Tíminn - 23.01.1951, Síða 4
TIMINN, þriðjudaginn 23. janúar 1951.
18. blað,
Votheysturnarnir
I 291 tölublaði Tímans frá
30. des. s. 1. eru tvær greinar
um votheysgeymslur. Niður-
ag a grein Marteins Björns-
sonar verkfræðings og grein
iftir Árna Jónsson frá Svína
skála. Báðir greinarhöfund-
arnir ræða nokkuð um vot-
neysturnana. Ummæli þeirra
um þá gefa mér tilefni til
pess, að segja frá reynslu
minni af þeim.
Það voru byggðir tveir stein
steyptir votheysturnar 12.5 m.
djúpir á Hólum í Hjaltadal s.
1. sumar. Byrjað var að láta
íey í fyrri turninn 15. ágúst.
Það var mikið sprottinn fyrri
sláttur .Við að koma grasinu
i turnmn var notaður sax-
olásari nr. 7 knúinn af Far-
mall A-dráttarvél. Blásarinn
reyndist mjög afkastamikill
jg voru 100 heyhestar (miðað
við þurra töðu) settir í turn-
.nn einn daginn. Það er auð-
veldara að moka grasinu af
vagni í saxblásarann held-
ir en i gryfju. Meðan verið
ar að fylla turninn í fyrsta
sinn þarf að að færa til í
aonum, nog að breyta stefn-
rnni á röri því, sem grasíð
lettur niður um í turninn.
Meðan grasið fellur úr
íokkurri hæð, eða lítið er í
iurninum, þjappast það vel
>aman af sínum eigin falí-
þunga. Þegar turninn er að
/eróa fullur, þarf að moka til
i honum, annars fyllir grasið
strax upp í rörið og stoppar
pað.
p ið er auðvelt og miklu létt
j.ra aó moka söxuðu grasi,
neldur en ósöxuðu, því að
grasið hangir ekkert Haman.
áarna er að segja um það að
;aka saxað heyið úr geymsl-
anni. Það er miklu betra í
neöferð en ósaxað hey, nema
oá smá há.
Saxblásarinn vinnur því
tvennt og hvorttveggja er til
gagns. í fyrsta lagi lyftir
nann grasinu og dreifir því
am geymsluna. í öðru lagi
neggur hann grasið sundur í
eins til tveggja tommu búta
eða styttri eftir vild. Það ger
tr grasið meðfærilegra. Það
áeggst miklu betur og jafn-
ara í geymsluna heldur en
osaxað, og það er betra að
íaka það úr geymslunni og
geía það. Og mun ég saxa
gras í gryfju engu síður en
turna.
Þessi atriði vildi ég benda
á varðandi saxblásarann
því að í grein Marteins Björns
sonar er hann ekki talinn
hafa neinn kost, nema það
ið lyfta heyinu upp í turn-
inn. Þá er það misskilningur
hjá sama greinarhöfundi, að
það þurfi 25 til 30 hestafla
mótorvél til að snúa Öllum
stærðum af saxablásurum.
Farmall A mun hafa ca. 16
aestöfl á reimskífu. Það
.eyndist fullkomlega nóg afl
'nér i sumar til að snúa sax-
olasara nr. 7, en ástæðulaust
að hafa þá stærri, fyrir okk-
ar staðhætti.
í grein Árna Jónssonar, er
calað um að hættulegt sé að
geyma vothey í turnum,
vegna þess, að það frjósi í
þeim í langvarandi frostum.
I vetur hafa verið óvenju lang
ír frostkaflar og mikil frost
oft milli 10 og 20 stig. í nóv-
embermánuði voru 6 dagar
með yfir 10 stiga frosti, en í
desember 13 dagar með yfir
10 stiga frost, og hæst komst
það í 20 stig. f þessum frost-
tim nefir aldrei frosið í turn-
unum svo teljandi sé. Heyið
Eftir Kristján Karlsson, skólastjóra
hefir ekki frosið að ofan, en
við veggina hefir orðið vart
við frost, en ekki það mikið
að neitt af heyinu væri fast
við þá. Þetta er reynsla okk-
ar hér á Hólum í vetur, og er
ég alveg óhræddur við, að
geyma vothey í turnum í öllu
venjulegu árferði.
Þá er það misskilningur
hjá framangreindum grein-
arhöfundi, að turnarnir séu
settir ofan á jarðveginn, og
að frost muni fara undir þá
og heyið frjósa neðan frá.
Það er sjálfsagt að grafa
grunninn fyrir steinsteyptu
turnana niður fyrir frost eða
dýpra eftir aðstöðu, á föstu
undirlagi þurfa þeir að standa
en botninn má helst ekki
vera mikið neðar en gólfið
í fjósinu, því þá þarf að moka
nokkru af votheyi uppúr
botni turnsins, en það er
erfitt.
