Tíminn - 15.11.1950, Síða 2
z,
TÍMINN, miðvikudaginn 15. nóvember 1950.
255. blað
ír til heiia
Jtvarpið
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Kvöldvaka: a) Gunnar
M. Magnúss rithöfundur flytur
erindi: Grænlendingar gista ísa
fjörð (siðara erindi). b) Karla-
kórinn „Fóstbræður" syngur;
Jón Halldcrsson stjórnar (plöt-
ur). c) Vigfús Guðmundsson flyt
ur ferðaþætti: „Sunnan úr
heimi“: Frá Afríkuströndum. d)
Séra Jón Thorárensen les þjóð-
sögur. 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. 22,10 Danslög (plötur).
22,30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
M.s. Arnarfell er á leið til
Grikklands með saltfiskfarm.
M.s. Hvassafell er væntanlegt
til Reykjavíkur 16. þ. m.
Ríkisskip:
Hekla er á Austfjörðum á
suðurleið. Esja var á Akureyri í
gær. Herðubreið er í Reykjavík. |
Skjaldbreið fór frá Reykjavík í
gærkvöld til Snæfellsneshafna,1
Gilsfjarðar og Flateyjar. Þyrill
er i Reykjavík. Straumey fór frá
Reykjavík í gærkvöld austur um
land til Norðíjarðar. Ármann
fór frá Reykjavík í gærkvöid til j
Vestmannaeyja.
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Reykjavík
13. 11. til Grimsby, Hamborgar
og. Rotterdam. Dettifoss er á
Isafirði, fer þaðan í dag, 14. 11.
til Tálknafjarðar og Patreks-
fjarðar. Fjallfoss kom til Kaup-
mannahafnar í morgun 14. 11.
frá Leith. Goðafoss fór frá
Reykjavík 8. 11., kom til New-
foundland 14. 11. Fer þaðan til
New York. Gullfoss er í Kaup
mannahöfn. LagarfosS fór frá
Reykjavík 10. 11: til Bremerhav
en og Warnemunde. Selfoss kem
ur til Reykjavíkur í nótt 15. 11.
frá Finnlandi og Kaupmanna-
höfn. Tröllafoss fór frá New
York 7. 11. til Reykjavíkur.
Laura Dan fermir í Halifax um
20. 11. til Reykjavíkur. Heika
fór frá Rotterdam 10. 11. til
Reykjavíkur. Foldin er væntan-
leg til Reykjavíkur síðdegis í
dag 14. 11. frá Leith.
Flugferbir
Þessi kápa er saumuð úr flau-
eli með kraga úr persnesku
skinni, svo og handskjólið.
Hatturinn er dálítið gamal-
dags en sniðið er viðfelldið
og skemmtilegt.
Á Hofsósi
, var síðastliðinn sunnudag skip
að út 3070 kössum af frosnum
fiski í Dettifoss.
Vatnsveitan á Hofsósi.
Verið er að tengja vatnsveitu
kerfið á Hofsósi við húsin, og
það verk langt komið. Tíð er nú
hrösluleg á Hofsósi, ekkert róið
sem stendur, og snjóaði þar í
fyrradag.
Kornbrauð.
Ný uppskrift Náttúrulækninga
félagsins:
4 bollar heilhveiti, 4 bollar hveiti
klíð, 3 bollar nýmalaður rúgur,
3 bollar spíraður rúgur (saxað-
ur), 2 matsk. púðursykur, 1
líter mjólk. — Allt það þurra
blandist saman. Hrært. með
mjólkinni. Sett í skál og látið
standa í heitu herbergi í 7—8
klst. Sett í form og bakað um
1 klst. Nægir í 2 brauðform.
Starfsemi U.M.F. Reykjavíkur.
Ungmennaféiagið tekur upp
þá nýbreytni í sambandi við
skemmtistarfsemi sína í Lista-
mannaskáianum, að hin vin-
sælu gestamót verða á laugar-
dögum með ýmsum skemmti-
I atriðum. Þarna verður spiluð
| Framsóknarvist, þá verður
j einnig sungið, kveðið og fieira.
