Tíminn - 11.02.1951, Blaðsíða 2
2.
TÍMINN, sunnudaginn 11. febrúar 1951.
35. blað'
1
tií heiia
S. K.T.
Nýju og gömlu dansamlr 1 3. T.-
húsinu sunnudagskvöld kl. I —
Húslnu lokað kl. 10.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30.
Hin vinsæla hljómsveit Jan Morávek leikur fyrir dansinum
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
íífVrlTpíð
lítvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 11.00 Morguntónleikar (plöt-
ur). 13,00 Erindi eftir C. D. Dar-
lington prófessor: Um líf á öðr-
um plánetum (Hjörtur Halldórs
son menntaskólakennari þýðir
og fiytur). 14,00 Messa í Laug-
arneskirkju (séra Garðar
Svavarsson). 16,30 Frá opnun ís
lenzku myndlistarsýningarinnar
í Osló 27. jan. s. 1. Ræðumenn:
Lars Moen fræðslumálaráðherra
Noregs, Gísli Sveinsson sendi-
herra, Ulrich Hendriksen form.
norska listamannasambandsins
Og Valtýr Stefánsson ritstjcri.
18,30 Barnatími (Þorsteinn Ö.
Stephensen). 20,20 Tónleikar
(plötur). 20,45 Kínabréf til ís-
lendinga frá Jóhanni Hannes*
syni kristniboða (Sigurbjörn
Einarsson prófessor les). 21,20
Kórsöngur: Polyteknikkojen
Kuoro (karlakór finnska verk-
fræðiháskólans) syngur. (Söng-
urinn tekinn á segulband á
hljómleikmn í Austurbæjarbíó
15. okt. s. 1.). 22,00 Fréttir og
veðurfregnir. 22,05 DanSlög (plöt
ur). 23,30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,20 Útvarpshljómsveitin;
Þórarinn Guðmundsson stjórn-
ar: a) íslenzk alþýðulög. b) Lög
úr óperunni „Madame Butter-
fly“ eftir Puccini. 20,45 Um dag-
inn og veginn (Halldór Krist-
jánsson blaðamaður). 21,05 Ein
songúr: Elsa Sigfúss syngur
(plötur). 21,20 Erindi: Júdas frá
Kariot (séra Pétur Magnússon).
21,45 Tónleikar (plötur). 21,50
Frá Hæstarétti (Hákon Guð-
mundsson hæstaréttarritari).
22,00 Fréttir og veðurfregnir. —
22,10 Passíusálmur nr. 19. 22,20
Létt lög (plötur). 22,45 Dagskrár
lok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Ms. Arnarfell er í Denia á
Spáni. Ms. Hvassafell er í Lissa-
bon.
Ríkisskip:
Hekla er væntanleg til Akur-
í gær austur um land til Siglu-
eyrar í kvöld. Esja fór frá Rvík
fjarðar. Herðubreið er á leið frá
Austfjörðum til Reykjavíkur.
Skjaldbreið er í Reykjavík. Þyr
ill var væntanlegur til Hval-
fjarðar seint í gærkvöld. Ár-
mann fór frá Reykjavík í gær-
fór frá Reykjavík í gærkvöld til
kvöld til Vestmannaeyja. Oddur
Skagafjárðar- og Eyjafjarðar-
hafna.
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Hull 8. 2. til
Reykjavíkur. Dettifoss fer frá
Reykjavík 12. 2. til Akranesss og
vestur og norður. Fjallfoss kom
til Bergen 9. 2., fer þaðan til
Frederikstad og Kristiansand.
Goðafoss fór frá New York 7. 2.
til Reykjavíkur. Lagarfoss kom
til Grimsby 9. 2., fer þaðan til
Hull, Bremerhaven og Hamborg
ar. Selfoss kom til Hamborgar
9. 2., fer þaðan 10. 2. til Ant-
werpen og Reykjavíkur. Trölla-
foss kom til New York 2. 2., hefir
væntanlega farið þaðan 9. 2. til
Reykjavíkur. Auðumla er í Hull,
fermir vörur til Reykjavíkur.
Árnað heilla
Hjór.aband.
