Tíminn - 03.02.1951, Blaðsíða 6

Tíminn - 03.02.1951, Blaðsíða 6
6 TÍMINN, laugardaginn 3. febrúar 1921. 28. blað. La traviata Amerísk mynd gerð eftir hinni frægu óperu Verdis. Sýnd kl. 7 og 9. Silfnrsporinn Sýnd kl. 3 og 5. TRIPOU-BÍÓl Ræningjarnir frá Toinlsstone Afar spennandi og vi'ðburða- | rík ný, amerísk mynd. Earry Sullivan Marjorie Reynolds Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 16. Austurbæjarbíó líédée stúlkan frá Antwerpen Bönnuð börnum innan 16. Sýnd kl. 7 og 9. ?toy og olíuræn- ingjarnir Sýnd kl. 3 og 5. Sala hefst kl. 11 f.h. NÝiA BÍÓ Ógnavaldur borgar innar (Cry of the City) Victor Mature Richard Conte Syud kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 14 ára. TJARNARBÍÓ Skatt rciknað (Dead Reckoning) Spennandi ný amerísk leyni- lögreglumynd. Aðalhlutverk: Humprey Bogart Lisabeth Scott Bönnuð börnum innan 16. Smánfiymlasafn Sýnd kl. 5, 7 og 9 Nýjar amerískar grínmyndir, sprenghlæilegar. Sýnd kl. 3. Klaufinn og kven- lietjan með grínleikaranum Leon Errol Sýnd kl. 3. BÆJARBIO HAFNARFIRÐl EVA Áhrifamikil n ýsænsk mynd. Aðalhlutverk: Berger Malmsten Eva Stiberg Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. ►♦-»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< GAMLA BÍÓ Fjaffrirnar fjórar (The Four Feathers) Stórfengleg og spennandi mynd í eðlilegum litum. Ralpli Richardson John Clements Sýnd kl. 3, 5, 7, og 9. Bönnuð fyrir börn. fiiMiiiiiiiMmiiiiMiiicmiiiimiu*! HAFNARBÍÓ Jazzinn lieillar Sýnd kl. 3, 5, 7, og 9. Avtt sinámymla- safn Nýjar amerískar grínmyndir, Abott, Costello o. fl. Sýnd kl. 3. Sala hefst kl. 11 f.h. MLAIÐ: Auglýsingasími TlMANS er 81300 •SmaAsungJoéLuAnuil aiu áejtaA: Cfua/eCa^id % Bergur Jónsson Milaflutningsskrifstofa Laugaveg 65. Síml 5833. I Heima: Vltastíg 14. Askrlfíarsíml? TIMINN 2323 CJerlzt áskrifendnr. ..—— § Raflagnir — Vlðgerðlr \ Baftækjaverzlunln UÓS & HITI h. f. i Laugaveg 79. — SSml 51841 1 ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< | | ELDURINN | | gerir ekki boð á undan sér. 1 | Þelr, sem eru hygjmir, i tryggja strax hjá | Samvinnutryggingum I iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiuiiiiiii Erlent yfirlit (Framhald af 5. síðj,.) og austan, er hann var kallaður til Washington á ný, sem land- varnarmálaráðherra til að stjórna sameiginlegum vörnum þjóðanna beggja megin Atlants hafsins. Engin kvöldvinna. Marshall er nú 69 ára gamall, grár fyrir hærum. Hann byrjar enn vinnudag sinn 15 mínútum eftir '1 að morgni og yfirgefur skrifstofu sína klukkan 4. Hann hefir fylgt þeirri reglu alla ævi að fara snemma að sofa og | snemma á fætur. Það er trú1 hans, að engum detti neitt gott i hug eftir klukkan 3 og þá er ekki vert að vera lengi á vinnu- 1 stað úr því. Það stóð aldrei svo' illa á í styrjöldinni, að Marshall vekti fram eftir á kvöldin við vinnu sína. Bezta skemmtun | hans er að koma á hestbak og andstæðingar hans hafa deilt á hann fyrir það, að hann brá | ekki venju sinni en fór sína skemmtireið eins og endranær,1 þegar Japanir réðust á Pearl, Harbour. Hann bregður sér oft) á bak um sexleytið á morgnana og fær sér svo aftur sprett þeg i ar skrifstofutíminn er úti. Ann 1 ars er hann snillingur í borð- tennis og útitennis og góður að spila brids. Honum þykir líka gott að lesa í rúmi sínu. Snemma í rúmið. Leyndardómurinn við það, hvað Marshall hefir verið far- sæll stjórnandi er sá, að hann hefir aldrei verið hræddur við að sýna undirmönnum sínum trúnað og fela þeim ábyrgð. Þess vegna hefir hann aldrei sökkt sér niður í þrældómseftirlit eins og sumir stjórnendur drepa sig á. Hann er kunnur að því að vera fljótur að átta sig á mál- um w, taka ákvarðanir. Hann hefir»enga sérstaka kímnigáfu, en hann er jafnlyndur og góð- lyndur, ekki þolinmóður úr hófi fram, en veitist létt að vinna með mönnum. í samkvæmislíf- inu tekur hann ekki meiri þátt en nauðsynlegt er og það vekur eftirtekt þar, hversu oft hann þarf að fara heim klukan 10 vegna „knýjandi ástæðna". Hitt á að vera leyndarmál, vandlega geymt, að þessar „knýj andi ástæður" eru löngun hers- höfðingjans til að komast tím- anlega í rúmið sitt. Miiiiiingarsiijölcl Krabbameinsfélagsins í Reykjavík. Fást í verzluninni Remedia, Austurstræti 7 og á skrifstofu Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund. Cjina