
Hvers vegna taka samtök
bænda ekki til athugunar nýt-
ingu berjanna? Hvers vegna eru
ekki til berjasamlög, sem kaupa
berin af bændum landsins á því
verði, sem fært er, vinna úr
þeim og láta á markaðinn góða
vöru, sem verður eftirsótt, í stað
hins litaða sykurvatns? Ekki
mundu skömmtunaryfirvöld
landsins væntanlega síður láta
slíkum berjasamlögum í té syk-
ur til iðju sinnar en sykurvatns-
gerðunum, sem nú fá sykur afí
þörfum. Og ekki veitti bændum
landsins af því, að á þennan
hátt væri hægt að skapa nokk-
urn veginn árvissar smá-auka-
tekjur handa þeim með nýtingu
gæða hinna óræktuðu holta og
skriðuhlíða. J. H.
jhrnum i/eai -
Hagnýting berjanna
Ferðafélag Akureyrar
gerir göngubrú á Kreppu
Þesst brúargerð auðveldar mjög ferðir í
Ifvannalindir þegar Kverká er lítil
Fyrstu daga þessa mánaðar fór Ferðafélag Akureyar
skemmtiferð í Hvannalindir og var Kreppa brúuð göngu-
brú við það tækifæri. Tíðindamaður blaðsins átti í gær tal
við Þorstein Þorsteinsson, formann Ferðafélags Akureyr-
ar, er var fararstjóri í þessari för.
Ekið var á samtals níu bif-
reiðum, þar á meðal einni 27
manna langferðabifreið að
Möðrudal og þaðan fram
með Kreppu. 59 manns tóku
þátt í förinni. Nam ferðafólk
ið staðar við Kverká á móts
við Grágæsahnj úk. Ekki
reyndist fært að aka yfir
Kverká vegna sandbleytu en
áin fellur þarna á eyrum í
mörgum kvíslum. Mun því oft
vera fært yfir hana á bifreið
um, þegar lítið er í henni, því
að botn er sléttur.
Brúin borin að Kreppu.
Ferðafólkið óð yfir Kverká
og gekk síðan yfir Kverkár-
nes, sem er um þriggja km.
breitt þarna. Á móts við Grá
gæsahnjúk hefir Kreppa skor
ið sér þrönga leið gegnum
móbergsklappir og er farveg-
ur hennar þarna aðeins 3,80
metrar þar sem mjóst er. Brú
artrén voru þó höfð 17 fet,
því að bakkarnir flá og eru
eyddir og afsleppir. Voru
lagðir þunnir plankar yfir
ána og trén síðan dregin yfir
á þeim. Gekk það að óskum.
mmzs^ezji^fír-- - -
Síðan var negldur göngupall
ur og slegið upp handriði.
Gekk ferðafólkið síðan yfir 1
Hvannalindir, en þaðan er að
eins tveggja km. leið frá ánni.
Fagurt veður í Lind-
unum.
Ferðafólkið fékk ágætt veð
ur í Lindunum, bjart útsýni
og sólskini. Skoðaði það Lind-
irnar lengi dags en hélt síðan
heimleiðis. Gróðurinn þarna
er heldur seinsprottinn í sum
ar, því snjór lá þar fram eftir
öllu sumri. Hvannastóðið var
enn lágvaxið.
Brúin dregin af.
Þegar ferðafólkið var kom
ið aftur austur yfir Kreppu,
dró það brúna af og bíður
hún þar næsta ferðahóps. Er
hægt að draga hana yfir aft-
ur með auðveldum hætti. Eft
ir þessa brúargerð eru ferðir
í Hvannalindir um hásumar-
ið mjög auðveldar. Frumkvæð
ið að brúargerð þessari áttl
Jón Sigurgeirsson frá Hellu-
vaði í Mývatnssveit, nú lög-
regluþjónn á Akureyri. Sáu
þeir Þorsteinn Þorsteinsson
og aðallega um brúargerðina.
HANGIKJÖT
IVægar birg’ðir fvrirliggjandi.
Ný framleiðsla kemur í hverri viku.
REYKHÚS S.Í.S.
Sími 4241. 4
tKfflttttmn»:nn»tnnmttfflffi::::»:t«n:nnn:»imtn»mn:nt»nnnww»
Nýtt alikálfakjöt
kemur' daglega þessa viku
Sími 2678
Frystihúsinu Herðubreið
| Skemmtiferð til Akraness
I M. s Esja fer skemmtiferð til Akranes n. k. sunnudag
• kl. 1 e. h. Dansleikur verður í Báruhúsinu, og í Ölver.
I Farseðlar með skipinu verða seldir við suðurdyr Hótel
: Borg, laugardaginn 19. ágúst milli kl. 5—7 e. h., og við
f skipshlið frá kl. 10 f. h. verði eitthvað eftir. Ágóðinn
: i rennur til dvalarhejmils aldraðra sjómanna.
| FULLTRÚARÁÐ SJÓMANNADAGSINS
i mnnnimrmnnnnnTnmmmmnnKmnnnnnnnTnmTnmmnnnnni