Tíminn - 03.02.1951, Qupperneq 8
„ERLEiVT\ FIRLIT“ i DAG:
Georye Catlet Marhsall
85. árgangur.
Reykjavík,
99A FÖRMJM VEGI“ t DAG:
Étifianfishross oy fjjörufutilar
3. febrúar 1951.
28. blað.
Annáll olíumálsins
10. marz Skipið „Esso Memphis" kemur til lands með
farm til Olíufélagsins. í Skipinu eru olíur og
benzin til Keflavíkurflugvallar og innlendra not
enda.
!
19. marz Gengislækkun íslenzku krónunnar.
í lok marz Verðlagsstjóri, sem þá var sjálfstæðismaðnr
inn Torfi Jóhannsson, skipar yfirlýstan komm-
únista, Ragnar Ólafsson, hæstaréttarlögmann
og löggiltan endurskoðanda til að gera athugun
á birgðum olíufélaganna með tilliti til verðlagn
ingar.
1. apríl Samkvæmt athugun Ragnars Ólafssonar ákveð-
ur verðlagsstjóri, Torfi Jóhannsson, að olíufélög
unum sé heimilt að hækka olíuverðið í samræmi
við gengislækkunina. Varðandi Olíufélagið var
þá þegar sýnt fram á, svo að Ragnar Ólafsson
og Torfi Jóhannsson tóku giit, að allar olíur og
benzín, sem voru í „Esso Memphis“ til innlendra
notenda, voru ógreiddar, þegar gengið var lækk-,
að, og var því óhjákvæmilegt að selja þær vörur
á verði, sem miðað var við hið lækkaða gengi. j
S. 1. vetur Auðkýfingarnir, sem höfðu haft einokun á olíu-
verzlun hér á landi, þar til Olíufélagið var stofn-
að, ókyrrast æ meir vegna hinnar hörðu sam- j
keppni félagsins, sem hefir orðið til að halda
verði á olíum og benzíni niðri, og stórlækka sum- j
ar tegundir, svo sem smurningsolíur. Aðstandend
ur Olíuverzlunar íslands, H. Ben. & Co. og fleiri j
bíða eftir höggstað á Olíufélagið.
9. janúar ,Einar Olgeirsson og fleiri kommúnistalciötogar
hafa grætt um 85 000 krónur hver á braski með
olíuhlutabréf, og eru því nátengdir olíuauðhring
unum. Nú er gróusögu um Olíufélagið laumað til
Þjóðviljans, og hann látinn hefja árás á félagið
með fullyrðingum um „stórfellt verðlagsbrot“ og
„tveggja milljóna gróða“. Málið er skipulagt á
bak við tjöldin af hagsmunamönnum í olíuauð-
hringunum, og verður e. t. v.síðar tækifæri til að
upplýsa, hvernig árásin var skipulögð, og hvers
vegna Þjóðviljinn skýrði frá kæru, sem Sverrir
Júlíusson var otað fram með.
11. janúar Morgunblaðið tekur undir róg Þjóðviljans og lýs-
ir Olíufélagið sekt án þess að nokkur rannsókn
hafi farið fram.
26. janúar Verðgæzlustjóri hefir gert rannsókn á bókum
Olíufélagsins og kemst að þeirri niðurstöðu, að
ekki sé um neitt verðlagsbrot að ræða, þar sem
verð á vörum félagsins hafi verið í fullu sam-
ræmi við athugun Ragnars Ólafssonar og ákvörð
un Torfa Jóhannssonar, og hið sama og hjá hin-
um olíufélögunum. Er því enginn grundvöllur tii
fyrir því að vísa málinu til verðlagsdóms, þar
sem verðgæzlustjóri kemst að þessari niðurstöðu.
28. janúar Morgunblaðið og Þjóðviljinn hefja ofsafengnar
árásir á verðgæzlustjóra, þar sem grundvelli hef
ir í raun og veru verið kippt undan árásunum á
Olíufélagið.
30. janúar Verðgæzlustjóri biður viðskiptamálaráðuneytið
um opinbera rannsókn á embættisfærslu sinni,
ef það telji ástæðu til.
31. janúar Morgunblaðið og Þjóðviljinn halda áfram full-
yrðingum um verðlagsbrot og stórgróða Oiíufé-
lagsins. Öll áróðursvél íhaldsins og kommúnista
er I gangi til þess að hnekkja dómi hlutlauss
embættismanns og tortryggja dóm hans.
