Tíminn - 09.01.1951, Síða 1
4 \
Bttttjóri:
Mrcrtm Þórarintton
FTtttarttstj&Hi
J&rn Btlgaton
Ótgt/aiUH:
mwu6knarflokkuri*u
! ---------------------
--------------------------f
Skrifttofur i Edduhásin*
Fréttasimar:
11302 og 81303
ÁfgreiSslusími 2323
Auglýsingasimi 81309
PrentsmiSjan Edda
i
35. árgangur.
Reykjavík, þriðjudaginn 9. janúar 1951.
6. blaff.
Metsölur tveggja togara í gær
Hallveig Fróðadóttir og Júil
fá hálfa miljón fyrir veiðifc^
Tveir íslenzkir togarar, sem seldu afla sinn í Englandi í
gær, fengu hæsta verð, sem dæmi eru um nú um langt skeið,
báðir yfir hálfa milljón íslenzkra króna. Var fisklítið á
markaðinum, og mikil keppni að ná í fisk eftir helgiha, en
á sunnudögum fara engar sölur fram í Bretlandi.
Fundur F.U.F.
á föstudagskvöld
^essir togarar voru Hall-
veig Fróffadóttir frá Revkja
vík, er seldi 3443 kitt fvrir
12160 sterlingspund og Júlí
frá Hafnarfirði, er seldi
2800 kitt fyrir 11130 pund.
Hafa því báffir fengið sem
svarar meira en hálfri millj.
íslenzkra króna fyrir afla
sinn — Ilallveig Fróðadótti
rum 550 þúsund krónur. —
Báðir þessir togarar seldu í
Grimsby.
Þriðji togarinn, Kaldbak-
ur frá Akureyri, seldi í Aber-
deen i gær, en fréttir eru
ekki komnar af sölu hans.
Þetta eru hæstu sölur hjá
íslenzkum togurum nú um
langt skeið. Á s. 1. ári kom-
ust sölur aldrei svona hátt.
Fyrlr áramótin seldi Jón Þor
láksson e'lnu sinni fyrir
10003 pund, og það var þá
hæsta sala um langan tíma.
En hæsta sala í sögu íslenzka
togaraflotans var hjá Neptún
usi fyrir nokkrum árum, um
19000 pund.
Góð sala hjá Elliðaey.
Elliðaey frá Vestmannaeyj
um, sem seldi i Grimsby á
föstudaginn, fékk einnig
gott verð fyrir afla sinn, þótt
ekki sé um slíka sölu að ræða
sem hjá Hallveigu Fróðadótt
ur og Júlí — 9240 pund fyrir
3150 kitt af fiski.
Aflaverfflaunin 3080 kr.,
þénustan alls 4335 kr.
Þessi síðasta för Hallveig-
ar Fróffadóttur tekur 24
daga. Aflaverðlaun hvers
skipverja nema 3080 krón-
um, cn auk þess er lifrarhlut
u?, kaup og fæði. Fá þeir, sem
sigldu í þe<-sari ferð, samtals
4oöS kr. frítt í kaup og verð- í
laun fvrir þennan 24 daga
túr. Þar af eru þeim gre’dd
30 pund í enskri mynt. Hin- J
ir, sem ckki sigldu, fá sömu 1
uppbæð í kaup og verðiaun.
en auk þess tíu daga leyfi
og seytján krónur i fæðis- :
peninga á dag. — En auðvit-
að ber þess að gæta, að hér
er um að ræða met-veiðiför.
Félag ungra Framsókn-
avmanna í Reykjavík held
ur fund i Ediluhúsínu á
föstudaglnn klukkan níu.
Umræffuefni verður: Fjár-j
Iiags- og viðskiptamál. —
Frummælandi Bergur Sig-
urbjörnsson viðskiptafræð-
ingur.
Þess cr vænzt, að menn1
fjölmenni á þennan fund1
og mæti stundvíslega.
Alþingi komið
sauðfjárpest á 6-7
bæjum í Staðarsveit
Veikin bráð.sniitandi — 90% sýkjast
Frá fréttaritara Timans í Staðarsveit
Snemma í desembermánuði varð Benjamín Þórðarson,
: hóndi í Ytri-Görðum, var við hrúðurkennd útbrot á sauðfé
sínu. Virðist hér vera um bráðsmitandi sjúkdóm að ræða,
því að nú hefir hann borizt á 5—6 bæi aðra og víðast sýkt
um 90% af fénu.
Sjúkdómseinkenni [ekki sé um mjög alvarlegan
Hrúður það, sem er ein- sjúkdóm að. ræða, en engu að
kenni sjúkdómsins, kemur síður mjög hvimleiðan. Veik-
aðallega í kringum horn.'in er áður óþekkt í Staðar-
Róðrar byrjaðir
úr Grúndarfiröi
Frá fréttaritara Tímans
í Grundarfirði.
Þrír bátar eru byrjaðir
róðra frá Grundarfiröi og
búnir að fara fjórum sinn
um á sjó. Afli hefir verið nokk
uð misjafn eða 3—5 smálest-
ir í róðri. Allur aflinn er hrað-
frystur, nema keila, sem er
hert.
