Tíminn - 11.02.1951, Síða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jðn Helgason
Útgejandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur i Edduhúsin::
Fréttasima::
81302 og 81303
AfgreiSslusimi 2323
Auglýsingasimi 813G0
PrentsmiSjan Edda
i
35. árgangur.
Reykjavík, sunnudag'nn 11. febrúar 1951.
35. bla' >
hér á landi
Fyrsta keppni í
körfuknattleik
Annað kvöld klukkan 8,30
hefst fyrsti opinberi kappleik
urinn í körfuknattleik, sem
háður er hér á landi. Fer
hann fram í iþróttahúsinu að
Hálogalandi.
íþróttafélag Reykjavíkur
hefir haft forgöngu um æf-
ingar í þessari nýju íþrótt
hér á landi. En erlendis nýt-
ur körfuknattleikur viða mik-
illa vinsælda.
Í.R.-ingar hafa tvisvar
sinnum keppt við starfsmenn
á Keflavikurflugvelli. En þar
eru margir Bandaríkjamenn, pessi mvnd var tek n, er íþróttafélag Reykjavíkur keppti
sem lagt hafa stund á þessa .. ^
íþróttagrein í heimalandi Vlft starfsrnenn a Keflavikurflugvelli um siðustu manaða-
sínu. mót í hinu nvja íþráttahúsi, sem bú ð er að reisa þar. Knött-
í sambandi við körfuknatt- ur nn er að falla n ður í kerfuna. Mark, sem ekki er hægt
leikinn að Hálogalandi ann- að verja. (Ljósm.: Guðni Þórðarson)
að kvöld verður einnig keppt ,
þar í badminton. j
Munu margir vilja nota
þetta einstaka tækifæri til að 8 1 Ib‘,^Is^C2í B*
kynna sér, og horfa á íþrótta %J!sS JL ! Sí UBl 1|§C8S
grein, sem er ný fyrir okkur,
£ “ k^rti'kn.ittipittiT- gislda su5ur á vertíð
Körfuknattleikur á IsSandi
Rossolimo og Frið-
rik efstir
Fjórða umferð Rossolimo-
mótsins var tefld í fyrrakvöld
og fóru leikar svo, að Guðm.
S. Guðmundsson gerði jafn-
tefli við Guðjón M. Sigurðs-
son og Gilfer við Ásmund Ás-
geirsson. Hinar skákirnar
urðu biðskákir milli Rosso-
limo og Baldurs Möllers, Frið
riks Ólafssonar og Árna
Snævar, Steingríms Guð-
mundssonar og Sturlu Péturs-
sonar. —
í gær voru tefldar bðiskák-
Ir. Þar vann Guðjón M. Árna
Friðrik vann Ásmund og
Steingrímur vann Sturlu. —
Skák Rossolimo og Baldurs
varð að bíða vegna þess að
Rossolimo tefldi fjöltefli á
sama tíma.
Eftir þessar fjórar umferð-
Ir eru þeir efstir Rossolimo
og Friðrik Ólafsson með 2(4
vinning hvor og sína biðskák-
ina hvor. Fimmta umferð
verður tefld í dag og teflir
Rossolimo þá við Steingrím
Guðmundsson.
Fjöldl sigifir7.kg*a fíoiinilít hlmliir voiiir síit-
i
{ ar viö uyjan íos*ara tii kaiipsíaöariiis
Frá fréttaritara Tímans í Siglufirði. j
Með síðustu ferðum strandferðaskipanna hafa margir!
Siglfirðingar haldið að heiman í atvinnuleit við sjóróðra,
aðallega í Vestmannaeyjum og í verstöðvunum við Faxa-
flóa. Mikið atvinnuleysi er samt enn í Siglufirði, og eru von-
ir margra siglfirzkra heimila um bjartari framtíð bundnar
við það, að einn af hinum nýju togurum, sem ríkisstjórnin
á nú í smíðum í Bretlandi, komi til Siglufjarðar. I
Sauðburðurinn
byrjaður!
Á Gamla-Hrauni á Eyrar-
bakka átti veturgömul gimb-
ur fullburða lamb nú nýlega.
Gimbrin er eign Ingvars Ingv
arssonar, bónda á Gamla-
Hrauni.
Það mun fáheyrt, ef ekki
einsdæmi, að ær beri svo
snemma vetrar.
Um 100 karlmenn
suður á vertíð.
Með síðustu ferð strand-
ferðaskipsins Esju fóru um
50 karlmenn úr Siglufirði
■ burt á vertíð. Fóru þeir aðal-
■ lega til verstöðvanna við Faxa
flóa og til Vestmannaeyja,
þar sem allmargir áttu vísa
vinnu í bátum eða við báta,
í landi. Auk þess fara all-
margir Siglfirðingar í vísa
atvinnu við frystihús og hag-
. nýtingu aflans.
I Áður voru svo farnir all-
margir karlmenn úr Siglu-
firði suður í atvinnu. Fóru
þeir ýmist á skip eða báta,
eða til annarrar vinnu. Nokk
j uð margir ætla að heiman, en
t eru enn ófarnir, svo að láta
mun nærri. að um 100 karl-
menn úr Siglufirði leiti burt
til atvinnu annars staðar á
vertíðinni í vetur.
.Vlikil hiálp að
bæjartogaranum.
Togarinn Eiiliði er helzta
atvinnutækið heima fyrir og
þær fjölskyldur, sem eiga
heimilisfeður á honum, kom-
ast vel af.
