Tíminn - 06.09.1950, Síða 8
„ERLEIVT YFiRLIT“ Í »16:
Wulter Bedel Smith
S4. árg.
Reykjavík
99Á FÖRMWI VEGf'4 I 046;
Hiettulegur umbúnaður
6. september 1950.
194..blað.
Litlu meira en há Ifur m eðal-
heyfengur á Austurlandi
Vanlar 8—SO f»íis. smálestir af foSnrmjöli
á óþurrkasva»ðin ef báfé á ekki aö fæklca
Heyskap er nú langt komið víðast hvar á landinu. Sumarið
hefir verið ákafiega misjafnt í hinum einstöku landshlut-
um, hvað hirðingu heyja snertir. Á öllu Austurlandi frá Ax-
arfjarðarheiði suður að Mýrdalssandi hafa verið einstaklega
miklir óþurrkar í allt sumar, þannig að á öilu því svæði
er aðeins búið að hirða lítið eitt af töðum. Blaðamaður frá
Tímanum átti í gær viðtal við Pál Zóphóníasson búnaðar-
málastjóra og spurði hann um lieyskap landsmanna nú í
sumar.
Hálfur heyfengur.
Það svæði á landinu, sem!
verst hefir orðið úti i sum- J
ar, er að heita má allt Aust-
urland að nokkrum hluta;
Fljótsdalshéraðs undanskild-
um. Allt norðan frá Axar-
fjarðarheiði, suður að Mýr-
dalsssandi hafa verið stöð-
ugir óþurrkar í allt sumar,
svo að sumir bændur voru nú
fyrir fáum dögum, eða nú fyr
ir helgina að ná inn því
fyrsta, sem hægt hefir ver-
ið að þurrka af töðufengnum.
Horfir til stórkostlegra
vandræða viða á þessu svæði
vegna óþurrkanna, þar sem
búast má við því, að víða
verði heyfengur bænda á
þessu svæði ekki nema um
helmingur þess, sem hann er
undir venjulegum kringum-
stæðum.
Úrræða leitað.
Eúnaðarmálastjóri skrifaði
],andbú,naðarráðuneytinu fyr-
ir nokkru síðan og benti á
þá miklu hættu, er vofir yfir
bústofni bænda á öllu þessu
svæði vegna lítils heyfengs.
Á svæðinu frá Axarf. að Mýr-
dalssandi eru samtals 4200
nautgripir, 4400 hross og 160
þúsund fjár, sem er röskur
þriðjungur af allri fjáreign
landsmanna.
Rússnesk flug-
vél skotln niö-
ur við Kóreu
MáliÖ flult fvrir
öryggisráðinu
í fyrradag skutu bandarísk
ar flugvélar niður flugvél af
rússneskri gerð við austur-
strönd Kóreu. Kom þá í ljós,
að flugvélin var ekki aðeins
af rússneskri gerð, heldur
merkt hinni rauðu stjörnu
rússneska flughersins og flug
stjóri, er í henni var, bar á
sér skjöl er sýndu, að hann
var i rússneska flughernum.
Flugvélin flaug yfir banda-
ríska flotadeild og hóf skot-
hrið á bandarískar flugvélar
er voru þar á sveimi. Hófst
loftorrusta og var rússneska
flugvélin skotin niður.
Bandaríska herstjórnin
sendi Bandaríkjastjórn þegar
skýrslu um málið, og hefir
hún falið Austin fulltrúa sín
um í öryggisráðinu að leggja
hana fyrir ráðið.
Fjái’stofninn í landinu er
svo lítill, að hann má alls
ekki verða minni, ef ekki á
að koma til skorts á kinda-
kjöti. En auk þess, er það mik
ilvægt atriði frá öllum sjón-
armiðum séð, að fækka ekki
bústofni vegna vandræð-
anna.
Ef bæta á heytapið upp
með fóðurbæti, er talið lík-
legt, að þurfi 8—10 þús.
smálestir af honum.
Góður heyskapur á
Vesturlandi.
í sumar hefir heyskapur
gengið ágætlega á Vestur-
landi. í Borgarfirði, Snæfells
nesi, Dalasýslu, Barðastrand-
arsýslu, V.-ísafjarðarsýslu og
Norður-ísafjarðarsýslu að
Jökulfjörðum hefir verið góð
ur heyskapur i sumar. Sums
staðar á þessu svæði hefir þó
verið heldur snöggt, einkum
á áveituengjum. Há á harð-
velli hefir líka sprottið illa
vegna mikilla þurrka. Á öllu
þessu svæði eru i fyrsta lagi
góð og óhrakin hey og í með
allagi að vöxtum.