Fjórði báturinn hefir verið
keyptur til Grundarfjarðar.
Er það Morgunstjarnan úr
Hafnar-firði og verða þvi
fjórir bátar gerðir út úr
Grundarfirði i vetur í stað
þriggja í fyira.
Fellur verðið?
Markaður hefir verið góður
i Bretlandi upp á síðkastið,
þótt ekki hafi fyrr fengizt
svona hátt verð. Má vænta j
þess, að hann verði allgóður
enn um hríð, þótt ósennilegt
sé, að slíkar sölur haldi áfram.
Er líklegra, að verðið falli tals
vert þegar í dag, enda eru
margir togarar á leið út með
afla sinn, svo að framboð verð
ur mikið síðari hluta vikunn-
ar.
í Bretlandi eru ýmsar radd-
ir uppi um það, að setja beri
hámarksverð á fisk. Brezkir
útgerðarmenn og sjómenn
leggjast þó hart á móti því,
einkum Skotar, og færa með-
al annars fram þau rök, að
þetta háa verð sé stundarfyr-
(Framhaid á 7. síðu.)
saman
Alþingi kom saman til fund
ar að nýju í gær eftir átján
daga hlé um hátiðirnar.
granir og á augnabrúnir. Há-
ir þetta fénu talsvert, eink-
um ef mikið hrúður er á
grönum og munnvikjum.
Vilja myndast blæðandi sár,
sérstaklega ef fénu er beitt.
Rannsókn.
Páli dýralækni Pálssyni að
Keldum hefir verið sent sýn-
ishorn af hrúðrinu til rann-
sóknar, og Ásgeir Ólafsson
dýralæknir i Borgarnesi kom
hingað vestur að tilhlutan
hans. Líkur eru taldar til, að
Sílcl á sunduniim:
Tveir bátar fengu í
gær um 130 mál hvor
En aðcins smásíld og’ millisíld
Tvcir bátar veiddu í gær sfld á sundinu á milli Viffeyjar
og Laugarness, um 130 mál hvor. Er hér um að ræða smá-
sild og millisild, og er hún látin i bræðslu i Hafnarfirði.
Bátar þessir voru Dagsbrún
frá Reykjavík og Gylfi frá
Rauðuvík. Bjarni Andrésson,
skipstjóri á Dagsbrún, skýrði
tíðindamanni Tímans svo frá
i gærkveldi, að síldargöngur
á sundunum virtust /era að
aukast. Hefir hann verið inn
á sundum undanfarna fimm
daga og jafnan fengið nokkuð
af síld, nema einn dag. En íj
sveit, og stendur bændum
stuggur af henni.
Eins og kunnugt er, er fé
allt hér um slóðir veturgam-
alt eða lömb, þar eð fjár-
skipti fóru hér fram í fyrra-
haust. Féð er ættað af Vest-
fjörðum.
Leikstarfsemi á
Eskifirði
Frá fréttaritara Tímans
á Eskifirði.
Ungmennafélagið hér byrj-
aði um jólaleytið sýningar á
sjónleiknum Seðlaskipti og
ástir eftir Loft Guðmunds-
son. Hélt félagið fimm sýning
ar á leiknum við ágætar undir
tektir og mikinn fögnuð á-
horfenda.
Var leikurinn sýndur fimm
sinnum. Ein sýning var á
Stöðvarfirði, en þangað fór
leikflokkurinn í sýningarför
daginn fyrir gamlársdag.
Tregur afli hjá
gær var aflinn mestur. Aðra' « ». ^ 1
daga hefir hann fengið 20-50 HOmatjarðarDatlim
mál.
Úr þjóöleikhúsinu — Söngbjallan
Frá fréttaritara Tímans
í Höfn í Hornafirði.
Eftir áramótin hafa jóið
hér tveir bátar til fiskjar,
Björg frá Neskaupstað, sem
tók fisk í ís til sölu á Bret-
landsmarkaði og annar bát-
ur, sem lagði afla sinn í
Björgu. Björg fékk ekki full-
fermi, því að tregur afli hef-
ir verið, en hún lagði af stað
til Bretlands á laugardaginn.
Heimabátar á Hornafirði
eru ekki byrjaðir róðra eftir
nýárið, en munu hefja þá
senn. Ekki er enn fullráðið,
hve aðkomubátar verða marg
ir á Hornafirði á vetrarvertið
i inni, og fer það nokkuð eftir
| því, hvernig fiskurinn verður
j verkaður, settur í ís eða salt-
aður. 1 Höfn er litið söltun-
arrúm. .
Úr lokaþætti Söngbjöllunnar. Baldvin Halldórsson, Margrét Ólafsdóttir, Regína Þórðar-
dóttir, Yngvi Thorkelsson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Hildur Kalman, Bryndís Pétursdótt-
ir, Gestur Pálssan og Haraldur Björnsson. — (Sjá grein innan í blaðinu).
Málfundahópur
F.U.F.
Fundur í kvöld í Eddu-
húsinu kl. 8,30.
Umræffuefni: Fræffslu-
starfsemin og félagsraál.
Mætið stundvíslega.