Tíminn - 07.11.1950, Qupperneq 3
248. blað
TÍMINN, þriðjudaginn 7. nóvember 1950.
S,
Reykingar og krabbamein
Orsaka reykíiijgar Iiiiignakrabba?
Sex nýjar Norðra-
bækur
FRÁ ALÞINGI:
Yfiríit um ný þingmál
í fréttabréfi um heilbrigð-
ismál, sem Krábbameinsfélag
Reykjavikur gefur út, birtist
nýlega grein um reykingar
og krabbamein. Efni hennar
er mjög athyglisvert og birt-
ist hún því hér á eftir, nokk-
uð stytt: í
Þann 27. mai s. 1. birtist
mikil ritgerð í Journal of the
American Medical Associati-
on eftir Wynder og Graham,
þar sem þeir gera grein fyr-
ir rannsóknum, sem þeir hafa
gert á sjúklingum, sem feng-
ið hafa krabbamein í lungu,
einkum með tilliti til þess,
hve mikið þeir höfðu reykt
áður en krabbameinið tók til
að vaxa. Þessar rannsóknir
tóku til 684 sjúklinga, sem
allir höfðu krabbamein I lung
nm. Hver einasti sjúklingur
var persónulega aðspurður
nm reykingaháttu sína og
með því móti fengust ná-
kvæmar upplýsingar um tó-
baksneyzlu hvers eins. Þann-
ig var talað við alla, að 33
nndanskildum, sem upplýsing
ar fengust frá samkvæmt
bréflegum spurningum. Sér-
stök áherzla var lögð á að fá
upplýst, hve mikið sjúkling-
nrinn hafði reykt áður, jafn-l
vel, þótt hann reykti litið eða
ekkert eftir að hann veiktist. j
Eftir því, hve mikið menn |
höfðu reykt, var þeim skipt
í 6 flokka, þannig:
Flokkur 0 — Reykti ekkert,
minna en 1 sigarettu á dag
s. 1. 20 ár. Flokkur 1 — Reykti
iítið, 1—9 sígarettur á dag s.
3. 20 ár. Flokkur 2 — Reykti
miðlungsmikið, 10—15 síga-
rettur á dag s. 1. 20 ár. Flokk-
ur 3 — mikið, 16—20 sígarett
nr á dag s. 1. 20 ár. Flokkur
4 — Reykti mjög mikið, 21—
34 sígarettur á dag s.l. 20 ár.
Flokkur 5 — keðjureykti, 35
sígarettur eða meira á dag s.l.
20 ár.
Langsamlega flestir reyktu
sígarettur, en þar sem um
vindla var að ræða, var hver
vindill áætlaður sem 5 síga-
rettur og pípa sem tvær og
hálf sígaretta.
Til samanburðar voru at-
hugaðar reykingavenjur ann
ars fólks, sem ekki var veikt,
eða þá veikt af einhverjum
öðrum sjúkdómi.
Þegar fyrst voru bornar
saman reykingavenjur 100
karlmanna með lungna-
krabba við reykingavenjur
186 karlmanna með aðra
brjóstsjúkdóma, kom í Ijós,
að í 0-flokki var enginn af
lungnakrabbasj úklingunum.
Aðeins 5% voru í fyrsta flokki
þ. e., höfðu reykt lítið s.l. 20
ár, 7% voru í 2. flokki, þ. e.,
höfðu reykt miðlungsmikið,
en allur þorri sjúklinganna
með lungnakrabbamein, féll
í mestu reykingaflokkana: 35
% í 3. flokki, 30% í 4. flokki,
sem reykti mjög mikið, og 23
% voru í 5. flokki, þ. e., höfðu
keðjureykt í 20 ár. Af þess-
um 100 sjúklingum höfðu því
88 verið miklir reykingamenn
Af sjúklingum með aðra
brjóstsjúkdóma voru 63% í
þremur síðasttöldu flokkun-
um, langflestir í 3. flokki, en
miklu færri en krabbameins-
sjúklingarnir í tveim síðast-
töldu flokkunum, sem reyktu
allra mest. En þess ber að
gæta, að aðrir brjóstsjúkdóm
ar svo sem króniskur bron-
chitis, geta líka stafað af reyk
ingum. Áberandi var munur-
inn meðal þeirra, sem reyktu
allra mest, nefnilega í tveim
síðustu flokkunum. Þar lentu
53% sjúklinganria með
krabbamein i íungum, en að-
eins 23% af öðrum sjúkling-
um með brj óstsj úkdóma.
