Tíminn - 21.02.1951, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, miðvikudaginn 21. febrúar 1951.
43. blað.
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,20 Kvöldvaka: a) Föstu-
messa í Hallgrímskirkju (séra
Jakob Jónsson). b) 21,30 Einar
M. Jónsson flytur erindi: Frá
Höfn til Dala. 22,00 Fréttir og
veðurfregnir. — 22,10 Passíu-
sálmur nr. 27. 22,20 Danslög
(plöturý. — 22,45 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Ms. Arnarfell er væntanlegt
til Reykjavíkur n. k. föstudags-
kvöld eða laugardagsmorgun frá
Malaga. Ms. Hvassafell átti að
fara 20. þ. m. frá Cadiz.
Ríkisskip:
Hekla var á Húsavík síðdegis
í gær á norðurleið. Esja fer frá
Reykjavík í kvöld vestur um
land til Akureyrar. Herðubreið
er í Reykjavík. Skjaldbreið er
í Reykjavík. Þyrill er á Vest-
fjörðum. Oddur fór frá Reykja-
vík í gær til Breiðafjarðarhafna.
Samtals 242 lendingar. Með
millilandaflugvélunum fóru og
komu til Reykjavíkur 140 far-
þegar, 3142 kg. farangur, 4450
kg. af vöruflutningi og 1494 kg.
póstur.
Með far þegaflugvélum í inn-
farþegar, 20290 kg. farangur,
anlandsflugi fóru og komu, 1556
49710 kg. af vöruflutningi og
12192 kg. af pósti.
Erlendar flugvéiar, sem hér
höfðu viðkomu, voru frá danska
flughernum, Beechraftflugvél
frá Indamer Corperation í
Bandarikjunum og Constellatior;
flugvél frá Military Air Tran-
sport Serwice, er flutti Eisen-
hower hershöfðingja.
Iðnnemasamband fslands.
Fundur í málfundadeild Iðn-
nemasambands íslands, verður
haldinn að Hverfisgötu 21, í
kvöld, miðvikudag, kl. 9,00 e. h.
Iðnnemar fjölmennið. — Stjórn
Fulltrúaráðs iðnnemafélaganna.
Kvenstúdentafélag íslands
heldur skemmtifund i Ham-
arshúsinu næstkomandi föstu-
dagskvöld, og hefst samkoman
klukkan hálf-níu.
B/öð og tímarLt
Rangárvallasýslu. Bendir það á
frjálslyndi hjá nemendum Verzl
unarskólans að birta slíka rit-
gerð, því flestir gera ráð fyrir
að kaupmannasjónarmið hljóti
yfirleitt að ríkja í Verzlunar-
skólanum. Grein Sig. Har. end-
ar þannig: „Þó að einn lyfti
ekki steininum úr götu sinni,
myndi tíu takast það. Þau sann
indi mega aldrei gleymast, að
með sameinuðu átaki er oft
hægt að vinna þrekvirki. í
samvinnufélagsskapnum geta
þeir sameinazt, sem með sam-
takamætti sínum einum fá ein-
hverju áorkað“.
Árnað heilla
Hjónaband.
í dag verða gefin saman í
hjónaband ungfrú Ingigerður
Karlsdóttir og Hjalti Fálsson,
Sóleyjargötu 7.
Hagleysi á
Hólsfjöilum
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Reykjavík
19. 2. til Hull og Kaupmanna-
hafnar. Dettifoss er á Akureyri.
Fjallfoss fór frá Kristiansand
19. 2. til Rotterdam, Antverpen,
Hull og Reykjavíkur. Goðafoss
fer vænta'nlega frá Reykjavík í
kvöld 20. 2. til Rotterdam. Lag-
arfoss fer væntanlega frá Rott-
erdam 20. 2. til Leith og Rvíkur.
Selfoss kom til Leith 17. 2., fer
þaðan til Djúpavogs. Tröllafoss
fór frá New York 11. 2. til Rvík-
ur. Auðumla kom til Reykjavík-
ur 18. 2. frá Hull. Foldin kom til
Reykjavíkur 19. 2. frá Rotter-
dam.
Messur í daq
Hallgrímskirkja.
Föstumessa í kvöld klukkan
8,15, séra Jakob Jónsson.
Laugarneskirkja.
Föstumessa í kvöld kl. 8,30,
séra Garðar Svavarsson.
Úr ýmsum áttum
Ungrnennafélag Reykjavíkur
hefir farið þess á leit við bæj-
arráð, að félagið fái sömu að-
stöðu við hátíðahöldin 17. júní
og önnur íþróttafélög bæjarins.
Aðalfundur
Félags flugvallastarfsmanna
ríkisins var haldinn 16. febrúar
s. 1. Fór fram stjórnarkosning
og hlutu eftirtaldir menn kosn-
ingu:
Arnór Hjálmarsson, formaður;
Björn Jónsson, varaformaður;
Friðrik Diego, ritari; Margrét
Jóhannsdóttir, bréfritari og
Gústaf Sigvaldason, gjaldkeri.
Varamenn: Sigurður Jónsson
og Guðmundur Guðmundsson.
Afli í Þorlákshöfn
er heldur tregur þessa daga.
Bátar hafa róið alla daga, einnig
í gær, en þá mun afli þeirra
hafa verið innan við fjórar lest-
ir á bát.
Þjóðleikhúsið
sýnir „Flekkaðar hendur" í
kvöld.