Óþurrkarnir við Húnaflóa.
Á norðanverðum Vestfjörð
um, í Grunnavík, Sléttu ogj
Árneshreppum hafa aftur á
móti verið miklir óþurrkar
í sumar. Heyskapur þar hef-
ir þó ekki orðið mjög afleit-
ur. Hefir það einkum bjarg-
að, að bændur á þessum slóð-
um eru vanir súrheysgerð og
hafa notað þá heyverkunar-
aðferð mikið i sumar.
Um miðbik Strandasýslu
hefir heyskapur einnig verið
tafsamur vegna óþurrka. Hey
hefir þó náðst þar nokkurn
veginn, enda gert vothey
jöfnum höndum.
í Hrútafirði hefir hins veg-
ar verið miklu óhagstæðara
tíðarfar.
Sæmilegur heyfengur á
Norðurlandi.
í Húnavatnssýslum, Skaga-
(Framnald á 7. siðu.)
Noröurherinn brýzt
í gegn viö Pohang
Cmkringir borgina o«‘ sækir suður til járn-
brautarbmjarins Kyongjn 35 km. sunnar
Það fór svo, að sókn sú, sem norðurherinn hóf í fyrradag
á allri línunni milli VVaegwan og Pohang, sem er 180 km
löng, bar þann árangur í gær, að herinn braust í gegnum
varnir suðurhersins við Poliang, umkringdi borgina að mestu
og sótti alllangt suður á bóginn.
Þessi hlýlegi og maisguli sum
arfrakki er kallaður „Manda-
rín.“ Viö frakkann er bezt
að hafa kúli-hatt og þá er
tízkumyndin fullkomin.
Búizt við að borgin falli.
Við Pohang hefir aðalþungi
sóknarinnar legið og beitir
norðurherinn þar 30 þús.
manna liði og allmcrgum
skriðdrekum. í gærmorgun
brutust hersveitirnar í gegn-
um varnir suðurhersins á
breiðu svæði vestan borgarinn
ar þrátt fyrir úrhellisrigningu
og illa færð. Stóðu þarna harð
ir bardagar og varð mann-
fall mikið. Umkringdi norð-
urherinn borgina að mestu og
sótti siðan allhratt suður til
i járnbrautarbæjarins Kyongju
35 km. sunnar og tóku hann
í gærkvöldi. Er þetta þýðing-
armikil járnbrautarmiðstöð.
Hersveitir suðurhersins
verjast enn í Pohang en að-
staða þeirra er orðin mjög
erfið og hætta á að borgin
falli þá og þegar og allmikið
herlið og hergögn i hendur
norðurhersins.
Miklar óeirðir
í Persíu
Allmiklar óeirðir hafa átt
sér stað í Persiu undanfarna
daga. Hefir óaldarflokkur tek
ið allmörg þorp og neitað að
leggja niður vopn. Flugher
stjórnarinnar gerði árás á
stöðvar uppreistarmanna í
gær og olli miklu tjóni. Bú-
izt er við, að herinn geti bælt
uppreisn þessa niður innan
fárra daga.
Meyjarránsæfintýriö á
Krít endar í fangelsi
llriiöhjónin hnndtekin í höfuðborg Krítar
o« briiðgunianuin varpað í fang'olsi
Lögreglan í Aþenu handtók á laugardaginn var Costas
Kefaloghianis og hina ungu brúði hans, þegar þau komu
til höfuðstaðar Krítar. 2000 hermenn höfðu árangurslaust
leitað þeirra, en svo skaut þeim allt í einu þarna upp.
Iiermennirnir höfðu rann-
sakað allt Ida-fjallið og ná-
grenni því að þar er talið að
brúðhjónin hafi falizt frá 20.
ágúst. Þar í bergklaustrinu
Diskourion höfðu þau gifzt
og framkvæmdi prestur þar
vígsluna í forboði erkibiskups.
Reiður tengdafaðir á
flugvellinum.
Þegar nýgiftu hjónin höfðu
gefið sig fram við lögregluna
voru þau tafarlaust flutt til
George Samuels, sem var sér
stakur sendimaður forsætis-
ráðherrans i þessu máli,
sendur til Krítar til að
stemma stigu fyrir blóðugri
styrjöld milli hinna svörnu
fjandætta. Þaðan var föður
brúðarinnar tilkynnt símleið
is, að tekizt hefðí að hafa
hendur í hári strokuhjúanna
og síðan voru þau send flug
leiðis beint til Aþenu.
