Tíminn - 14.02.1951, Qupperneq 2
2
TÍMINN, m-ðvikudaginn 14. febrúar 1951.
37. blað.
TILKYNNING
ég unclirritaður tilkynni hér með vinum mínum og
viðskiptamönnum að símanúmer mitt verður fram-
vegis 1383
Viröingarfyllst
Reykjavík 14. febrúar 1951
SIGURJÓN GUÐBERGSSON
málaranieistari
Enn eru þeir kaupendur mjög alvarlega á-
minntir, sem ekki hafa innleyst póstkröfur, sem bor-
izt hafa þeim frá innheimtu Tímans.,
Innheimta Tímans
Mona Lisa
útsett fyrir píanó með guitarhljómum íslenzkur
enskur texti.
Sendum gegn póstkröfu
Notnaforlaglð TEMPÓ
Ránargötu 34, Reykjavík
til leigu með áhöfn, helst í nágrenni bæjarins. Þeim
sem koma til mála að vilja sinna þessu, leggja skrifleg
tilboð og upplýsingar á innheimtu blaðsins sem fyrst
merkt „Góður ábúandi“.
'Jtá hafi til heiía
Útvarpið
Útvarpið i dag:
8.30 Morgunútvarp. — 9 05
Húsmæðraþáttur. — 9.10 Veð-
urfregnir. 12.10—13.15 Hádegis-
útvarp. 15.30—16.30 Miðdegis-
útvarp. — (15.55 Fréttir og veð’-
urfregnir). 18.15 Framburðar-
kennsla í ensku. — 18.25 Veður-
fregnir. 18.30 Þingfréttir. — Tón
leikar. 19.45 Auglýsingar. 20.00
Fréttir. 20.30 Kvöldvaka: a) Ól-
afur Þorvaldsson þingvörður
flytur erindi: Frá Krísuvík. b)
Tvísöngur (plötur). c) Vigfús
Guðmundsson flytur ferðaþátt:
Frá Suður-ítalíu. d) Friðjón
Stefánsson les frumsamda smá
sögu: „Ekki veizt þú, Ellá?“
22.00 Fréttir og veðurfregnir. —
22.10 Passíusálmur nr. 21. 22.20
Danslög (plötur). — 22.45 Dag-
skrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
M.s. Afharfell er í Valencia.
M.s. Hvassafell er í Lissabon.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Reykjavík-
ur 12.2. frá Hull. Dettifoss er í
Ólafsvík, lestar á Breiðafjarðar-
og Vestfjarðahöfnum. Fjall-
foss er í Frederikstad, fer þaðan
til Kristiansand. Goðafoss fór
frá New York 7.2. til Reykja-
víkur. Lagarfoss fór frá Hull
12.2. til Bremerhaven og Ham-
borgar. Selfoss fór frá Hamborg
10.2. til Antwerpen, fer þaðan
til Austfjarða, Norðurlandsins
og Reykjavíkur. Tröllafoss fór
frá New York 11.2. til Reykja-
víkur. Auðumbla er í Hull, ferm
ir vörur til Reykjavíkur. Foldin
fermir vörur í Rotterdam til
Reykjavíkur.
Rikisskip:
Hekla var væntanleg til
Reykjavíkur seint í gærkvöldi
eða nótt, að vestan og norðan.
Esja veröur væntanlega á Akur-
eyri í dag. Herðubreið fór frá
Reykjavík í gærkvöld til Breiða
fjarðar- og Vestfjarðahafna.
Skjaldbreið er í Reykjavík. Þyr-
ill er væntanlegur til Reykja-
vikur í dag a$ vestan og norð-
an. Ármann fór frá Reykjavík í
gærkvöld til Vestmannaeyja.
Oddur var á Akureyri síðdegis
í gær.
Flugferbir
dag. Spiluð verður Framsókn-
arvist, erindi flutt, og dansað.
Byrjar stundvíslega kl. 8,30.
Skemmtinefndin.
Manntal á Islandi 1816.
2. hefti er komið út og nær
það yfir vestur hluta Skafta-
fellssýlu, Rangárvallasýslu alla
og neðanverða Árnessýslu. 1.
heftið kom út 1947 og nær yfir (
Múlasýslur og Skaftafellssýslu.