Það er staðfest af verðgæzlustjóra, að Olíufélagið 'hafi í
öllu fylgt reglum þeirra Torfa Jóhannssonar og Ragnars
Ólafssonar um verð á vörum sínum í apríl og því sé ekki
um neitt verðlagsbrot að ræða. Samt er ofsóknum Morgun-
blaðsins og Þjóðviljans haldið áfram. Hvað gerist næst!
Eiga réttir embættismenn að fjalla um verðlagsmál I þessu
landi eða eiga olíubraskararnir, sem standa á bak við Morg
unblaðið og ráða skrifum þess, að kveða upp dóm!
------------------------1
)
Slysavarnarfé-
lagið þakkar
Stjórn Slysavarnarfélags
íslands óskar, að fiytja hin
um fjölmörgu félögum sín
um, skátum og öðrum sjálf
boðaliðum innilegustu
þakkir sínar fyrir mikla
fyrirhöfn og mikilsverða
aðstoða sína við leitina af
hinni töpuðu flugvél. Skip
um og bátum þeim, er að
beiðni Slysavarnarfélags ís
lands þegar brugðu við til
að leita á Faxaflóa, sömu
leiðis fólkinu á Vatnsleysu
strönd og björgunarsveit-
um slysavarnadeildarinn-
ar Fiskikletts í Hafnarfirði
og Ingólfs í Reykjavík er
leituou alla nóttina og þá
öllum hjálparsveitunum
frá slysavarnadeildunum í
Keflavík, Garðinum, Sand
gerði, Höfnunum, Grinda-
vík, Kjalarnesi, Kjós, Akra
nesi, Borgarfirði, Snæ-
fellsnesi og víðar er brugðu
svo fljótiega við og spör-]
uðu sér ekki neitt erfiði.]
Þá lýsir stjórn Slysavarna
félags íslands þakklætií
sínu yfir góðri og ná-
kvæmri Ieit flugvéla þeirra
er þátt tóku í leitinni.
Þeim, sem við þetta
hörmulega slys hafa misst
sína nánust, vottar stjórn
Slysavarnafélagsins sína]
innilegustu samúð og hlut
tekningu.
i Hes S.Þ. herðir sókn-
ina norður til Seoul
Gagnárásum iiorðurhersins hruudið við
mikið maiintjón hans. S. Þ. við Han-fljót
I
I Her S. Þ. í Kóreu hélt enn áfram sókn sinni norður að
Han-fljóti í gær og varð vel ágengt. Framsveitir eru nú
komnar að fljótinu eða í námunda við það á nokkrum stöð
um og mkill herstyrkur er aðeins í 15 km. f jarlægð frá þvú
Álitlegar sölur
í Englandi
í gær seldu tveir íslenzkir
togarar afla sinn í Englandi.
Bjarni Ólafsson frá Akranesi j
seldi í Grimsby, 3144 kitt fyr,
ir 10714 sterlingspund. Skúli
Magnússon frá Reykjavíkj
seldi í Hull, 3384 kitt fyrir
13661 pund.
Auk þess seldi Skjöldur frá,
Siglufirði bátafisk í Fleet-.
wood, 756 kitt, fyrir 2506 pund
Kæra Rússa rædd í
stjórnmálanefndinni
Stjórnmálanfend S. Þ. hélt
fund í gærkveldi og var á
dagsskrá vítutillaga Rússa á
hendur Bandaríkjunum
vegna íhlutunar um mál
Kína. Tillaga þessi var borin
fram í sept- s. 1. en frestað j
þá. Nú krefst fulltrúi Rússa j
að hún verði afgreidd eftir i
að samþykkt hefir verið að
lýsa Kína árásaraðila.
Mótspyrna norðurhersins í
gær var mjög lítil og hefir
mestur hluti norðurhersins
á þessum slóðum hörfað norð
ur fyrir Han-fljót, Á norður-
bakka fljótsins er hins vegar
mikill her til varnar óg hefir
búið rammlega um sig.
irr.v,
Mikið mannfall - «.*■
í fyradag og gærmorgun
gerði norðurherinn geysi- j
hörð gagnáhlaup og var bar-
ist í návígi. í gærkveldi hafði
suðurherinn hins vegar hrund
ið þessum áhlaupum alger-
lega af höndum sér og norður
herinn beðið mikið mann-
tjón. Munu hafa falliö um
2000 menn úr honum í þess-
I um átökum síðustu tvo síð-
ustu sólarhringa. Loft-
her S. Þ. gerði margar harð
ar árásir á stöðvar norður-
hersins í gær.