Á flugvellinum í Aþenu
fékk Costas eftirminnilegar
móttökur, ekki aðeins af hin-
um bálreiða tengdaföður sín-
um heldur einnig af lögregl-
unni, sem hafði í hcndum
handtckuskipun. Hann er á-
kærður fyrir tvöfalt afbrot.
fyrst og fremst meyjarránið,
sem skeði framan við leik-
húsið í Heraklion 20. ágúst,
en auk þess fyrir ólöglegan
vopnaburð, þar sem hann
hafði haft sjö manna vopn-
aðan lífvörð.
Costas er 35 ára gamall en
Tassouela 19 ára. Hann er af
ætt Kefaloghianis, sem fylgir
konungssinnum fast að mál-
um. Hún er hins vegar af ætt
Petrakogeorgis, sem fylgir
frjálslyndari armi stjórnar-
innar að málum .
Þegar Costas var tekinn
fastur grét hin svarthærða
og fagra brúður og sagðist
ekki hafa getað breytt öðru
vísi því að hún hefði elskaö
Costas svo heitt. Costas sagðí
ennfremur, að sér þætti mjög
miður að hafa gert tengda-
föður sínum svo gramt í geði
en hann hefði heldur ekki
getað breytt á annan hátt
sakir ástar sinnar.
En hinn reiöi tengdafaðir,
sem beið brúðhjónanna á
flugvellinum ásamt 60 vopn-
uðum hermönnum bar ygld-
an svip á sjóræningjaandliti
sínu. Hann vildi engum sátt-
um taka og sagði aðeins: —
Mér hefir veriö sagt að þau
séu gengin í hjónaband, en
ég trúi því ekki. Ég mun
gera það sem i mínu valdi
stendur til að segja allri
grísku þjóðinni hve svívirði-
lega hefir verið leikið á mig.
Gagnsókn við Taegu.
Aðalátckin á Taegu-svæð-
inu eru um 15 km. norður
af borginni. Þar gerðu banda
rískar hersveitir gagnárásir
i gær og scttu nokkuð fram,
en annars heíir vígstaðan
ekki breyzt þar að mun. Tók
suðurherinn töluvert herfang
og fanga á þessum slóðum.
Við Masan urðu litlar breyt
ingar á vigstcðunni í gær.
Björgunin við Látra-
bjarg sýnd í Noregi
Kvikmyndin af björgunar-
afrekinu við Látrabjarg verð
ur væntanlega sýnd i Noregi.
Slysafélag ísiands og norska
slysavarnafélagið hafa gert
með sér samning um að gerð
verði norsk útgáfa af kvik-
myndinni. Verður hún stytt
til muna og horskur texti tal
aður inn á myndina.
Myndina má þó aðeins sýna
innan félagsdeilda þar, en
Slysavarnafélag íslands fær
þrjú eintck af myndinni, sem
ætluð er til sýningar á Norð-
Iurlcndum.
Jón Oddgeir Jónsson full-
trúi Slysavarnafélagsins sagði
i að Færeyingar hefðu verið
jmjög hrifnir af myndinni og
væri hún hin ákjósanlegasta
landkynniwg. Samskonar
dóma hefir myndin fengið
þar sem hún hefir verið sýnd.
Attlee þakkar
verkamönnum
Attlee, forsætisráðherra
Breta flutti ræðu á þingi
brezka alþýðusambandsins í
Brighton í gær. Ræddi hann
þar aðallega landvarnarmál
og þakkaði brezku verkalýðs-
samtökunum öflugan stuðn-
ing við stjórnina i þeim mál-
um. Eittnig þakkaði hann
skilning brezkra verkamanna
í kaupgjaldsmálum og hjálp
við að halda niöri kaupgjaldi.
Kvað hann stjórnina verða
að halda sömu stefnu i þeim
málum enn um sinn.
Brezkar horsvritir
frá Londan til Kóreu
Fyrstu brezku hermennirn-
ir, sem sendir eru heiman frá
Bretlandi til vígstöðvanna í
Kóreu lögðu af stað með flug
vélum frá flugvelli við Lon-
don í gær. Næstu daga munu
fleiri flugvélar fara þaðan
með hermenn.