Alls verða heftin að öllum lík-
j indum sex. Ættfræðingafélag-
ið gefur ritið út.
Laugarneskirkja.
Föstuguðsþjónusta í kvöld kl.
8.30, séra Garðar Svavarsson.
Breikkun Mjölnisholts.
Á síðasta fundi bæjarráðs var
lagt fram bréf frá samvinnu-
nefnd um skipulagsmál, dags.
7. þ. m„ með tillögu um að
Mjclnisholt verði gert 15 metra
breitt. Eæjarráð samþykkti til-
löguna fyrir sitt leyti.
Fegrun Tjarnarinnar.
Á fundi bæjarráðs nýlega var
skýrt frá því, að Húsameistara-
félag Islands hafi tilnefnt Bárð
ísleifsson og Sigmund Halldórs-
son og Verkfræðingafélag tsl.
hafi tilnefnt Gústaf E. Pálsson
í dómnefnd í samkeppni um
fegrun tjarnarinnar.
Félag pípulagningameistara.
hélt aðalfund sinn síðastliðinn
sunnudag, og voru kosnir í
stjórn félagsins Grímur Bjarna
son, formaður, Jóhann Páls-
son, ritari, Haraldur Salómons-
son gjaldkeri, og meðstjórnend-
ur Jóhann Valdemarsson og
Runólfur Jónsson.
Handknattieiksmeistaramót
islands.
heldur áfram í kvöld kl. 8 í
íþróttahúsi Í.B.R. að Háloga-
landi. Fyrst keppa l.R. og Aft-
urelding og strax á eftir Fram
og Valur.
Leikirnir í kvöld eru mjög
spennandi. Í.R. og Afturelding
hafa tapað sinum leikjum hing
að til og það* félag, sem tapar
í kvöld, mun að öllum likind-
um falla niður í B-deild.
íslandsmeistararnir Fram
keppa við Val og verður það
fi tföHtum tieyi:
vafalaust mjög fjörugur leikur.
Síðast þegar þessi félög kepptu,
skildu þau jöfn. Fram þarf að
vinna Val, til þess að hafa
möguleika á að halda titlinum.
Vinni Valur í kvöld, þá nægir
þeim jafntefli á inóti Ármanni
í úrslitaleiknum þ. 23. þ. m.
Ferðir verða frá Ferðaskrif-
stofunni.
Leikstaðan er nú sem hér
segir:
L u j t Mörk St
Ármann 4 4 0 0 76:47 8
Valur 3 3 0 0 46:24 6
Fram 3 2 0 1 50:31 4
Víkingur 3 1 0 2 34:46 2
1. R. 3 0 0 3 25:51 0
Aftureld. 4 0 0 4 42:74 0
Flugfélag Islands:
Innanlandsflug: í dag er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar,
Vestmannaeyja og Hellissands.
Á morgun eru áætlaðar flug-
ferðir til Akureyrar, Vestmanna
eyja og Sauðárkróks.
Millilandaflug: Gullfaxi er
væntanlegur til Reykjavíkur um
kl. 18.00 í dag frá Prestwick og
Kaupmannahöfn.
Loftleiðir:
1 dag er áætlað að fljúga til:
Vestmannaeyja, ísafjarðar, Ak-
ureyrar, Patreksfjarðar og
Hólmavíkur.
Á morgun er áætlað að fljúga
til': Vestmannaeyja og Akur-
eyrar.
Árnað heilla
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í
Laugarneskirkju af séra Garðari
Svavarssyni, ungfrú Ólöf Krist-
jánsdóttir og Jónas Sigurðsson
bifreiðarstjóri. Heimili þeirra er
að Hrísateig 3.
f +r
Ur ým^im áttum
Húnvetningafélagið
heldur skemmtisamkomu í
Tjarnar-café á morgun fimmtu
..\eí sjáðiu jiarna sit
nr aimaa^.