Elliði fór með afla sinn til
Bretlands nýlega og náði
miög góðri sölu. Munu skip-
verjar hafa rösklega fimm
þúsund króna hásetahlut eft
ir þá veiðiför. Tafðist það
fjóra daga í Bretlandi eftir
losunina, vegna viðgerða og
eftirlits, sem fram þurfti að
fara á því, en Elliði hafði
ekki siglt til Bretlands um
árs skeið, þar til nú í þessari
ferð. —
Það er að vísu von manna.
að aflasölurnar haldist sem
lengst góðar í Bretlandi, þótt
menn annars kjósi fremur, að
togar nn færi aflann heim til
Siglufjarðar til framhalds-
v'nnslu fyrir erlendan mark-
að, þar sem mikil atv'nna
skapast þá við að gera fisk'nn
að verðmætari útflutnings-
vöru. En með slíkum aflasöl-
(Framhald á 7. síðu.)
*
Magmís Agústsson
lækair fimmtugur
Magnús Ágústsson, héraðs-
læknir í Hveragerði, er fimmt
ugur á morgun. Hann er einn
Bii tingaholtsbræðra hinna
yngri, sona Ágústs Helgason-
ar og Móeiðar Skúladóttur.
Að loknu læknisprófi dvaldi
Magnús erlendis — í Noregi,
Þýzkálandi og Danmövku, en
1929 gerðist hann héraðslækn
ir í Borgarfjarðarhéraði, er
hann þjónaði um langt skeið.
Nú síðustu ár hefir hann ver
ið héraðslæknir i Hveragerði.
Togarinn Röðull hef-
ir fengið fisksjá
í gær fór fyrsti íslenzki íogarinn lit á veiðar með fi^ksji .
Er það Röðull frá Hafnarfirði, og er hann annað islenzk;,
skipið, sem búið er þessu tæki.
Eins og skýrt hefir verið
frá, var Fanney fyrsta skip-
ið, sem fisksjá var sett í, en
hún hefir lítið reynt hana til
veiða.
Nú hefir togarinn Röðull í
Hafnarfirði fengið fisksjána. j
Var unnið við að koma tæk-
inu fyjir í skipinu í fyrradag
og fyrrinótt og átti það að
vera tilbúið að fara á veiðar
í gær. Röðull er 680 smálestir
að stærð.
Flestir hinna nýrri og
stærstu þýzku togara hafa
nú orðið fisksjá og reynist
hún hið bezta. Reyna þeir
varla að kasta vörpu í sjó
nema hafa áður kannað fiski
slóðina með sjánni og tekst
oft að fylla sig á skömmum
tíma.
Vonir standa til að fisksjá
komi í nokkra línu- og tog- j
báta hér við land á næstunni. j
og mörg hinna stærri fiski-'
skipa hafa mikinn hug á að
eignast tækið.
Málfundahópur
F.U.F.
Fundur í málfundahóp
F.U.F. verður þriðjudaginn 13.
þ. m. kl. 8.30 Fundarefni: Fé-
lagsstarfið og unga fólkið.
Framsögumaður Þorste nn
Sigurðsson.
Skcgaskóli
einangraður
Það hefir verið ákveðið, ai
Skógaskóli undir Eyjafjöll
um verði einangraður vegnt.
inflúensunnar í þeirri von, a£
takast megi að verjast veik-
inni. —
Góður afli á
Akranesbáfa
Tólf bátar frá Akranesi voru.
á sjó í gær og öfluðu yfirleitt
vel. Hefir svo verið undan-
farna daga, aö afli hefir ver-
ið í góðu meðallagi, en gæftii
stöðugar. Eru aflabrögð mun
betri hjá Akranesbátum nú
en þau voru á sama tíma j
fyrra.
Aflinn er að vísu nokkuð
misjafn. Þeir bátar, sem róa
lengst vestur undir Jökul, afla
enn bezt að öllu jöfnu, en þeir,
sem styttra róa, fá einnig góð
an afla. Hafa bátarnir verið
flestir með 10—14 skippund.
en afli þeirra hæstu hefir
komizt upp fyrir 20 skippund.
Þannig hafði einn bátur i
fyrradag 24 skippund í róðri.
Kenningar Helga Pjet-
urss verða boðaðar
Félag Nýálssinna stofnað í því skyni
Eins og kunnugt er, kom dr. Helgi Pjeturss fram með nýja
kenningu um lífsamband milli stjarnanna og ritaði fjölda
greina og gaf út bækur til stuðnings þeirri nýju kenningu
sinni, að menn flyttust stjarna á milli við dauðann og lifðu
•framhaldslífi á öðrum jarðstjörnum.
Allmargt manna mun hafa
aðhyllzt kenningar dr. Helga
Pjeturss að meira eða minna
leyti, og talið þær í senn há-
leitan boðskap og vel grund-
aðan. Voru rit hans mjög les-
in af miklum fjölda manna.
Síðan dr. Helgi Pjeturss
lézt^ hefir þó veriö hljótt um
kenningar hans. En fyrir
skömmu var stofnað í Reykja
vík félag, sem hyggst að
kynna og útbreiöa kenning-
’ ar dr. Helga um lifsamband
milli stjarnanna og afla þeim
fylgis meðal almennings. —
Nefnist félag þetta „Félag
Nýálssinna.“ Er það opið öll-
! um, sem vilja styðja þetta
I mál á einn eða annan hátt,
1 jafnt Reykvíkingum sem öðr-
um landsmönnum.
Formaður félagsins er Svein
björn Þorsteinsson teikni-
kennari, Skálholtsstig 2 í
Reykjavík, og geta þeir, sem
óska inngöngu i samtökin,
sent honum umsóknir sínar.
Dr. Helgi Pjeturss