Dansaoir bæði gömlu og r.ýju
j dansarnir.
Þátttökutilkynningum verð-
ur veitt móttaka í Listamanna
skálanum, síma 6369, kl. 6 aíla
i daga.
En sunnudaga og ýmsa aðra
| daga fara fram hinar almennu
| skemmtanir fclagsins sam-
kvæmt óskum æskuíólksins,
sem sýnir mjög mikinn áhuga
I að sækja skemmtanirnar, en
þær fara jafnan fram nieð
1 me.nningarbrag.
Ný kennunarferð.
Guðmundur Jónasson frá
Múla fór á sunnudaginn við
fimmta mann inn á öræfi, og
var erindi hans að leita að vaði
á Þjórsá nokkru innar en
Tungná fellur í hana. Gerði
hann það meðal annars með
það í huga, ef enn á ný kæmi
til hans kasta að fara þangað
inn eftir vegna Vatnajökuls-
leiðangursins.
Þeir félagar héldu á öræfin
frá Ásólfsstöðum í Þjórsárdal.
Óku þeir inn með Gjánni og
inn Hólaskóg, yíir Sandafell
og í Skúmstungur. Funtíu þeir
allgott vað á Þjórsá skammt
frá Fremri-Skúmstungnaá og
fóru þar yfir hana í Sultar-
tanga. Fellur meginkvísl
Tungnár í Þjórsár nokkru neð
ar, en ofar aðeins Blautakvísl.
Þjórsá var aðeins sem svaraði
í kiof, þar sem hún var dýpst,
og er Tungná mun meira
vatnsfall þarna upp frá en
Þjórsá.
Alifuglaræktin
tímarit eggjaframleiðenda 7—
9 tbl. er nýkomið út. Efni blaðs
ins er þetta: Jólagæsirnar, Oft
er þörf ein nú er nauðsyn,
Hænsnakjötið, Um notkun und-
irburðar, Engar afurðarýrar
hænur, Góður áburður, Útflutn
ingur hænsna, Húsmæðraþátt-
ur o. fl.
Loftleiðir h. f.
Flugferðir innanlands miðviku
tíaginn 15. nóv.
1 dag er áætlað að fljúga til:
Akureyrar kl. 10,00 til Siglufjarð
ar kl. 10,00, til ísafjarðar og
Patreksfjarðar kl. 10,30 og £il
Vestmannaeyja kl. 14,00 Á morg
un er áætlað að fljúga til: Ak-
ureyrar kl. 10,00 og til Vest-
mannaeyja kl. 14,00.
Árnað heilla
Hjór.aband.
S. 1. laugarrtag voru gefin sam
an í skrifstofu sýslumanns í
Húsavík ungfrú Hólmfríður Jóns
dóttir frá Granastöðum og Arn
kell Þórólfsson, Hraunkoti í Aðal
dal.
Ur ýmsum áttum
Leiðrétíing.
í frétt frá Akureyri fyrir
skömmu var frá því skýrt að
Kaupíélag Eyfirðinga væri að
reisa nýja kartöflugeymslu. 1
fregn þessari varð sá misskiln- j
ingur, að hér er ekki verið að i
reisa nýtt hús, heldur er verið
að breyta gömlu húsi í þessu j
skyni.
- ^ömum veai —
Endurvarpsstöð á Akureyri
Það er nú skammt síðan ný
endurvarpsstöð tók til starfa
að Eiðum. Með henni er mjög
bætt aðstaða manna á Austur-
landi til þess að hlusta á ríkis-
útvarpið. Næsta sumar verður
gamla Eiðastöðin endurreist i
Hornafirði, og er talið, að hún
muni nægja til þess að leysa
vandræði byggðanna suðaustan
lands í þessu efni.
