Tíminn - 31.01.1951, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, miðvikudaginn 31. janúar 1951.
25. blað.
Útvarpið
títvarpið í dag:
8.30 Morgunútvarp. — 9.05
Húsmæðraþáttur. — 9.10 Veður-
fregnir. 12.10—13.15 Hádegis-
útvarp. 15.30—16.30 Miðdegis-
útvarp. — (15.55 Fréttir og veð
urfregnir). 18.15 Framburðar-
kennsla í ensku. — 18.25 Veður-
fregnir. 18.30 íslenzkukennsla;
II. fl. -- 19.00 Þýzkukennsla;
I. fl. 19.25 Þingfréttir. — Tón-
leikar. 19.45 Auglýsingar. 20.00
Fréttir. 20.30 Kvöldvaka: a)
Gils Guðmudsson ritstjóri flyt-
ur erindi: íslenzk ættanöfn. —
(fyrra erindi). b) Þingeyiriga-
kórinn syngur; Ásbjörn Stefáns
son stjórnar (plötur). c) Erindi:
Söfnun lausavísna, SigurðUr
Jónsson frá Brún. d) Frí-
mann Jónasson skólastjóri flyt
ur frásöguþátt; Heimsókn á
herrasetur á Jótlandi. 22.00
Fréttir og veðurfregnir. — 22.10
Passíusálmur nr. 9. 22.20 Dans-
lög (plötur). 22.45 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip:
Brúarfoss kom til Grimsby
28.1. frá Reykjavík. Dettifoss
fer frá Kaupmannahöfn 30.1.
til Leith og Reykjavíkur. Fjall-
foss fer frá Reykjavík 30.1. til
Akraness. Goðafoss kom til New
York 26.1. frá Reykjavík. Lagar-
foss er við Hrísey, fer þaðan á
Húnaflóahafnir og á Vestfirði.
Selfoss fór frá Raufarhöfn 27.1.
til Amsterdam og Hamborgar.
Tröllafoss fór frá St. Johns 28.1.
til New York. Auðumbla kom til
Reykjavíkur 27.1. frá Antwerp-
en.
Ríkisskip:
Hekla var á Seyðisfirði í gær
á norðurleið. Esja er í Reykja-
vík og fer / þaðan á morgun
vestur um land til Akureyrar.
Herðubreið er í Reykjavík og
fer þaðan á laugardaginn aust
Skjaldbreið er í Reykjavík, fer
ur um land til Bakkafjarðar.
þaðan á morgun til Húnaflóa-
hafna. Þyrill er í Reykjavík.
Ármann er í Reykjavík og fer
þaðan í kvöld til Vestmanna-
eyja.
Úr ýmHim áttum
Krísuvíkurvegurinn.
Ennþá bjargar Krísuvíkurveg
urinn flutningunum milli Suður
láglendisins og Reykjavíkur.
Heiðarnar eru algjörlega ófær-
ar. En Krísuvíkurvegurinn má
heita greiðfær.
Átti tíðindamaður Tímans
stutt viðtal við Jón Guðmunds-
son bílstjóra hjá Kaupfélagi Ár-
nesinga á Selfossi í gær. Var
hann þá kominn að austan
nokkru fyrir hádegið. Kvað
hann færð góða vestur til Krísu
víkur, en talsverðan þæfing það
an, en þó einkum umhverfis
Kleifarvatn. Enda hefði engum
snjó verið mokað af Krísuvík-
veginum ennþá.
Var Jón með 1000 lítra af
rjóma handa Reykvíkingum,
auk annars flutnings. Kvað Jón
sex vörubíla vera venjulega í
förum frá Kaupfélagi Árnes-
inga, en mjólkurbúið hefði 7
tankbíla, sem flestir væru jafn-
an í förum með mjólk til höfuð
staðarins.
Sænski sendikennarinn,
frú Gun Nilson, byrjar aftur
kennslu í háskólanum miðviku
daginn 31. jan.
Auglvsingasími
TÍMAIVS
er 81300
hafi tii
Æðarfugl og æðarvarp.