Ég gat um það í byrjun
þessarar greinar að um miðj-
an ágúst hefði fyrst verið lát
ið í fyrri votheysfurninn. Það
var mikið sprottið sáðgresi. í
því hitnaði. Ofan á það var
látin há, og turninn að síð-
ustu fylltur með hafragrasi
um 20. september. Þá var lít-
ill hiti í honum. Þegar látið
var í turnana, var aldrei tek
ið tillit til veðurs, eða þess
hvort grasið var rennblautt
eða grasþurrt, en unnið við
þetta flesta daga aðra en
þurrkdaga.
Grasið var þvi misþurrt, í
bezta lagi grasþurrt, en oft
með nokkru af lausu vatni og
stundum miklu.
Um það leyti, sem hætt var
að láta í fyrri tuminn, voru
kýr teknar á gjöf. Það var
strax farið að gefa þeim hafr
ana úr turninum. Þeir átust
vel. Það myndaðist aldrei
nein rekjuskán efst í heyinu,
því daglega var gefið ofan af
því.
Rekjur hafa hvergi verið í
þessum turni hvorki með
veggjum eða annarsstaðar, og
því enginn úrgangur úr hey-
inu. Það hefir allt reynzt vel
étist ágætlega og stundum
verið gefið nær eingöngu, en
venjulega hefir kúnni verið
gefin 3 kg. af þurri töðu á dag
með votheyinu, en enginn
fóðurbætir.
í seinni turninn var látin
há. Það hitnaði lítið í henni
nema efst, þar ornaði hún.
Nokkur rekjuskán myndað
ist ofan á þessum turni. Hún'
var tekin af fyrir nokkrum
dögum og var um 20 cm. á
þykkt. Þar fyrir neðan er
ornuð há, með sætsúrri lykt.1
Hún étst ágætlega. Því verð- i
ur ekki hægt að svara fyrrl
enn seinna hvernig háin hef
ir verkast neðar í þessum
turni. Það hitnaði ekki i
henni efst. Það má því bú-
ast við annari verkun hér en
í hinum turninum. Og eftir
er að vita hvort heyið verður
jafn lystugt og það, sem hitn
að hefir í, en að sjálfsögðu
verður það kjarnmeira.
Það verður alltaf þýðingar
mikið atriði í heyverkuninni,
að heyið sé lystugt, svo hægt
sé að fá skepnurnar til að
éta nógu mikið af því. Þá
nær reynsla mín ekki lengra
um það að gera vothey í turn
um og er mér vel ljóst að
reynslutíminn er allt of
stuttur til þess að hér sé um
algild sannindi að ræða. En
mér fannst rétt, að einhver
af þeim, sem hafa verkað vot
hey í turnum léti til sín heyra
um þetta efni, fyrst skoðan-
ir manna eru svo skiptar um
þá..
Hólum í Hjaltadal 9/1 1951
Enska knaitspyrnan
(Framhald af 5. síSu./
vopni: hraðanum. Bailey skor
aði fyrir Tottenham eftir 10
mín. en Birch jafnaði. Sigur-
markið skoraði Jack Rowley,
en þetta var fyrsti leikur
hans eftir nokkurt hlé. Það
verður áreiðanlega hörð
keppni hjá efstu liðunum. þar
sem bæði Tottenham og Middl
1 esbro töpuðu, en Arsenal
vann og er því aðeins einu
stigi á eftir. Chelsea vann
Newcastle mjög óvænt 3:1, en
áður höfðu þeir unnið Manch.
Udt. á Stamford Bridge, svo
margt bendir til að hinir
,.bláu“ muni komast af hættu
svæðinu. Það var athyglisvert
í þessum leik, að hinn 17 ára
gamli Bobby Smith skoraði
tvö af mörkum Chelsea.
Wolverhamton byrjaði vel
á móti Blackpool og má segja
að knötturinn hafi fyrstu 20
mín. verið á vallarhelmingi
Blackpool og á þeim tíma
skoraði Dunn fyrir Wolves.
En þá komust Mortensen og
Matthews í gang og eftir glæsi
lega „kombination“ hjá
Modie — Mortensen — Matth
ews — Brown — skoraði Mort
ensen. Blackpool sótti ákaft
í seinní hálfleik en tókst þó
ekki að skora.
Um 900000 áhorfendur sáu
leikina. Arsenal hafði flesta
65038. Tottenham var án fyrir
liöa sins Burgess í Mancliest-
er.
Reg Williams lék nú aftur
með Chelsea eftir langa fjar
veru vegna meiðsla.
Sigurmark Charlton kom
ekki fyrr en á 88. mín. — það
var sænski miðframherjinn
Hasse Jeppson sem skoraði.
Hann fær ágæta dóma. Jepp-
son keppti hér á landi 1948
með sænska liðinu Djurgaard
en.
Queens Park Rangers fékk
vítaspyrnur á móti Coventry.
Skorað var úr annarri. Alls
voru dæmdar 13 vítaspyrnur,
sem gáfu 10 mörk. 915 mörk
hafa verið skoruð í 1. deild en
900 í 2. deild.
Tottenham vann Wolves.
S. 1. laugardag fór 28. um-
ferð fram og var þýðing-
armesti leikurinn milli Tott-
enham og Wolverhamton.