En það er eitt stórt verkefni
óleyst: endurvarpsstöð á Akur-
eyri. Hlustunarskilyrði um mið-
bik Norðurlands voru hin verstu
í haust og varanleg bót á þeim
verður ekki ráðin, fyrr en reist
hefir verið öflug endurvarps-
stöð á þeim slóðum. Erlendar
stöðvar heyrast í gegnum það,
sem útvarpsstöðin í Reykjavík
flytur, og má nærri geta, hvern
ig er að hlusta á hljóðíæraslátt
og söng, þegar svo er í haginn
búið. Og ekki er heldur nema
í meðallagi viðkunnanlegt að
hlusta á erindi, upplestur eða
leikrit, þegar heilar setningar
' á sænsku heyrast í gegn. Að
( minnsta kosti mun það trufla
marga.
En svona er ástandið, og
finnst mörgum jafnvel, að þeir
fái varla sitt fyrir útvarpsgjald
ið, meðan svona er ástatt.
Það er þó efalaust, að útvarps
stjóri og forráðamenn útvarps-
ins reyna að fá því til veg-
ar komið, að endurvarpsstöð
verði reist á Akureyri. En til þess
þarf fé og gjaldeyri, en af hvor (
ugu er nú gnægð í þessu landi.
Hér stangast réttmæt krafa
Norðlendinga og viðleitni for-
ráðamanna útvarpsins við litla
getu þjóðarinnar um þessar
mundir. En svo mikið réttlætis
mái er hér á ferðum, þar sem
slík stofnun sem ríkisútvarpið
á hlut að máli, að ekki getur
lengi beðið, að einhver lausn
fáist á þessu. Það er bágt á-
stand, þegar oft eru lítll sem
engín not að ríkisútvarpi þjóð-
arinnar í stórum .og fjölmenn-
um landshluta.. ,
J. H.
TILKYNNING
um útflutningslsyfi fyrir jólapökkum.
Ákveðið hefir verið að leyfa að senda jólapakka til
íslendinga og venzlamanna, sem búsettir eru erlendis.
í pökkunum má aðeins vera:
1. íslenzk matvæli, önnur en feitmeti.
2. Prjónavörur úr íslenzkri ull.
3. íslenzkir minjagripir.
Hver pakki má ekki vera þyngri en 5 kg. Leyfi verða
aðeins veitt fyrir einum pakka til hvers manns.
Pakkarnir verða tollskoðaðir og kyrrsettir, ef í þeimr
reynist að vera annað en heimilað er.
Greina þarf nafn og heimilsfang mótttakanda, hvað
senda skal og heimilsfang sendanda.
Leyxi þarf ekki fyrir bókagjöfum.
Leyfi verða afgreidd í Innflutnings- og gjaldeyris-
deild Fjárhagsráðs, Skólavörðustíg 12, alla virka daga
kl. 10—12 f. h. og 1—3 e. h., nema laugardaga kl. 10—12 S:
f. h.
♦ ♦
♦ *
Vsðskíptamálaráðuneytið,
14. rsóv. 1950
♦ ♦
Áminning
Þeir kaupendur, er eiga að greiða blaðið beint
til innheimtunnar og aðvaraðir hafa verið
bréflega um greiðsiu eru alvarlega áminntir
um að vera skuldlausir við blaðið um áramót.
Snnfieimta TÍáVIANS
Vélritunarstúlka
með nokkra bókhaldsþekkingu, getur fengið skrif-
stofustarf nú þegar. Uppl. um skólamenntun og fyrri
störf á skrifstofu leggist inn til Tímans merkt „Vél-
ritunarstúlka.“
8
♦♦♦♦♦♦♦♦«♦♦•»•-
HUSMÆÐUR
Einhver heilnæmasta fæðutegund er íslenzki
®©stuririii9
Aukin ostaneyzla eykur heilbrigði þjóðarinnar
Samband ísl. samvinnufélaga
ipi Tímans 81300