Ólafur Sigurðsson, bóndi
á Hellulandi í Skagafirði,
flutti útvarpserindi um æðar
varp í fyrrakvöld. Hann gat
þess, að hver æðarkolla gæti
árlega gefið af sér 12—15
krónur í dún, miðað við verð
á dúni nú. Hann taldi veiði-
bjölluna skæðasta óvin æðar
fuglsins, og vitnaði til rann
sókna dr. Finns Guðmunds-
sonar á eggjaráni veiði-
bjöllu í varplandinu að Bæ
í Hrútafirði, þar sem komið
hefði á daginn, að veiðibjall
an rændi þriðja hverju eggi,
og bæri þó víða meira á her-
ferðum hennar. Aðra skæð-
ustu óvinina sagði hann
sjálfan manninn, og auk þess
mink og loks hrafn.
Ólafur sagði lika frá til-
raunum, sem Kristján Geir-
vorið 1948 um að klekja æðar
mundsson á Akureyri gerði
eggjum út í vélum. Æðaregg
in voru fengin frá Laufási,
og klakið tókst með ágætum.
Ungarnir voru hafðir í fóstru
í eina viku, og eftir einn mán
uð var þeim sleppt, þá orðn-
um fleygum. Fóðrið, sem þeir
fengu, var malaður fiskúr-
gangur og skeljasandur.
Þjófur fundinn.
Lögreglan hefir fundið mann
þann, sem brauzt inn í verzlun I
ina Sjóklæði og fatnað síðast-
liðið laugardagskvöld. Hér hafði
. verið að verki nítján ára pilt-
ur.
Kaupið Tímann!
Símastúlkurnar í stöðinni á Selfossi hafa sent at-
hugasemdir við það, sem sagt var hér á dögunum í
þessum dálkum um nauðsyn á næturvörzlu að Sel-
fossi. Því miður er bréf þeirra ekki laust við tilefnis-
lausar getsakir i garð mannsins, sem fyrst vakti máls
á næturvörzlunni, og birti ég það ekki allt, heldur að-
eins þann hluta þess, sem snertir málsatriðin.
★ ★ ★
í bréfinu segir orðrétt:
„Næturvörzlunni var þannig háttað, að eftir lokun-
artíma stöðvarinnar var öllum aðal-landsímalínunum
stillt upp í herbergi stöðvarstjóra. Hringdi þar hátt í
bjöllum. Yfirleitt eru margar stöðvar á hverri línu,
og vissulega hringdu þær oft sin á milli eftir símatíma
og glumdi það allt inn í herbergið, og var hvimleitt
að hlusta á það. Þar fyrir utan auðvitað neyðarhring
arnar sjálfar, sem kröfðust þess að staðið væri yfir
afgreiðslunni í langan eða skammann tíma, og oft bar
það við, að nauðsynlegt var að fara út, og má nærri
geta, að það var ekki glæsilegt um miðjar nætur í
misjöfnu veðri. Þess ber að geta að oft voru þetta
ekki eingöngu læknissamtöl, heldur margskonar sam
töl annars eðlis, sem ekki var hægt að komast hjá, úr
því að þessi þjónusta var á annað borð.
Það má nærri geta að manneskja, sem að annaðist
þessa næturvörzlu símans, hafi ekki alltaf notið nauð-
synlegrar næturhvíldar.
Okkur, sem störfum hér, var fullkomlega kunnugt
um það, að Guðmunda heitin Ólafsdóttir stöðvarstjóri,
var orðin mjög þreytt á þessari neyðarþjónustu, og
talaði oft um það á morgnana, að hún hefði lítils
svefns getað notið þessa og þessa nóttina. Því eins og
gefur að skilja, eru ekki ailir þannig úr garði gerðir
að geta sofnað strax aftur eftir að hafa verið vaktir
upp, máske hvað eftir annað sömu nóttina, við glymj-
andi hringingar.
Fólk ætti að athuga það, að þetta er ekki skylda,
heldur það, sem stöðvarstj óri eða starfsfólk tekur að
sér.“
★ ★ ★
Þá er vikið að atriði, sem ekki var að öllu leyti rétt
með farið í pistlinum hér i blaðinu. Það er ekki rétt,
að enginn kostur sé að ná í Selfoss eftir lokunartíma.
En til þess þarf. krókaleiðir.
„Flestar stöðvar ,eða þær, sem við teljum, að þurfi
að ná í okkur vegna læknis síns“ ,segir í bréfi síma-
stúlknanna," eru stilltar til Reykjavikur, og getur næt
urvörður landsímans þar svo náð til Selfoss, þar sem
við höfum eina Reykjavíkurlínu stillta upp í svefn-
herbergi okkar hér“.