Tveir fangar með
taugaveiki
Meðal fanga þeirra, sem
suðurherinn tók í gær, reynd
ust tveir kínverskir hermenn
sjúkir af taugaveiki, sem tal
ið er að herji nú allmikið í
Norður-Kóreu bæði meðal her
manna og borgara .
Yfir 38. beiddarbaug
Mac Arthur ræddi við frétta
menn í Kóreu í gær. Þegar
hann var spurður að því,
hvort her hans mundi á ný
sækja norður fyrir 38. breidd
arbaug, ef sókn hans færðist
i aukna á næstunni, svaraði
hann því til, að það væri ekki
hans að ákveða það nú frem
ur en fyrr. Það væri S. Þ.
einna að segja til um það,
hvar staðar skyldi numið, og
mundi hann hlíta þeim fyrir
mælum sem fyrr, hvað sem
liði áliti sínu í þeim efnum.
Vorsk sjúkradeild lll
Kóreu
í gær samþykkti norska
þingið fimm millj. króna fjár
veitingu til stofnunar sjúkra
deildar, sem send verður til
Kóreu á vegum S. Þ. Verður
nú hafizt handa um undirbún
ing og verður deildinni komið
fyrir með sama hætti og öðr
um sjúkradeiltíum Rauða
krossins i Kóreu.
Taugaveiki geisar
í Norður-Kóreu
Þær lausafregnir, sem
borizt hafa að undanförnu
um það, að taugaveikisfar
aldur geisi meðal her-
manna í her Kínverja og
Norður-Kóreumanna, hafa
nú fengið staðfestingu.
Sjúkdómurinn er einnig út
breiddur meðal borgara.
Það þykir nú einnig ljóst,
að farsóttin samfara hin-
um mikla kulda og gífur-
lega manntjóni, sem norð
urherinn hefir beðið sé að
alorsök þess, að Kínverjar
hafa séð þann kost vænzt
an að flytja nokkuð af her
sínum brott úr Kóreu og
hörfa á vígstöðvunum.
Járnltrauíarvcrkfall
í fSandaríkjummi
Bandarískir járnbrautar-
starfsmenn hafa nú átt í
verkfalli tvo daga og er verk
fallið mjög útbreitt. Verkfall
ið er löglegt og stendur deil-
an um kauphækkun og breyt
ingu á vinnutíma. Talið er,
að verkfall þetta muni tefja
vopnasendingar til Evrópu og
Kóreu. Líklegt þykir að her-
inn verði látinn starfrækja
járnbrautir, ef verkfallið
leysist ekki hið bráðasta.
10 milljarða auka-
framl. til Iandvarna
Truman forseti Bandaríkj-
anna lagði i gær fyrir þjóð-
þingið tillögu um 10 millj - ]
arða dollara aukafjárveitingu
til landvarna- Fé þetta á að
taka með auknum sköttum, |
aðallega aukningu tekju-
skattsins, veltuskatts og hluta
fjárskatts.
Churcliill ber frarn
vaulraezst
Churchill bar fram í brezka
þinginu í gær, tillögu þess
efnis, að þjóðnýtingingu
brezka stáliðnaðarins, sem
hefjast á lögum samkvæmt
15. þ. m. verði frestað um
sinn. Verði tillaga þessi sam
þykkt, skoðast hún sem van-
traust á brezku stjórnina.
Fjórða kjarnorku-
sprengingin í
Nevada
Fjórða kjarnorkusprenging
in, sem fram fer til tilrauna
á vegum kjarnorkunefndar-
innar og bandaríska hersins
á eyðisvæði í Nevada um þess
ar mundir. Sprenging þessi
var enn kraftmeiri en hinar'
fyrri og sást blossinn af henni
alla leið til norðurhluta Kali-
forníu, í 500 km. fjarlægð.
Nokkrark byggingar í Nevada
löskuðust af loftþrýst'ngnum.
Neita báðir nefnd-
arstörfum
Sir Benegal Rau fulltrúi
Indlands og Pearson utan-
ríkisráðherra Kanada, sem
kosn'r voru í nýja sáttanefnd
í Kóreudeilunni ásamt for-
seta allsherjarþingsins hbfa
báðir neitað að starfa í nefnd
inni. Forsetinn hefir skipað
tvo menn í þeirra stað, og er
annar þeirra fulltrúi Noregs.