Leikurinn „Pétur mikli“ fékk
dálítið óvæntan og breyttan
endi í leikhúsinu í Álaborg á
dögunum. Lítill sonur eins
leikarans leikur barn í leik-
ritinu, son Balthers Svane-
mose. í síðasta þætti situr
hann á hnjám föður sína í
áhrifamiklu leiííatrið'i. Litli
snáðinn hafði staðið sig vel,
en allt í einu varð honum
litið fram í salinn og sá þar
meðal áhorfenda ömmu sína
og frænku. Þá féll sá litli al
veg út úr hlutverkinu, benti
á þær og sagði: „Nei sjáðu,
þarna sitja þær amma og
frænka". Áhorfendur ráku
upp skellihlátur þrátt fyrir
sorgarleilc á sviðinu, og draga
varð tjaldið fyrir. Hin áhrifa
miklu endalok lekisins urðu
með nokkrum öðrum hætti
en höfundurinn mun hafa
ætlazt til.
Aaglýsingasíml
81300
Tímans
Manntal á íslandi 1816
2. hefti er nú komið út á vegum Ættfræðifélagsins og
nær yfir vestasta hluta Vestur-Skaftafellssýslu, Rang-
árvallasýslu alla og austurhluta Árnessýslu (frá Dyr-
hólasókn — Ólafsvallasóknar).
Félagsmenn Ættfræðifélagsins og aðrir eru beðnir
að vitja heftisins í Prentsmiðjuna Hóla, Þingholts-
stræti 27, eða panta það þar.
1. hefti manntalsins, sem nær yfir Múlasýslur báðar
ar og Skaftafellssýslur, fæst einnig á sama stað. Hvort
hefti um sig er 10 arkir að stærð (samt. 320 bls.).
Stjórn Ættfræðifélagsins.
Stríðsgróðaskatf ur ?
Útlendur maður hafði fyrir nokkru orð á því við mig,
að sér kæmi kynlega fyr!r sjónir, að í skattskránni
íslenzku væri fjöldi manna skráður með stríðsgróða-
skatt, þar á meðal jafnvel margir helztu embættis-
menn þjóðarinnar, svo sem biskup nn yfir íslandi, guð-
fræð.prófessor, hæstaréttardómari, dómkirkjuprestur-
inn í Reykjavík og kirkjumálaráðherrann. í sinu heima
landi sagði maður þess’, að stríðsgróði hefði verið met-
inn t-1 alvarlegrar sakar, er varðaði fjárupptöku, og
þess vegna léti nafn'ð illa í eyrum sínum, og hefðu
þó í sumum öðrum löndum refsingar jafnvel verið
enn þyngri.
★ ★ ★
Þetta sagði maður þessi, og satt er það, að broslegt
er að sjá enn í skattskrá stríðsgróðaskatt lagðan á
menn, sem engar tekjur munu hafa nema laun sín.
Það hefði kannske mátt segja, að prestar til dæmis
hefðu á hernámsárunum notið stríðsgróða, meðan hér
var venju fremur mikið um giftingar og barnaskírnir.
En nú er það úr sögunni. En hver striðsgróði hæstarétt
ardómaranna hefir verið, er me'ri vandi að sjá.
★ ★ ★
En sleppum því. H tt virðist liggja í augum uppi, að
hin seinni ár hafi verið um að ræða skatt af friðar-
gróða fremur en stríðsgróða, þótt skattaukinn hafi hald
ið áfram að bera sitt gamla nafn. En óviðkunnan-
lega lætur nafnið samt orðið í eyrum. Það fer alltaf
bezt á þvi, að hvaðe'na beri það nafn, er eitthvað hefir •
við að styðjast en það er út í bláinn að nefna þennan
ska+tauka stríðsgróðaskatt.
J. H.
Fáum næstu daga
Rafmagnsperur
220 og 110 volta, ýmsar gerð-
ir, skrúfaðar og stungnar.
Sendum gegn póstkröfu
Véla- og raftækjaverzlunin
Tryggavgötu 23. Sími 81279
Gerlst áskrlfendnr að
Zjímanum
Áskriftarsími 2323
Búnaðarfélag
Digranessháls
heldur aðalfund í barnaskól-
anum í Kópavogi, sunnudag-
inn 15. febr. kl. 20,30. Venju-
leg aðalfundarstörf og ýmsar
mikilsverðar ákvarðanir tekn
ar. — Tekið á móti áburðar-
pöntunum. ,
Stjórnin.