Samanburður á 605 sjúkl-
ingum með krabbamein í
lungum og 780 karlmönnum
með ýmsa aðra sjúkdóma,
sýndi, að meðal almennings
eru 14,1% af karlmönnum, er
reyktu ekki neitt, en meðal
lungna krabbasjúklinganna
var aðeins 1.3%, sem reyktu
ekki. Af öðrum sjúklingum
reyktu 54.7% mjög mikið og
19.1% keðjureyktu, en meðal
krabbameinssj úklinganna
voru samsvarandi tölur 66.4
og 51.2%.
Þessar tölur benda mjög í
þá átt, að reykingar eigi drjúg
an þátt í krabbameinssýk-
ingu lungnanna.
Hér hafa sígarettureyking-
ar ekki aukizt stórkostlega
fyrr en á síðari áratugum.
Hingað til höfum við verið
að heita má lausir við krabba
mein í lungum. En ef þessu
heldur áfram, verðum við að
gera ráð fyrir, að sá sjúk-
dómur aukist hér stórlega á
næstu árum. Því meira, sem
menn reykja, því meiri virðist
hættan vera á að fá krabba-
mein í lungun.
Þeir, sem vilja forðast þá
hættu, ættu að athuga sinn
gang. Þessi orð eru ekki skrif
uð til að hræða neinn, því að
(Framhald á 7. síðu.)
7. nóvember 1550
Lagí á varii* Daða Giiðmuudssonar
í Snóksdal
Þeir voru hálshöggnir. Þannig var málið sett.
Og það hefir sennilega verið rétt.
Ég gerði mitt, að hefta þá feðga í hlekki.
En hvað átti að gera, ef dýflissur héldu þeim ekki?
Það skiptir ei mestu, hvort burgeisar höfðinu halda.
Hér þurfti nýi tíminn að komast til valda.
Peningakirkjan er oltin ofan að grunni,
og íhaldsbiskupinn féll í byltingunni.
Ofbeldisklikan er sigruð. Siðbótin vann.
Síðasti klettur hins úrelta, það var hann.
En hver ætli verði svo hetjan um það er lýkur?
------Er það lífið í dag eða sagan, sem svíkur?
GUÐMUNDUR INGI.
Sex nýjar bækur eru ný-
Iega komnar út á vegum
Norðra. Meðal þeirra eru
E1 Hakim, hin fræga skáld-
saga eftir John Knittel, Jón
Arason, eftir Torfhildi Holm
og Hlynir og hreggviðir, en
svo nefnast nýjir sagnaþætt
ir úr Húnaþingi, er Norðri
gefur út fyrir Sögufélagið
Húnvetningur.
Hér á eftir verður sagt nokk
uð nánara frá þessum nýju
Norðra-bókum:
E1 Hakim (Læknirinn), er
ein vinsælasta skáldsaga, er
út hefir komið á síðari árum.
Höfundur hennar, John Knitt
el, er svissneskur og hefir
hann skrifað margar vinsæl-
ar sögur (meðal þeirra er
framhaldssagan, er nú birt-
ist i Tímanum). E1 Hakim
hefir þó hlotið mesta frægð
af sögum hans. Hún segir frá
egypzka drengnum Ibrahim
sem ólst upp í mikilli fátækt,
| en getur þó látið þann draum
I sinn rætast að verða frægur
læknir. Frægðin reynist þó
fallvölt, því að ólæknandi
sjúkdómur leggur hann í gröf
ina fyrir aldur fram. Þótt
saga hans sé ekki löng, er hún
samt rik af viðburðum, er snú
ast um ást og sorg, sigra og
ósigra. Vinsældir þessarar
skáldsögu má meöal annars
marka af því, að hún hefir
verið gefin út í 265 þús. ein-
tökum í heimalandi höfund-
ar og búið er að þýða hana
á flest tungumál heims. ís-
lenzka þýði’ngin er gerð af
Vilhjálmi Guðmundssyni.
Jón Arason eftir Torfhildi
Holm, er stærsta ritverk þess
arar merku skáldkonu. Norðri
gefur það út í tveimur bind-
um. Brynjólfur Sveinsson,
menntaskólakennari, hefir
séð um útgáfuna. Skáldrit
þetta hlaut verulegar vin-
sældir á sínum tíma, en hef-
ir lengi verið ófáanlegt.