1 gær voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Þórný Þor-
kelsdóttir, Nökkvavogi 7, og Ás-
kell Einarsson, auglýsingastjóri.
Hjónaband.
í gær voru gefin saman í
Borgarnesi tvenn brúðhjón.
Ungfrú Björg Þorvaldsdóttir frá
Stykkishólmi og Már Pétursson
klæðskeri og ungfrú Erla Dani-
elsdóttir verzlunarmær og Þor-
leifur Grönfeld verzlunarmaður.
Úr ýrtvr-im áttum
Ilappdrætti háskólans.
1 Dregið var í happdrætti há-
skólans í gær. Hæstu vinningarn
ir komu upp á þessar tölur: 25
þús. krónur 7573, fjórðungsmið-
ar, þrír seldir í Siglufirði, einn
í Stykkishólmi. — 10 þús. krón-
ur 21671, fjórðungsmiðar, þrír
1 seldir á Selfossi, einn hjá Helga
Sívertsen í Reykjavík. — 5 þús.
! krónur 590, háifmiðar, seldir í
Bókaverzlun Guðmundar Gam-
| alíelssonar í Reykjavík.
Frá Landssambandi
blandaðra kóra.
Landssamband blandaðra
kóra gengst fyrir skemmtun í
vetrargarðinum í Tívolí í kvöld.1
Söngfólk úr sambandskórunum
verður látið sitja fyrir aðgöngu
miðum á skemmtunina fyrir sig
og gesti sína. Sími 6710.
Taflæfingar og bridgekennsla !
mánudaginn 12. þ. m. í F^du-
húsinu, Lindargötu 9 A. Frekari
ákvarðanir teknar um væntan-
lega starfsemi. Tekið á móti nýj
um félögum.
Tafl- og bridgeklúbburinn.
Kanpið Tímafiu!
JEPPI óskast
Blaðamaður óskar eftir að kaupa nýlegan og vel með
farinn jeppabíl nú þegar. Ætti helzt að vera óyfir-
byggður, en þó er engin nauðsyn að svo sé.
Þeir, seni hefðu hug á að sinna þessu, sendi tilboð,
ekki nauðsynlega með tilteknu verði, til
AfgreiðsEu TÍMANS
Reykjavík, merkt: Þagmæiska-Einkamál „25“.
fl (fc/'Hunt tieyis
Námsfólk og námskostnaður
Bor’zt hefir bréf um námsstyrkina — bréfritari nefn
ir s'g P. J. Hann segir:
„Menntamálaráð hefir nýlega úthlutað námsstyrkj-
um, um það bil einni milljón króna, er koma í hlut rösk-
lega tvö hundruð námsmanna. í greinargerð, sem fylgdi
úthlutun þessari. var sagt, að upphæð styrkjanna væri
mismunandi, enda miðuð við mismunandi námskostn-
að. Þeir, sem stunda nám í Noregi, fá yfirleitt 4000 þús-
und, Danmörku 4000—5000 krcnur, Svíþjóð, England og
Frakklandi 6000 krónur og Ameríku og Sviss 8000 krón-
ur.
★ ★ ★
Af pessu má marka, hvað mismunur á námskostnaði
er gífurlegur, eft'.r því hvar nám er stundað. Nú er það
svo, að mikill fjöldi námsmanna hefir ekki úr miklu að
spila, við erum ekki rík þjóð og að m nnsta kosti í si-
felldu gjaldeyrishraki. Þess vegna sýn'st það brýn nauð
syn, að fólki, sem framhaldsnám stunda, sé beint til
þeirra landa. þar sem námskostnaður er minnstur, enda
verð. v ðkomandi námsgre n þó ákjósanlega numin á
hinum ódýrari stað. Ég efast um, að þessa hafi enn
ver ð fyllilega gætt.
★ ★ ★
Annað atriði, sem varðar úthlutun sem þessa, er jafn
sjálfsagt að hafa í huga: Verður starfsvettvangur
fyrir þetta fólk á íslandi, er það hefir lokið námi sínu?
