Tíminn - 07.11.1950, Síða 2
TÍMINN, þriðjudagmn 7. nóvember 1950.
248 blað
T.
')tá hati til keila
Jazzhljómleikar
verða í Austurbæjarbíó miðvikud. 8. nóv. kl. 1,30 e. h.
HLJÓMSYEÍTIK:
K
::
i
8
«
«
c/fvarpið
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,20 Fjögur hundruð ára ár-
tíð -Xóns biskups Arasonar og
sona hans. — Minningarhátíð
Háskóla íslands (útvarpað af
segulbandi): a) Formálsorð: Ein
ar Ól. Sveinsson prófessor b) Er
indi: Þorkell Jóhannesson próf-
essor. c) Upplestur: Lárus Páls-
son leikari les úr kvæði Ólafs
Tómassonar um Hólafeðga. d)
Dómkirkjukórinn syngur; Páll
Isólfsson stjórnar. 22,00 Fréttir
og veðurfregnir. 22,10 Tónleikar:
Kirkjutónlist (plötur). 22,30 Dag
skrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
M.s. Arnarfell er væntanlegt
til Hafnarfjarðar í dag frá ísa
firði. M.s. Hvassafell fór frá
Valencia s. 1. laugardag áleiðis
til Reykjavíkur.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík á
morgun austur um land til Siglu
fjarðar. Esja fer væntanlega frá
Reykjavík n. k. fimmtudag vest
um land til Akureyrar. Herðu-
breið er í Reykjavík. Skjald-
breið fór frá Reykjavík í gær-
kvöld til Skagafjarðar- og Eyja
fjarðarhafna. Þyrill er á leið frá
Austfjörðum til Reykjavíkur.
Straumey er í Reykjavík. Ár-
mann fer væntanlega frá Reykja
vík í kvöld til Vestmannaeyja.
Eimskip:
Brúarfoss kom til ísafjarðar
í morgun 6. 11. fer þaðan til
Sauðárkróks og Húnaflóahafna.
Dettifoss fór frá Reykjavík 2. 11.
austur um land til Reykjavíkur.
Fjallfoss fór frá Reykjavík 4.
11. til Leith og Kaupmannahafn
ar. Goðafoss er í Reykjavík. Gull
foss er í Kaupmanahöfn. Lagar
foss er í Reykjavik. Selfoss fór
frá Ulea í Finnlandi 3. 11. til
Reykjavíkur. Tröllafoss kom til
New York 31. 10., fer þaðan
væntanlega 7.—8. 11. til Reykja
víkur. Laura Dan fermir í Hali-
fax um 20. 11. til Reykjavíkur.
Pólstjarnan fermir í Leith 6. 11.
til Rykjavíkur. Heika fór frá
Hamborg 4. 11. til Antverpen,
Rotterdam og Reykjavíkur. Fold
in fermir í Hull 6. 11. til Reykja
víkur.
Árnað heilía
Hjónaband.
S. 1. lafigardag voru gefin sam
an í hjónaband af séra Jakob
Jónssyni ungfrú Guðný S. Ósk-
arsdóttir, Kirkjutorgi 6, og Bald
ur Pálmason fulltrúi, Tjarnar-
götu lOa. — Heimili þeirra veirð
ur að Vífilsgötu 4.
Hjónaband.
S. 1. laugardag voru gefin sam
an í hjónaband ungfrú Kristín
Eiríksdóttir, Borgarkoti á Skeið
um, og Ingólfur Bjarnason,
Hlemmiskeiði, sömu sveit. —
Heimili ungu hjónanna verður
að Hlemmiskeiði.
Biöb og tímarit
Læknablaðið,
4. tbl. 35. árgangs, er nýkomið
út. Efni þessa fagtimarits er
þetta: Bióð til rannsóknar,
nokkur tæknileg atfiði, eftir
Bjarna Konráðsson, Inflú-
enzufaraldurinn 1949, eftir
Björn Sigurðsson og Óskar Þ.
Þórðarson. — Aðalritstjóri er
Ólafur Geirsson, en meðritstjór
ar Bjarni Konráðsson og Júlíus
Sigurjónsson.