JC auá : i § ÞJÓDLEIKHÚSID Laugard kl. 20 Aýj tírsnó itin eftir Indriða Einarsson ★ Sunnud. kl. 14 AvársiióllÍH barnasýning Verð Aðgöngumiða: kr. 10.00 og 7.00 ★ Sunnudag kl. 20 Flekkaðar hendur Leikstjóri: Larus Pálsson Aðgöngumiðar seldir frá kl. 13,15—20, daginn fyrir sýn- ingardag og sýningardag. — Tekið á móti pöntunum. Sími: 80 000. SKIPS- LÆKNIRINN 23 — Þarna sjáið þér, að ég kann ekki að dansa, sagði Marta afsakandi. En mér sýnist, að þér hafiö meiðzt, bætti hún við, áhyggjufull á svip. Maðurinn svaraði ekki. Hann var náfölur og virtist ‘alls ekki heyra neitt, þótt hann væri ávarpaður. Svitinn hnapp- a.'ðist á enni hans, og hann gat ekki haldið jafnvæginu. Tóm- as varð að styðja hann. Hann leiddi hann að þjörgunar- bátnum og lét hann leggjast þar við hliðina á Míllii. Siðan þreifaði hann á slagæðinni. Hún var veik og sló óreglulega. — Þetta stafar ekki frá fallinu, sagði Tómas. Viljið þér gera svo vel að segja mér, hvar þér finnið til? Hann stundi og bylti sér. — Gallsteinar, sagði hann, hræðilegar kvalir. Hann þrýsti báðum höndum á magánn vinstra megin og nísti tönnum. — Morfín, hvíslaöi Tómas að Mörtu. Sækið dæluna til vonar og vara. Sjúklingurinn virtist ekkert heyra. Hann stundi bara, og Tómas losaði um bindi hans og hneppti frá skyrtuháís- málinu. — Sjái'ð þið, hva'ð hörundið-er hvítt og mjúkt! hrópaði Milla allt í einu. Tómas skoðaði hinn sjúka mann lauslega og Jþrýsti ofur- lítið á magann til þéss að kanna, hvar sársaukinn vai’ mestur. — Þetta líður frá, sagði hann hughreystandi. Þér fáið dálitla inngjöf, og svo er þetta búið. Fáið þér oft svona köst? Sjúklingurinn kinkaði kolli, og tennurnar glömruðu í munni hans. Læknirinn veitti því athygli, að hjartaö sló mjög óreglulega. Ekki gat það stafað frá gallsteinum. — Það er kóróna saumuð í skyrtuna hans! hrópaði Milla. Sjáðu, Maríus — hann er kannske prins! B.v.M. og kóróna með sjö hnúðum! — Það er barónsmerkið, sagði gamli maðurinn. Hvar hafði Tómas-heyrt um barón á þriðja farrýrni? Mergentheim barón? — Mergentheim barón! sagði Tómas snöggt. Sjúklingurinn opnaði augun. Já.... — Ég sá Mergentheim barónessu við matborðið — er hún ekki ættingi yðar? Sjúklingurinn lokaði augunum. — Ætt mín er fjölmenn. Ég þekki ekki nema suma frænda minna. Systir Marta var nú komin aftur. Hún hélt á lítilli nikul- öskju, og í henni var dæla og’ agnarlítil, lukt glas með brún- um vökva í. Tómas reyndi að smeygja skyrtunni út af öxl- inni á sjúklingnum. — Dælið því heldur í brjóstið, stundi hann. Tefjið ekki tímann — sjáið þér ekki, hvað ég kvelst? En Tómas vildi fara sínu fram. Það hafði vaknað grunur hjá honum, og hann vildi vita vissu sina. — í handlegginn — eða alls ekki, sagði hann. í vinstri handlegginn, bætti hann við, er hann sá, aö baróninn ætl- aði sjálfur að sméygja skyrtunni út af hægri öxlinni. En þegar Tómas hafði afhjúpað vinstri öxlina og hand- legginn, sá hann einmitt það, sem hann hafði búizt við: Óteljandi smáör eftir nálastungur. Hann kippti skyrtunni upp yfir öxlina og hneppti henni í hálsmálið. — Hann hefir gert sér þetta allt upp til þess að fá mor- fín, sagði Maríus. En þér ætlið að neyta honum um það, læknir. Hann hefir þó unnið til þess, að honum sé sýnd ofurlítil linkind. — Það er skylda yðar að líkna mér, hrðpaði Mergetltheim. Þér getið ekki efast um það, sem ég segi. Það< er skylda yðar að draga úr þjáningum mínum. — Ég efast ekki um, að þér þjáist, sagði Tómas. Þér er- uð eiturnautnamaður — örin á handleggnum tala sínu máli. En við slíka menn verðum við læknarnir að hlíta settum reglum — og þér að sætta ýður við kvalirnar. — Ég er ekki eiturnautnamaður lengur, sagði Mergent- heim. Ég hefi verið í sjúkrahúsi, og ég hefi fengið heil- brigðisvottorð. Ég get lagt fram skriflegar sannanir. — Því fremur mun ég neita yður um morfín, sagði Tómas. Þá fór Mergentheim að gráta. — Bara, að ég hefði verið kyrr í sjúkrahúsinu, stundi hann snöktandi. Það var þó ekki eins hræðilegt og þetta. — Þar hefir yður tekizt að afla morfíns, þrátt fyrir allt? sagði Maríus með hægð. Það hafa komið til yðar gestir — stundum hefir einhver hjúkrunarmannanna verið yður hjálplegur. En þér getið sjálfsagt huggað yður við það, að

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.