Það munu hafa verið talsverð brögð að því, að menn,
sem hlotið hafa styrki árum saman 11 náms erlendis,
hafa að námi loknu ekki talið sig hafa starfsvettvang
hér heima og horfið af landi brott. Við megum ekki við
slíku Við höfum hvorki ráð á að ala upp fólk handa
öðrum þjóðum né mennta það handa þeim. Ég skal ekki
dæma um það, hvort þessa hefir ver'ð nógu vel gætt Yð
síðustu úthlutun styrkja — vonandi hefir svo verið.
★ ★ ★
En eitt kemur mér broslega fyrir sjónir við þessa út-
hlutun, og er það raunar atriði, sem ekki er nýtt af
nálinni. Er ekki heppilegra fyrir nemendur að læra
þýzku í Þýzkalandi en Noregi, rómönsk mál í rómönsku
landi en Bretlandi, enska bókmenntasögu í Englandi en
Bandaríkjunum (og jafnvel ?nsku, að minnsta kost
eins op, námskostnaði er nú háttað)? Spyr sá, sem ekki
veit“
★ ★ ★
Það er eðlilegt, að um þessi mál sé rætt. Það er ekki
lít'ð fé, sem ríkið leggur að mörkum vegna fólks við
framhaldsnám, og þó enn me'ri galdeyrir, er það þarf
sér tn framfærslu við námið. Með þessum orðum er
ekki verið að telja þetta eftir, og það virðist mér ekki
heldur bréfr'tarinn gera, en hitt er jafn sjálfsagt að
verja þessu fé sem skynsamlegast. Þess vegna eru um-
ræður um þetta mál þarfar.
J. H.
bæjarsjóðs vegna
vatnsveituframkvæmdanna
er enn til sölu hjá bæjargjaldkeri, Sparisjóöi Hafnar-
fjarðar, Útvegsbanka íslands h.f., Reykjavík Lands-
bankanum, Reykjavík og Kauphöllinni, Reykjavík.
Skuldabréfin, sem eru aðeins til 5 ára, eru rikis-
! tryggð, þriggja ára vextir af þeim greiddir fyrirfram,
og því hin hagkvæmustu fyrir þá, sem ávaxta vilja fé
sitt. , • ■ .
Frestið því ekki til morguns, sem hægt er að gera
í dag.
Kaupið bréfin, meðan þau eru enn til.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði, 1. febrúar 1951
Helgi Hannesson
::
’♦♦♦♦♦*♦♦♦•
>««?♦♦♦?♦♦'
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
H
H Félag járniðnaðarmanna
TILKYNNING
Hér með er auglýst eftir framboðslistum til væntan-
legs kjörs stjórnar og trúnaðarráðs, og skulu þeir hafa
borist í skrfistofu félagsins fyrir kl. 8 e. h. þriðjudag-
inn 13. febrúar. Hverjum lista skulu fylgja skrifleg
meðmæli a. m. k. 28 fullgildra félagsmanna.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
a
Hjartans þakkir fyrir alla vináttuna, sem okkur hjón
unum var sýnd á sextugsafmæli minu 6. febrúar.
Helgi Agústsson
Timaritið DVOL
Allt, sem til er af eldri ár-
göngum Dvalar, en það eru
um 150 arkir eða um 2400
blaðsíður lesmáls, mest úrval
þýddra smásagna, fæst nú
fyrir kr. 50,00, auk burðar-
gjalds, sent gegn póstkröfu
hvert á land sem er. Þetta
er óvenjulegt tækifæri til að
eignast skemmtilegt sögu-
safn.
Ég undirrit.... óska að fá
það, sem til er af Dvöl.
Nafn
Heimili
Póststöð
Sýsla
Auglvsingasími
TÍMANS
er 81300
LÖGUÐ
fínpúsning
send gegn póstkröfu um allt
land.
Fíopúsningsgerðin
Reykjavík - Simi 6909
Fáum næstu daga
Rafmagnsperur
220 og 110 volta, ýmsar gerð-
ir, skrúfaðar og stupgnar.
Sendum gegn póstkröfu
Véla- og raftækjaverzlunin
Tryggavgötu 23. Sími 81279
Gertst ásferífendnr að
JJímanum
Áskriftarsími 2323