Tottenham sigraði 2:1. Arsen
al gerði jafntefli í Hudders-
field og Blackpool í Sunder-
land. Middlesbro og Newcastle
báru bæði sigur úr býtum.
Nánar verður skýrt frá þess-
ari umferð síðar í vikunni.
4. umferð í Bikarkeppninni
fer fram næstkomandi laug
ardag. Arsenal vann um-
keppnina úr 3. umferð við
Carlise með 4:1.
HS
Blaðalesendur vita, að áfeng-
ismál og vínveitingar á skemmt
unum hafa allmjög verið til um
ræðu síðustu vikur og skal það
ekki rakið. Nú hefir áfengis-
varnanefnd Reykjavíkur skrif-
að dómsmálaráðherranum og
bent honum á, að leyfisveit-
ingar lögreglustjórans í Reykja
vík hafi stundum verið í ósam-
ræmi við gildandi lög og reglur.
Áfengisvarnanefnd er opinber
aðili, sem samkvæmt erindis-
bréfi sínu á að vaka yfir því,
að áfengislögin séu haldin og
er því einskonar opinber ákær-
andi í áfengismálum. Að sjálf-
sögðu mun dómsmálaráðherra
taka þessa kæru til greina og
þá sennilega með þvi að láta
oþinbera rannsókn fara fram í
þessu máli. Hér er um óvenju-
legan atburð að ræða og verður
að telja til tíðinda.
l»órarinn á Sknfi var að senda
mér sólhvarfavisur þessar:
Rólar þörfin, kveða köll,
kraftur örfar tíma.
Sólarhvörfin eftir öll
aftur hörfar grima.
Léttir tauma vetrar valds,
vistar strauma ljósin,
sprettir sauma fanna falds,
fyrsta drauma rósin.
Vona orri leikinn, lágt
lifir, vorra braga,
Svona morrar alla átt
yfir þorra daga.
Þessum vísum lætur höfundur
fylgja skýringar þær, sem hér
koma. 1. erindi: Það er kallað
hátt um það, að þörfin haldi
áfram. 2. erindi: Strauma ljós=
gull — roðar gullunum= von-
unum. 3. erindi: leikinn= und-
arlegur, lifa lágt= vesaldarlíf,
átt= stefna= leið, þorra
daga= flesta daga.
Þetta tel ég fróðlegt og raun-
ar góða mynd af þeirri íþrótt
sem vísnagerðin er og glímum
þeim, sem hugur mannsins
þreytir vegna hennar um skiln-
ing máls og fleira. Þessari þjóð
hefir löngum þótt veturinn
langur og daufur, ef ekki var
kveðió og því byrjaði séra Eirík-
ur Hallsson, sem uppi var á
14. öld, Hrólfs rímur kraka með
þessum orðum:
Suðra bát við góma göng
geymir mála skorðan.
Þorra dægur þykja löng
þegar hann blæs á norðan.
Ég vona, að þeir sem fróðir
eru, taki því ljúflega, þó að ég
geti hér um það, að Suðri er
dvergsnafn og Suðrabátur er
far skáldskaparins, — kveðand-
in. Þögnin ríkir. Kveðandin er
ekki hreyfð. Suðrabátur stendur
skorðaður við góma göng. Hann
er tiltækur ef einhver vill. En
í norðanáttinni þykja þorra-
dægrin löng, ef ekkert er kveð-
ið.
Sveinbjörn Egilsson orti síð-
an við þennan seinni part og
hafði vísuna svo sem margir
kunna:
Þegar vantar varmaföng,
vist og heyjaforðann
þorradægur þykja löng
þegar hann blæs á norðan.
Þorri byrjaði harðindalega að
þessu sinni og er nokkuð
tvísýnt um vist og heyjaforðann
í sumum héruðum landsins ef
framhald verður á þeim harð-
indum og samgönguerfiðleikum,
sem nú eru. Við vonum að úr
því rætist og þíðviðri það, sem
brá til nú um helgina verði
annað og meira en skammvinn-
ur spillibloti.
Starkaður gamli.
Frílistavörur
Getum útvegað frá Hollandi léreft og dúnhelt, mjög
góðar tegundir, með mjög hagstæðu verði.
Heildverzlun Árna Jónssonar H.f.
Aðalstræti 7. — Símar 5524 og 5805.
AUGLÝSING
Góð jörð óskast til kaups eða leigu. — Upplýsingar
í síma 7860 eða 81 039 í Reykjavík.
■sixxuuiititittztttxœimitiœix
Amtílvsiiifia.sími
TÍMANS
er 81300
Fyrir janúarlok
Þeir kaupendur blaðsins sem enn skulda blað-
gjald ársins 1950, eru áminntir um að ljúka
greiðsiu þess fyrir
janúarlok
Þeir, sem skulda blaðgjald ársins 1950 í byrj-
un febrúar, eiga á hættu að verða sviptir blað-
inu fyrirvaralaust í þeim mánuði.
Innheimta TÍMANS