Fréttatilkynning frá
flugvallastjóra.
í janúarmánuði var umferð
um Reykjavíkurflugvöll, sem
hér segir: Millilandaflugvélar
7 lendingar. Farþegaflugvélar
innanlandsfi. 149 lendingar.
Einka- og kennsluflugvélar 85
lendingar.
Verzlunarskólablaðið.
Málfundafélag Verzlunar-
skóla íslands gefur jafnan út
myndarlegt blað árlega. Og er
það nýkomið út í þetta sinn og
er það 18. árg. Þórir Gröndal er
ritstjóri blaðsins. Blað þetta er
stórt og myndarlegt, prýtt fjölda
mynda. Flytur það margvísleg-
efni og þar á meðal ýmsar rit-
gerðir. Vekur það vafalaust at-
hygli margra samvinnumanna,
að á meðal ritgerðanna er ein
prýðileg grein um samvinnu-
mál, eftir einn nemanda skól-
ans, Sigurð Haraldsson, úr
Frá fréttaritara Tímans
á Hólsfjöllum
Haglaust er nú með öllu fyr
ir sauðfé á Fjöllunum og hef-
ir svo verið síðan í janúar,
en framan af þeim mánuði
voru nokkur snöp. Gerði frost
leysur og versnaði snjólagið
stórlega við það.
Vestur á Mývatnsöræfum
eru enn hagar, því að þar
tekur jafnan seint fyrir björg,
og ganga hestar þar enn.
/t ftcrnum Cecfi:
Eínlembur - tvílembur
Ég hefi verið beðinn að koma á framfæri því, sem
nú fer á eftir:
í síðasta tölublaði Freys eru birt svör frá nokkrum
mönnum við þeirri spurningu, hvort betra sé fyrir fjár-
eigandann, að ærnar séu einlembdar eða tvílembdar.
Fylgja flestum svörunum útreikningar, sem niðurstað-
an byggist á. Þar sem líklegt er, að fleiri en þeim, er
Frey lesa, þyki fróðlegt að kynnast svörunum, birtist
því hér úr þeim nokkur atriði.
★ ★ ★
Fyrsta svarið er frá Guðmundi Jónssyni. Hann ætl-
ar, að tvílemban gefi 115 krónum meiri arð en ein-
lemba, og telur hann hreinan arð eftir einlembu, mið-
að við vorið 1950, ekki nema þrjár krónur. — Eggert
Ólafsson reiknar dæmið ekki í krónum og aurum, en
kemst að þeirri niðurstöðu, að arður af tvílembunum
sé stórum meiri en einlembunum. — Ingimundur Ingi-
mundarson telur nær 144—180 krónur tvílembunum í
vil. — Sigurður Loftsson telur muninn hins vegar ekki
nema 15—24 krónur. •— Fimmti maðurinn, Jón P. Buch,
kemst einnig að þeirri niðurstöðu, að arðurinn af tví-
lembunum sé stórum meiri.
★ ★ ★
Það virðist því vera nokkurn veginn samhljóða álit
þessara manna, að það sé stórum arðvænlegra, að ærn-
ar séu tvílembdar, enda þótt tekin séu með í reikning-
inn allir þeir agnúar, sem á þvferu, svo sem aukin fóð-
urþörf, og lakari ending ánna, og sumir kveða svo að
orði, að arðurinn af búskapnum geti beinlínis oltið á
því, hversu margt ánna sé tvílembt og hversu mörg
lömb fáist umfram tölu ánna.
★ ★ ★
Það virðist þess vegna samhljóða álit þessara manna,
að því beri að stefna, að sem flest af ám sé tvílembt.
Að þeirri niðurstöðu fenginni virðist það ekki lítið at-
riði, að tilraunir á vísindalegum grundvelli yrðu gerð-
ar um það, hvaða ráð sé tiltækt til þess að stuðla að því,
að sem flestar ærnar verði tvílembdar. Ættareiginleik-
ar ráða þar miklu, en meðferð er einnig tvímælalaust
stórt atriði í þessu máli. Þá er spurningin: Hvernig
ber að haga meðferð fóðrun á ám, ef menn vilja stuðla
að því, að þær verði tvilembdar? J. H.
Vegna skilaskýrslu i!
sem birtazt á í blaðinu 1. marz n.k., er nauðsynlegt að {'
allir þeir innheimtumenn blaðsins, sem eigi hafa gert < i
full skil, sendi innheimtunni skil fyrir mánaðamót. — {'
Kappkostið að senda lokaskil fyrir þann tíma. <»
o
Kappkostið að vera með 100% í næstu skýrslu. {(
o
Innheímta Tímans !!
H
Hangikjöt
I- Það bezta fáanlega -
::
selur
Samhand ísl.samvínnufélaga ji
Hjartanlega þakka ég börnum mínum og öðrum
vinum mínum fyrir góðar gjafir, heimsóknir og heilla-
skeyti á 60 ára afmæli mínu þann 11. febrúar s. 1.
Sigurdór Stefánsson, Akuregrði
Þökkum hjartanlega auffsýnda samúð við andlát og
jarðarför konunnar minnar og móður okkar
HELGU ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Hoftúnum
Guð blessi ykkur öll.
Bragi Jónsson Gunnlaugur Bragasen
Ragnar Bragason Svala Bragadóttir
AUGLYSEVGASIMI T I xM A IV S £R 8130«