★ ★ ★
Það, sem mér skilst að sé versti þröskuldur í vegi,
að fóik endist til þess að halda uppi neyðarþj ónustu
i símstöðvunum, er misnotkun á þessari þjónustu. Fólk
hringir lítilla erinda og að þarflausu, í stað þess að
gera það aðeins í lífsnauðsyn eða því sem næst. En
hégómahringingar á tíma, þegar aðeins er um neyð-
arþjónustu að ræða, ætti að varða sektum. Á hinn
bóginn er von, að fólk vilji, ef kostur er, að neyðar-
þjónustu sé haldið uppi, og finnst, að það eigi vax-
andi kröfur á landsímanum sem stofnun, með símgjöld
hraðhækka. En hitt dettur áreiðanlega engum í hug,
að starfsfólk símans eigi að bæta slíku á sig, án þess
að greiðsla komi fyrir. Það aukagjald, sem tekið hefir
verið, er í rauninni hlæilega lítið, þrjár krónur fyrir
símtal. j. h.
tœaœa:::::::
TILKYNNING
um atvinnuleysisskráningu
Atvinnuleysisskráning skv. ákvörðun laga nr. 57, frá
7. maí 1928 fer fram á Ráðningarskrifstofu Reykja-
víkurbæjar, Bankastræti 7 hér í bænum, dagana 1., 2.
og 3. febrúar þ.á. og eiga hlutaðeigendur er óska að
skrá sig skv. lögunum, að gefa sig þar fram á afgreiðslu
tímanum kl. 10—12 f.h. og 1—5 e.h. hina tilteknu daga.
Reykjavík, 30. jan. 1951,
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Rafmagnstakmörkun
Straumlaust verður kl. 11—12.
Þriðjudag 30. jan. 1. hluti.
Hafnarfjörður og nágrenni, Reykjanes, Árnes- l
og Rangárvallasýslur.
Miðvikudag 31. jan. 4. hluti.
Austurbærinn og miðbærinn milli Snorrabraut-
ar og Aöalstrætis, Tjarnargötu, Bjarkargötu að
vestan og Hringbraut að sunnan.
Fimmtudag 1. febr. 3. hluti.
Hlíðarnar, Norðurmýri, Rauðarárholtið, Túnin,
Teigarnir og svæðið þar norð-austur af.
Föstudag 2. febr. 2. hluti.
Nágrenni Reykjavíkur, umhverfi Elliðaánna,
vestur að markalínu frá Flugskálavegi við Við-
eyjarsund, vestur að Hlíðarfæti og þaðan til sjáv
ar við Nauthólsvík i Fossvogi. Laugarnesið að
Sundlaugarvegi.
Mánudag 5. febr. 2. hluti.
Nágrenni Reykjavíkur, umhveLfi Elliðaánna, f
vestur að markalínu frá Flugskálavegi við Við-
eyjarsund, vestur að Hlíðarfæti og þaðan til sjáv
ar við Nauthólsvik i Fossvogi. Laugarnesið að
Sundlaugarvegi.
Þriðjudag 6. febr. 5. hluti.
Vesturbærinn frá Aðalstræti, Tjarnagötu og
Bjarkargötu, Melarnir, Grímsstaðaholtið, með
flugvallarsvæðinu, Vesturhöfnin með Örfirisey,
Kaplaskjól og Seltjarnarnes fram eftir.
Straumurinn verður rofinn samkvæmt þessu þeg-
ar og að svo miklu leyti, sem þörf krefur.
SOGSVIRKJUNIN.
.niiiimiiiaHC
H
HHHHiÍHÍiiHÍiíHamiSHHiilHSi:!
::
TILKYNNING
frá Skattstofu Reykjavíkur
Frestur til að skila skattaframtölum í Reykjavík,
rennur út í kvöld kl. 24.
Þeim, sem ekki hafa skilað skattframtölum fyrir
þann tíma, verða áætlaðir skattar. Skattstofan verður
opin til kl. 24 í kvöld.
Skattstofan verður lokuð dagana 1. til 7. febrúar, að
báðum dögum meðtöldum.
Skattstjórinn í Reykjavík
3aniitm«imiiiiiii;isvittiúcamii