Hjartaásinn,
10. hefti 1950 er nýkomið út
Tryggvi Sveinbjörnsson
í kvöld er h'ð nýja leikrit
Tryggva Svejnbjörnssonar,
sendiráðsritara í Kaupmanna
höfn, frumsýnt í Þjóðleikhús-
inu í tilefni af 400 ára dánar-
afmæli Jóns biskups Arason-
og hefir borizt blaðinu. Efni þess
er m. a. þetta: Sálkönnun, kvæði
eftir Kristin Pétursson, Glettni
oroanna, smásaga eftir Sigur-
jón frá Þorgeirsstöðum, Draurna
ráðningar, Þegar Chicago brann,
Við þekkjum Frank Sinatra,
smásaga, Ljóðbrot og lausavís-
ur, sagnir um Hallgrím Péturs-
son, Hvað varð af Steffie, endir,
framhaldssögu, Sniðgötur ástar-
innar, smásaga eftir Bruno
Frank, Kvikmyndaþáttur, smá-
leturssagan Lendingin, Sjómað-
ur gerizt prestur, Rautt og svart
smásaga, Rithöfundaþáttur, Er
skine Caldvell, Algleymi, fram-
haldssaga og smælki. —• Rit-
stjóri er Páimi H. Jónsson, Ak-
ureyri.
Úr ýmsum áttum
Félag ungra Framsóknarmanna
í Árnessýslu hélt samkomu til
ágóða fyrir húsbyggingarsjóð
Framsóknarflokksin um síðustu
helgi. Var samkoman að Selfossi
og sóttu hana á þriðja hundrað
manns. Jón Kristinsson. formað
ur félagsins, setti samkomuna.
Rannveig Þorsteinsdóttir al-1
þingismaður flutti ræðu, Guð- !
mundur Halldór Jónsson söng
við undlrleik Weisshappels. Guð
mundur V. Hjálmarsson flutti
ávarp. Að lokum var dansað.
Samkoman var i alla staði hin
ánægjulegasta.
Vestmannaeyjakvöld
ríkisútvarpsins á sunnudaginn
var skemmtileg nýjung, sem
tókst vel. Það var eins og hlust
endur kæmust snöggvast nær
því raunverulega lífi í landinu
en útvarpið leiðir þá endranær.
—Þökk fyrir.
Málfundahópur F. U. F.
heldur fund í kvöld kl. 8,30.
Fundarefni: Gengisfelling og á-
hrif hennar. Framsögumaður:
Leifur Guðjónsson. Umræður á
eftir. Mætið allir og stundvís-
lega.
Óháði fríkirkjusöfnuðurinn.
Skrifstofa safnaðarins, Lauga
veg 3 (bakhúsinu), er opin á
laugardögum kl. 2—5 og mið-
vikudagskvöldum kl. 8—10.
Lóan er ekki farln enn.
Kona í Fossvoginum hringdi
til blaðsins í gær og sagði frá
því, að á túni við hús hennar,
rétt hjá trjáræktarstöðvunum,
væru stórir hópar af lóum enn.
Það er nú komið nokkuð fram
fyrir veturnætur, og einhvern
veginn finnst manni, að allir
sumargestir hljóti að vera farn
ir. En lóan virðist ekki vilja
fara fyrr en ekki er lengur
sætt.
Blaðið átti tal við dr. Finn
Guðmundsson og spurði hann,
hvort lóan væri venjulega
svona þaulsætin. Hann sagði,
að liér sunnan og suðvestan
lands dveldist hún oft fram eft
ir nóvember og jafnvel fram
um mánaðamótin nóv.-des.
væri tíð hagstæð. Hins vegar
hefði hún þá oftast yfirgefið
norðlægari héruð landsins fyr
ir nokkru. Hann sagði, að lóan
hefði ekki ákveðinn komu- eða
! farardag heldur æki seglum
eftir vindi, kæmi snemma, þeg
ar vel voraði og færi seint, þeg
ar haust væru mild.
Hljómsveit Björns R. Einarssonar.
Kvartetí Eyþórs Þorlákssonar.
Hljómsveit Haraldar Guðmundssonar
frá Vest'mannaeyjum.
K.K.-sextettinn.
Kynriir: Svavar Gests.
Tölusettir aðgöngumiðar fást
Bankastræti.
Hlj óðfærahúsinu,
JAZZBLAÐIÐ
ornum vec^i
öýraríkið íslenzka
Bréf er mér sent, er hljóðar
svo:
,,Það hefir víst ekki gefizt bet
ur en svo, að flytja hingað til
lands ýmsar tegundir dýra eða
fénaðar, að margir fyllast óhug,
er slíkt ber á góma. Þeim verð-
ur þá fyrst hugsað til fjárkláða,
mæðireiki, garnaveiki og minks.
Allt þetta höfum við hlotið af
innflutningi lifandi skepna, og
allt eru þetta plágur, sem við
erum ekki búnir að bíta úr nál-
inni og þungum búsifjum hafa
valdið og valda enn.
Önnur dæmi era svo um það,
að innflutningurinn hafi mis-
tekizt, þótt ekki hafi orðið af
almennt tjón, svo sem þegar
sauðnautin komu hingað. Það
eru hreindýrin ein, sem þraukað
hafa í landinu, án skaða fyrir
landsmenn, og þó stundum ver
ið litin óhýru auga, af þeim dýr
um, er inn hafa verið ílutt.