Hlynir og hreggviðir er ann
að bindið af ritflokki þeim,
er nefnist Svipir og sagnir og
Sögufélagið Húnvetningur
gefur það út. Þar birtast
þessar frásagnir: Þorleifur í
Stóradal, eftir Bjarna Jóns-
son, Hreggviður skáld á Kald
rana, eftir Magnús Björns-
son, Sjóhrakningar Jóns „gós‘
eftir Jónas Illugason, Margrét
í Stafni, eftir Kristínu Sig-
valdadóttur, Réttarslagur,
eftir Jónas Illugason, Erfiðar
verferðir, eftir Magnús
Björnssorv og Um Jóhannes á
Gunnsteinsstöðum. eftir
Gunnar Árnason. Gunnar
Árnason ritar auk þess for-
mála.
Á reki með hafísnum er
drengjasaga eftir Jón Björns
con. Hún fjallar um tvo unga
menn, sem lentu í óvenju-
legum ævintýrum.
Einmana á verði er saga
fyrir unglingsstúlkur eftir
Bernhard Stokke. Höfundur-
inn er norskur, en þýðinguna
hefir Helgi Valtýsson annast.
Jörð óskast
til kaups eða leigu. — Aðeins
góð fjárjörð kemur til greina.
— Tilboð, merkt: ,.Fardagar“,
^endist afgreiðslu blaðsins
fyrir 1. des. —
Stjórn Flugmála.
Ríkisstjórnin Ieggur fram
frumvarp um að afnema em
bætti flugmálastjóra og seg-
ir svo í athugasemdum við
það:
„Með lcgum nr. 65/1947 um
breytingu á lögum nr. 24/1945
um flugvelli og lendingarstaði
fyrir flugvélar, er ákveðið um
stjórn flugmála og er flug-
ráði falið að annast stjóir.
og rekstur flugvalla rikisins.
Und'r stjórn flugráðs var svo
flugmálastjcra og flugvalla-
stjóra falið að hafa á hendi
framkvæmd þessara inála.
Þann tima sem flugráð hefir
starfað má segja., að góð
reynsla hafi fengizt t þe rri
tilhögun, að það hefði a hendi
stjórn og rekstur flugvall-
anna undir yf:rstjórn ráð-
herra. Hinsvegar hefir komið í
ljós, að ekki er heppilegt og
þvi síður nauðsynlegt, að
milli tveggja jafnrétthárra
skipta framkvæmdastörfum
embættismanna. flugvalla-
stjóra og flugmálastjóra.
Ráðuneytið hefir því talið
rétt, að þessi óþarfa t,vísk;pt
ing sé afnumin og ao flug-
vallastjóri rík:sins annist
einn framkvæmdastjórn flug
vallanna og annað, sem flug
ið varðar. Gerir þetta hvort
tveggja í senn, að koma á
samræmdri og samhentri
stjórn flugvallanna og um
eið að spara þeim nokkur út-
gjöld. Er því lagt til, að cm-
bætti flugmálascjóra verði
lagt niður.
Frumvávp þetta er að mcstu
leyti samhlj'ða áðurgveind-
om lögum nr. 65 1947 með
þeirri breytingu, sern af
nefndri skinuiagsbreytingu
leiðir. í frumvarpið er þó tek-
m heimild fyir ráðherra til
að setja regluv um ílugferðir
innlendra flngtélága, ef n.iað
syn krefur ÓtviraiJ heimiid
er ekki til fyrir ráðherra að
setja slíka reglur og þvi hefur
ekki veið mógulegt að setja
skorður við óþaUa eyðslu á
eldsneyfi og tæk;um, sem leitt
getur af hóílausvi samkeppni
á flugleiðum ‘
Frumvarpið heimilar ráð-
herra að veita flugfélögum
sérleyfi til flutninga ákveðn
ar leiðir innan lands og utan.
Lyfsölulög.
Haraldur Guðmundsson og
Páll Zóphaníasson flytja frum
varp til lyfsölulaga hið sama
og í fyrra. Það er allmikill
lagabálkur, 56 greinar í tíu
köflum. Nokkur ákvæði þessa
frumvarps verða rakin hér:
Rétt til að öðlazt leyfi til
rekstrar lyfjabúða eiga þeir er
hafa: 1. íslenzkan ríkisborg-
ararétt, 2. löræði, 3. óflekkað
mannorð, 4. lyfsalapróf sam-
kvæmt lögum nr. 112 30. maí
1940, 5. óskert almenn borg-
araréttindi og 6. eru ekki
kunnir að sérstökum ódugn-
aði eða hirðuleysi, né á þann
þann hátt andlega eða lík-
amlega miður sín vegna sjúk
leika, misnotkun áfengis, mor
fíns, kókaíns, annarra eitur-
lyfja eða annars, að hætt sé
við, að þeim verði á mistök í
lyfsalastarfi.
Leyfi til rekstrar lyfjabúð-
ar má veita samvinnufélög,
um, sveitarfélögum, sjúkra-
samlcgum og öðrum stofnun
um eða fyrirtækjum almenn-
ings, sem ætla má að gæti
trúlega hagsmuna lyfjaneyt-
enda.
Á vegum heilbrigðisstjórnar-
innar skal reka verzlunarfvr-
irtæki, er sé eign rikisins og
heiti lyfjaverzlun íslands. Þvi
skal komið fyrir á þann hátt,
seifi hér greinir:
1. Ríkissjóður láni eða á-
byrgist allt að einnar millj-
ónar króna lán til stofnfjár
handa fyrirtækinu.
2. Fyrirtækið sé sjálfstæð-
ur fjárhagsaðili og beri eitt,
án bakábyrgðar rikissjóðs, á-
byrgð á fjárhagsskuldbinding
um sínum. Það skal rekið sam
kvæmt fyrirfram gerðri á-
ætlun til eiris árs í senn, er
ráðherra staðfestir. Ársreikn
inga fyrirtækisins, enduskoð
aða af endurskoðun ríkisins,
skal jafnan leggja fyrir fjár-
hagsnefridir Alþingis.
3. Verksvið fyrirtækisins
sé að flytja inn, framleiða og
verzla með lyf, lyfjaefm,
hjúkrunarvarning, sjúkra-
gögn og aðra læknisdóma. Vör
ur þær, sem lyfjabúðir einar
og læknar (dýralæknar), sem
hafa rétt eða leyfi til lyfja-
sölu, mega selja, sé lyfjaverzl
uninni skylt að hafa á boð-
stólum og selja eingöngu þess
um aðilum, svo og rikinu,
sjúkrahúsum og öðrum sam-
svarandi stofnunum til eigin
afnota.
4. Fyrirtækinu stjórni tveir
framkvæmdastjórar, er ráð-
herra skipar, og skal annar
vera læknir er sé sérfróður lyf
jafræðingur (pharmacolog),
en hinn lyfsölufræðingui
(pharmaceut). Aðalfram-
kvæmdastjóri beri ábyrgð á
fjárhagslegum rekstri fyrir-
tækisins, en að cðru leyti skal
ákveða í reglugerð, hvernig
þeir skipti með sér störfum.
Unz ákveðið verður í launa-
lögum, kveður ráðherra á um
launakjör framkvæmdastjóra
og setur reglur um starfs-
mannahald og launagreiðslur
fyrirtækisins að öðru leyti.
5. Álagningu fyrirtækisins
sé hagað svo, að unnt s“é að
standa allan kostnaö ai:
rekstri þess, þ. á m. hæfilegri
afskriftir, og leggja í rekstrar
sjóð 1%, mest 2%, af vöru-
veltunni. Ágóði, er verða kann
umfram þetta, renni i lyfsölu-
sjóð.“
Lyfjaverzlun íslands er með
lögum þessum veittur einka-
réttur til að flytja inn og
selja í heildsölu allar þær yöi
ur, sem lyfjabúðum og lækn-
um (dýralæknum), sem hafa
rétt eða leyfi til, lyfjasölu, er
einum heimilt að selja.
Sjúkrahús Siglfirðinga.
Áki Jakobsson, Gísii Guö-
mundsson, Finnur Jónsson og
Sigurður Bjarnason flytja
frumvarp um að ráðherra sé
heimilt að veita sjúkrahúsmu
á Siglufirði sömu réttmdi
hvað stofnframlög snertir og
fjórðungssjúkrahúsum, það
er að ríkissjóður leggi frarn
3/5 hluta stofnkostnaðar 1
stað 2/5 hluta. Rökin íyiir þvf
að láta fjórðungssjúkrahús-
um í té hærri stofnkostnaðar
styrki eru þau, að þdngað
leitar fólk úr öðrum sveitar
félögum en því, sem sjúkra-
hús:ð er reist í, og þvi eðli-
legt, að framlag af almanna
fé verði me:ra. Þetta gilöir-
alveg eins um sjúkrahUs ^en.
reist eru á Siglufirði, wm'ei
mesta verstcð á u.ndinu,
segja flutningsmenn i greinar-
gerð.