En ég hafði nú ekki sérstakar
búfjártegundir í huga, er ég sett
ist niður til þess að skrifa þess
ar línur. Ég var miklú fremur
að hugsa um það, hve hin villta
náttúra landsins er fáskrúðug
að dýrum.
Einu sinni var talað um að
flytja hingað héra, en þótti ekki
| ráðlegt að sleppa þeim lausum
í landinu. Og ég er því sammála.
En mætti ekki gera þá tilraun
í að flytja héra og fleiri dýr, sem
1 liklegt er,' að hér geti lifað, i
stórar eyjar, þar sem ekki kem-
f ur til greina, að þau geti sloppið
í land í mestu ísalögum? Þar
gætu þau aldrei orðið til stór-
fellds tjóns, en næðu þau að
^ timgast og semja sig að hinum
! nýju staðháttum, væru þau þá
1 orðin íslenzk dýr til skemmtun
ar og fjölbreytni í landi okkar.
Og hvað er til af dýrum í norð-
lægum héruðum Skandinavíu og
norðarlega í Kanada eða Alaska,
sem gætu lifað og dafnað við
þau skilyrði, sem slíkar eyjar
hér við land geta boðið. Ég
spyr — vilja náttúrufræðingar
svara“.
Hér endar bréfið — og eftir
á að hyggja: höfundurinn nefn
ir sig Bersa. Ekki veit ég, hvort
sú nafngift táknar það, að hann
hafi meðal annars í huga bjarn
dýr, er hann ræðir um innflutn
ing dýrategunda, þótt hann sé
svo lítillátur að nefna aðeins
héra.
J. H.
I UNGUR MAÐUR
« úr sveit, óskar eftir vist á sveitaheimili, þar sem mikið
p er um grænmetisneyzlu, með það í huga, að lifa ein-
göngu á mjólkur- og jurtafæðu — Sólvíkingafæðu. —
:f Æskilegt, að eitthvað af heimilisfólki hefði slíka mata-
ræðisháttu, þó ekki skilyrði. Kaup aukaatriði. Þeir sem
kynnu að vilja sinna þessu, gjöri svo vel að senda upp-
lýsingar ásamt heimilisfangi, í lokuðu umslagi, merkt:
„Sólvík“ til afgreiðslu Tímans, innan mánaðar frá birt-
ingu þessarar auglýsingar. —
Tvær nýjar Sjómannaútgáfubækur:
Hornblower kemur aftur!
Hin dáða hetja frá tímum Napoleonsstyrjaldanna
— Hornblower skipstjóri — birtist nú í annarri sögu,
þar sem hann heldur áfram frægðarferli sínum.
Þeir, sem fylgdust með honum i bókinni „í vestur-
veg“ verða að slást í för með honum í þeirri, sem nú
kemur út og heitir:
í opinn dauðann
Hún er í framhaldi af hinni fyrri — en þó sjálf-
stæð — og fjallar um ævintýr Hornblowers á Miðjarðar-
hafi. Hún heldur lesandanum föngnum frá upphafi
til enda.
Þeir, sem hafa lesié „í vesturveg" og taka sér nú
„í opinn dauðann“ i hönd, skilja, að það er ekki að
ástæðulausu, sem Englendingar kalla höfundinn —
C. S. Forrester — Marryat vorra tíma.
Hornblower-bækurnar hafa um langt skeið verið
metsölubækur í Englandi og seljast þar upp jafnóðum
og þær eru gefnar út. —
Yfir Atlantshafið
Ferðasaga eftir Knud Andersen.
Þessi bók er ferðasaga danska rithöfundarins Knud
Andersen, sem er í senn ævintýramaður og skáld og
minnir um margt á Jack London. Hann festi kaup á
gömlu og nálega aflóga seglskipi, útbjó það eftir föng-
um og sigldi á því til Vesturheims og heim aftur. —
Áhöfn skútunnar var höfundurinn, kona hans og þrjú
börn þeirra, tveir hásetar, matsveinn — og hundurinn
Lubbi. í bókinni segir á ógleymanlegan hátt frá lífínu
um borð í þessu fljótandi heimili á fiskiskipi úti á
Atlanzhafi, komunni til New York og dvöl í ýmsum
hafnarborgum Ameríku. Síðan er lýst heimförinni
austur Atlanzhaf, stöðugri baráttu lítillar og lítt mann-
aðrar seglskútu við ógnir úthafsins — þetta er ógleym-
anleg ferðasaga.
Sjómannaútgáfan
AÐALUMBOÐ: Pálmi H. Jónsson, Akureyri.
«»«««m:::i::::i:it:»:«:«:::::::»::n«7m:::«::::nm!:»«n:»:nt«)